32026R0909

Commission Regulation (EU) 2026/909 of 27 April 2026 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use of Benzyl Salicylate, Triphenyl Phosphate, Ammonium Silver Zinc Aluminium Silicate, Aluminium, water-soluble zinc salts, Acetylated Vetiver Oil, Citral, HC Blue No 18, HC Red No 18, HC Yellow No 16, Hydroxypropyl-p-phenylenediamine and its dihydrochloride salt, and DHHB in cosmetic products


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/909 frá 27. apríl 2026 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á bensýlsalisýlati, trífenýlfosfati, ammóníumsilfursinkálsílíkati, áli, vatnsleysanlegum sinksöltum, asetýlaðri olíugrasolíu, sítrali, HC Blue nr. 18, HC Red nr. 18, HC Yellow nr. 16, hýdroxýprópýl-p-fenýlendíamíni og díhýdróklóríðsöltum þess og DHHB í snyrtivörur
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 205/2026
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingar fela í sér að uppfæra skrár í uppfæra skrár í II., III., V og VI. viðaukum við reglugerðina.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingarnar fela í sér að : Silfursinkseólít (Silver zink zeolite, CAS 130328-20-0) er bætt við skrá í II. viðauka um efni sem eru ekki leyfileg til notkunar í snyrtivöru. Einnig er bætt við að undanskilið sé silfursinkseólít með þeim skilyrðum sem tekin verða fram í viðauka V. þar sem silfursinkseólít er einnig bætt við í þessari reglugerð. Trífenýl fosfat (Triphenyl phosphate, CAS 115-86-6) er bætt við skrá í II. viðauka um efni sem eru ekki leyfileg til notkunar í snyrtivöru vegna þess að ekki tókst að útiloka möguleg eiturhrif á æxlun.Skrá í III. viðauka um efni sem eru leyfileg til notkunar í snyrtivörum nema háð takmörkunum er uppfærð á þann hátt að þrem færslum er skipt út og 6 færslum bætt við eins og kemur fram hér:Færslu 24 í III. viðauka þar sem skráð eru vatnsleysanleg sink sölt var skipt út og söltum bætt við ásamt CAS númerum. Einnig var bætt við hámarksstyrk salta í tannkremum, 1% (sem sink) í tannkremum fyrir notendur eldri en 1 árs, og 0,72% (sem sink) fyrir börn frá 6 mánaða aldri til 1 árs og hámarksstyrk í munnskoli fyrir notendur eldri en 6 ára.Færslu 70 í III. viðauka þar sem efnið 3,7-Dímetýl-2,6 oktadíen (3,7-Dimethyl-2,6 octadienal, CAS 5392-40-5) og skyldum efnum sem eru þekkt undir nafninu Citral, er skipt út og kemur fram að þegar styrkur þess er hærri en 0,01% í vörum sem skolast af og 0,001% í öðrum vörum skal efnið vera nefnt á lista yfir innihaldsefni. Einnig er tilgreindur hámarksstyrkur efnis í mismunandi vöruflokkum.Færslu 75 í III. viðauka er skipt út og kemur fram að Bensílsalísýlat (Benzyl Salicylate, CAS- 118-58-1) skal koma fram á lista yfir innihaldsefni þegar styrkur þess er hærri en 0,01% í vörum sem skolast af og 0,001% í öðrum vörum.  Einnig er tilgreindur hámarksstyrkur efnis í mismunandi vöruflokkum.Innihaldsefni sem innihalda ál er bætt við skrá í III. viðauka þar sem hámarksstyrkur áls fyrir mismunandi vöruflokka er tekinn fram. Fyrir Talk púður sem inniheldur ál er skylt að hafa varnaðarorðin: Haldið púðri frá nefi og munni barna“.  Fyrir líkamskrem er  tekið fram að ekki skuli nota innihaldsefni sem innihalda ál í sólarvörnum sem geta útsett lungu notanda með innöndun. Vetiveria zizanoids, extract acytylated, oils vetiver activated er bætt við skrá í III. viðauka þar sem hámarkstyrkur fyrir mismunandi vöruflokka er tilgreindur.Færslum fyrir Hárlitunarefni HC Blue No. 18, hárlitunar efnið 3-(2,5-diaminophenyl)propan-1-ol and 3-(2,5- diaminophenyl propan-1-ol dihydrochloride salt), hárlitunar efni HC Yellow No. 16 og hárlitunar efni HC Red No. 18 er bætt við skrá í III. viðauka þar sem kemur fram að skylt er að hafa varnaðarorð fyrir hárlitunarefni á merkingum varanna.Efninu Silfursinkseólít (CAS-130328-20-0) er bætt við skrá í V. viðauka um leyfileg rotvarnarefni þar sem tekið er fram að silfur innihald í silfursinkseólít megi ekki vera hærra en 2,5% og hámarksstyrkur efnis er takmarkaður við 1% í vöru sem er tilbúin til notkunar. Færslu með efninu Benzoic acid 2- (4 diethylamino) – 2- hydroxybenzoyl) – hexyl ester (CAS 302776-68-7) í VI. viðauka er skipt út þar sem kemur fram að hámarksstyrkur efnis sé 10% í vöru sem er tilbúin til notkunar og einnig að hámarksstyrkur snefilefna óhreinindanna Di-n-hexyl pthalate, sem ekki er hægt að komast hjá megi ekki fara yfir 10 ppm.    Hæfilegur tími skal gefinn snyrtivöruiðnaði til að aðlagast breyttum skilyrðum. Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. Tölul. 1.mgr. 11 gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0909
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/909, 28.4.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D110957/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 73, 19.11.2026, p. 28
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/2460, 19.11.2026

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1

Breytir (Modifies)

32009R1223 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi