MSR/ETS2: tillaga að breyting á ákvörðun (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikavarasjóð - 32026D2402

Decision (EU) 2026/2402 of the European Parliament and of the Council of 21 October 2026 amending Decision (EU) 2015/1814 as regards the market stability reserve for buildings, road transport and additional sectors


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðin er tillaga að ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins sem breytir ákvörðun (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikavarasjóð (market stability reserve, MSR) vegna viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir fyrir byggingar, vegasamgöngur og viðbótargeira (ETS2).

Markmið breytinganna er að bæta virkni MSR fyrir ETS2, auka fyrirsjáanleika og draga úr líkum á miklum sveiflum eða óhóflegum hækkunum á verði ETS2-heimilda við upphaf markaðarins.

Helstu breytingar eru: (i) fella brott ákvæði um að heimildir sem ekki eru losaðar úr MSR fyrir 31.12.2030 falli úr gildi, (ii) breyta útreikningi á heildarfjölda heimilda í umferð (e. total number of allowances in circulation, TNAC) og bæta við stigvaxandi losun úr MSR þegar TNAC er á bilinu 210–260 milljón heimildir, og (iii) bæta 20 milljónum heimilda við losun úr MSR þegar virkjuð er verðsveifluvörn skv. 2. mgr. 30. gr. h. í tilskipun 2003/87/EB (ETS tilskipun).

Nánari efnisumfjöllun

1. Lagagrundvöllur og markmið tillögunnar:- Lagastoð: 1. mgr. 192.gr. Sáttmálans um starfshætti ESB (TFEU).- Breytir: Tillagan breytir ákvörðun (ESB) 2015/1814 (MSR) að því er varðar ETS2.- Tengd löggjöf: tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipunin) og breytingar sem gerðar hafa verið á henni, m.a. með tilskipun (ESB) 2023/959 sem setti upp MSR fyrir ETS2.- Tilefni: uppfært mat á verði og sveiflum ETS2-markaðarins og þörf á fyrirsjáanleika þegar kerfi ETS2 hefst. 2. Helstu efnisbreytingar (samkvæmt 1. gr. tillögunnar)1) Gildistími heimilda í MSR eftir 2030- Annari setningu 3. mgr. 1. gr. a. í ákvörðun ESB 2015/1814 er eytt. Í setningunni kom fram að  heimildir sem ekki höfðu verið losaðar úr MSR fyrir 31.12.2030 féllu úr gildi.- Markmið: auka langtímafyrirsjáanleika og trúverðugleika inngripsgetu MSR. 2) Skýrari skilgreining/útreikningur TNAC- Breyting á 4. mgr. 1. gr. a: TNAC skilgreint sem útgefnar heimildir að frádregnum staðfestum losunum (og niðurfelldum heimildum) á tímabilinu 1. janúar [2027] til 31. desember viðkomandi árs. 3) Bætt við ákvæði fyrir stigvaxandi losun heimilda úr MSR við lágt TNAC- Nýrri undirgrein bætt við 5. mgr. 1. gr. a í ákvörðun ESB 2015/1814: Þar kemur nú fram að ef TNAC er milli 210 og 260 milljón heimilda losnar viðbótarmagn úr MSR.Þetta er reiknað út á eftirfarandi hátt samkvæmt ákvæðinu: 100 milljón heimildir mínus 2x (TNAC - 210 milljón). Viðbótarmagnið bætist við magn heimilda sem boðnar eru upp á uppboðum af hálfu aðildarríkja ESB skv. 2. mgr. 10. gr. ETS-tilskipunarinnar frá 1. september á viðkomandi ári.- Markmið: draga úr „þröskuldaáhrifum“ (e. threshold effect) og minnka sveiflur þegar TNAC er nálægt neðri mörkum. 4) Styrking verðsveifluvarnar (e. excessive price control)- Í 7. mgr. 1. gr. a í ákvörðun EBS 2015/1814 er nýrri setningu bætt við, í henni kemur fram að  þegar heimildir losna úr MSR skv. 2. mgr. 30. gr. h í ETS-tilskipuninni skulu 20 milljón heimildir bætast við það magn sem á að losa úr sjóðnum.- Markmið: auka viðbrag og stuðla að meiri fyrirsjáanleika ef kolefnisverð hækkar umfram viðmið. 3. Gildistaka- Verði tillagan samþykkt mun ákvörðunin taka  gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum ESB. 4. Athugasemd um stöðu- Um er að ræða tillögu framkvæmdastjórnar (COM(2025) 738 final; 2025/0380 (COD)). 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Tillagan sem hér er til greiningar breytir ákvörðun ESB 2015/1814, sú ákvörðun hefur verið innleidd á Íslandi með reglugerð nr. 525/2013, sem sett var af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Almenna lagastoð er að finna í 19. gr. laga nr. 96/2023, en markaðsstöðugleikasjóður er þó hvergi sérstaklega tilgreindur í ákvæðinu. Þá kemur hvergi fram í lögunum vísun í reglugerð nr. 525/2013.
Hvað varðar markaðsstöðugleikasjóð í tengslum við ETS 2, þá var hann settur upp með tilskipun ESB 2023/959, sem m.a. breytti ákvörðun ESB 2015/1814. Þá ber að hafa í huga að tillagan varðar markaðsstöðugleikasjóðinn í tengslum við ETS 2, ETS 2 kerfið hefur ekki verið innleitt á Íslandi, því er ekki lagastoð fyrir hendi hvað það varðar.

Þá bendir UOS á að ákvörðun ESB 2018/1814 hefur áður verið breytt með tilskipunum ESB 2018/410 og 2023/959 og ákvörðun ESB 2023/852. Þær gerðir hafa verið teknar upp í EES samninginn en virðast þó ekki hafa verið sérstaklega innleiddar í reglugerð nr. 525/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti., Fjármála- og efnahagsráðuneyti / Skatturinn (tengsl við gjaldtöku/uppboðstekjur og framkvæmd)., Samgöngustofa (veg- og samgöngugeirinn)., Orkustofnun., Eldsneytissalar/innflytjendur (t.d. N1, Olís, Orkan, Atlantsolía) og hagsmunasamtök þeirra., Samtök iðnaðarins og aðrir atvinnulífshagsmunaaðilar., Neytendasamtök (vegna áhrifa á eldsneytisverð og húsnæðiskostnað)., Sveitarfélög (bygginga- og samgöngutengd verkefni/aðgerðir).

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Áætlað er að breytingarnar leiði ekki til aukins beins rekstrarkostnaðar hjá hinu opinbera umfram það sem fellur til við innleiðingu og framkvæmd ETS2 almennt. Verkefni felast einkum í lagalegri yfirferð og samhæfingu við EES-ferli og framkvæmd uppboða.
Fyrirsjáanlegur kostnaður er talinn falla innan fjárhagsáætlunar.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Breytingarnar hafa fyrst og fremst áhrif á framboð og verðþróun ETS2-heimilda á markaði og þar með á kostnað þeirra aðila sem falla undir ETS2 (t.d. eldsneytissalar) og óbeint á heimili og fyrirtæki.

Sérstakir hagsmunir Íslands:
- Fyrirsjáanleiki og stöðugleiki: Breytingarnar eru ætlaðar til að draga úr sveiflum og minnka líkur á miklum upphafshækkunum á kolefnisverði, sem er mikilvægt fyrir íslenskan markað þar sem eldsneyti og upphitun geta haft veruleg áhrif á verðlag og samkeppnishæfni.
- Langtímaáhrif: Með því að heimildir í MSR haldi gildi eftir 2030 eykst trúverðugleiki inngripsgetu MSR sem getur dregið úr óvissu um langtímaverðmæti ETS2.
- Uppboðstekjur: Breytt framboð og betri lausafjárstaða getur haft áhrif á uppboðstekjur. Áhrif á tekjur Íslands ráðast af endanlegri útfærslu þátttöku EES/EFTA-ríkja í ETS2-uppboðum.
- Stjórnsýsla: Engar nýjar meginreglur um skráningu/eftirlit, en fylgjast þarf með því að uppboðsmagn og framkvæmd hérlendis samrýmist sameiginlegum reglum ETS2 og EES-aðlögunum.

Þörf á aðlögun fyrir Ísland (EES):
- Meta þarf samræmi tímamarka (t.d. „[2027]“ og hugsanleg frestun ETS 2) við upptölu í EES samninginn.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026D2402
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/2402, 28.10.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2025) 738
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Leggur til breytingar á (Proposes to amend)

32015D1814 Decision (EU) 2015/1814 of the European Parliament and of the Council of 6 October 2015 concerning the establishment and operation of a market stability reserve for the Union greenhouse gas emission trading scheme and amending Directive 2003/87/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32015D1814 proposes to amend Decision (EU) 2015/1814 of the European Parliament and of the Council of 6 October 2015 concerning the establishment and operation of a market stability reserve for the Union greenhouse gas emission trading scheme and amending Directive 2003/87/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E192 based on