32026R1120
Commission Regulation (EU) 2026/1120 of 26 May 2026 amending Annex III to Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council by adding twelve co-formulants which are not accepted for inclusion in plant protection products
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1120 frá 26. maí 2026 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 með því að bæta við tólf meðefnum sem eru ekki samþykkt til að nota í plöntuverndarvörur
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 260/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er III. viðauka í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 breytt með því að bæta við 12 meðefnum sem eru óviðunandi sem innihaldsefni í plöntuverndarvörum og hjálparefnum.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Meðefnum er lýst í 2. gr. (3c) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 sem efnum eða efnablöndum, sem eru notaðar eða ætlaðar til notkunar í plöntuverndarvöru eða hjálparefni en eru ekki virk efni, eiturdeyfar eða samverkandi efni. Samanber 27. gr. (1) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 eru meðefni óviðunandi í plöntuverndarvörum ef leifar þeirra hafa skaðleg áhrif á heilsu manna, dýra eða umhverfið. Slík óviðunandi meðefni eru listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009.Samanber 27.gr. (3) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 getur framkvæmdastjórnin endurskoðað meðefni hvenær sem er og tekið tillit til viðeigandi upplýsinga sem aðildarríkin veita. Einkum getur hún tekið tillit til tilkynninga sem aðildarríkin veita í samræmi við reglur um auðkenningu óviðunandi meðefna sem settar eru fram í framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2023/574.Samanber 3. og 4. gr. framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2023/574 hafa aðildarríkin tilkynnt um 12 ný efni sem eru talin óviðunandi til notkunar sem meðefni í plöntuverndarvörum með markaðsleyfi á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 1107/2009, vegna þess að þau uppfylla að minnsta kosti eitt af viðmiðunum sem sett eru fram í viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/574.Því er rétt að breyta III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 á þann hátt að bæta við meðefnunum 12 sem aðildarríkin hafa tilkynnt um sem óviðunandi til notkunar í plöntuverndarvörur eða hjálparefni.Meðefni sem eru listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 geta líka verið í hjálparefnum sem sett eru á markað. Þar sem ítarlegar reglur um leyfisveitingu hjálparefna hafa ekki enn verið settar geta aðildarríkin haldið áfram að beita landsbundnum ákvæðum varðandi hjálparefni í samræmi við 81. gr. (3) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Þar sem markmið nýju reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir að hjálparefni sem innihalda bönnuð meðefni séu sett á markað eða notuð, er nauðsynlegt að tryggja að hjálparefni sem á að blanda saman við plöntuverndarvörur innihaldi ekki efni sem skilgreind eru sem óviðunandi meðefni.Aðildarríki skulu innan tveggja ára frá gildistöku reglugerðarinnar endurskoða leyfi plöntuverndarvara og hjálparefna á yfirráðasvæðum þeirra, meta hvort þau innihaldi einhver meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 og afturkalla eða breyta leyfum fyrir plöntuverndarvörum og hjálparefnum sem innihalda þessi meðefni.Til að gera aðildarríkjum kleift á skipulegan hátt að hætta notkun plöntuverndarvara og hjálparefna, sem innihalda meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 og lágmarka hugsanlega röskun gagnvart notendum og á aðfangakeðjum, geta aðildarríkin veitt frest, eftir því sem við á, í samræmi við fyrstu málsgrein 46. gr. reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 eða, eftir því sem við á, samkvæmt landsbundnum ákvæðum um leyfisveitingu hjálparefna. Þessir frestir skulu vera eins stuttir og mögulegt. Eftir að leyfi hefur verið breytt eða dregið til baka skal frestur fyrir sölu og dreifingu ekki vera lengri en 3 mánuðir og fyrir förgun, geymslu og notkun ekki vera lengri en 12 mánuðir.Meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 geta verið hluti af öðrum meðefnum í formi óviljandi óhreininda og eru í slíkum tilfellum ásættanleg til notkunar í plöntuverndarvörum og hjálparefnum. Þess vegna þarf styrkur hvers og eins af óásættanlegu meðefnunum í plöntuverndarvöru eða hjálparefni að vera undir 0,1% massahlutfalls eða undir sértækum styrkleikamörkum í tengslum við CMR-eiginleika (eiginleikar sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun) þegar þau eru sett fram í VI. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, til þess að geta talist vera óviljandi óhreinindi, nema önnur mörk séu gefin vegna tæknilegra takmarkana á viðeigandi greiningaraðferðum.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Endurskoðun á markaðsleyfum og tímabundnum skráningum fyrir allar plöntuverndarvörur á markaði hér á landi felur í sér auka vinnu fyrir sérfræðing Umhverfis- og orkustofnunar, sem leiðir af sér aukakostnað, sem mun falla á Umhverfis- og orkustofnun. Komi til þess að afgreiða þurfi ný markaðsleyfi til að anna eftirspurn, mun afgreiðsla leyfisins fela í sér auka vinnu fyrir sérfræðing Umhverfis- og orkustofnunar, en kostnaður vegna útgáfu markaðsleyfis mundi falla á umsækjanda. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Innleiðing reglugerðarinnar mun hafa þau áhrif að endurskoða þarf markaðsleyfi og tímabundnar skráningar allra plöntuverndarvara á markaði hér á landi á þann hátt að skoða þarf hvort vörurnar innihaldi óviðunandi meðefnin sem með reglugerðinni bætast á lista yfir óviðunandi meðefni í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Ef endurskoðunin leiðir í ljós að plöntuverndarvara á markaði hér á landi, innihaldi eitthvað af hinum 12 nýju óviðunandi meðefnum, þarf að fella markaðsleyfi eða tímabundnu skráningu viðkomandi vöru úr gildi. Það að plöntuverndarvara hverfi af markaði getur haft þau áhrif að sækja þurfi um markaðsleyfi fyrir annarri vöru til sömu notkunar til að framboð af plöntuverndarvörum á markaði hér á landi verði í samræmi við eftirspurn. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R1120 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1120, 27.5.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D105865/05 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32009R1107 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32009R1107 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 frá 21. október 2009 um setningu plöntuverndarvara á markað og um niðurfellingu á tilskipunum ráðsins 79/117/EBE og 91/414/EBE Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
