Gerðin breytir reglugerð (ESB) 2021/632, sem hefur að geyma jákvæðan lista (positive list) yfir afurðir úr dýraríkinu sem sæta opinberu eftirliti á landamæraeftirlitsstöðvum í samræmi við reglugerð (ESB) 2017/625 (OCR). - 32026R0551

Commission Implementing Regulation (EU) 2026/551 of 13 March 2026 amending the Annex to Implementing Regulation (EU) 2021/632 as regards the lists of products of animal origin, animal by-products and composite products subject to official controls at border control posts


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/551 frá 13. mars 2026 um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/632 að því er varðar skrár yfir afurðir úr dýraríkinu, aukaafurðir úr dýrum og samsettar afurðir sem falla undir opinbert eftirlit á landamæraeftirlitsstöðvum.Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/551 frá 13. mars 2026 breytir viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/632 að því er varðar skrár yfir afurðir úr dýraríkinu, aukaafurðir dýra og samsettar vörur sem háðar eru opinberu eftirliti á landamærastöðvum. Markmið breytingarinnar er að uppfæra og skýra umfang eftirlits með þessum vöruflokkum við innflutning til Sambandsins, í samræmi við þróun í áhættumati og eftirlitsþörf. Breytingin hefur einkum þýðingu fyrir framkvæmd aðkomueftirlits þar sem hún getur falið í sér að fleiri eða aðrir vöruflokkar verði undir opinberu eftirliti, eða að skilgreiningar og flokkun verði aðlöguð. Reglugerðin styrkir þannig samræmda beitingu dýraheilbrigðis- og matvælaeftirlits á landamærastöðvum og stuðlar að auknu öryggi við innflutning á viðkvæmum vörum innan EES-rammans.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2026/551 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/632 að því er varðar tilteknar afurðir úr dýraríkinu, aukaafurðir úr dýrum og samsettar afurðir sem ekki eru nú þegar tilgreindar í skrá yfir afurðir sem sæta opinberu eftirliti á landamæraeftirlitsstöðvum. Fyrirsögnum og SN-númerum (CN-númerum) 1301, 2008 19, 2106 90 55, 2933, 3002 13, 3002 14, 3002 15, 3105 90, 3821, 3823 og 3824 er bætt við skrána í viðaukanum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/632 í því skyni að skýra hvaða vörusendingar falla undir opinbert eftirlit á landamæraeftirlitsstöðvum og koma þannig í veg fyrir tvíræðni. Með hliðsjón af umfangi þeirra breytinga sem gera þarf á viðaukanum þykir rétt, í þágu skýrleika og glöggvunar, að fella núgildandi viðauka brott og setja nýjan viðauka í hans stað. Afurðir sem falla undir opinbert eftirlit samkvæmt breytingunni eru eftirfarandi:1301 - Lac, náttúrulegt gúmmí, resín, gúmmíresín og óleóresín (t.d. balsam). Einungis litarefnaaukefni E904, þ.m.t. skellakk úr dýraríkinu, sem er notað í matvælaiðnaði.2008 19 Hnetur og önnur fræ, önnur en jarðhnetur, einnig blandað saman. Einungis ef þær innihalda afurðir úr dýraríkinu.2106 90 55 - Glúkósíróp og maltódextrínsíróp. Einungis ef þær innihalda afurðir úr dýraríkinu (t.d. freyðikrem).2933 - Heturhringuð efnasambönd eingöngu með köfnunarefnisheterófrum-eindum. Einungis einangruð peptíð úr dýraríkinu.3002 13 - Ónæmisfræðilegar vörur, óblandaðar, ekki í mældum skömmtum eða í formi eða umbúðum til smásölu. Einungis blóð úr dýraríkinu eða afurðir sem eru framleiddar úr blóði úr dýraríkinu.3002 14 - Ónæmisfræðilegar vörur, blandaðar, ekki í afmældum skömmtum eða í formi eða umbúðum til smásölu. Blóð úr dýraríkinu.3002 15 - Ónæmisfræðilegar vörur, í afmældum skömmtum eða í formi eða umbúðum til smásölu. Blóð úr dýraríkinu.3105 90 - Annar áburður. Einungis áburður sem inniheldur afurðir úr dýrum. Sértækar kröfur er varða unninn húsdýraáburð, afleiddar afurðir úr unnum húsdýraáburði og leðurblökugúanó eru settar fram í 1. línu í töflu 2 í 1. þætti II. kafla XIV. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 142/2011.3821 Tilbúnir ræktunarmiðlar til að þróa eða viðhalda örverum (þ.m.t. veirum o.þ.h.) eða plöntu-, manna- eða dýrafrumum. Einungis ef þær innihalda afurðir úr dýrum. 3823 - Iðnaðareinbasískar karboxýlfitusýrur, súrar olíur úr hreinsun, fituríkum iðnaðaralkóhólum. Aukefni í matvælum úr dýraríkinu.3824 - Tilbúin bindiefni fyrir málmsteypumót eða -kjarna; efnavörur og efnablöndur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar (þ.m.t. þær sem samanstanda af blöndum náttúruvara), ekki tilgreint eða talið með annars staðar í þessum kafla. Einungis úr dýraríkinu (t.d. efnavörur, hálfunnar vörur fyrir lyfjaiðnaðinn, matvælaaukefni). 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin breytir framkævmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/632 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar skrár yfir
dýr, afurðir úr dýraríkinu, kímefni, aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir, samsettar afurðir og hey og hálm sem falla undir opinbert eftirlit á landamæraeftirlitsstöðvum og um niðurfellingu á
framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2007 og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2007/275/EB

Reglugerð er innleidd með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995 og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ekki er gert ráð fyrir að gerðin hafi í för með sér verulegar efnahagslegar eða stjórnsýslulegar afleiðingar fyrir stjórnvöld, atvinnulífið eða neytendur.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0551
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/551, 16.3.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D113367/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

32021R0632 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32017R0625 based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi