Stöðvun á ógildingu heimilda í markaðsstöðuleikasjóði - COM(2026) 153

Proposal for a Decision of the European Parliament and of the Council amending Decision (EU) 2015/1814 as regards ceasing the invalidation of allowances in the market stability reserve


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk
Nánari tegund gerðar Tillaga að ákvörðun
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tillaga að ákvörðun um að hætta að ógilda losunarheimildir sem safnast upp í markaðsstöðuleikasjóð með það að markmiði að minnka verðsveiflur og tryggja stöðuleika. 

Nánari efnisumfjöllun

Fyrirliggjandi gerð er tillaga að ákvörðun um breytingu á gildandi ákvörðun (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikasjóð (e. Market stability reserve) innan viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (EU ETS).  Markmið tillögunnar er að hætta að ógilda losunarheimildir sem safnast upp í sjóðnum en slík ógilding hefur verið framkvæmd frá árinu 2023 þegar magn heimilda í sjóðnum fór yfir 400 milljónir.   Markaðsstöðugleikasjóðurinn er lykiltæki innan viðskiptakerfisins með losunarheimildir og gegnir hlutverki við að jafna framboð og eftirspurn á markaði. Sjóðurinn safnar losunarheimildum þegar umframframboð er til staðar og getur síðar losað þær aftur inn á markaðinn þegar skortur myndast. Með þessu er leitast við að draga úr miklum sveiflum í verði heimilda, tryggja stöðugri þróun og fyrirsjáanleika fyrir aðila sem stunda kaup á losunarheimildum.  Að heimila að fleiri losunarheimildir verði áfram í markaðsstöðugleikasjóðnum, í stað þess að þær séu ógiltar, ætti að skapa nauðsynlegan heimildarforða til að bregðast við mögulegum þrengingum á markaði eftir miðjan fjórða áratuginn og síðar. Af þessum sökum ætti ekki lengur að ógilda losunarheimildir í varasjóðnum, svo stærri fjöldi heimilda geti verið áfram í honum. Þetta mun auka slagkraft markaðsstöðugleikasjóðsins til mögulegrar losunar heimilda úr sjóðnum á næsta áratug, í því skyni að halda markaðnum í jafnvægi.  Þessi tillaga gerir markvissa breytingu á einum þætti markaðsstöðuleikasjóðsins án þess að hafa áhrif á heildarhönnun hans eða beint á aðrar stefnur ESB.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Rekstaraðilar innan ETS

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Áhrif breytinga á markaðsstöðuleikasjóð eru almennar og leiða til áhrifa á verð losunarheimildar fyrir kerfið í heild sinni til lengri tíma litið. Ekki er talið að breytingin hafi sértæk áhrif á Íslandi.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2026) 153
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu

Leggur til breytingar á (Proposes to amend)

32015D1814 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytt af (Modified by)

AE(2026) 1164
52026AE1164
contains eesc opinion on

Breytir (Modifies)

32015D1814 proposes to amend Tekin upp í EES-samninginn og í gildi