D113886/03

Commission Implementing Regulation (EU) …/... amending Implementing Regulation (EU) No 540/2011 as regards the extension of the approval periods of the active substances bensulfuron, benzovindiflupyr, chlorotoluron, clethodim, cycloxydim, cymoxanil, dazomet, deltamethrin, diclofop, fenazaquin, fluopicolide, hymexazol, lambda-cyhalothrin, MCPA, MCPB, metaldehyde, metsulfuron-methyl, paclobutrazol and tebuconazole


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er verið að framlengja samþykkistímabil fyrir 19 virk efni til notkunar í plöntuverndarvörur ýmist til 15. nóvember 2027, 30. nóvember 2027, 15. desember 2027, 30. júní 2028, 31. júlí 2028, 15. ágúst 2028, 15. október 2028, 2. janúar 2029, 31. janúar 2029, 31. júlí 2029 og 30. nóvember 2029.Viðauka framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011 er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. 

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin varðar framlengingu á samþykkistímabili fyrir 19 virk efni. Þau eru bensúlfúrón, bensóvindíflúpýr, klórótólúrón, kletódím, sýkloxýdím, sýmoxaníl, dasómet, deltametrín, díklófóp, fenasakín, flúópíkólíð, hýmexasól, lambda-sýhalótrín, MCPA, MCPB, metaldehýð, metsúlfúrónmetýl, paklóbútrasól og tebúkónasól.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Reglugerðin hefur í för með sér að framlengja þarf gildistíma markaðsleyfis fyrir 1 plöntuverndarvöru og tímabundinnar skráningar fyrir 1 plöntuverndarvöru sem eru á markaði á Íslandi. Aukakostnaður fælist í vinnu sérfræðings og myndi falla á Umhverfis- og orkustofnun.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Plöntuverndarvörur sem innihalda virku efnin deltametrín og MCPA eru með leyfi til að vera á markaði hér á landi og reglugerðin hefur þau áhrif að framlengja þarf leyfi fyrir þessum vörum.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D113886/03
Dagsetning tillögu