D113885/03
Commission Implementing Regulation (EU) …/... amending Commission Implementing Regulation (EU) No 540/2011 as regards the deletion of methoxyfenozide, penthiopyrad and terpenoid blend QRD 460 from the list of active substances approved under Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er verið að breyta framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 með því að eyða virku efnunum metoxýfenósíði, penþíópýraði og terpenóíðblöndu QRD 460 úr skrá yfir virk efni sem samþykkt hafa verið á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 1107/2009.
Nánari efnisumfjöllun
Viðauki framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011 inniheldur skrá yfir virk efni sem hafa verið samþykkt eða eru talin hafa verið samþykkt á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 1107/2009.Virku efnin metoxýfenósíð, penþíópýrað og terpenóíðblanda QRD 460 eru listuð í viðauka framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011. Engar umsóknir um endurnýjun samþykkis þessara virku efna bárust eða umsóknir um endurnýjun samþykkis voru dregnar til baka. Í kjölfar þess að samþykkistímabil þessara virku efna runnu út eru þau ekki lengur samþykkt sem virk efni til notkunar í plöntuverndarvörur. Þess vegna ætti að eyða þessum virku efnum út úr skránni yfir samþykkt virk efni í viðauka framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011.Viðauki framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011 breytist í samræmi við viðauka þessarar gerðar.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Engin áhrif. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D113885/03 |
| Dagsetning tillögu |
