D113768/03

Commission Implementing Regulation (EU) …/... amending Implementing Regulations (EU) 2020/617 and (EU) No 540/2011 as regards the conditions of approval of the active substance metalaxyl-M


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er verið að breyta skilyrðum samþykkis fyrir virka efninu metalaxýl-M.I. viðauki við framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2020/617 breytist í samræmi við I. viðauka þessarar reglugerðar.Viðauki við framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 breytist í samræmi við II. viðauka þessarar reglugerðar.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. 

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2020/617 endurnýjaði samþykkistímabil virka efnisins metalaxýl-M. Við endurnýjun samþykkisins voru settar takmarkanir fyrir notkun virka efnisins þannig að einungis mátti sá fræjum sem meðhöndluð höfðu verið með metalaxýl-M í gróðurhúsum og hámarksgildi innihalds óhreininda 2-[(2,6-dímetýlfenýl)-(2- metoxýasetýl)-amínó]- própansýra-1- metoxýkarbónýletýlesters (CGA226048) var ákvarðað 0,18 g/kg. Þann 17. júní 2020 sótti leyfishafi um breytingu á skilyrðum samþykkisins til tilvísunaraðildarríkisins Belgíu í samræmi við 1. tölul. 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009. Sótt var um að fella niður skilyrðið um sáningu fræja í gróðurhúsum og að uppfæra hámarksgildi óhreininda CGA226048. Belgía endurmat virka efnið m.t.t. til nýrrar notkunar og nýs hámarksgildis óhreininda CGA226048 og gaf út endurskoðaða endurmatsskýrslu sem var send til EFSA 9. mars 2021. Þann 3. október 2023 upplýsti EFSA framkvæmdastjórnina um að skilyrði 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 eru uppfyllt ef hámarksgildi óhreininda CGA226048 er 10 g/kg. Endurskoðað hámarksgildi óhreininda CGA226048 var staðfest af framkvæmdastjórninni með reglugerð (ESB) nr. 2024/1718. Þann 4. júlí 2025 upplýsti EFSA framkvæmdastjórnina um hvort niðurfelling skilyrða um sáningu fræja í gróðurhúsum uppfylli skilyrði 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Byggt á niðurstöðum úr áhættumati þykir við hæfi að ákvarða hámarks sáningarhraða fræja sem meðhöndluð eru með metalaxýl-M, nema niðurstöður áhættumats hverrar plöntuverndarvöru leiði í ljós að meiri sáningarhraði leiði ekki til óviðunandi áhrifa á fugla og spendýr. Einnig er talið viðeigandi að setja sem skilyrði að fræjunum sé sáð með búnaði til nákvæmrar sáningar. Það þykir því viðeigandi að fella niður skilyrði um að einungis megi sá fræjum sem meðhöndluð hafa verið með metalaxýl-M í gróðurhúsum. Framkvæmdarreglugerðir (ESB) nr. 2020/617 og 540/2011 breytast því í samræmi við framangreint. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Engin áhrif.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D113768/03
Dagsetning tillögu