32026R1782

Commission Implementing Regulation (EU) 2026/1782 of 23 July 2026 amending Regulation (EC) No 771/2008 laying down the rules of organisation and procedure of the Board of Appeal of the European Chemicals Agency


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 303/2026
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð eru breytingar gerðar á skipulagi og starfsháttum kærunefndar Efnastofnunar Evrópu. 

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin felur í sér breytingar á reglugerð (ESB) nr. 771/2008, sem fjallar um skipulag og málsmeðferð kærunefndar Efnastofnunar Evrópu (ECHA). Í inngangi reglugerðarinnar kemur fram að framkvæmdastjórn ECHA hafi tekið ákvörðun um að breyta kærunefndinni þannig að þrír meðlimir hennar verði ekki lengur fastráðnir sem starfsmenn stofnunarinnar. Samsetning nefndarinnar verði þó óbreytt. Fyrstu breytingarnar varða hlutverk og valdheimildir formanns kærunefndarinnar. Formanni er heimilað að loka áfrýjunarmáli þegar áfrýjunin er dregin til baka eða þegar Efnastofnunin afturkallar ákvörðunina sem áfrýjað var. Formaðurinn hlýtur heimild til þess að skipta út nefndarmönnum fyrir varamenn þeirra að þeirra beiðni ef nefndarmaðurinn getur ekki tekið þátt í starfi nefndarinnar eða ef staðan er ómönnuð. Hann hlýtur einnig heimild til að skipa annan nefndarmann í stað skýrslugjafa eftir samráð við nefndarmennina sem við á. Fela má skráhaldara nefndarinnar að framkvæma þessar ráðstafanir. Þar á eftir koma breytingar sem snúa að hlutverki skráhaldarans. Hlutverk hans er skilgreint í breytingu á 5. gr. reglugerðarinnar, þar sem meðal annars er tekið fram að hann skuli tryggja rétta framkvæmd áfrýjunarferlisins og vera kærunefndinni innan handar. Skrárhaldarinn sé ábyrgur gagnvart framkvæmdastjóra Efnastofnunarinnar í stjórnsýslumálum en gagnvart formanni kærunefndarinnar í málum sem tengjast áfrýjunum. Aðrar breytingar sem gerðar eru með reglugerðinni fela í sér ýmsar umbætur á starfsháttum kærunefndarinnar. Nokkrar þeirra snúast um form kærunnar, meðal annars um skráningar á nafni, heimilisfangi og netfangi bæði kærandans og fulltrúa hans þegar við á. Þá er Efnastofnuninni gert að birta tilkynningar um viðtöku á kæru á vefsíðu sinni. Tilgreindur er tveggja mánaða frestur sem stofnunin hefur til að leggja fram málsvörn eftir að tímafrestur formannsins til að taka ákvörðun um móttöku kærunnar rennur út. Krafa er gerð um að öll málsgögn séu geymd á rafrænu formi. Í reglugerðinni eru einnig ákvæði um meðalgöngu þriðja aðila í kæru, skilyrði meðalgöngu og persónuupplýsingar sem fylgja verða umsókn um meðalgöngu. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð 888/2015 um skráningu, mat leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð: 1. tl. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Bæta þarf ákvæði um þessa reglugerð við í 10. kafla REACH-reglugerðarinnar um innleiðingu tiltekinna EES-gerða.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1782
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1782, 24.7.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D114873/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1

Breytir (Modifies)

32008R0771 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi