32026R2025

Commission Implementing Regulation (EU) 2026/2025 of 10 September 2026 renewing the approval of the active substance mecoprop-P as a candidate for substitution in accordance with Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) No 540/2011


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er verið að endurnýja samþykki fyrir virka efninu mekópróp-P, eins og það er tilgreint í I. viðauka við reglugerðina, til notkunar í plöntuverndarvörur með þeim skilyrðum sem fram koma í viðaukanum. Viðauki við framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 breytist í samræmi við II. viðauka þessarar reglugerðar.Reglugerðin öðlast gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og skal koma til framkvæmda 1. október 2026. 

Nánari efnisumfjöllun

Samþykki fyrir virka efninu mekópróp-P er endurnýjað til 30. september 2033. Mekópróp-P er virkt efni sem ráðgert er að skipta út og því getur samþykki fyrir því að hámarki verið endurnýjað til sjö ára. Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2025/787 framlengdi gildistíma samþykkisins fyrir mekópróp-P til 15. október 2027 til þess að gera tilvísunaraðildarríkinu Írlandi kleift að ljúka endurnýjunarferlinu. Ákvörðun um endurnýjun hefur verið tekin og kemur reglugerðin til framkvæmda áður en framlengdur gildistími samþykkisins rennur út.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Markaðsleyfi fyrir einni plöntuverndarvöru fellur úr gildi vegna endurnýjunar á samþykki fyrir virka efninu mekópróp-P. Hægt verður að sækja um nýtt markaðsleyfi fyrir þessari vöru.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/2025, 11.9.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D116455/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32011R0540 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)