Tillaga að endurskoðuðum viðmiðunargildum fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir fyrir tímabilið 2026-2030. - COM(2026) 619
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2003/87/EC as regards revised benchmark values for the heat and fuel benchmarks for the period from 2026 to 2030
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillaga þessi setur fram breytingu á tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipun) í því skyni að hægt sé að uppfæra viðmiðunargildi fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir sem notuð eru til grundvallar úteikningum á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir síðari hluta 4. viðskiptatímabils ETS, 2026-2030. Breytingarnar eru gerðar til að koma til móts við áhyggjur ákveðinna geira innan ETS og fullnýta þær heimildir sem eru til staðar til úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda.
Nánari efnisumfjöllun
Tillaga þessi setur fram breytingu á tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipun) í því skyni að hægt sé að uppfæra viðmiðunargildi fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir sem notuð eru til grundvallar úteikningum á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir síðari hluta 4. viðskiptatímabils ETS, 2026-2030.Breytingin er lögð til í því skyni að koma til móts við áhyggjur ákveðinna iðngeira og auka vernd gegn áhættu af kolefnisleka. Eftir að lokaútreikningar á fjölda áætlaðra losunarheimilda til endurgjaldslausrar úthlutunar lágu fyrir, ásamt þverfaglegum leiðréttingarstuðli (e. cross sectoral correction factor, CSCF) (sem er 1 skv. ákvörðun (ESB) 2026/1862), lá fyrir að eftir sátu 80 milljónir losunarheimilda sem samkvæmt 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar er að hámarki hægt að úthluta endurgjaldslaust á tímabilinu 2026-2030.Til að tryggja jafna meðferð og koma í veg fyrir neikvæð áhrif á endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda sem byggð er á vöruviðmiðun er nauðsynlegt að tryggja að endurskoðuð viðmiðunargildi fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir breytist ekki það mikið að þörf verði á að beita þverfaglegum leiðréttingarstuðli. Uppfærð viðmiðunargildi fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir munu ekki gilda fyrir stöðvar sem stunda starfsemi sem tengist olíu og gasi til að stuðla að frekari afkolun. Til að draga úr stjórnsýslulegri byrði þarf ekki að úthluta endurgjaldslausum losunarheimildum sem bætast við til rekstraraðila vegna ársins 2026 vegna þessara breytinga fyrr en samhliða úthlutun vegna ársins 2027. Tveimur málsgreinum er bætt við 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar á eftir 2. mgr. sem ná þessum markmiðum fram, 2. mgr. a og 2. mgr. b. 2. mgr. a segir að hámarks árlegt skerðingarhlutfall (e. maximum annual reduction rate) sem skuli beita vegna uppfærslu viðmiðunargilda fyrir varma- og eldsneytisviðmiðanir fyrir tímabilið 2027-2030 skuli vera minnkað í hlutfall sem nýtir að fullu allar losunarheimildir sem til boða eru til endurgjaldslausrar úthlutunar án þess að til beitingar þverfaglegs leiðréttingarstuðuls komi. 40% þeirra losunarheimilda skal úthlutað árið 2027, þar sem engum aukalosunarheimildum vegna þessarar breytingar verður úthlutað árið 2026.2. mgr. b segir að 2. mgr. a skuli ekki gilda fyrir starfsstöðvar sem stundi starfsemi sem falla undir ákveðna NACE kóða sem ná yfir borun eftir hráolíu og jarðgasi, framleiðslu unninnar olíu og flutning með pípum. Reglugerðin skal taka gildi á þriðja degi eftir birtingu í lögbirtingarblaði ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þarf reglugerðina með reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir eða lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Breytingarnar sem um ræðir hafa lítil sem engin áhrif á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til íslenskra rekstraraðila þar sem afar lítill hluti starfsemi þeirra fellur undir varma- eða eldsneytisviðmiðanir. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2026) 619 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
