32007R0834
Council Regulation (EC) No 834/2007 of 28 June 2007 on organic production and labelling of organic products and repealing Regulation (EEC) No 2092/91
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007 frá 28. júní 2007 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og til niðurfellingar á reglugerð (EBE) nr. 2092/91
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 049/2017 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin setur ítarleg markmið, meginreglur og reglur sem eiga við um lífræna framleiðslu. Reglurnar um lífræna framleiðslu eru settar með tilliti til jurta, búfjár og lagareldisframleiðslu, þ.m.t. reglur um söfnun villtra plantna, þangs og þara, reglur um aðlögun og reglur um framleiðslu unninna matvæla, að meðtöldu víni, fóðri og lífrænu geri.
Ítarlegri ákvæði eru sett í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 889/2008 og 1235/2008, sem eru teknar upp í EES-samninginn samhliða þessari reglugerð.
Ítarlegri ákvæði eru sett í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 889/2008 og 1235/2008, sem eru teknar upp í EES-samninginn samhliða þessari reglugerð.
Nánari efnisumfjöllun
Lífræn framleiðsla er heildrænt kerfi bústjórnunar og matvælaframleiðslu sem sameinar bestu starfsvenjur í umhverfismálum, líffræðilega fjölbreytni á háu stigi, varðveislu náttúruauðlinda, beitingu strangra staðla hvað varðar velferð dýra og framleiðsluaðferð sem er í samræmi við kröfur tiltekinna neytenda um vörur sem eru framleiddar með því að nota náttúruleg hráefni og vinnsluferli. Lífræn framleiðsluaðferð gegnir því tví¬þættu samfélagslegu hlutverki þar sem hún veitir annars vegar sértækan markað sem svarar eftirspurn neytenda hvað varðar lífrænar vörur og hins vegar leggur hún sitt af mörkum til almannaheilla þar sem hún stuðlar að umhverfisvernd og velferð dýra ásamt dreifbýlisþróun.
Fyrstu reglur ESB um lífræna ræktun komu 1991 með reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðar¬afurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum. Henni hafði verið breytt fjölmörgum sinnum og var fyrir vikið orðin löng og flókin. Reglugerðir (EB) 834/2007, 889/2008 og 1235/2008 koma í stað eldri reglugerða.
Reglugerðin skiptist í VII bálka. I. bálkur fjallar um markmið og gildissvið reglugerðarinnar. Jafnframt er ákvæði um skilgreiningar hugtaka. II. bálkur hefur að geyma markmið og meginreglur varðandi lífræna framleiðslu. Fyrst eru almennar meginreglur settar og síðan sérreglur um búskap, vinnslu lífrænt ræktaðra matvæla, og fóðurs. Í III. bálki eru framleiðslureglur. Þar er lagt bann við notkun erfðabreyttra og jónandi geislunar. Þá er kveðið á um framleiðslu á bújörðum, reglur vegna plantna, þangs og þara, búfjár, lagareldisdýr, unnins fóðurs og unnina matvæla. Í IV. bálki er kveðið á um merkingar, þ.e. þau hugtök sem heimilt er að nota, lögboðnar upplýsingar og ákvæði um kennimerki um lífræna framleiðslu. Í V. bálki er kveðið á um eftirlit, hvernig það skuli skipulagt, skyldur lögbærra yfirvalda og heimildir til að framselja eftirlit til annarra eftirlitsaðila. Í VI. bálki er kveðið á um viðskipti við þriðju lönd og kröfur sem gerðar eru til að innfluttar vörur geti talist lífrænar. VII. bálkur inniheldur lokareglur, t.d. ákvæði um upplýsingagjöf til framkvæmdastjórnar, nefnd um lífræna framleiðslu, brottfall eldri reglugerðar og gildistöku. Þá eru jafnframt ákvæði til bráðabirgða.
Fyrstu reglur ESB um lífræna ræktun komu 1991 með reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðar¬afurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum. Henni hafði verið breytt fjölmörgum sinnum og var fyrir vikið orðin löng og flókin. Reglugerðir (EB) 834/2007, 889/2008 og 1235/2008 koma í stað eldri reglugerða.
Reglugerðin skiptist í VII bálka. I. bálkur fjallar um markmið og gildissvið reglugerðarinnar. Jafnframt er ákvæði um skilgreiningar hugtaka. II. bálkur hefur að geyma markmið og meginreglur varðandi lífræna framleiðslu. Fyrst eru almennar meginreglur settar og síðan sérreglur um búskap, vinnslu lífrænt ræktaðra matvæla, og fóðurs. Í III. bálki eru framleiðslureglur. Þar er lagt bann við notkun erfðabreyttra og jónandi geislunar. Þá er kveðið á um framleiðslu á bújörðum, reglur vegna plantna, þangs og þara, búfjár, lagareldisdýr, unnins fóðurs og unnina matvæla. Í IV. bálki er kveðið á um merkingar, þ.e. þau hugtök sem heimilt er að nota, lögboðnar upplýsingar og ákvæði um kennimerki um lífræna framleiðslu. Í V. bálki er kveðið á um eftirlit, hvernig það skuli skipulagt, skyldur lögbærra yfirvalda og heimildir til að framselja eftirlit til annarra eftirlitsaðila. Í VI. bálki er kveðið á um viðskipti við þriðju lönd og kröfur sem gerðar eru til að innfluttar vörur geti talist lífrænar. VII. bálkur inniheldur lokareglur, t.d. ákvæði um upplýsingagjöf til framkvæmdastjórnar, nefnd um lífræna framleiðslu, brottfall eldri reglugerðar og gildistöku. Þá eru jafnframt ákvæði til bráðabirgða.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerð þessi, sem og reglugerðir (EB) nr. 889/2008 og 1235/2008 og allar breytingar á þeim verða innleiddar með nýrri reglugerð. Lagastoð er að finna í lögum nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu og lögum nr. 93/1995 um matvæli. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Vottunarstofan Tún, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Bændasamtök Íslands |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður fellur á Matvælastofnun við upptöu þessara reglna ESB um lífræna ræktun (þ.e. reglugerðir (EB) nr,. 834/2007, 889/2008 og 1235/2008, með breytingum). Stofnunin verður tilnefndur sem opinber eftirlitsaðili. Heimilt er að framselja eftirlit til annarra eftirlitsaðila en í þeim tilvikum þarf stofnunin að sinna verkefnum sem hún sinnir ekki í dag, t.d. að tryggja að aðrir eftirlitsaðilar starfi í samræmi við reglur og við að koma upplýsingum á framfæri við almenning. Áætlað er að stofnunin muni þurfa stöðugildi til að sinna þessu. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Áhrif: Upptaka þeirra þriggja reglugerða ESB, sem mynda regluverið um lífræna ræktun, mun hafa áhrif á framleiðslu hjá sauðfjárbændum. Regla um notkun hálms eða heilgólfa í sauðfjárhúsum mun valda því að sauðfjárbændur með lífræna vottun munu ekki geta haldið henni og nýliðun verður erfið á því sviði þar sem breyta þyrfti húsum. Ætla má að reglurnar hafi áhrif á um 30 framleiðendur lífrænna afurða hér á landi. Þær munu hins vegar ekki hafa áhrif á framleiðendur hefðbundinna afurða. Útflutningshagsmunir: Útflutningur á lífrænt vottuðum afurðum frá Íslandi er erfið og framleiðendur ósáttir við stöðuna. Fyrirtæki þurfa að reiða sig á að erlendir kaupendur samþykki framleiðsluaðferðirnar hér á landi. Þá er hætta á að viðurkenning á vottun þessara vara verði hætt eins og hefur gerst með norska eldislaxinn. Samkvæmt upplýsingum frá Tún þá hefur útflutningur mestur verið með þörungaafurðir. Útflutningur á þessum vörum hefur verið vaxandi. Útflutningur nam 439 milljónum króna 2015 og stefndi hann í að vera 600 milljónir króna 2016 (556 milljónir eftir níu mánuði). Erfitt er þó að segja hversu mikil framleiðsla var lífræn en Þörungaverksmiðjan á Reykhólum hefur vottun til þeirrar framleiðslu og auglýsir hana á heimasíðu. - Neytandasjónarmið: Þar sem Ísland beitir eldri reglum gilda nýjustu reglur um samþykkt ríki og samþykktar starfsstöðvar ekki. Eldri reglugerð ESB um innflutning frá þriðju ríkjum (frá 2008) hefur ekki verið uppfærð í sex ár. Hér er því gap á innri markaðnum sem gerir eftirlitsaðilum erfitt um vik með að hafa eftirlit með því að innfluttar lífrænar afurðir frá þriðju ríkjum uppfylli þær kröfur sem ESB setur. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32007R0834 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 189, 20.7.2007, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2005) 671 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 29.11.2018, p. 7 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 305, 29.11.2018, p. 5 |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2014) 180 52014PC0180 |
Regulation (EU) 2018/848 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on organic production and labelling of organic products and repealing Council Regulation (EC) No 834/2007 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| COM(2013) 265 52013PC0265 |
Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council of 15 March 2017 on official controls and other official activities performed to ensure the application of food and feed law, rules on animal health and welfare, plant health and plant protection products, amending Regulations (EC) No 999/2001, (EC) No 396/2005, (EC) No 1069/2009, (EC) No 1107/2009, (EU) No 1151/2012, (EU) No 652/2014, (EU) 2016/429 and (EU) 2016/2031 of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 1/2005 and (EC) No 1099/2009 and Council Directives 98/58/EC, 1999/74/EC, 2007/43/EC, 2008/119/EC and 2008/120/EC, and repealing Regulations (EC) No 854/2004 and (EC) No 882/2004 of the European Parliament and of the Council, Council Directives 89/608/EEC, 89/662/EEC, 90/425/EEC, 91/496/EEC, 96/23/EC, 96/93/EC and 97/78/EC and Council Decision 92/438/EEC (Official Controls Regulation) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| COM(2013) 051 52013PC0051 |
||
| COM(2010) 759 52010PC0759 |
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Council Regulation (EC) No 834/2007 on organic production and labelling of organic products | No timeline |
| COM(2008) 314 52008PC0314 |
Breytt af (Modified by)
| COM(2012) 212 52012DC0212 |
related to, work related to work | ||
| COM(2008) 314 52008PC0314 |
proposes to amend | ||
| 32017R1862 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2017/1862 of 16 October 2017 amending Regulation (EC) No 1235/2008 laying down detailed rules for implementation of Council Regulation (EC) No 834/2007 as regards the arrangements for imports of organic products from third countries | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32017R0872 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2017/872 of 22 May 2017 amending Regulation (EC) No 1235/2008 laying down detailed rules for implementation of Council Regulation (EC) No 834/2007 as regards the arrangements for imports of organic products from third countries | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32017R0838 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2017/838 of 17 May 2017 amending Regulation (EC) No 889/2008 as regards feed for certain organic aquaculture animals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| COM(2005) 671 52005PC0671(01) |
adopts | Council Regulation (EC) No 834/2007 of 28 June 2007 on organic production and labelling of organic products and repealing Regulation (EEC) No 2092/91 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32008R0404 | implicitly repeals | Commission Regulation (EC) No 404/2008 of 6 May 2008 amending Annex II to Council Regulation (EEC) No 2092/91 on organic production of agricultural products as concerns the authorisation of spinosad, potassium bicarbonate and copper octanoate and the use of ethylene | Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar |
| 32008R0123 | implicitly repeals | Commission Regulation (EC) No 123/2008 of 12 February 2008 amending and correcting Annex VI to Council Regulation (EEC) No 2092/91 on organic production of agricultural products and indications referring thereto on agricultural products and foodstuffs | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32006R1851 | implicitly repeals | Commission Regulation (EC) No 1851/2006 of 14 December 2006 amending Annex I to Council Regulation (EEC) No 2092/91 as regards uptake of ponventional feed during periods of transhumance | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32000R1437 | implicitly repeals | Commission Regulation (EC) No 1437/2000 of 30 June 2000 amending Section C of Annex VI to Council Regulation (EEC) No 2092/91 on organic production of agricultural products and indications referring thereto on agricultural products and foodstuffs | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
