32007R0834

Council Regulation (EC) No 834/2007 of 28 June 2007 on organic production and labelling of organic products and repealing Regulation (EEC) No 2092/91

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 049/2017
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin setur ítarleg markmið, meginreglur og reglur sem eiga við um lífræna framleiðslu. Reglurnar um lífræna framleiðslu eru settar með tilliti til jurta, búfjár og lagareldisframleiðslu, þ.m.t. reglur um söfnun villtra plantna, þangs og þara, reglur um aðlögun og reglur um framleiðslu unninna matvæla, að meðtöldu víni, fóðri og lífrænu geri.

Ítarlegri ákvæði eru sett í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 889/2008 og 1235/2008, sem eru teknar upp í EES-samninginn samhliða þessari reglugerð.

Nánari efnisumfjöllun

Lífræn framleiðsla er heildrænt kerfi bústjórnunar og matvælaframleiðslu sem sameinar bestu starfsvenjur í umhverfismálum, líffræðilega fjölbreytni á háu stigi, varðveislu náttúruauðlinda, beitingu strangra staðla hvað varðar velferð dýra og framleiðsluaðferð sem er í samræmi við kröfur tiltekinna neytenda um vörur sem eru framleiddar með því að nota náttúruleg hráefni og vinnsluferli. Lífræn framleiðsluaðferð gegnir því tví¬þættu samfélagslegu hlutverki þar sem hún veitir annars vegar sértækan markað sem svarar eftirspurn neytenda hvað varðar lífrænar vörur og hins vegar leggur hún sitt af mörkum til almannaheilla þar sem hún stuðlar að umhverfisvernd og velferð dýra ásamt dreifbýlisþróun.

Fyrstu reglur ESB um lífræna ræktun komu 1991 með reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðar¬afurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum. Henni hafði verið breytt fjölmörgum sinnum og var fyrir vikið orðin löng og flókin. Reglugerðir (EB) 834/2007, 889/2008 og 1235/2008 koma í stað eldri reglugerða.

Reglugerðin skiptist í VII bálka. I. bálkur fjallar um markmið og gildissvið reglugerðarinnar. Jafnframt er ákvæði um skilgreiningar hugtaka. II. bálkur hefur að geyma markmið og meginreglur varðandi lífræna framleiðslu. Fyrst eru almennar meginreglur settar og síðan sérreglur um búskap, vinnslu lífrænt ræktaðra matvæla, og fóðurs. Í III. bálki eru framleiðslureglur. Þar er lagt bann við notkun erfðabreyttra og jónandi geislunar. Þá er kveðið á um framleiðslu á bújörðum, reglur vegna plantna, þangs og þara, búfjár, lagareldisdýr, unnins fóðurs og unnina matvæla. Í IV. bálki er kveðið á um merkingar, þ.e. þau hugtök sem heimilt er að nota, lögboðnar upplýsingar og ákvæði um kennimerki um lífræna framleiðslu. Í V. bálki er kveðið á um eftirlit, hvernig það skuli skipulagt, skyldur lögbærra yfirvalda og heimildir til að framselja eftirlit til annarra eftirlitsaðila. Í VI. bálki er kveðið á um viðskipti við þriðju lönd og kröfur sem gerðar eru til að innfluttar vörur geti talist lífrænar. VII. bálkur inniheldur lokareglur, t.d. ákvæði um upplýsingagjöf til framkvæmdastjórnar, nefnd um lífræna framleiðslu, brottfall eldri reglugerðar og gildistöku. Þá eru jafnframt ákvæði til bráðabirgða.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð þessi, sem og reglugerðir (EB) nr. 889/2008 og 1235/2008 og allar breytingar á þeim verða innleiddar með nýrri reglugerð. Lagastoð er að finna í lögum nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu og lögum nr. 93/1995 um matvæli.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Vottunarstofan Tún, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Bændasamtök Íslands

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður fellur á Matvælastofnun við upptöu þessara reglna ESB um lífræna ræktun (þ.e. reglugerðir (EB) nr,. 834/2007, 889/2008 og 1235/2008, með breytingum). Stofnunin verður tilnefndur sem opinber eftirlitsaðili. Heimilt er að framselja eftirlit til annarra eftirlitsaðila en í þeim tilvikum þarf stofnunin að sinna verkefnum sem hún sinnir ekki í dag, t.d. að tryggja að aðrir eftirlitsaðilar starfi í samræmi við reglur og við að koma upplýsingum á framfæri við almenning. Áætlað er að stofnunin muni þurfa stöðugildi til að sinna þessu.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Áhrif: Upptaka þeirra þriggja reglugerða ESB, sem mynda regluverið um lífræna ræktun, mun hafa áhrif á framleiðslu hjá sauðfjárbændum. Regla um notkun hálms eða heilgólfa í sauðfjárhúsum mun valda því að sauðfjárbændur með lífræna vottun munu ekki geta haldið henni og nýliðun verður erfið á því sviði þar sem breyta þyrfti húsum. Ætla má að reglurnar hafi áhrif á um 30 framleiðendur lífrænna afurða hér á landi. Þær munu hins vegar ekki hafa áhrif á framleiðendur hefðbundinna afurða.

Útflutningshagsmunir: Útflutningur á lífrænt vottuðum afurðum frá Íslandi er erfið og framleiðendur ósáttir við stöðuna. Fyrirtæki þurfa að reiða sig á að erlendir kaupendur samþykki framleiðsluaðferðirnar hér á landi. Þá er hætta á að viðurkenning á vottun þessara vara verði hætt eins og hefur gerst með norska eldislaxinn. Samkvæmt upplýsingum frá Tún þá hefur útflutningur mestur verið með þörungaafurðir. Útflutningur á þessum vörum hefur verið vaxandi. Útflutningur nam 439 milljónum króna 2015 og stefndi hann í að vera 600 milljónir króna 2016 (556 milljónir eftir níu mánuði). Erfitt er þó að segja hversu mikil framleiðsla var lífræn en Þörungaverksmiðjan á Reykhólum hefur vottun til þeirrar framleiðslu og auglýsir hana á heimasíðu. - Neytandasjónarmið: Þar sem Ísland beitir eldri reglum gilda nýjustu reglur um samþykkt ríki og samþykktar starfsstöðvar ekki. Eldri reglugerð ESB um innflutning frá þriðju ríkjum (frá 2008) hefur ekki verið uppfærð í sex ár. Hér er því gap á innri markaðnum sem gerir eftirlitsaðilum erfitt um vik með að hafa eftirlit með því að innfluttar lífrænar afurðir frá þriðju ríkjum uppfylli þær kröfur sem ESB setur.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32007R0834
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 189, 20.7.2007, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2005) 671
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 29.11.2018, p. 7
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 305, 29.11.2018, p. 5

Breytt af (Modified by)

COM(2012) 212
52012DC0212
related to, work related to work
32018R0848 repeals Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32013R0517 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32008R0967 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32007R0834R(08) does replacement of

Breytir (Modifies)

32008R0404 implicitly repeals Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32008R0123 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32006R1851 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32000R1437 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
31991R2092 repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Samantekt EUR-Lex