32015R2120
Regulation (EU) 2015/2120 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2015 laying down measures concerning open internet access and amending Directive 2002/22/EC on universal service and users’ rights relating to electronic communications networks and services and Regulation (EU) No 531/2012 on roaming on public mobile communications networks within the Union
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2120 frá 25. nóvember 2015 um ráðstafanir varðandi opinn Netaðgang og um breytingu á tilskipun 2002/22/EB um alþjónustu og réttindi notenda að því er varðar rafræn fjarskiptanet og -þjónustu og reglugerð (ESB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Sambandsins
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 092/2016 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin gengur undir nafninu TSM reglugerðin, þ.e. Telecom Single Market. Upphaflega átti reglugerðin að taka til endurbóta á fleiri þáttum, s.s. tíðnimál og reglna um almenna heimild en einskorðast nú við tvö meginviðfangsefni, þ.e. alþjóðlegt reiki innan EES-svæðisins og nethlutleysi, eða Net Neutrality.
1. Alþjóðlegt reiki innan EES svæðisins
1. Alþjóðlegt reiki innan EES svæðisins
Nánari efnisumfjöllun

Undanfarin ár hafa verið settar reglur um reiki innan landa EES–svæðisins í þeim tilgangi að stilla reikigjöldum í hóf og gæta að hagsmunum neytenda. Þannig hafa reikigjöld lækkað verulega frá því að fyrsta reglugerðin leit dagsins ljós árið 2007. Nú er svo komið að hámarks reikigjöld á heildsölustigi eru ekki lengur umtalsvert hærri en meðaltalslúkningarverð í farsímaþjónustu innan landa EES-svæðisins, þótt vissulega sé enn verðmunur.
Við þessar aðstæður hafa skapast forsendur til þess afnema sérstök reikigjöld þannig að farsímanotendur greiði samkvæmt heimaverðskrá á ferðalögum innan EES-svæðisins, eða Roame like Home, eins og það hefur verið nefnt. Í ljósi þess að enn er verðmunur á lúkningarverðum í heildsölu á milli landa innan EES-svæðisins er þó ljóst að reikinotkun getur ekki verið ótakmörkuð, enn um sinn. Í TSM reglugerðinni er því gert því ráð fyrir að sérstök reikigjöld leggist af í júní 2017 og að þaðan í frá gildi heimaverðskrá notanda um reiki innan EES-svæðisins, að því gefnu að um sé að ræða sanngjarna notkun, eða Fair Usage. Með öðrum orðum að fari notkun fram úr því sem telst sanngjörn notkun sé heimilt að leggja á sérstök reikigjöld að tilteknu hámarki.
Hefur samstarfsvettvangi fjarskiptaeftirlitsstofnana í Evrópu, BEREC, verið falið að móta tillögur um hvað teljist vera sanngjörn reikinotkun. Álitamálið er hvort miða eigi sanngjarna notkun við landsmeðaltal í hverju landi eða meðaltal allra landa EES-svæðisins. Vandinn er sá að reikinotkun er mjög misjöfn á milli landa og landssvæða innan Evrópu. Þannig ferðast vestur- og norður Evrópubúar mun meira en íbúar í austur- og suðurhluta Evrópu, auk þess sem þeir virðast nota farsíma mun meira á ferðalögum. Þetta leiðir til þess að landsmeðaltal í ríkjum vestur og norður Evrópu er umtalsvert hærra en Evrópumeðaltalið. Hér er því um mikið hagsmunamál Íslands að ræða sem huga þarf að við útfærslu reglunnar um sanngjarna notkun.
Samkvæmt framansögðu felur TSM reglugerðin í sér miklar hagsbætur fyrir neytendur og því mikilvægt að innleiðing hennar í landsrétt gangi greiðlega fyrir sig.
2. Nethlutleysi
Meðal breytinga sem gerðar voru á evrópsku fjarskiptaregluverki árið 2009 var að aðlaga meginmarkið löggjafarinnar að hugmyndafræðinni um nethlutleysi, þ.e. að aðildarríki skyldu stuðla að því að notendur gætu sótt efni og þjónustu á internetinu að eigin vali. Þá voru kynntar til sögunnar reglur um að fjarskiptafyrirtæki skyldu upplýsa viðskiptavini sína og kveða á um það í viðskiptaskilmálum ef gerðar væru ráðstafanir til netmismununnar, þ.e. differentiation.
Mál um nethlutleysi í víðum skilningi, s.s. um umferðarstýringar, landfræðilegar takmarkanir á netumferð, þ.e. Geo Blocking, lokun fyrir efni og þjónustu á netinu, hafa verið í mikilli gerjun undanfarin ár. Jafnframt hafa vaknað áhyggjur af því að ýmis forgangsþjónusta á internetinu á yfirgjaldsverði gætu orðið til þess að rýra gæði hins almenna og opna internets og gert það verkum að neytendur þyrftu almennt að greiða hærra verð til að hafa afnot af nothæfu interneti. Þessi umræða hefur leitt til þess að framkvæmdastjórn Evrópu hefur beitt sér fyrir hertari reglum um nethlutleysi, sem nú birtast í hinni svonefndu TSM reglugerð.
Í stuttu máli gera hinar nýju reglur ráð fyrir að fjarskiptafyrirtækjum sé skylt að virða nethlutleysi og allar ráðstafanir til að beita netmismunun séu bannaðar, nema að uppfylltum kröfum um að þær séu málefnalegar og nauðsynlegar undir tilteknum kringumstæðum. Rétt er þó að benda á að skilyrðin eru nokkuð ströng og venjubundnar umferðarstýringar, s.s. takmarkanir á gagnaflutningshraða og gagnamagni, sem almennt hefur verið notast við til að stjórna álagi á netum, verða ekki sjálfgefnar lengur, t.d. ef raunsærra og málefnalegra þykir að fjarskiptafyrirtækið auki rýmd í fjarskiptanetinu sínu fremur en að beita umferðarstýringum með varanlegum eða reglubundnum hætti. Þá eru ákvæði um að beita skuli umferðarstýringum í hófi og einungis í takmarkaðan tíma.
Eins og af framangreindu má sjá er að verið er að auka neytendavernd og stuðla að því að viðhalda hinu almenna og opna interneti með auknum kröfum á hendur fjarskiptafyrirtækjum. Þá gerir reglugerðin ráð fyrir að reglum um nethlutleysi sé framfylgt með eftirliti og að viðlögðum viðurlögum, ef þær eru brotnar.
3. Staðan hér á landi með tilliti til nethlutleysis
Evrópsk fjarskiptalöggjöf frá 2009 hefur enn ekki verið innleidd í íslensk lög. Þó má sjá tiltekna birtingarmynd af nethlutleysi í reglum Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 1223/2007 um vernd og virkni IP-fjarskiptaneta, en þær gera ráð fyrir að viðskiptavinir séu upplýstir um lokanir eða stýringar sem hafa áhrif á þjónustuna. Reglur þessar byggja þó fremur á kröfum um gæði IP-fjarskiptaþjónustu, fremur en meginreglunni um nethlutleysi.
Í ljósi þess að engin eiginleg lagastoð er fyrir nethlutleysi hér á landi hefur Póst- og fjarskiptastofnun haft takmörkuð afskipti af framkvæmd íslenskra fjarskiptafyrirtækja hvað þetta varðar. Í ljósi þeirra breytinga sem framundan eru á þessu sviði hefur Póst- og fjarskiptastofnun hins vegar hrundið af stað úttekt hjá helstu fjarskiptafyrirtækjum landsins um framkvæmd þeirra á nethlutleysi. Er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir og þær kynntar í janúar/febrúar 2016.
Miðað við að ekki hefur verið unnið að því með markvissum hætti að að innleiða nethlutleysi hér á landi undanfarin ár má búast við því að talsvert verk sé enn óunnið í þessum efnum. Má því búast við því að íslensk fjarskiptafyrirtæki þurfi að taka stærri skref á styttri tíma til þess að laga sig að kröfum um nethlutleysi, heldur en evrópsk fjarskiptafyrirtæki hafa þurft að gera. Að sama skapi er ljóst að eftirlit Póst- og fjarskiptastofnunar í þessum málaflokki mun kalla á frekari aðföng, þó svo að sundurliðað kostnaðarmat liggi ekki fyrir á þessari stundu.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi. Gera þarf breytingar á fjarskiptalögum, nr. 81/2003 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Miðað við að ekki hefur verið unnið að því með markvissum hætti að að innleiða nethlutleysi hér á landi undanfarin ár má búast við því að talsvert verk sé enn óunnið í þessum efnum. Má því búast við því að íslensk fjarskiptafyrirtæki þurfi að taka stærri skref á styttri tíma til þess að laga sig að kröfum um nethlutleysi, heldur en evrópsk fjarskiptafyrirtæki hafa þurft að gera. Að sama skapi er ljóst að eftirlit Póst- og fjarskiptastofnunar í þessum málaflokki mun kalla á frekari aðföng, þó svo að sundurliðað kostnaðarmat liggi ekki fyrir á þessari stundu. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Fjarskiptastofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32015R2120 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 310, 26.11.2015, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2013) 627 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 73, 16.11.2017, p. 47 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 300, 16.11.2017, p. 43 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
Breytt af (Modified by)
| 32024R1309 | amends | Regulation (EU) 2024/1309 of the European Parliament and of the Council of 29 April 2024 on measures to reduce the cost of deploying gigabit electronic communications networks, amending Regulation (EU) 2015/2120 and repealing Directive 2014/61/EU (Gigabit Infrastructure Act) | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32022R0612 | implicitly repeals, repeals | Regulation (EU) 2022/612 of the European Parliament and of the Council of 6 April 2022 on roaming on public mobile communications networks within the Union (recast) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018R1971 | amends, does deletion of, does insertion of, does replacement of | Regulation (EU) 2018/1971 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 establishing the Body of European Regulators for Electronic Communications (BEREC) and the Agency for Support for BEREC (BEREC Office), amending Regulation (EU) 2015/2120 and repealing Regulation (EC) No 1211/2009 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018L1972 | implicitly repeals, repeals | Directive (EU) 2018/1972 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 establishing the European Electronic Communications Code (Recast) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| COM(2013) 627 52013PC0627 |
adopts | Regulation (EU) 2015/2120 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2015 laying down measures concerning open internet access and amending Directive 2002/22/EC on universal service and users’ rights relating to electronic communications networks and services and Regulation (EU) No 531/2012 on roaming on public mobile communications networks within the Union | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32012R0531 | amends | Regulation (EU) No 531/2012 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2012 on roaming on public mobile communications networks within the Union (Recast) | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32002L0022 | amends | Directive 2002/22/EC of the European Parliament and of the Council of 7 March 2002 on universal service and users' rights relating to electronic communications networks and services (Universal Service Directive) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |