32018R1976

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1976 of 14 December 2018 laying down detailed rules for the operation of sailplanes pursuant to Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 115/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að færa kröfur um örugga starfrækslu svifflugvéla undir sérstakar reglur, þar sem starfræksla þeirra er að mörgu leyti ólík starfrækslu annarra loftfara. Stefnt er að einföldun reglnanna og auknum sveigjanleika þannig að þær gangi ekki lengra nauðsynlegt er. Kröfur til eftirlitsstjórnvalda um eftirlit með starfrækslu svifflugvéla verði eftir sem áður í reglugerð (ESB) nr. 965/2012. Samgöngustofa mun þurfa að uppfæra verklagsreglur og handbækur flugrekstrardeildar. Á Íslandi eru svifflugvélar eingöngu starfræktar í frístundaskyni. Samkvæmt samtali við formann svifflugfélags Íslands í desember 2018 telur hann nýju reglugerðina um svifflug almennt séð jákvæða fyrir svifflug.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Með drögum að sértækri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um svifflugvélar, er lagt til að færa kröfur um örugga starfrækslu svifflugvéla undir sérstakar reglur. Þetta er gert þar sem starfræksla þeirra er að mörgu leyti ólík starfrækslu annarra loftfara. Stefnt er að einföldun reglnanna og auknum sveigjanleika þannig að þær gangi ekki lengra nauðsynlegt er.
Þar sem reglugerð (ESB) nr. 965/2012 kveður m.a. á um kröfur til starfrækslu svifflugvéla, er með þeirri reglugerð sem hér er til umræðu lagt til að breyta reglugerð (ESB) nr. 965/2012 þannig að þær kröfur gildi ekki lengur. Gert er ráð fyrir að gildistaka beggja reglugerða verði samtímis. Þrátt fyrir framangreint er lagt til að kröfur til eftirlitsstjórnvalda um eftirlit með starfrækslu svifflugvéla verði eftir sem áður í reglugerð (ESB) nr. 965/2012.
Hafa verður í huga að reglugerðin er sett með stoð í NBR (ESB) 2018/1139, og að viðauki V í grunngerðinni um grunnkröfur fyrir starfrækslu loftfara gildir eins og við á um svifflugvélar.
Reglugerðardrögin byggja m.a. á áliti EASA Committee nr. 7/2017 og 10/2017.
Efnisútdráttur: Í núgildandi reglugerð (ESB) nr. 965/2012 er m.a. kveðið á um kröfur um örugga starfrækslu svifflugvéla og er þar kveðið á um kröfur til: eftirlitsstjórnvalda (Annex II), kröfur til fyrirtækja varðandi flugrekstur (Annex III), kröfur til þeirra er stunda flutningaflug (Annex IV), kröfur til þeirra sem ekki stunda flug í ábataskyni á loftfari sem ekki er flókið vélknúið loftfar (Annex VII) og kröfur til þeirra sem stunda sérstaka starfrækslu (Annex VIII).
Beiting þessara ákvæða við starfrækslu svifflugvéla hefur hins vegar verið frestað, og með gildistöku reglugerðar 1084/2018 sem innleiddi reglugerð (ESB) 2018/394 var þeim frestað fram til 2020.
Eins og áður sagði er verið að fella kröfur reglugerðar (ESB) nr. 965/2012 niður, þar sem gert er ráð fyrir að önnur sértæk reglugerð fjalli um kröfur til starfrækslu svifflugvéla.
Fyrir utan áðurgreind ákvæði um svifflugvélar, er með reglugerðinni uppfærðar kröfur um „electronic flight bags“ fyrir loftför, í samræmi við viðauka 6 Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).
Kröfur um „electronic flight bags“ gilda bæði fyrir loftför í flutningaflugi, sem og loftför í almannaflugi eða sérstakri starfrækslu.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Skoða þarf hvernig rétt er að EFTA ríkin bregðist við því að reglugerðirnar báðar eru settar með stoð í NBR (ESB) 2018/1139. Fyrir Samgöngustofu felur innleiðing reglugerðarinnar í sér uppfærslu á verklagsreglum og handbókum flugrekstrardeildar.
Á Íslandi eru svifflugvélar eingöngu notaðar til frístundaflugs, og því engin starfræksla sem fer fram sem flutningaflug eða sérstök starfræksla. Áhrif af breytingunni eru þau að reglur sem gilda um starfrækslu svifflugvéla verða sveigjanlegri og minna íþyngjandi.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 28. gr. e., 80. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Innleiðing færi væntanlega fram með breytingu á reglugerð nr. 237/2014, um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og ALMENNINGS, ef einhver er:Kostnaður fyrir Samgöngustofu er óverulegur.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei
Horizontal issues: -Sektir, -Aðrar refsingar, -Stofnanir, -Lönd utan EES: Nei.
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 28. gr. e., 80. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Gera má ráð fyrir að gerð verði ný reglugerð um efnið. Breyta þarf reglugerð um almannaflug flugvéla nr. 694/2010 til samræmis.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1976
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 326, 20.12.2018, p. 64
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D058778/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 75
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02264, 9.11.2023

Breytt af (Modified by)

32021R1874 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2021/1874 of 25 October 2021 correcting the German language versions of Regulation (EU) 2018/395 laying down detailed rules for the operation of balloons as well as for the flight crew licensing for balloons, and of Implementing Regulation (EU) 2018/1976 laying down detailed rules for the operation of sailplanes as well as for the flight crew licensing for sailplanes Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R0358 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2020/358 of 4 March 2020 amending Implementing Regulation (EU) 2018/1976 as regards sailplane pilot licences Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)