32019R0290

Commission Implementing Regulation (EU) 2019/290 of 19 February 2019 establishing the format for registration and reporting of producers of electrical and electronic equipment to the register

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 320/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin er lögð fram til að samræma og einfalda aðferðir við skráningu og skil á gögnum fyrir magn raf- og rafeindatækja. Hún er sett í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/19/ESB frá 4. júlí 2012 um raf- og rafeindatækjaúrgang.
Aðildarríkin eiga að sjá til þess að framleiðendur raf- og rafeindatækja geti skráð sig á lista yfir framleiðendur raf- og rafeindatækja og að upplýsingarnar sem þeir eiga að skila séu í samræmi við A-lið 1. viðauka. Viðurkenndir aðilar eiga að skrá sig í skráningarkerfi þess lands sem vörurnar eru fluttar til skv. b-lið 1. viðauka.

Nánari efnisumfjöllun

Aðildarríkin eiga að nota skráningarform skv. 2. viðauka reglugerðarinnar í skráningarkerfi sem sett hafa verið upp til þess að framfylgja kröfum tilskipunar 2012/19/EU. Í skráningarformið eiga framleiðendur að skrá magn raf- og rafeindatækja sem þeir hafa sett á markað og í hvaða flokkum tækin eru. Reglugerðin öðlast gildi frá og með 12. mars 2019, en aðildaríkjum ESB ber að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar í síðasta lagi 1. janúar 2020.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagt er til að gerðin verði innleidd með breytingu á 14. og 15. gr. reglugerðar nr. 1061/2018, um raf- og rafeindatækjaúrgang.
Reglugerðin er sett með stoð í 1. og 2. mgr. 50. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Nýr sérstakur skráningargrunnur. Útbúa þarf sérstakan rafrænan skráningargrunn þar sem framleiðendur/innflytjendur, viðurkenndir aðilar og aðilar sem selja vörur beint til notenda skrá sig og skrá magn raf- og rafeindatækja sett á markað og aðrar upplýsingar í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Kostnaðarmatið er eftirfarandi:

Stofnkostnaður 3.000.000 kr.
Árlegur kostnaður við viðhald kerfis 1.000.000 kr.

Ítarlegra kostnaðarmat fylgir greiningunni.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0290
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 48, 20.2.2019, p. 6
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D060136/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 51
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 164, 29.6.2023, p. 53

Breytir (Modifies)

32012L0019 based on Directive 2012/19/EU of the European Parliament and of the Council of 4 July 2012 on waste electrical and electronic equipment (WEEE) (recast) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi