Opinbert eftirlit - 32019R0624

Commission Delegated Regulation (EU) 2019/624 of 8 February 2019 concerning specific rules for the performance of official controls on the production of meat and for production and relaying areas of live bivalve molluscs in accordance with Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/624 frá 8. febrúar 2019 um sértækar reglur um framkvæmd opinbers eftirlits með framleiðslu á kjöti og með framleiðslu- og umlagningarsvæðum fyrir lifandi samlokur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 049/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/624 varðandi sértækar reglur um framkvæmd opinbers eftirlits með framleiðslu á kjöti og framleiðslu- og umlagningarsvæðum fyrir lifandi samlokur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 625/2017.

Ný eftirlitslöggjöf mun taka gildi 14. desember 2019.
Grein 18(7) í reglugerð (ESB) 625/2017 heimilar framkvæmdastjórninni nánari útfærslu í framseldri reglugerð, á þeim atriðum sem talin eru upp í því ákvæði.
Reglugerðin setur m.a. fram reglur sem varða opinbert eftirlit með dýraafurðum til að tryggj að framleiðsla þeirra uppfylli kröfur um hollustuhætti, aukaafurðir dýra og dýravelferð.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin setur fram kröfur varðandi hvenær nota má opinbera aðstoðarmenn til að framkvæma lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun í sláturhúsi.
Settar eru fram kröfur um hvaða menntunarskilyrði opinberir aðstoðarmenn þurfa að uppfylla ásamt kröfum um að opinberir aðstoðarmenn skuli starfa undir eftirliti opinbers dýralæknis.
Reglugerðin setur fram viðbótar takmarkanir varðandi notkun opinberra aðstoðarmanna sem varða stærð og framleiðslugetu sláturhúsa, með gildistökunni verður slíkt einungis heimilt í litlum sláturhúsum.

Skilyrði vegna sjúkdómastöðu varðandi Brucellu og nautaberkla haldast óbreytt frá eldri löggjöf.

Sett er fram heimild til að lifandi skoðun sé framkvæmd á býli þegar um neyðarslátrun er að ræða en aðeins opinber dýralæknir hefur heimild til að framkvæma slíka skoðun.
Eins er sett fram heimild til að lifandi skoðun opinbers dýralæknis sé framkvæmd á býli fyrir almenna slátrun, í slíkum tilfellum fyllir opinberi dýralæknirinn út heilbrigðisvottorð sem skal fylgja sláturgripum í sláturhús.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd samhliða nýrri löggjöf um opinbert eftirlit og með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Hertar kröfur varðandi notkun opinberra aðstoðarmann í stærri sláturhúsum gæti reynst íþyngjandi fyrir Ísland þar sem oft er erfitt að manna tímabundar stöður eftirlitsdýralækna í sláturhúsum og löggjöfin setur stífari reglur um hvenær mögulegt er að manna slíkar stöður með opinberum aðstoðarmönnum.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0624
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 131, 17.5.2019, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2019)10
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 9.3.2023, p. 4
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 72, 9.3.2023, p. 4

Breytt af (Modified by)

32025R0687 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2025/687 of 30 January 2025 amending Delegated Regulation (EU) 2019/624 as regards ante-mortem inspections in slaughterhouses, ante-mortem inspections at the holding of provenance and post-mortem inspections Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32022R2258 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2022/2258 of 9 September 2022 amending and correcting Annex III to Regulation (EC) No 853/2004 of the European Parliament and of the Council on specific hygiene requirements for food of animal origin as regards fishery products, eggs and certain highly refined products, and amending Commission Delegated Regulation (EU) 2019/624 as regards certain bivalve molluscs Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32021R1422 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1422 of 26 April 2021 amending Delegated Regulation (EU) 2019/624 as regards certification in case of slaughter at the holding of provenance Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32017R0625 based on Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council of 15 March 2017 on official controls and other official activities performed to ensure the application of food and feed law, rules on animal health and welfare, plant health and plant protection products, amending Regulations (EC) No 999/2001, (EC) No 396/2005, (EC) No 1069/2009, (EC) No 1107/2009, (EU) No 1151/2012, (EU) No 652/2014, (EU) 2016/429 and (EU) 2016/2031 of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 1/2005 and (EC) No 1099/2009 and Council Directives 98/58/EC, 1999/74/EC, 2007/43/EC, 2008/119/EC and 2008/120/EC, and repealing Regulations (EC) No 854/2004 and (EC) No 882/2004 of the European Parliament and of the Council, Council Directives 89/608/EEC, 89/662/EEC, 90/425/EEC, 91/496/EEC, 96/23/EC, 96/93/EC and 97/78/EC and Council Decision 92/438/EEC (Official Controls Regulation) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi