Opinbert eftirlit - 32019R0627

Commission Implementing Regulation (EU) 2019/627 of 15 March 2019 laying down uniform practical arrangements for the performance of official controls on products of animal origin intended for human consumption in accordance with Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Regulation (EC) No 2074/2005 as regards official controls


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 003/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 2019/627 um samræmt hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með dýraafurðum sem ætlaðar eru til manneldis í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/625 og breytingar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2074/2005 hvað varðar opinbert eftirlit.

Nánari efnisumfjöllun

Ný eftirlitslöggjöf (ESB) 2017/625 fellir m.a. úr gildi reglugerð (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis.
Grein 18(8) í nýju Eftirlitslöggjöfinni heimilar framkvæmdastjórninni nánari útfærslu á þeim atriðum sem talin eru upp í ákvæðinu. Það er gert með útgáfu reglugerðar EB 2019/627.
Í reglugerðinni eru m.a. settar fram reglur varðandi lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun sláturafurða af mismunandi dýrategundum. Einnig reglur varðandi mjólkurframleiðslu, opinbert eftirlit með lifandi samlokum og fiskafurðum og hvernig eigi að bregðast við frávikum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem sjálfstæð reglugerð samhliða nýjum reglum um opinbert eftirlit og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Aukinn kostnaður fellur á hið opinbera vegna þjálfunar og hugsanlega fleiri stöðugilda.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Nokkuð íþyngjandi kröfur um að eitlar í meltingarfærum fullorðinna nautgripa sem hafa verið á beit skuli þreifaðir í heilbrigðisskoðun í sláturhúsi. Þessi krafa er tilkomin vegna mikilvægis þess að útiloka einkenni nautaberkla.

Ísland er ekki með viðurkenndan nautaberklafrían status, en nautaberklar hafa aldrei greinst á Íslandi. Krafan um að eitlar í meltingarfærum séu þreifaðir eru íþyngjandi, til þess að mæta því ætti Ísland að sækja um nautaberklafrían status.
Náist slíkur status fyrir Ísland gæfi það möguleika á undanþágu frá að þreifa eitla í meltingarfærum nautgripa.

Ítrekað er að eftirlit skuli vera skipulagt út frá áhættu og áhættan er skilgreind. Einnig er tekið fram að taka megi tillit til viðbótaröryggiskerfa sem framleiðandi hefur innleitt t.d. ákveðinna markaðsstaðla.
Þarna er farið ítarlega yfir störf eftirlitsdýralækna í sláturhúsum og lýst hvernig þeir eiga að bregðast við frávikum. Hættan á krossmengun vegna eftirlits er tekin fram sem er nýtt. Lögð er meiri áhersla á hreinleika gripa og tekin fram viðbrögð dýralækna vegna frávika á þessum lið.

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar EB nr. 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt hagnýtt fyrirkomulag
við framkvæmd opinbers eftirlits með dýraafurðum sem ætlaðar eru til manneldis í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/625 og breytingar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2074/2005 hvað varðar opinbert eftirlit.

Samantekt
Ný Eftirlitslöggjöf (EB) 2017/625 mun taka gildi 14. desember 2019. Hún mun meðal annars fella úr gildi EB reglugerð 854/2004 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis.
Grein 18(8) í nýju Eftirlitslöggjöfinni heimilar Framkvæmdastjórninni nánari útfærslu á þeim atriðum sem talin eru upp í greininni. Það er gert með útgáfu reglugerðar EB 2019/627.
Í reglugerðinni eru m.a. settar fram reglur varðandi lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun sláturafurða af mismunandi dýrategundum. Einnig reglur varðandi mjólkurframleiðslu, opinbert eftirlit með lifandi samlokum og fiskafurðum og hvernig eigi að bregðast við frávikum.

Atriði sem skipta Ísland máli

Í athugasemdum Norðmanna við reglugerð EB/2019/627 kemur fram að þeim finnst það nokkuð íþyngjandi að gerð sé krafa um að eitlar í meltingarfærum fullorðinna nautgripa sem hafa verið á beit skuli þreifaðir í heilbrigðisskoðun í sláturhúsi. Þessi krafa er tilkomin vegna mikilvægis þess að útiloka einkenni nautaberkla. Rök Norðmanna fyrir því að Noregur gæti sleppt þessum þætti heilbrigðisskoðunarinnar eru þau að landið er með vottun frá ESA um nautaberklafrían status. Það fylgir því aukin kostnaður fyrir Mattilsynet og sláturhúsin að þurfa að manna stöður svo hægt sé að framfylgja því að eitlar í meltingarfærum nautgripa séu þreifaðir. Einnig benda Norðmenn á óþarfa hættu á krossmengun þegar eftirlitsfólk þarf að snerta innyfli svo ítarlega.

Ísland er ekki með viðurkenndan nautaberklafrían status, en nautaberklar hafa aldrei greinst á Íslandi. Krafan um að eitlar í meltingarfærum séu þreifaðir eru íþyngjandi, til þess að mæta því ætti Ísland að sækja um nautaberklafrían status.
Náist slíkur status fyrir Ísland gæfi það möguleika á undanþágu frá að þreifa eitla í meltingarfærum nautgripa.

Ítrekað er að eftirlit skuli vera skipulagt út frá áhættu og áhættan er skilgreind. Einnig er tekið fram að taka megi tillit til viðbótaröryggiskerfa sem framleiðandi hefur innleitt t.d. ákveðinna markaðsstaðla.
Þarna er farið ítarlega yfir störf eftirlitsdýralækna í sláturhúsum og lýst hvernig þeir eiga að bregðast við frávikum. Hættan á krossmengun vegna eftirlits er tekin fram sem er nýtt. Lögð er meiri áhersla á hreinleika gripa og tekin fram viðbrögð dýralækna vegna frávika á þessum lið.

Farið er nákvæmlega yfir heilbrigðisskoðunina eftir slátrun fyrir allar dýrategundir eins og áður. Að sumu leyti er búið að fella niður ákveðna verkþætti eins og suma skurði í líffæri. En eins og Norðmenn hafa bent á, er búið að bæta við þreifingu á eitlum í meltingarfærum eldri nautgripa.

Gerð er krafa um að lungu úr fullorðnu fé séu þreifuð og lungaeitlar (3 stk.) séu þreifaðir, en það hefur ekki verið framkvæmt hingað til. Þetta gæti reynst íþyngjandi og krefst endurþjálfunar.

Þá er enn inni þreifing á lifur úr sauðfé eldri en 12 mánaða með opnun á gallgöngum, sem hefur heldur ekki verið framkvæmt hérlendis. Krafan er væntanlega tilkomin vegna lifraríkta sem aldrei hafa fundist á íslandi hérlendis. Þetta er íþyngjandi krafa og því ætti Ísland að sækja um að fá viðurkenndan status hvað það varðar.

Það er nýtt í reglugerð að við skoðun á sauðfé eftir slátrun, yngra og eldra en 12 mánaða, að höfuð þarf ekki að skoða sérstaklega, nema að það sé til manneldis. Sé það höfuð til manneldis af eldra en 12 mánaða, þarf að þreifa eitla á höfði. Ef nýta á höfuð frá lömbum til manneldis þarf eftirlitsdýralæknir eða aðstoðarmaður hans hafa skoðað þau höfuð sjónrænt. Verið er að fylgja þessu ákvæði eftir nú þegar.

Lögð er áhersla á að eftirlitsdýralæknar kanni hvort allur sérstakur áhættuvefur hafi veri fjarlægður.

Ekki eru miklar breytingar á kröfum við heilbrigðisskoðun alifugla.

Ekki er að sjá að efnislegar breytingar sé gerðar varðandi fisk og skeldýr o.þh. en gengið mun dýpra og nákvæmara í að skilgreina það sem þegar hafði komið fram í viðaukum 854/2004 varðandi skeldýrin.

Niðurstaða: Reglugerðin hefur mest áhrif á Matvælastofnun sem þarf að aðlaga verklag sitt. Uppfæra þarf skoðunarhandbækur og fræðsluefni og þjálfa starfsfólk í eftirliti.
Hún hefur einnig áhrif á verklag í sumum sláturhúsum sem er íþyngjandi að einhverju leiti. Komast mætti hjá ákveðnum kröfum með staðfestingu um að vissir sjúkdómar finnist ekki á Íslandi.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0627
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 131, 17.5.2019, p. 51
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D058605/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 16.2.2023, p. 6
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 49, 16.2.2023, p. 5

Breytt af (Modified by)

32025R2241 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2241 of 5 November 2025 amending Implementing Regulation (EU) 2019/627 as regards post-mortem inspections of bovine animals, sheep and goats Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32025R1447 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1447 of 18 July 2025 amending Implementing Regulation (EU) 2019/627 laying down uniform practical arrangements for the performance of official controls on products of animal origin intended for human consumption in accordance with Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32022R2503 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2022/2503 of 19 December 2022 amending and correcting Implementing Regulation (EU) 2019/627 as regards practical arrangements for the performance of official controls in live bivalve molluscs, fishery products, or related to UV-radiation Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32021R1709 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2021/1709 of 23 September 2021 amending Implementing Regulation (EU) 2019/627 as regards uniform practical arrangements for the performance of official controls on products of animal origin Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R2108 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2020/2108 of 16 December 2020 amending Annex II to Implementing Regulation (EU) 2019/627 as regards the health mark to be used for certain meat intended for human consumption in the United Kingdom in respect of Northern Ireland Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32017R0625 based on Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council of 15 March 2017 on official controls and other official activities performed to ensure the application of food and feed law, rules on animal health and welfare, plant health and plant protection products, amending Regulations (EC) No 999/2001, (EC) No 396/2005, (EC) No 1069/2009, (EC) No 1107/2009, (EU) No 1151/2012, (EU) No 652/2014, (EU) 2016/429 and (EU) 2016/2031 of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 1/2005 and (EC) No 1099/2009 and Council Directives 98/58/EC, 1999/74/EC, 2007/43/EC, 2008/119/EC and 2008/120/EC, and repealing Regulations (EC) No 854/2004 and (EC) No 882/2004 of the European Parliament and of the Council, Council Directives 89/608/EEC, 89/662/EEC, 90/425/EEC, 91/496/EEC, 96/23/EC, 96/93/EC and 97/78/EC and Council Decision 92/438/EEC (Official Controls Regulation) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32005R2074 amends Commission Regulation (EC) No 2074/2005 of 5 December 2005 laying down implementing measures for certain products under Regulation (EC) No 853/2004 of the European Parliament and of the Council and for the organisation of official controls under Regulation (EC) No 854/2004 of the European Parliament and of the Council and Regulation (EC) No 882/2004 of the European Parliament and of the Council, derogating from Regulation (EC) No 852/2004 of the European Parliament and of the Council and amending Regulations (EC) No 853/2004 and (EC) No 854/2004 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi