32021R0666
Commission Implementing Regulation (EU) 2021/666 of 22 April 2021 amending Regulation (EU) No 923/2012 as regards requirements for manned aviation operating in U-space airspace
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/666 frá 22. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar kröfur fyrir mannað flug í U-rýmis loftrými
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 116/2023 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmið með gerðinni er að gera nauðsynlegar breytingar á reglugerð (ESB) 923/2012 í þeim tilgangi að starfrækja megi mönnuð loftför sem eru ekki háð flugstjórnarþjónustu á öruggan hátt samhliða ómönnuðum loftförum í U-space loftrýminu. Minni háttar áhrif. Óverulegur kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmið með gerðinni er að gera nauðsynlegar breytingar á reglugerð (ESB) 923/2012 í þeim tilgangi að starfrækja megi mönnuð loftför sem eru ekki háð flugstjórnarþjónustu á öruggan hátt samhliða ómönnuðum loftförum í U-space loftrýminu. Efnisútdráttur: Um er að ræða framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2021/666 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar kröfur um mannað flug sem er starfrækt í U-loftrými. Í framkvæmdareglugerð (ESB) nr. 923/2012 er mælt fyrir um sameiginlegar flugreglur og rekstrarákvæði um þjónustu og verklagsreglur fyrir flugleiðsögu. Með þessari reglugerð eru gerðar nauðsynlegar breytingar á reglugerð (ESB) 923/2012. Breytingarnar snúa að kröfum um mannað flug innan U-space loftrýmisins. Breytingarnar snúa einkum að skilgreiningum á U-loftrými og kröfum um samskiptamáta.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Minni háttar Í dag er reglugerð. (ESB) 923/2012 ekki beitt á Íslandi en fyrirhugað er að beita reglugerðinni. Þessi breyting hefur engin áhrif á þá fyrirætlan en ef reglugerðin verður innleidd áður en af þeirri fyrirætlan verður þarf að innleiða þessar skilgreiningar sérstaklega með breytingu á flugreglum nr. 770/2010. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur – nema, eins og áður segir, ákvörðun um beitingu (ESB) 923/2012 hefur verið hrint í framkvæmd. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn enginn. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Isavia, ANS og rekstraraðilar dróna. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð: 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998. Innleiðing með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur – nema, eins og áður segir, ákvörðun um beitingu (ESB) 923/2012 hefur verið hrint í framkvæmd. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021R0666 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 139, 23.4.2021, p. 187 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 81 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02295, 9.11.2023 |