32021R1166

Commission Implementing Regulation (EU) 2021/1166 of 15 July 2021 amending Implementing Regulation (EU) 2019/947 as regards postponing the date of application for standard scenarios for operations executed in or beyond the visual line of sight


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1166 frá 15. júlí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar frestun á þeirri dagsetningu sem staðlaðar sviðsmyndir fyrir flug í eða úr augsýn fjarflugmanns koma til framkvæmda
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 140/2023

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með gerðinni er frestað gildistöku tiltekinna ákvæða í reglugerð (ESB) 2019/947 þar sem samræmdir staðlar með kröfum sem eiga við um starfrækslu UAS-kerfa í tilteknum flokkum eru ekki tiltækir. Með UAS-kerfum er átt við kerfi til að halda utan um og stjórna flugi ómannaðra loftfara, e. Unmanned Aircraft Systems. Flug með slíkum tækjum getur verið bæði í augsýn og úr augsýn stjórnenda þeirra. Þær reglur sem frestað eru um kerfi sem notað er fyrir flug ómannaðra loftfara sem eru úr augsýn stjórnenda sinna, nánar tiltekið í flokkum C5 og C6. Í reglugerð 2019/947 var gengið út frá því að umræddir staðlar yrðu tiltækir fyrr. Ekki áhrif hér á landi. Kostnaður óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Með gerðinni er frestað gildistöku tiltekinna ákvæða í reglugerð (ESB) 2019/947 þar sem samræmdir staðlar með kröfum sem eiga við um starfrækslu UAS-kerfa í tilteknum flokkum eru ekki tiltækir. Með UAS-kerfum er átt við kerfi til að halda utan um og stjórna flugi ómannaðra loftfara, e. Unmanned Aircraft Systems. Flug með slíkum tækjum getur verið bæði í augsýn og úr augsýn stjórnenda þeirra. Þær reglur sem frestað eru um kerfi sem notað er fyrir flug ómannaðra loftfara sem eru úr augsýn stjórnenda sinna, nánar tiltekið í flokkum C5 og C6. Í reglugerð 2019/947 var gengið út frá því að umræddir staðlar yrðu tiltækir fyrr.Efnisatriði: Því er gildistökudagsetningu 5. mgr. 5. gr.  frestað til 3. desember 2023.Þá er gildistöku g-liðar í flokki UAS.OPEN.060 í viðauka og l-liðar í UAS.SPEC.050 frestað til 1. júlí 2022.Aðildarríki geta fram til 2. desember 2023 samþykkt yfirlýsingar umráðenda UAS-kerfa sem byggðar eru á landsbundnum stöðluðum sviðsmyndum ef þær uppfylla kröfur skv. UAS.SPEC.020 í viðauka.Slíkar yfirlýsingar munu falla úr gildi frá 2. desember 2025.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gerðin hefur ekki áhrif hér á landi. Um er að ræða frestun á gildistökudagsetningum tiltekinna ákvæða í reglugerð (ESB) 2019/947 sem enn hefur ekki veið innleidd hér á landi.Lagastoð fyrir inneiðingu. gerðar: Lagastoðin fyrir innleiðingu gerðarinnar er ekki fyrir hendi í núgildandi loftferðalögum en mun vera í endurskoðuðum loftferðalögum sem nú er unnið að.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn enginn.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin fyrir innleiðingu gerðarinnar er ekki fyrir hendi í núgildandi loftferðalögum en mun verða í endurskoðuðum loftferðalögum sem nú er unnið að.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R1166
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 253, 16.7.2021, p. 49
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 107
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02283, 9.11.2023