Innleiðingarreglugerð um geymslurými fyrir úrgang um borð í skipum - 32022R0089

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/89 of 21 January 2022 laying down rules for the application of Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council as regards the method to be used for the calculation of sufficient dedicated storage capacity


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/89 frá 21. janúar 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 að því er varðar aðferðina sem nota á til að reikna út nægilegt sérhæft geymslurými
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.05 Sjóflutningar
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 340/2022

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnar ESB þar sem mælt er fyrir um hvernig reikna eigi út hvort nægilegt geymslurými sé um borð fyrir úrgang um borð í skipum og hvaða viðmið eigi að nota til að meta hvort upplýsingar um það hversu mikill úrgangur muni myndast á leið til næstu hafnar eru réttar í tilkynningum um úrgang og farmleifar.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnarinnar sem sett er samkvæmt heimild í  tilskipun um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum (Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council of 17 April 2019 on port reception facilities for the delivery of waste from ships, amending Directive 2010/65/EU and repealing Directive 2000/59/EC).Ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 191/2022 um upptöku tilskipunar 2019/883 hefur ekki tekið gildi þar sem staðfesting á stjórnskipulegum fyrirvara allra EES EFTA ríkjanna liggur ekki fyrir ennþá.Samkvæmt tilskipun 2019/883 er almenna reglan sú að skip eigi að skila úrgangi í land. Á því er undantekning ef nægilegt geymslurými er fyrir úrgang sem myndast um borð þar til skipið kemur til næstu hafnar, sbr. grein 7(4) í tilskipuninni. Í gerðinni er mælt fyrir um hvernig reikna eigi út hvort nægilegt geymslurými sé um borð fyrir úrgang (nema úrgang sem fellur undir viðauka II við MARPOL og úrgang sem kemur upp með veiðarfærum). Einnig er í gerðinni mælt fyrir um hvaða viðmið eigi að nota til að meta hvort upplýsingar um það hversu mikill úrgangur muni myndast á leið til næstu hafnar eru réttar í tilkynningum um úrgang og farmleifar. Innleiðing gerðarinnar hefur í för með sér að taka verður upp nýtt verklag við yfirferð yfir tilkynningar og farmleifar hjá hafnaryfirvöldum, Umhverfisstofnun og hafnarríkiseftirliti Samgöngustofu. Í samræmi við ákvæði tilskipunar EB 2019/883 verður um aukið eftirlit að ræða. Innleiðing gerðarinnar hefur því kostnað í för með sér fyrir þá aðila sem taka á móti tilkynningum um úrgang og farmleifar frá skipum, bæði í formi þjálfunar og breytts verklags, sem og mannaflaþörf. Ekki er fyrirséð að unnt verði að sinna eftirfylgni samkvæmt þessari gerð nema með auknu fjármagni.Samkvæmt 6. gr. laga nr. 33/2004 er ráðherra heimilt að setja í reglugerðir ákvæði um móttöku og meðferð úrgangs frá skipum (k-liður 6. gr.). Innleiðing gerðarinnar kallar væntanlega á reglugerðarbreytingu, þar sem ekki er tilgreint í núgildandi reglugerð hvernig eigi að meta hvort geymslurými fyrir úrgang sé nægilegt fyrir siglingu til næstu hafnar þar sem ætlunin er að skila úrgangi í land, en einnig vegna þess að innleiða þarf reglugerðina í heild sinni til að ná fram samræmdri framkvæmd í EES ríkjunum. Samkvæmt 6. gr. laga nr. 33/2004 er ráðherra heimilt að setja í reglugerðir ákvæði um móttöku og meðferð úrgangs frá skipum (k-liður 6. gr.). Innleiðing gerðarinnar kallar væntanlega á reglugerðarbreytingu, þar sem ekki er tilgreint í núgildandi reglugerð hvernig eigi að meta hvort geymslurými fyrir úrgang sé nægilegt fyrir siglingu til næstu hafnar sem ætlunin er að skila úrgangi í land. Mikilvægt er að innleiðingarreglugerðin verði innleidd á sama tíma og ákvæði tilskipunar 2019/883.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 1200/2021 um móttöku á úrgangi og framleifum frá skipum. Lagastoð í lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0089
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 15, 24.1.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 86
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 164, 29.6.2023, p. 88