Innleiðingarreglugerð um eftliti með því að skip skili úrgangi í land - ­32022R0090

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/90 of 21 January 2022 laying down rules for the application of Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council as regards the detailed elements of the Union risk-based targeting mechanism for selecting ships for inspection

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/90 frá 21. janúar 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 að því er varðar ítarlega þætti í áhættumiðaðri tilhögun við val skipa til skoðunar í Sambandinu
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 20.05 Úrgangur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 340/2022
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnar ESB þar sem mælt er fyrir um hvernig velja eigi skip til skoðunar til að hafa virkt eftirlit með því að skip skili úrgangi í land.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnarinnar sem sett er samkvæmt heimild í tilskipun um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum (Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council of 17 April 2019 on port reception facilities for the delivery of waste from ships, amending Directive 2010/65/EU and repealing Directive 2000/59/EC).Ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 191/2022 um upptöku tilskipunar 2019/883 hefur ekki tekið gildi þar sem staðfesting á stjórnskipulegum fyrirvara allra EES EFTA ríkjanna liggur ekki fyrir ennþá.Í gerðinni er mælt fyrir um hvernig velja eigi skip til skoðunar til að hafa virkt eftirlit með því að skip skili úrgangi í land í samræmi við ákvæði tilskipunar ESB 2019/883. Taka skal upp samræmt áhættumat sem byggir á því að notuð eru tiltekin viðmið til að flokka skip með tilliti til hættunnar á því að þau uppfylli ekki ákvæði tilskipunarinnar. Við skoðun á skipum skulu ríki setja í forgang skoðun á skipum sem falla í hæsta áhættuflokkinn og velja af handahófi a.m.k. 1% af fjölda skipa á hverju ári.Innleiðing gerðarinnar hefur í för með sér að taka verður upp nýtt verklag við val á skipum til skoðunar og fjölga skoðunum á skipum, sbr. einnig 11. gr. tilskipunar 2019/883 þar sem gert er ráð fyrir að a.m.k. 15% skipa sem koma til hafnar séu valin til skoðunar. Breytt verklag kallar á aukið samráð, nýja verkferla og upplýsingaflæði á milli Umhverfisstofnunar og hafnarríkiseftirlits Samgöngustofu og aukinn mannskap þarf til að uppfylla ákvæði um aukinn fjölda skoðana á skipum eða samning við viðurkennt flokkunarfélag. Innleiðing gerðarinnar mun því hafa kostnað í för með sér. Ekki er fyrirséð að unnt verði að sinna eftirfylgni samkvæmt þessari gerð nema með auknu fjármagni og mannauð. Samkvæmt 6. gr. laga nr. 33/2004 er ráðherra heimilt að setja í reglugerðir ákvæði um móttöku og meðferð úrgangs frá skipum (k-liður 6. gr.). Ljóst er að innleiða þarf þessa reglugerð í heild sinni. Hvað varðar laga- og reglugerðarbreytingar er að öðru leyti vísað til greiningar á tilskipun 2019/883.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 1200/2021 um móttöku á úrgangi og framleifum frá skipum. Lagastoð í lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0090
Samþykktardagur hjá ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 15, 24.1.2022, p. 7
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 86
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 164, 29.6.2023, p. 88