Útdráttur
Í reglugerð (ESB) nr. 139/2014 er mælt fyrir um kröfur og stjórnsýsluaðferð sem tengjast flugvöllum þ. á. m. eru ákvæði um leiðsögu- og stjórnkerfi fyrir umferð á jörðu niðri og ákvæði sem snúa að starfrækslu í skertu skyggni á flugvöllum. Með þessari gerð eru lagðar til breytingar á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 sem eru til komnar vegna ýmissa breytinga sem Alþjóða flugmálastofnunin (ICAO) hefur gert á viðaukum og skjölum, þar á meðal á ICAO Doc. 9365 og viðauka 6 og 14.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða tillögu að reglugerð um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 139/2014. Markmið með breytingunum er að tryggja aðgengi að nauðsynlegum innviðum á flugvöllum vegna starfrækslu í skertu skyggni og tryggja nauðsynlegar upplýsingar og verklag í tengslum við starfrækslu í skertu skyggni e. all weather operations.Efnisútdráttur: Í reglugerð (ESB) nr. 139/2014 er mælt fyrir um kröfur og stjórnsýsluaðferð sem tengjast flugvöllum þ. á. m. eru ákvæði um leiðsögu- og stjórnkerfi fyrir umferð á jörðu niðri og ákvæði sem snúa að starfrækslu í skertu skyggni á flugvöllum.Með þessari gerð eru lagðar til breytingar á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 sem eru til komnar vegna ýmissa breytinga sem Alþjóða flugmálastofnunin (ICAO) hefur gert á viðaukum og skjölum, þar á meðal á ICAO Doc. 9365 og viðauka 6 og 14.Breytingarnar snúa einkum að lagfæra: - úrelt ákvæði sem snúa að sjónrænum leiðsögutækjum og öðrum leiðsögutækjum e. visual and non-visual aids.- úreltar kröfur um flugmálagögn- úreltar kröfur um yfirborðsstýringu flugvalla og- úrelt verklag vegna starfrækslu í lélegu skyggni (LVP)Lagðar eru til breytingar á eftirfarandi viðaukum reglugerðar (ESB) nr. 139/2014:- Viðauki I, skilgreiningar- Viðauka III (Part-ADR.OR)- Viðauka IV (Part-ADR.OPS)Breytingarnar eiga að tryggja samræmi við skilgreiningar Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem og við skilgreiningar í reglugerð (ESB) 965/2012.Þá miðar gerðin að því að tryggja að sjónræn og önnur leiðsögutæki séu til staðar ásamt MET-búnaði til stuðnings starfræslu í skertu skyggni. Gera breytingar á ákvæðum um flugmálagögn rekstraraðila flugvallar, ákvæðum um leiðsögu- og stjórnkerfi fyrir umferð á jörðu niðri, e. surface movement guidance, ákvæðum um verklag í lélegu skyggni. Gert er ráð fyrir að breytingar sem lagðar eru til tryggi hæsta öryggisstig um leið og þær stuðla að hagkvæmni byggðri á nýjustu tækniframförum.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur einkum áhrif á þá sem reka flugvelli og þá sem sinna flugleiðsöguþjónustu á flugvöllum.Fyrir flugvelli eru áhrifin einkum þau að gera þarf uppfærslur á verklagi og kortum. Snýst aðallega um verklag á flugvöllum og samvinnu milli rekstraraðila flugvalla og þeirra sem sinna flugleiðsöguþjónustu á flugvöllum.Af gerðinni um leiða aukin kostnað aðalega vegna aukins tækjabúnaðar. Unnið er að áætlun um fjármögnun hans. Sá kostnaður mun með einum eða öðrum hætti lenda á notendum. Þar til sá búnaður hefur verið uppfærður leiðir af gerðinni að afköst flugvallarins munu minnka við þær veðuraðstæður sem gerðin vísar til.Um er að ræða óveruleg áhrif á Samgöngustofu.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 56. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 75/2016 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn sem snýr að Samgöngustofu.Gerðin hefur hugsanlega í för með sér kostnað fyrir rekstraraðila flugvalla. Snýst þó mest um uppfærslu á verklagi og breytingum á kortum sem upplýsingaþjónusta flugmála birtir.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Rekstraraðilar flugvalla og þá sem sinna flugleiðsöguþjónustu á flugvöllum.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei