Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1562 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 um að koma á fót evrópskum lista yfir endurvinnslustöðvar skipa. - 32023D1562

Commission Implementing Decision (EU) 2023/1562 of 27 July 2023 amending Implementing Decision (EU) 2016/2323 establishing the European List of ship recycling facilities pursuant to Regulation (EU) No 1257/2013 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1562 frá 27. júlí 2023 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 um að koma á fót Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 297/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með framkvæmdaákvörðuninni er verið að uppfæra Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar sem birt er í framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/2323.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa gerir kröfu um að skipaeigendur tryggi að skip skuli eingöngu endurunnin í skipaendurvinnslustöðvum sem eru birtar í Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar. Gerð og uppfærsla Evrópuskráarinnar skal vera í samræmi við 16. gr. reglugerðarinnar.
Evrópuskráin er síðan birt í framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/2323 um að koma á fót Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar.

Nánari efnisumfjöllun

Þessi framkvæmdarákvörðun (EU) 2023/1562, breytir og uppfærir (EU) 2016/2323 varðandi gildandi Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar.Gerðin birtir í viðauka uppfærða Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar, þar af eru þrjár nýjar í Tyrklandi. Gerðar eru nokkrar breytingar á viðaukanum sem varða skráningar nokkurra skipaendurvinnslustöðva í EES/ESB löndum. Þessar breytingar á upplýsingum eru varðandi tegund og stærð skipa sem hægt er að endurvinna, sem og gildistíma heimildar til að endurvinna skip. Einnig eru gerðar breytingar varðandi tengiliðaupplýsingar hjá einni skipaendurvinnslustöð í Bretlandi. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/2323 ber því að breyta til samræmis við þetta. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023D1562
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 190, 28.7.2023, p. 13
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D091148/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 42, 16.5.2024, p. 80
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1139, 16.5.2024

Breytir (Modifies)

32016D2323 amends Commission Implementing Decision (EU) 2016/2323 of 19 December 2016 establishing the European List of ship recycling facilities pursuant to Regulation (EU) No 1257/2013 of the European Parliament and of the Council on ship recycling Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32013R1257 based on Regulation (EU) No 1257/2013 of the European Parliament and of the Council of 20 November 2013 on ship recycling and amending Regulation (EC) No 1013/2006 and Directive 2009/16/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi