Útdráttur
Verið er að uppfæra mæliþætti sem notaðir eru til að meta losun koltvísýrings. Þar er í fyrsta lagi átt við hvernig þyngd, eða massi ökutækja er reiknaður, í öðru lagi hvernig losun er metin og í þriðja lagi hvernig losun miðað við þyngd er metin. Gerðinni er fyrst og fremst beint að framleiðendum og því lítil áhrif hér á landi og eingöngu óbein. Kostnaður fellur undir reglubundna starfsemi Samgöngustofu.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að uppfæra mæliþætti sem notaðir eru til að meta losun koltvísýrings. Þar er í fyrsta lagi átt við hvernig þyngd, eða massi ökutækja er reiknaður, í öðru lagi hvernig losun er metin og í þriðja lagi hvernig losun miðað við þyngd er metin.Aðdragandi: Í I. viðauka við reglugerð ESB 2019/631 er að finna aðferðir sem nota á við útreikninga á sérstökum losunarmarkmiðum fyrir framleiðendur fólksbíla og léttra atvinnubíla.Frá 1. janúar 2021 hafa staðlar fyrir losun koltvísýrings verið byggðir á gögnum sem byggjast á samræmdu prófunaraðferðina fyrir létt ökutæki, Worldwide Harmonised Light Vehicle Test Procedure (WLTP). Þörf er á að gefa út frekari skýringar fyrir framleiðendur sem eru aðilar að hópi sem ákvarðar útreikningsaðferðir fyrir sérstök losunarmarkmið fyrir árin 2021-2024.Í A-hluta I. viðauka við reglugerð ESB 2019/631 er tilgreind útreikningsaðferð fyrir undanþágumarkmið sem gilda almanaksárin 2021-2024. Til þess að tryggja réttaröryggi er nauðsynlegt að tilgreina einnig reikniaðferð sem nota á fyrir undanþágumarkmið fyrir almanaksárin 2025 til 2028, eins og tilgreint er í c-lið 2. undirgreinar 4. mgr. 10. gr. framangreindrar reglugerðar.Til að greina á milli fullgerðra og ófullgerðra ökutækja skal breyta skilgreiningum á prófunarmassa í kílógrömmum allra nýrra léttra atvinnuökutækja sem sett er fram í lið B- hlut 6.2.1 viðauka I við reglugerð 2019/631.Í II. og III. viðauka við reglugerð ESB nr. 2019/631 koma fram kröfur um gerð og snið þeirra gagna sem aðildarríkin, eða framleiðendur, skulu safna og senda árlega til framkvæmdastjórnarinnar um nýja fólksbíla og ný létt atvinnuökutæki. Í ljós hefur komið að unnt var að einfalda þær breytur sem notaðar eru við útreikning á sérstökum losunarmarkmiðum og það því gert. Þá var nauðsynlegt að bæta við breytum, einkum til að sannprófa Co2 losun ökutækja í notkun.Í III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/631 er tilgreind aðferð fyrir framleiðendur til að reikna út CO2 losun og massagildi fyrir létt atvinnuökutæki sem eru gerðarviðurkennd í mörgum þrepum. Ef um er að ræða einstakt, ófullbúið grunnökutæki, skal reikna massa ökutækisins við lið 1.2.4 í A-hluta III. viðauka, að teknu tilliti til þyngdargildis e. body mass value (BO), sem hefur verið stillt á 1.375 fyrir útreikninga fyrir almanaksárið 2021. Fyrir almanaksárin 2022 til 2024 ætti að endurskoða það gildi miðað við meðaltal massa í keyrslu nýrra ófullgerðra grunnökutækja sem skráð eru í sambandinu almanaksárin 2018, 2019 og 2020.Þar sem ekki liggja fyrir endanleg Co2 vöktunargögn fyrir ný létt atvinnuökutæki fyrir almanaksárið 2020, var ekki hægt að ljúka endurskoðun BO gildis fyrir 31. október 2021 eins og kveðið er áum í A-hluta, liðar 1.2.4, í III. viðauka við reglugerð 2019/631. Að teknu tilliti til þess að endurskoðun B0 gildis með því að nota eingöngu gögnin fyrir almanaksárin 2018 og 2019 hefði leitt til gildis sem væri mjög nálægt núverandi B0 gildi og til að auðvelda innleiðingu og veita hlutaðeigandi framleiðendum réttaröryggi, rétt er að viðhalda gildandi B0 gildi fyrir almanaksárið 2022. Fyrir almanaksárin 2023 og 2024 hefur endurskoðað B0 gildi verið reiknað út frá endanlegum vöktunargögnum fyrir létt atvinnuökutæki fyrir almanaksárin 2018, 2019 og 2020. Enn fremur, til að veita framleiðendum réttaröryggi eftir árið 2024, er nauðsynlegt að skýra að endurskoðað B0 gildi gildir einnig árin eftir 2024.Skýringa er þörf til að taka betur tillit til mismunandi leiða til að ákvarða loftaflfræðileg áhrif þegar um er að ræða ófullgerða N1 grunnökutæki sem hluta af útreikningi á vöktunarlosun koltvísýrings.B-hluti III. viðauka við reglugerð 2019/631 inniheldur ákveðnar upplýsingar sem tengjast sérstaklega NEDC reglugerðarprófunarferlinu sem er úrelt og eru hér með teknar út.Því er reglugerð ESB 2019/631 breytt til samræmis við það.Efnisútdráttur: Viðaukum I, II og III gerðarinnar er breytt með þessari gerð.Í I. viðauka er fjallað um reikniformúlur og formúlur yfir undanþágumarkmið 2025-2028Í II. viðauka er m.a. fjallað um hvernig aðildarríki skulu skrá, fyrir hvert almanaksár, nákvæm gögn um það hvernig losun er háttað frá nýjum fólksbílum (M1) á yfirráðasvæði þeirra og senda þau til framkvæmdastjórnarinnar.Í III. viðauka er m.a. fjallað um hvernig aðildarríki skulu skrá, fyrir hvert almanaksár, nákvæm gögn fyrir hvert létt atvinnuökutæki sem skráð er sem N1 ökutæki á yfirráðasvæði þeirra og senda þau til framkvæmdastjórnarinnar í samræmi við 2. mgr. 7. gr.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Hefur áhrif á gerð EFTA skýrslunnar.• Hefur áhrif á skráningar í ökutækjaskrá þar sem við bætast gildi sem þarf að skrá.• Upplýsingarnar þarf að setja þetta í skráningarhandbók ökutækja og þjálfa starfsfólk.• Það þarf að fjölga reitum í Ekju.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Það er reiknað með að þær breytingar sem þarf að ráðast í verði unnar af fólki innan Samgöngustofu og ætti því ekki að vera aukinn kostnaður.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: NeiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.