32023R1769
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1769 of 12 September 2023 laying down technical requirements and administrative procedures for the approval of organisations involved in the design or production of air traffic management/air navigation services systems and constituents and amending Implementing Regulation (EU) 2023/203
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1769 frá 12. september 2023 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir varðandi samþykkt fyrirtækja sem tengjast hönnun eða framleiðslu kerfa og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 147/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmið með gerðinni er að setja samræmdar kröfur um eftirlit með hönnunar- og framleiðslufyrirtækjum. Um er að ræða nýja framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir vottun fyrirtækja sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfum fyrir flugumferðastjórn og flugleiðsögu og á íhlutum í slík kerfi. Gerðin hefur töluverð áhrif hér á landi. Kröfur sem settar eru fram með henni snúa að hönnunarfyrirtækjum sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfa fyrir flugumferðastjórn / flugleiðsöguþjónustu. Ekki gert ráð fyrir kostnaði fyrir hið opinbera.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmið með gerðinni er að setja samræmdar kröfur um eftirlit með hönnunar- og framleiðslufyrirtækjum. Um er að ræða nýja framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir vottun fyrirtækja sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfum fyrir flugumferðastjórn og flugleiðsögu og á íhlutum í slík kerfi.Aðdragandi: Með reglugerðinni er gerð krafa um að Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) verði stjórnsýslulegt yfirvald, votti hönnunar- og framleiðslufyrirtæki og hafi eftirliti með þeim. Þessar kröfur voru áður að hluta í reglugerð (ESB) nr. 552/2004. Hún var felld úr gildi 11. september 2018. Ákveðnar greinar og tilvísanir í innleiðingarreglugerðir giltu þó áfram en máttu ekki gilda lengur en til 12. september 2023.Efnisútdráttur: Reglugerðin kveður á um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir samþykki fyrirtækja sem taka þátt í hönnun eða framleiðslu kerfa og íhluta fyrir flugumferðarstjórnun/flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) og eru háð vottun í samræmi við 4. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1768 eða hönnunaryfirlýsingum í samræmi við 5. gr. sömu reglugerðar.Með vísan til 1. og 4. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139 og með vísan til eðlis og áhættu sem fylgir starfsemi fyrirtækja sem taka þátt í hönnun eða framleiðslu kerfa og íhluta fyrir flugumferðarstjórnun/flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) skulu slík fyrirtæki vera vottuð.Reglugerðin mælir fyrir um reglur og verklag við útgáfu, viðhald, breytingu á, takmarkanir eða afturköllun skírteina fyrir slík fyrirtæki. Þá fjallar gerðin einnig um réttindi og skyldur slíkra fyrirtækja sem skírteinishafa og samræmt eftirlit með þeim sem framkvæmt er af Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gerðin hefur töluverð áhrif hér á landi. Kröfur sem settar eru fram með henni snúa að hönnunarfyrirtækjum sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfa fyrir flugumferðastjórn / flugleiðsöguþjónustu.Tern ehf. og Isavia ANS eru fyrirtæki sem hanna og framleiða flugleiðsögubúnað.Samkvæmt gerðinni þarf eftirfarandi búnaður vottun frá EASA:- búnaður sem styður fjarskipti milli flugumferðarstjóra og flugmanna- búnaður sem styður flugumferðarþjónustu við að beita aðskilnaði eða koma í veg fyrir árekstur flugvéla- búnaður sem þarf yfirlýsingu um hönnunarsamræmi- búnaður sem styður G/G fjarskipti- búnaður sem styður kögun og leiðsöguSamkvæmt gerðinni þarf að tilkynning EASA um samræmi vegna:- búnaður sem styður ATS, CNS, ASM, ATFM, AIS eða MET þjónustuÁhrif á Samgöngustofu eru takmörkuð en felast einkum í uppfærslu verkferla og þjálfun starfsfólks.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna innleiðingar gerðarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Isavia ANS, Isavia ohf., TERN og Veðurstofa ÍslandsHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R1769 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 228, 15.9.2023, p. 19 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 53 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1839, 2.10.2025 |
Breytir (Modifies)
| 32023R0203 | amends | Commission Implementing Regulation (EU) 2023/203 of 27 October 2022 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council, as regards requirements for the management of information security risks with a potential impact on aviation safety for organisations covered by Commission Regulations (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664, and for competent authorities covered by Commission Regulations (EU) No 748/2012, (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340 and (EU) No 139/2014, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 and amending Commission Regulations (EU) No 1178/2011, (EU) No 748/2012, (EU) No 965/2012, (EU) No 139/2014, (EU) No 1321/2014, (EU) 2015/340, and Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018R1139 | based on | Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | approval, administrative procedure, civil aviation, air safety, air traffic, technical specification, organisation |
|---|---|
| Subject matter | Transport |
