Reglugerð (ESB) 2023/2122 sem breytir reglugerð (ESB) 2018/2066 um vöktun og skýrslugjöf vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. - 32023R2122

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/2122 of 12 October 2023 amending Implementing Regulation (EU) 2018/2066 as regards updating the monitoring and reporting of greenhouse gas emissions pursuant to Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2122 frá 17. október 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 að því er varðar uppfærslu á vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 340/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í reglugerðinni er að finna nýjustu breytingar á reglum um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina. Má þar meðal annars nefna breytingar eins og að svigrúm til brennslu á sorpi frá sveitarfélögum er rýmkað, ákvæði um flug endurskoðuð og reglur um meðhöndlun og sjálfbærniviðmið lífmassa innleiddar.
Í reglugerðinni eru einnig skilgreind skilyrði fyrir því hvenær einstaklingur teljist endanlegur neytandi eldsneytis í nýju viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS2) og auknar upplýsingaskyldur gerðar til aðildarríkja til að koma í veg fyrir tvöfalda talningu á losun milli núverandi viðskiptakerfis með losunarheimildir (ETS) og nýja kerfisins (ETS2).

Nánari efnisumfjöllun

Í eftirfarandi umfjöllun er farið yfir helstu breytingar og viðbætur við MRR sem felast í reglugerð þeirri sem hér er til greiningar, reglugerð (ESB) 2023/2122. 2. og 3. gr. - Breytingar á gildissviði og skilgreiningum. Gerð er breyting á 2. gr. MRR þar sem gildissvið MRR er aukið í samræmi við útvíkkun á gildissviði ETS-tilskipunarinnar, MMR gildir því nú um starfsemi sem fellur undir viðauka I og III við ETS-tilskipunina, en í því felast m.a. viðeigandi ákvæði er varða vöktun og skýrslugjöf sem taka til eftirlitsskyldra aðila undir ETS2 kerfinu. Einnig eru gerðar breytingar á 3. gr. MRR er snýr að skilgreiningum til að endurspegla þær breytingar sem gerðar hafa verið á ETS-tilskipuninni. M.a. er bætt við skilgreiningum á hugtökunum „municipal waste“, „eligible aviation fuel“, „fuel stream“, „released fuel amount“, „scope factor“ og „final consumer“ svo eitthvað sé nefnt. Helstu breytingar er varða vöktun og skýrslugjöf rekstraraðila 18. gr.  MRR um óhóflegan kostnað: Gerð er sú breyting að hækka þær upphæðir sem fram koma í 4. mgr. 18. gr. MRR um hvað telst til óhóflegs kostnaðar. Tilvísun í 20 evrur í 1. mgr. 18. gr. er breytt í 80 evrur, tilvísun í 2000 evrur í 4. mgr. 18. gr. er breytt í 4000 evrur og tilvísun í 500 evrur í sömu málsgrein er breytt í 1000 evrur. 39. gr. MRR um lífmassa og lífmassahluta: Bætt er við nýrri 2. mgr. a. í 39. gr. MRR, en í henni kemur fram að þar sem rekstraraðili notar massajöfnunaraðferð skv. 25. gr. MRR og lífmassi sem uppfyllir viðmið 5. mgr. 38. gr. MRR er notaður sem ílagsefni (e. input material) eða eldsneyti, og frálagsefni (e. output material) innihalda kolefni, skuli rekstraraðili skila inn gögnum til lögbærs stjórnvalds um hlutfall lífmassa í kolefnisinnihaldi efnisstrauma. Þetta er til að sanna að heildarlosun starfsstöðvar sé ekki kerfislægt vanmetin með þeirri vöktunaraðferð sem notuð er og að heildarmassi kolefnis sem samsvarar lífmassahluta þess kolefnis sem er í öllu viðkomandi frálagsefni sé ekki meiri en heildarmassi lífmassahluta þess kolefnis sem er í ílagsefnum og eldsneyti. Einnig er 3. mgr. í 39. gr. skipt út fyrir nýja málsgrein. Hún felur í sér undanþágur frá 1. og 2. mgr. 39. gr. og 30. gr. MRR nema þegar hún er notuð í samræmi við 4. mgr. 43. gr. En samkvæmt greininni er rekstraraðila gert að nota ekki greiningar eða matsaðferðir í samræmi við 2. mgr. 39. gr. MRR til að meta hlutfall lífmassa í náttúrugasi sem kemur frá gasdreifikerfi (e. gas grid) þar sem lífgasi (e. bio gas) er bætt við. Rekstraraðili getur ákvarðað hlutfall náttúrugass frá gasdreifikerfi sem er lífgas með þeirri aðferð sem lýst er í 4. mgr. 39. gr. MRR.   43. gr. MRR um ákvörðun losunar: Nýrri 4. mgr. er bætt við 43. gr. MRR. Þegar rekstraraðili beitir samfelldri sýnatöku úr útblástursstreymi og starfsstöðin notar náttúrulegt gas (e. natural gas) úr dreifikerfi skal hann draga koltvísýring frá lífgasi (e. biogas), sem finnst í náttúrulegu gasi, frá heildarlosun koltvísýrings eins og það mælist. Lífmassahluti náttúrugassins skal ákvarðaður í samræmi við 32.-35. gr. MRR. 48. gr. MRR um innifalið koldíoxíð: Í 2. mgr.  48. gr. er eftirfarandi setningu bætt við: Við ákvörðun á hlutfalli lífmassa í inniföldu koldíoxíði í samræmi við 39. gr. MRR, skal rekstraraðili  flutningsstöðvarinnar tryggja að valin aðferðafræði vöktunar vanmeti ekki kerfislægt heildarlosun flutningsstöðvarinnar (e. transferring installaion).3. mgr. 48. gr. er skipt út.  Þar  kemur nú fram að rekstraraðilar mega ákvarða magn koldíoxíðs, sem flutt er frá starsfstöð (e. out of the installation), bæði á flutnings- og viðtökustað. Í slíkum tilfellum skal magn þess koldíoxíðs sem flutt er og magn  samsvarandi lífmassahluta vera það sama. Helstu breytingar er varða vöktun og skýrslugjöf flugrekenda Tonnkílómetri felldur út:Gerð er breyting alls staðar þar sem tonnkílómetri kemur fyrir í stofnreglugerð. Með tilskipun (ESB) 2023/958 voru reglur um endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda til flugrekenda endurskoðaðar og ekki er lengur notast við gögn um tonnkílómetra henni til grundvallar, sbr. 10. tölul. formálsorða reglugerðar þessarar. Með reglugerðinni eru því gerðar viðeigandi breytingar á MRR í því sambandi, m.a. er b.-liður 4. mgr. 15. gr. felldur brott  ásamt öllum öðrum ákvæðum þar sem notast var við þá mælieiningu, sbr. 8.-10. tölul. 1. mgr. reglugerðar þessarar.   53. gr. MRR um vöktunaraðferðir fyrir losun frá flugstarfsemi: Einni undirgrein er bætt við 1. mgr. 53. gr. um skýrslugjöf á grundvelli 7. gr. reglugerðar (ESB) 2019/1603 (CORSIA reglugerðin, um ráðstafanir samþykktar af International Civil Aviation Organisation varðandi vöktun, skýrslugjöf og vottun losunar í flugstarfsemi). Einnig er einni undirgrein bætt við 6. mgr. 53. gr. um að flugrekandi skuli nota sjálfgefna losunarstuðla skv. töflu 1 í III. viðauka sem bráðabirgðalosunarstuðul. 54. gr. MRR um sérákvæði um lífeldsneyti: 1. mgr. 54. gr. sem fjallar um blandað eldsneyti er breytt. Nú kemur þar fram að flugrekandi geti annað hvort gert ráð fyrir því að lífeldsneyti sé ekki fyrir hendi og beita stöðluðum jarðefnahluta (e. fossil fraction), sem nemur 100%, eða ákvarða lífeldsneytishlutann (e. bio fuel fraction) í samræmi við 2. eða 3. mgr. 54. gr. MRR. Rekstraraðili má einnig tilkynna í losunarskýrslu um „neat“ lífeldsneyti með 100% lífmassahluta. Í 2. mgr. 54. gr.  er tveimur undirgreinum bætt við. Í þeim kemur fram að flugrekandi skuli leggja fram sönnun þess, sem þarf að teljast fullnægjandi af lögbæru stjórnvaldi, að lífeldsneyti megi rekja til flugs strax eftir áfyllingu eldsneytis (e. fuel uplift) fyrir viðkomandi flug. Ef að um er að ræða nokkur flug í röð án þess að áfylling eldsneytis eigi sér stað á milli þeirra, skal flugrekandi skipta heildarmagni lífeldsneytis niður á flug í hlutfalli við losun frá þeim sem reiknuð er með notkun bráðabirgðalosunarstuðuls.   3. mgr.  54. gr. MRR er skipt út og nýrri 3. mgr. a. er bætt við.Í 3. mgr. kemur fram að þegar að keypt lífeldsneyti er ekki afhent ákveðinni flugvél, skal flugrekandi ekki nota greiningar til að ákvarða lífmassahluta þess eldsneytis sem notað er. Ef ekki er hægt að rekja lífeldsneyti á flugvelli til ákveðins flugs, skal flugrekandi telja lífeldsneyti til þess flugs sem gera skal upp losunarheimildir vegna í samræmi við 3. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar, í hlutfalli við losun frá þeim flugum sem að fara frá þeim flugvelli og reiknuð er með notkun bráðabirgðalosunarstuðuls. Flugrekandi getur ákvarðað lífmassahluta með innkaupaskrám fyrir lífeldsneyti með jafngilt orkuinnihald, að því tilskyldu að flugrekandi færi lögbæru yfirvaldi sönnur fyrir því með fullnægjandi hætti að lífeldsneytið hafi verið afhent í eldsneytiskerfi (e. fuelling system) brottfararflugvallar á  vöktunartímabilinu, eða 3 mánuðum fyrir upphaf, eða 3 mánuðum eftir lok þess vöktunartímabils. Samkvæmt 3. mgr. a. þarf flugrekandi að sanna fyrir lögbæru stjórnvaldi að:-          a. heildarmagn  lífeldsneytis sem talið er fram sé ekki meira en sem nemur heildareldsneytisnotkun flugrekanda fyrir flug sem gera þarf upp losunarheimildir vegna í samræmi við 2. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar, og á upptök (e. originating) frá þeim flugvelli þar sem lífeldsneytið er fengið.-          b. magn lífeldsneytis fyrir flug sem gera þarf upp losunarheimildir vegna sé ekki meira en heildarmagn lífeldsneytis sem keypt er þar sem heildarmagn þess lífeldsneytis sem er selt þriðja aðila er dregið frá.-          c. lífmassahluti lífeldsneytis sem rekja má til þess flugs sem samantekið er fyrir hvert flugvallarpar (e. aggregated per aerodrome pair) sé ekki meira en hámark leyfilegrar blöndunar fyrir slíkt lífeldsneyti eins og vottað er í samræmi við viðurkennda alþjóðlega staðla.-          d. engin tvítalning eigi sér stað á sama magni lífeldsneytis, sérstaklega að lífeldsneytið sem keypt er sé ekki talið fram sem notað í eldri skýrslu eða af hálfu einhverra annarra eða í öðru kerfi. Hvað varðar a.-c.-lið, skal allt eldsneyti sem eftir er á tankinum eftir flug og fyrir áfyllingu eldsneytis talið sem 100% jarðefnaeldsneyti.Til að sýna fram á reglufylgni við þau skilyrði sem koma fram í d.-lið er flugrekanda heimilt að nota upplýsingar úr gagnagrunni Sambandsins skv. 2. mgr. 28. gr. tilskipunar (ESB) 2018/2001. 4. mgr.  54. gr. MRR er skipt út, þar kemur fram  að losunarstuðullinn fyrir lífeldsneyti skuli vera núll en í því sambandi skal 5. mgr. 38. gr. MRR gilda um brennslu flugrekenda á lífeldsneyti. Losunarstuðull hvers blandaðs eldsneytis skal reiknaður og talinn fram í skýrslu sem bráðabirgðalosunarstuðull, margfaldaður með jarðefnahluta eldsneytisins. 54. gr. a. MRR um sérákvæði varðandi flugvélaeldsneyti sem uppfyllir viðmiðanir: Nýrri   54. gr. a. er bætt við, þar kemur fram í 1. mgr. að því er varðar  6. mgr. 3. gr. c. í ETS-tilskipuninni,  að flugrekandi í farþegaflugi skuli koma á fót, skrá, innleiða og viðhalda skriflegu ferli við vöktun á öllu því magni flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir (e. eligible aviation fuel) sem notað er í flugi undir hljóðhraða (e. subsonic flights), og telja fram í skýrslu upplýsingar um magn þess flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir í formi sérstaks minnisblaðs í árlegri losunarskýrslu. Í 2. mgr. segir að flugrekandi skuli tryggja að magn þess flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir sem talið er fram sé vottað í samræmi við 30. gr. tilskipunar (ESB) 2018/2001. Í 3. mgr. segir að vegna blandaðs flugvélaeldsneytis, skuli flugrekandi annaðhvort áætla að flugvélaeldsneyti sem uppfyllir viðmiðanir sé ekki til staðar og beita sjálfgefnum (e. default) fossil fraction uppá 100%, eða ákvarða brot (e. fraction) sem að uppfyllir skilyrði í samræmi við 4. og 5. mgr. 54. gr. a. Flugrekandi getur líka tilkynnt neat flugvélaeldsneyti sem uppfyllir viðmið með 100 % broti sem uppfyllir viðmið (e. The aircraft operator may also report neat eligible aviation fuel with 100 % eligible fraction.). Í 4. mgr. kemur fram að þegar að flugvélaeldsneyti sem að uppfyllir viðmið er blandað við jarðefnaeldsneyti og sent flugvél í auðgreinanlegum hlutum (e. in physically identifiable batches), getur flugrekandi byggja mat á innihaldi sem uppfyllir viðmið á massajöfnun (e. mass balance) jarðefnaeldsneytis og flugvélaeldsneytis sem að uppfyllir viðmið.Flugrekandi skal einnig leggja fram sönnur, sem eru fullnægjandi fyrir lögbært stjórnvald, að eldsneyti sem uppfyllir viðmið, sé  eignað því flugi sem flogið er strax eftir að áfylling á sér stað (e. uplift of that flight). Ef að um er að ræða nokkur flug í röð án þess að áfylling eldsneytis eigi sér stað á milli þeirra, skal flugrekandi skipta heildarmagni eldsneytis sem uppfyllir viðmið niður á flug í hlutfalli við losun frá þeim sem reiknuð er með notkun bráðabirgðalosunarstuðuls.   Í 5. mgr. kemur fram að ef ekki er hægt að rekja eldsneyti sem uppfyllir viðmið á flugvelli til ákveðins flugs, skal flugrekandi telja eldsneyti sem uppfyllir viðmið til þess flugs sem gera skal upp losunarheimildir vegna í samræmi við 3. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar, í hlutfalli við losun frá þeim flugum sem að fara frá þeim flugvelli og reiknuð er með notkun bráðabirgðalosunarstuðuls. Flugrekandi getur ákvarðað hluta eldsneytis sem uppfyllir viðmið með innkaupaskrám fyrir eldsneyti sem uppfyllir viðmið og er með jafngilt orkuinnihald, að því tilskyldu að flugrekandi færi lögbæru yfirvaldi sönnur fyrir því með fullnægjandi hætti að eldsneytið sem uppfyllir viðmið hafi verið afhent í eldsneytiskerfi (e. fuelling system) brottfararflugvallar á vöktunartímabilinu, eða 3 mánuðum fyrir upphaf, eða 3 mánuðum eftir lok þess vöktunartímabils. Samkvæmt 6. mgr. þarf flugfélag að sanna fyrir lögbæru stjórnvaldi að:-          a. heildarmagn  eldsneytis sem uppfyllir viðmið sem talið er fram sé ekki meira en sem nemur heildareldsneytisnotkun flugrekanda fyrir flug sem gera þarf upp losunarheimildir vegna í samræmi við 2. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar, og á upptök (e. originating) frá þeim flugvelli þar sem eldsneytið sem uppfyllir viðmið er fengið.-          b. magn eldsneytis sem uppfyllir viðmið fyrir flug sem gera þarf upp losunarheimildir vegna sé ekki meira en heildarmagn eldsneytis sem uppfyllir viðmið sem keypt er, þar sem heildarmagn þess eldsneytis sem er selt þriðja aðila er dregið frá.-          c. hluti eldsneytis sem uppfyllir viðmið sem rekja má til þess flugs sem samantekið er fyrir hvert flugvallarpar (e. aggregated per aerodrome pair) sé ekki meira en hámark leyfilegrar blöndunar fyrir slíkt eldsneyti eins og vottað er í samræmi við viðurkennda alþjóðlega staðla.-          d. engin tvítalning eigi sér stað á sama magni eldsneytis sem uppfyllir viðmið, sérstaklega að eldsneytið sem uppfyllir viðmið sem keypt er sé ekki talið fram sem notað í eldri skýrslu eða af hálfu einhverra annarra eða í öðru kerfi. Hvað varðar a.-c.-lið, skal allt eldsneyti sem eftir er á tankinum eftir flug og fyrir áfyllingu eldsneytis talið sem 100% jarðefnaeldsneyti. Til að sýna fram á reglufylgni við þau skilyrði sem koma fram í d.-lið er flugrekanda heimilt að nota upplýsingar úr gagnagrunni Sambandsins skv. 2. mgr. 28. gr. tilskipunar (ESB) 2018/2001. Í 7. mgr. kemur fram að ef að losunarstuðullinn fyrir eldsneyti sem uppfyllir viðmið er núll, skal losunarstuðull hvers blandaðs eldsneytis reiknaður og talinn fram í skýrslu sem bráðabirgðalosunarstuðull, margfaldaður með jarðefnahluta eldsneytisins. 55. gr. flugrekendur með litla losun. 2. mgr. 55 gr. er skipt út, og er undanþága frá 53. gr. MRR, þar kemur nú fram að flugrekendur með litla losun mega meta eldsneytisnotkun sem byggir á fjarlægð hvers flugvallapars (e. distance per aerodrome pair) með því að nota tæki (e. tools) frá Eurocontrol eða öðrum stofnunum, sem geta unnið úr gögnum um  flugumferð og forðast þannig vanmat á losun. 68. gr. - Tímasetningar og skyldur er snúa að gagnaskilum.  2. mgr.  68 gr. er eytt. Í 3. mgr. eru gerðar þær breytingar að tilvísun til tonnkílómetra er eytt út. Nýrri 4. mgr. er bætt við, sem kveður á um að aðildarríki skulu skila inn árlegum vottuðum losunarskýrslum fyrir hverja brennslustöð fyrir úrgang sveitarfélaga líkt og útlistað er í viðauka I í ETS tilskipuninni, til framkvæmdastjórnarinnar fyrir 30. apríl á hverju ári. Þegar lögbært stjórnvald hefur leiðrétt losunarskýrslur eftir 30. apríl skal aðildarríki láta framkvæmdastjórnina vita án tafar. 69. gr. skýrslugjöf og útbætur á vöktunaraðferð.  1. mgr. 69. gr. MRR er breytt hvað varðar  tíðni gagnaskila um umbætur á aðferðafræði við vöktun. Nú er það svo að  rekstraraðilar í flokk A  þurfa að skila inn skýrslu á fimm ára fresti, rekstraraðilar í flokki B þurfa að skila inn skýrslu á þriggja ári fresti og rekstraraðilar í flokki C þurfa að skila inn skýrslu á tveggja ára fresti. Skila skal skýrslum fyrir 30. júní. Vöktun og skýrslugjöf eftirlitsskyldra aðila Tveimur nýjum köflum er bætt við MRR í samræmi við gildistöku reglna um ETS2, sbr. tilskipun (ESB) 2023/959. Þetta eru VII. kafli a. sem fjallar um vöktun losunar frá eftirlitsskyldum aðilum og VII. kafli b. sem fjallar um þverlæg ákvæði (e. horizontal provisions), sem tengjast vöktun losunar frá eftirlitsskyldum aðilum.  VII. kafla a. er skipt í tvo hluta, annars vegar hluta 1 sem inniheldur almenn ákvæði og hins vegar hluta 2 um reiknimiðaðar aðferðir. VII. kafli a., 1. hluti – Almenn atriði.  Ný 75. gr. a. fjallar um almennar meginreglur Í 75. gr. a. kemur fram að 4. gr. (almennar skyldur), 5. gr. (heilleiki), 6. gr. (samræmi, samanburðarhæfni og gagnsæi), 7. gr. (nákvæmni), 8. gr. (heildstæði aðferðar og losunarskýrslu, e. Integrity of the methodology and of the emissions report), 9. gr. (samfelldar úrbætur, e. continuous improvement) og 10. gr. (samræming) MRR  skulu eiga við um losun eftirlitsskylda aðila og heimildir (e. allowances), sem að falla undir IV. kafla a. í ETS-tilskipuninni. Vegna þessa eru gerðar ákveðnar aðlaganir hvað varðar orðalag og þær eru útlistaðar í a. – h. lið greinarinnar.    Ný 75. gr. b. fjallar um vöktunaráætlanir.  Í henni kemur fram að 11. gr. (almennar skyldur), 2. mgr. 12. gr. (efni og skil á vöktunaráætlun), 13. gr. (stöðluð og einfölduð vöktunaráætlun), 14. gr. (breytingar á vöktunaráætlun), 1. mgr. 15. gr. (samþykki á breytingu á vöktunaráætlun) og 16. gr. (framkvæmd og skráning á breytingum) MRR skulu gilda hvað varðar eftirlitsskylda aðila og ákveðin aðlögun sett fram varðandi orðalag í því samhengi. Í 2. mgr. greinarinnar kemur fram að eftirlitsskyldir aðilar sem stunda starfsemi sem fellur undir III. viðauka í ETS-tilskipuninni skulu skila vöktunaráætlun til lögbærs stjórnvalds, til samþykkis, í það minnsta fjórum mánuðum áður en starfsemi hefst, nema lögbært stjórnvald hafi sett annan tímafrest fyrir slík skil. Vöktunaráætlun skal útlista aðferðafræði við vöktun og a.m.k. þá þætti sem að listaðir eru í I. viðauka við MMR. Með vöktunaráætlun skal einnig skila niðurstöðum úr áhættumati.  Í samræmi við 15. gr. MRR, eru í 3. mgr. 75. gr. b. listuð upp atriði sem að teljast til verulegra breytinga á vöktunaráætlun eftirlitsskyldra aðila. Ný 75. gr. c. fjallar um tæknilegan gerleika (e. technical feasibility). Ef að eftirlitsskyldur aðili telur notkun ákveðinnar vöktunaraðferðar ekki tæknilega gerlega, skal lögbært stjórnvald meta tæknilegan gerleika með hliðsjón af rökum eftirlitsskylds aðila.   Þegar kemur að vöktun og skýrslugjöf varðandi sögulega losun fyrir árið 2024 í samræmi við 4. mgr. 30. gr. f. í ETS-tilskipuninni, geta aðildarríki undanþegið eftirlitsskylda aðila frá því að setja fram rök fyrir því að sérstök vöktunaraðferð sé ekki tæknilega gerleg. Ný 75. gr. d. fjallar um óhóflegan kostnað. Ef að eftirlitsskyldur aðili telur notkun ákveðinnar vöktunaraðferðar stofna til óhóflegs kostnaðar, skal lögbært stjórnvald meta hvort að kostnaður sé óhóflegur með hliðsjón af rökstuðningi eftirlitsskylds aðila. Kostnaður skal talinn óhóflegur þegar áætlaður kostnaður er meiri en ávinningurinn. Þegar kemur að vöktun og skýrslugjöf varðandi sögulega losun fyrir árið 2024 í samræmi við 4. mgr. 30. gr. f. í ETS tilskipuninni, geta aðildarríki undanþegið eftirlitsskylda aðila frá því að setja fram rök fyrir því að sérstök vöktunaraðferð feli í sér óhóflegan kostnað, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Ef að kostnaður við framkvæmdir sem tengjast umbótum á  á vöktunaraðferð er innan við 4000 evrur á vöktunartímabili telst kostnaðurinn ekki óhóflegur. Í tilfelli aðila með litla losun er þessi tala 1000 evrur. Ný 75. gr. e. fjallar um flokkun eftirlitsskyldra aðila og eldsneytisstrauma (e. fuel streams). Þegar kemur að vöktun losunar og ákvörðun á lágmarkskröfum fyrir aðferðarþrep (e. tier) fyrir viðeigandi reiknistuðul (e. calculation factor), skal hver eftirlitsskyldur aðili ákveða sinn flokk í samræmi við 2. mgr., og ef við á, ákveða flokk eldsneytisstraums í samræmi við 3. mgr. Samkvæmt 2. mgr. 75. gr. e. falla eftirlitsskyldir aðilar  í annað hvort flokk A eða flokk B:-          Aðili í A-flokki: þar sem á  árunum 2027-2030, vottuð meðallosun síðustu tvö ár  fyrir skýrslutímabil (e. reporting period), að undanskildu koldíoxíði frá  lífmassa, er jafn mikil eða minni en 50 þúsund tonn kodíoxíðígilda (e. less then 50 000 tonnes CO2(e)).-          Aðili í B-flokki: þar sem á árunum 2027-2030 vottuð meðallosun síðustu tvö ár  fyrir skýrslutímabil (e. reporting period), að undanskildu koldíoxíði frá  lífmassa, er jafn mikil eða meiri en 50 þúsund tonn koldíoxíðígilda (e. more then 50 000 tonnes CO2(e)).    Frá árinu 2031 er flokkun í A- og B-flokk ákvörðuð út frá vottaðri meðallosun á viðskiptatímabilinu (e. trading period) á undan núgildandi viðskiptatímabili (e. current trading period). Samkvæmt 3. mgr. skal eftirlitsskyldur aðili flokka hvern eldsneytisstraum í einn af eftirfarandi flokkum::-          Minniháttar eldsneytisstraumar (e. de minimis) þar sem valdir eldsneytisstraumar  samanlagt standa fyrir losun upp á minna en 1000 tonn af jarðaefnakoldíoxíði (e. fossil CO2) á ári.-          Meiriháttar eldsneytisstraumar (e. major), sem falla ekki undir minniháttar strauma. Sem undanþága frá 2. mgr. 14. gr. MRR, getur lögbært stjórnvald  heimilað eftirlitsskyldum aðila að sleppa við að gera breytingar á vöktunaráætlun þegar, á grundvelli vottaðrar losunar, straumar sem flokkaðir hafa verið sem minniháttar eldsneytisstraumar, fara umfram þau mörk sem gilda um þá eldsneytisstrauma, ef að eftirlitsskyldur aðili sýnir fram á að ekki hafi verið farið umfram þann þröskuld á seinustu fimm skýrslutímabilum (e. reporting periods) og að ekki verði farið umfram hann á síðari tímabilum. Ef að ekki eru tiltæk gögn yfir vottaða losun til að ákveða flokkun í samræmi við 2. mgr. 75. gr. e, þá skal eftirlitsskyldur aðili nota varfærnislegt mat (e. conservative estimate) á árlegri meðallosun, að undanskildu koldíoxíði frá lífmassa, til að ákveða flokkun sína, sbr. 4. mgr.     5. mgr. 38. gr. MRR skal gilda í tengslum við 75. gr. e.  Ný 75. gr. f. fjallar um vöktunaraðferð Í henni kemur fram að eftirlitsskyldir aðilar skulu ákvarða árlega losun koldíoxíðs frá starfsemi sem getið er  í III. viðauka  ETS-tilskipunarinnar með því að margfalda, fyrir hvern eldsneytisstraum, það magn  eldsneytis sem er afhent (e. released), með viðeigandi breytistuðli (e. unit conversion factor), umfangsstuðli (e. scope factor) og losunarstuðli (e. emission factor). Þar kemur einnig fram að losunarstuðull skal  settur fram sem tonn af koltvísýringi á hvert terajúl.Lögbært stjórnvald getur heimilað framsetningu losunarstuðuls sem t CO2/t eða t CO2/Nm3. Einnig er frekar útskýrt hvernig slíkt skal reiknað af eftirlitsskyldum aðila. Ný 75. gr. g. fjallar um tímabundnar breytingar á vöktunaraðferð. Ef, vegna tæknilegra ástæðna, er tímabundið ekki hægt að fylgja samþykktri vöktunaráætlun skal eftirlitsskyldur aðili beita hæsta mögulega aðferðarþrepi (e.  tier)  eða varfærnislegri þreplausri aðferð (e. a conservative no-tier approach)(þó ekki fyrir umfangstuðul (e. scope factor)ef ekki er unnt að beita aðferðarþrepi, þar til skilyrðum fyrir beitingu aðferðaþreps, sem samþykkt var í vöktunaráætlun, hefur verið komið aftur á. Í þessu skyni skulu eftirlitsskyldir aðilar gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að beiting vöktunráætlunarinnar sem lögbært stjórnvald hefur samþykkt, hefjist að nýju sem fyrst, sbr. 1. mgr. 75. gr. g. Í 2. mgr. 75. gr. g. kemur fram að eftirlitsskyldir aðilar skuli tilkynna lögbæru stjórnvaldi um tímabundnar breytingar í samræmi við 1. mgr., án tafar. Ákveðin atriði skulu koma fram í slíkri tilkynningu og þau eru talin upp í a. – d. lið 2. mgr. 75. gr. g.  VII. kafli a., 2. hluti – Reiknimiðaðar aðferðir 1. undirliður – Almennt Ný 75. gr. h. fjallar um viðeigandi aðferðarþrep fyrir magn afhents eldsneytis og reiknistuðla (e. applicable tiers for released fuel amounts and calculation factors). Í 1. mgr. 75. gr. h. kemur fram að þegar eftirlitsskyldur aðili skilgreinir viðeigandi aðferðarþrep fyrir meiriháttar eldsneytisstrauma, til að ákvarða það magn afhents eldsneytis og hvern reiknistuðul um sig, skuli hver eftirlitsskyldur aðili beita eftirfarandi:-          a. þeim aðferðaþrepum sem koma fram í V. viðauka, ef um er að ræða aðila í A-flokki, eða þegar þarf að  nota reiknistuðul fyrir eldsneytisstraum sem er  hefðbundið markaðseldsneyti. -          b. Í öllum tilvikum sem ekki falla undir a. lið, skal notast við hæsta aðferðarþrep eins og skilgreint er í II. viðauka a. Í 2. undirgrein. 1. mgr. 75. gr. h. koma fram ákveðnar undantekningar frá því sem að ofan greinir þegar kemur að magni afhents eldsneytis og reiknimiðuðum aðferðum hvað varðar meiriháttar eldsneytisstrauma ef ekki er unnt að beita þeim þrepum sem getið er í 1. mgr. 75. gr. h. vegna tæknilegs ógerleika eða óhóflegs kostnaðar. Í 2. mgr. segir að hvað varðar minniháttar eldsneytisstrauma (e. de minimis) getieftirlitsskyldur aðili notað varfærnislegt mat í stað aðferðarþrepa til að ákvarða magn afhents eldsneytis og til að ákvarða reiknimiðaðar aðferðir, nema að mögulegt sé að notast við aðferðarþrep, án viðbótaraðgerða (e. additional effort).Eftirlitsskyldur aðili getur einnig ákvarðað magn afhents eldsneytis  með því að byggja á reikningum og innkaupaskrá, sbr. 2. mgr. 75. gr. h. Ný 75. gr. i. fjallar um viðeigandi aðferðarþrep fyrir umfangsstuðulinn (e. the scope factor). Í 75. gr. i. kemur fram að við skilgreiningu á viðeigandi aðferðaþrepi  fyrir eldsneytisstrauma, til að ákvarða umfangsstuðulinn, skuli hver eftirlitsskyldur aðili beita hæsta aðferðarþrepi sem skilgreint er í II. viðauka a. Í 1.- 3. undirgrein 1. mgr. er að finna ákveðnar undantekningar frá þessu, sem eru háðar samþykki lögbærs stjórnvalds.Hvað varðar minniháttar eldsneytisstrauma, skal eftirlitsskyldur aðili ekki skyldugur til að sýna fram á að skilyrðum 1. mgr. gr. sé fullnægt, nema að slíkt sé mögulegt án viðbótaraðgerða (e. additional effort), sbr. 2. mgr. 75. gr. i. 2. undirliður – Magn afhents eldsneytis (e. released fuel amounts).  Ný 75. gr. j. fjallar um að ákvarða magn afhents eldsneytis Í 1. mgr. 75. gr. j. kemur fram að eftirlitsskyldir aðilar skuli ákvarða magn afhents eldsneytis í eldsneytisstraumum á einn af eftirfarandi háttum: a)       Þegar eftirlitsskyldur aðili og eldsneytisstraumar samsvara (e. correspond to) aðilum með skyldur til skýrsluskila eða orkuvörum sem falla undir lands löggjöf sem innleiddi tilskipanir ESB 2003/96 og ESB 2020/262,  á grundvelli aðferða við mælingu sem notaðar eru í þeirri löggjöf, þegar að aðferðirnar byggja á mælifræðilegu eftirliti.b)      Byggt á samanteknum mælingum  á magni þar sem eldsneytisstraumar eru losaðir til notkunar (e. for consumption).c)       Með samfelldum mælingum á þeim punkti  þar sem eldsneytisstraumar eru losaðir til notkunar. Lögbært stjórnvald getur farið fram á, þegar við á, að einungis sé notast við aðferð þá sem lýst er undir a. lið. Þegar ákvörðun (e. determin) á magni afhents eldsneytis  fyrir allt almanaksárið er tæknilega ógerleg eða felur í sér óhóflegan kostnað er eftirlitsskyldum aðila heimilt að velja næstmest viðeigandi dag til að aðgreina- eitt vöktunarár frá því næsta og samrýma við tilskilið almanaksár til samræmis við það. Slík undanþága er háð samþykki lögbærs stjórnvalds og skal skráð í vöktunaráætlun, sbr. 2. mgr. 75. gr. j. Í 3. mgr. 75. gr. j . kemur fram undanþága frá 75. gr. h. um að þegar notast er við þá aðferð sem sett er fram í a. lið. 1. mgr. 75. gr. j. getur eftirlitsskyldur aðili ákvarðað magn afhents eldsneytis án þess að notast við aðferðarþrep. Lögbært stjórnvald skal skila skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar fyrir 30. júní 2026 hvað varðar beitingu í framkvæmd og óvissustig (e. level of uncertinty) þegar kemur að þeirri aðferð sem lýst er í a. lið 1.mgr. 75. gr. j. 3. undirliður – Ákvörðun reiknistuðla (e. calculation factors) Ný 75. gr. k . fjallar um að ákvarða reiknistuðla.  Í 1. mgr. 75. gr. k. kemur fram að 30. gr., 1. -3. mgr. 31. gr. og 32. gr. – 35. gr. MRR skuli gilda hvað varðar eftirlitsskylda aðila og ákveðnar orðalagsbreytingar settar fram í því sambandi. Í 2. mgr. 75. gr. k. kemur fram að lögbært stjórnvald getur farið fram á að eftirlitsskyldur aðili ákvarði breytistuðul eininga (e. unit conversion factor) og losunarstuðul fyrir eldsneyti í samræmi við af. lið 3. gr. ETS-tilskipunarinnar, með sömu aðferðarþrepum og gilda fyrir hefðbundið markaðseldsneyti (e. commercial standart fuel) á landsvísu (e. national or regional level), með ákveðnum mæliþáttum, sem settir eru fram í 2. mgr. 75. gr. k. Áður en að lögbært stjórnvald beitir þessari undanþágu skal það senda framkvæmdastjórninni ákveðin gögn til samþykkis. Lögbært stjórnvald getur safnað ákveðnum gögnum eða farið fram á afhendingu ákveðinna upplýsinga í samræmi við ákvæði 2. mgr. 75. gr. k. Það skal á þriggja ára fresti endurskoða gildin sem notuð eru og tilkynna framkvæmdastjórninni ef um er að ræða miklar breytingar. Ný 75. gr. l fjallar um ákvörðun umfangsstuðulsins (e. the scope factor).  Þegar magn afhents eldsneytis  er einungis notað til bruna í geirum sem falla undir III. viðauka ETS-tilskipunarinnar, skal umfangsstuðullinn vera  1, sbr. 1. mgr. 75. gr. g.   Þegar magn afhents eldsneytis  er einungis notað til bruna í geirum sem falla undir II. og III. kafla ETS-tilskipunarinnar, að undanskildum stöðvum sem eru undanskildar samkvæmt 27. gr. a. í ETS-tilskipuninni, skal umfangsstuðullinn vera 0, að því gefnu að ekki hafi átt sér stað tvítalning - eins og lýst er í 5. mgr. 30. gr. f. í ETS-tilskipuninni. Eftirlitsskyldur aðili skal  ákvarða umfangsstuðulinn fyrir hvern efnisstraum, í samræmi við annaðhvort 2. eða 3. mgr. 75. gr. l. Í a.-g. lið. 2. mgr. 75. gr. l eru settar fram þær leiðir sem að eftirlitsskyldur aðili getur notast við til ákvörðunar á umfangsstuðlinum, í samræmi við aðferðarþrep sem sett eru fram í II. viðauka. a. við MRR. Ef að það er tæknilega ógerlegt að notast við þær aðferðir sem settar eru fram í 2. mgr., getur eftirlitsskyldur aðili notast við stuðulinn 1, sbr. 3. mgr. 75. gr. l.Undanþága frá þessu er í 4. mgr. greinarinnar, en skv. henni er heimilt að notast við stuðul lægri en 1, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í þessu sambandi eru ólíkar aðferðir settar fram hvað varðar skýrslugjöf um losun á árunum 2024-2026 og frá 1. janúar 2027. Í 5. mgr. 75. gr. l. kemur fram að ef að  eftirlitskyldur aðili notar fleiri en eina af þeim aðferðum sem fram koma í 2.-4. mgr. til ákvörðunar á umfangsstuðlinum skuli umfangsstuðullinn metinn sem vegið meðaltal af þeim umfangsstuðlum sem notaðir eru. Ákveðnum upplýsingum skal skilað inn af hálfu eftirlitsskylds aðila í þessu sambandi. Sem undanþága frá 1. mgr. 75. gr. l. og 75. gr. i. getur aðildarríki farið fram á að eftirlitsskyldir aðilar noti ákveðnar aðferðir sem getið er í 2. mgr. 75. gr. l. eða sjálfgildi (e. default value) fyrir ákveðnar tegundir eldsneytis eða á ákveðnum landsvæðum á yfirráðasvæði þeirra. Slík sjálfgildi eða landsgildi (e. national values) skulu samþykkt af framkvæmdastjórninni, sbr. 6. mgr. 75. gr. l.Í sömu málsgrein kemur fram hvað framkvæmdastjórnin skal taka til skoðunar við slíkt samþykki.Sjálfgildi, í samræmi við 6. mgr. 75. gr. l. skal ekki vera lægra en 0,95 fyrir eldsneyti sem notað er í geirum sem falla undir III. viðauka ETS tilskipunarinnar og ekki hærra en 0,05 fyrir eldsneyti notað í geirum sem falla ekki undir þann viðauka.    4. undirliður – Meðhöndlun lífmassa.  Ný 75. gr. m. fjallar um afhendingu lífmassaeldsneytisstrauma.  Í 1 .mgr. 75. gr. m, kemur fram að 38. gr og 39. gr., að undanskildum 2. mgr. og 2. mgr. a. skulu gilda. Ákveðnar orðalagsbreytingar eru gerðar í því sambandi. Ef að eftirlitsskyldur aðili, samkvæmt þeim aðferðarstuðli sem við á, þarf að framkvæma greiningu til að ákvarðar lífmassahluta (e. biomass fraction), skal það gert á grundvelli viðeigandi staðla og aðferða, sem þarfnast samþykkis lögbærs stjórnvalds, sbr. 3. mgr. 75. gr. m. Ef að þetta er ekki mögulegt eða myndi leiða til óhóflegs kostnaðar, skal eftirlitsskyldur aðili skila inn annarskonar aðferð við mat til að ákvarða lífmassahluta, sem svo þarfnast samþykkis lögbærs stjórnvalds.  Ný 75. gr. n. fjallar um eftirlitsskylda aðila með litla losun.  Lögbært stjórnvald getur flokkað eftirlitsskyldan aðila sem aðila með litla losun, sé a.m.k. einu af  skilyrðum a.- c. liðar 1. mgr. 75. gr. n. uppfyllt. Í Þessum sambandi skal 5. mgr. 38. gr. MRR gilda. Eftirlitsskyldir aðilum með litla losun skulu ekki krafðir um að skila þeim gögnum sem getið er um í 3. undirgrein. 1. mgr. 12. gr., sbr. 2. mgr. 75. gr. n. Þegar að eftirlitsskyldur aðili með litla losun beitir einfaldaðri vöktun og fer yfir þann þröskuld sem að getið er í 2. mgr. skal tilkynna það lögbæru stjórnvaldi án tafar og skila inn breyttri vöktunaráætlun til samþykkis lögbærs stjórnvalds. Ný 75. gr. o. fjallar um gagnastjórnun. Í henni kemur fram að ákvæði V. kafli MRR skulu gilda, og ákveðnar aðlaganir í orðalagi eru gerðar í því sambandi. Ný 75. gr. p. fjallar um árlegar losunarskýrslur.  Frá árinu 2026 skal eftirlitsskyldur aðili árlega skila losunarskýrslu, fyrir 30 apríl, til lögbærs stjórnvalds sem tekur til árlegrar losunar á skýrslugjafartímabilinu og sem er vottuð í samræmi við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2067, sbr. 1. mgr. 75. gr. p. Á árinu 2025, skal eftirlitsskyldur aðili  skila inn til lögbærs stjórnvalds, losunarskýrslu fyrir 30. apríl sem tekur til losunar á árinu 2024. Lögbæru stjórnvaldi bera að tryggja að þær upplýsingar sem gefnar eru í þeirri skýrslu séu í samræmi við MRR.Lögbært stjórnvald getur farið fram á að skýrslum sé skilað fyrr, svo lengi sem að skýrslu sé skilað í fyrsta lagi einum mánuði eftir þann tímafrest sem settur er í 1. mgr. 68. gr. MRR. Samkvæmt 2. mgr. 75. gr. p. skal losunarskýrsla innihalda a.m.k. þær upplýsingar sem taldar eru upp í X. viðauka við MRR. Ný 75. gr. q fjallar um úrbætur á vöktunaraðferð.  Eftirlitsskyldir aðilar skulu reglubundið athuga hvort að það sé rými til þess a að betrumbæta vöktunaraðferð. Eftirlitsskyldir aðilar skulu skila til lögbærs stjórnvalds, til samþykkis, skýrslu sem inniheldur þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 2. eða 3. mgr. 75. gr. q., eins og við á, fyrir eftirfarandi skilafresti:a)       Eftirlitsskyldir aðilar í A-flokki, skila fyrir 31. júlí - á fimm ára fresti.b)      Eftirlitsskyldir aðilar  í B-flokki, skila fyrir 31. júlí - á þriggja ára fresti.c)       Eftirlitskyldir aðilar sem nota sjálfgefinn umfangsstuðul (e. default scope factor), sem fram kemur í 3. og 4. mgr. 75. gr. l., skila fyrir 31. júlí 2026. Lögbært stjórnvald getur sett aðra dagsetningu fyrir skil, sem skal þó ekki vera síðar en  30. september sama ár og er heimilt að samþykkja, samhliða vöktunaráætlun eða úrbótarskýrslu, lengri tímafrest í samræmi við það sem að ofan greinir, ef að eftirlitskyldur aðili færir rök fyrir því, við skil á vöktunaráætlun samkvæmt 75. gr. b eða þegar tilkynnt er um uppfærslur samkvæmt sömu grein eða við skil á úrbótaskýrslu, að ástæður fyrir óhóflegum kostnaði eða tæknilegum ógerleika verði viðvarandi í lengri tíma. Heildartími á milli úrbótaskýrslna skal ekki vera lengri en fjögur ár fyrir aðila sem falla undir B-flokk og fimm ár fyrir aðila sem falla undir A-flokk. Í 4. mgr. kemur fram að ef í vottunarskýrslu í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/2067, eru atriði sem að eru útistandandi eða þar er að finna tillögur að úrbótum skal eftirlitsskyldur aðili skila  skýrslu til lögbærs stjórnvalds, til samþykkis, fyrir 31. júlí á því ári sem að vottunarskýrsla var gefin út af vottunaraðila. Í skýrslu frá eftirlitsskyldum aðila skal  útlista hvernig og hvenær eftirlitsskyldur aðili hefur eða hyggst gera úrbætur í samræmi við vottunarskýrslu vottunaraðila og framkvæma þær úrbætur sem mælt er með.Lögbært stjórnvald getur sett aðra dagsetningu fyrir slíkum skilum en hún skal ekki vera síðar en 30. september sama ár.   Ef að úrbætur verða ekki til þess að bæta aðferðafræði við vöktun skal eftirlitsskyldur aðili færa rök fyrir því. Eftirlitsskyldur aðili skal færa sönnur fyrir því, telji hann kostnað vegna úrbóta óhóflegan.  Ný 75. gr. r. fjallar um ákvörðun (e. determination) lögbærs stjórnvalds á losun.  Lögbæru stjórnvaldi ber að gera varfærnislegt mat á losun  eftirlitsskyldra aðila, með hliðsjón af áhrifum á kostnað fyrir neytendur (e. cost pass-on for consumers) í eftirfarandi aðstæðum:a)       Eftirlitsskyldur aðili hefur ekki skilað inn vottaðri skýrslu um árlega losun fyrir uppgefin frest, í samræmi við 75. gr. p.b)      vottuð skýrsla um árlega losun, sem getið er í 75. gr. p. uppfyllir ekki ákvæði MRR.c)       skýrsla um árlega losun hefur ekki verið vottuð í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/2067. Í 2. mgr. 75. gr. r. kemur fram að þegar vottunaraðili hefur sýnt fram á í vottunarskýrslu að óverulegar rangfærslur (e. non-material misstatements) hafi ekki verið leiðréttar af hálfu eftirlitsskylds aðila fyrir útgáfu vottunarskýrslu, skal lögbært stjórnvald leggja mat á rangfærslurnar og þegar við á, gera varfærnislegt mat á losun eftirlitsskylds aðila  með hliðsjón af áhrifum sem það kann að hafa á verðlag fyrir neytendur (e. pass-on implications for consumers).Lögbært stjórnvald upplýsir eftirlitsskyldan aðila um það sem þarf að leiðrétta í árlegri losunarskýrslu og vottunaraðili skal upplýstur. Aðildarríki skulu koma á skilvirkum upplýsingaskiptum milli lögbærra stjórnvalda sem eru ábyrg fyrir samþykkt vöktunaráætlana og lögbærra stjórnvalda sem eru ábyrg fyrir samþykkt skýrslna um árlega losun, sbr. 3. mgr. 75. gr. r. Ný 75. gr. s. fjallar um aðgang að upplýsingum og námundun gagna.  Í henni kemur fram að 71. gr. (aðgangur að upplýsingum), 1. og 2. mgr. 72. gr. MRR (námundun gagna) skuli gilda hvað varðar eftirlitsskylda aðila. Ákveðin aðlögun á orðalagi er gerð í þessu sambandi. Ný 75. gr. t. fjallar um að tryggja samræmi við aðra skýrslugjöf. c. liður. 75. gr. t. gildir ekki um EFTA ríkin samkvæmt ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 340/2023. Ný 75. gr. u. fjallar um kröfur um upplýsingatækni.  Í henni kemur fram að ákvæði VII. kafla skulu gilda og ákveðnar aðlaganir í orðalagi settar fram í því sambandi. Nýjum kafla VII. b. er bætt við. Hann fjallar um þverlæg ákvæði sem að tengjast vöktun losunar frá eftirlitsskyldum aðilum.  Ný 75. gr. v. fjallar um að forðast tvítalningu við vöktun og skýrslugjöf.  Í 1. mgr. 75. gr. v. kemur fram að aðildarríki skulu sjá fyrir skilvirkum upplýsingaskiptum sem gera eftirlitsskyldum aðilum kleift að ákvarða endanlega notkun á eldsneyti sem afhent er til neyslu (e. determine the end use of the fuel released for consumption). Rekstraraðilar (e. operators) skulu, með vottaðri skýrslu um árlega losun, skila inn upplýsingum í samræmi við X. viðauka a. Aðildarríki geta farið fram á að rekstraraðilar deili viðeigandi upplýsingum sem fram koma í X. viðauka a. með viðkomandi eftirlitsskyldum aðilum fyrir 31. mars á skýrslutímabilinu, sbr. 2. mgr. 75. gr. v. Eftirlitsskyldur aðili skal  skila inn upplýsingum um neytendur eldsneytis sem afhent er til notkunar (e. information on the consumers of the fuels it released for consumption), eins og fram kemur í X. viðauka b., sbr. 3. mgr. 75. gr. v. Eftirlitsskyldir aðilar sem afhenda eldsneyti til bruna í geirum sem falla undir  3. kafla ETS-tilskipunarinnar, skulu ákvarða losun í þeim skýrslum sem getið er í 1. mgr. 75. gr. p (árleg skýrsla um losun) með því að nota upplýsingar frá rekstraraðilum, sem var skilað í samræmi við X. viðauka a. við MRR og með því að draga frá viðeigandi  magn eldsneytis sem útlistað er í  þeim skýrslum. Magn eldsneytis sem var aflað (e. aquired) en ekki notað á sama árinu má einungis draga frá ef að vottuð losunarskýrsla rekstraraðila á því ári sem kemur á eftir skýrslutímabilinu  staðfestir að eldsneytið var notað í starfsemi  sem útlistuð er í I. viðauka við ETS -tilskipunina. Ellegar skal mismunurinn birtur í vottaðri losunarskýrslu eftirlitsskylds aðila á því ári, sbr. 4. mgr. 75. gr. v. Í ákveðnum tilvikum skal 4. og 5. mgr. 75. gr. v. ekki gilda. Í 5. mgr. kemur fram að aðildarríki geta krafist þess að ákvæði 75. gr. v. gildi einnig hvað varðar flugrekendur.  Ný 75. gr. w. fjallar um hvernig fyrirbyggja skal svik og um skyldur til samvinnu.  Til að tryggja nákvæmni í vöktun og skýrslugerð hvað varðar losun undir IV. kafla a. í ETS-tilskipuninni, skulu aðildarríki gera ráðstafanir gegn svikum og ákvarða þau viðurlög sem beita skal  ef upp kemst um svik, sem samræmast tilgangi sínum og hafa fælingarmátt. Auk þeirra skyldna sem koma fram í 10. gr. MRR, skal lögbært stjórnvald sem tilnefnt er í samræmi við 18. gr. ETS-tilskipunarinnar, hafa samvinnu og skiptast á upplýsingum við lögbær stjórnvöld sem fara með umsjón samkvæmt þeim landslögum sem innleiða tilskipanir (ESB) 2003/96 og 2020/262, eins og við á.     Viðaukar I. viðauki fjallar um lágmarksupplýsingar sem að skulu koma fram í vöktunaráætlun. Breytingar eru gerðar á 1. hluta, I viðauka  sem fjallar um lágmarksupplýsingar sem að skulu koma fram í vöktunaráætlun í staðbundnum iðnaði. Í fyrsta hluta I. viðauka er tilvísun í ISO 14001:2004 breytt í ISO 14001:2015, í f. lið. 1. mgr. Í d. lið 7. mgr. er tilvísun í reglugerð (ESB) 1193/2011 skipt út fyrir tilvísun í  reglugerð (ESB) 2019/1122. Nýrri 10. mgr. er bætt við, það kemur fram að þegar við á, skal vera í vöktunráætlun, fyrir 31. desember 2026, lýsing á því ferli sem notað er til að skila inn upplýsingum í samræmi við 2. mgr. 75. gr. v. Breytingar eru gerðar á 2. hluta, I. viðauka, sem fjallar um lágmarksupplýsingar sem að skulu koma fram í vöktunaráætlun fyrir flug. Í 2. hluta viðauka I er tilvísun í ISO 14001:2004 breytt í ISO 14001:2015, í i. lið. 1. mgr.   Nýjum l.-o. liðum er bætt við:l. iður: þegar við á, lýsing á því ferli sem notað er til að meta hvort lífeldsneyti uppfylli skilyrði 5. mgr. 38. gr.m. liður: þegar við á, lýsing á ferli við að ákvarðar magn lífeldsneytis og tryggja að ekki verði tvítalning í samræmi við 54. gr.n. liður: þegar við á, lýsing á ferli sem er notað til að meta hvort hæft (e. eligible) flugeldsneyti uppfylli kröfur 2. mgr. 54. gr. a.o. liður: þegar við á, lýsing á ferli sem notað er til að ákvarða magn hæfs flugeldsneytis og tryggja að ekki verði tvítalning í samræmi við 54. gr. a. 2. mgr. f. og g. er eytt. 3. hluta, I. viðauka er eytt.   Nýjum 4. hluta er bætt við viðaukann, hann fjallar um lágmarksupplýsingar sem að skulu koma fram í vöktunaráætlun fyrir eftirlitsskylda aðila. Þar á meðal eru upplýsingar um heimilisfang og skráningarnúmer, lýsing á eftirlitsskyldum aðila ásamt lista yfir eldsneytisstrauma sem skal vakta, hvernig eldsneytisstraumar eru losaðir og loka not (e. end use) straumanna svo dæmi séu tekin. Ákveðin skilyrði þarf að uppfylla í þessu sambandi sem eru frekar útlistuð í texta viðaukans, t.d. þarf útlistun að vera nægjanlega ítarleg þannig að það séu ekki gagnabil (e. data gap) eða tvítalningar á losun. Enn fremur þarf eftirlitsskyldur aðili að setja inn myndrit sem lýsir starfseminni, þ.e. eldsneytisstraumum og  hvernig eldsneyti er afhent neytendum. Auk þess þarf myndritið að innihalda mælitæki og allt sem viðkemur vöktunaraðferð eftirlitsskylds aðila. Eins þarf að útlista ferla hvað varðar ábyrgð á vöktun og skýrslugjöf innan eftirlitsskylds aðila og hvað varðar hæfni starfsfólks. Í áætlun skal líka koma fram lýsing á reglulegu mati á hvort að vöktunaráætlun sé viðeigandi, hvað felst í því er listað í viðaukanum.  Auk nákvæmrar lýsingar á  reiknimiðuðum  aðferðum. Hvað slík lýsing skal innilhalda er nánar sett fram í viðaukanum. Ef við á, skal eftirlitsskyldur aðili einnig lýsa ferlum til að meta hvort lífeldsneytisstraumar (e. biomass fuel streams) uppfylli kröfur 5. mgr. 38. gr. og  mgr. 2.  75. gr. m í  MRR, o.fl.  Viðauki II – Skilgreining aðferðarþrepa fyrir reiknimiðaðar aðferðir tengdum staðbundnum iðnaði (1. mgr. 12. gr.). Í II. viðauka er gerð breyting á töflu 1, þar sem að „eldsneyti á föstu formi“ er skipt út fyrir „eldsneyti á föstu formi, að undanskildum úrgangi“ (e. solid fuels, excluding waste). Nýrri röð er svo bætt við fyrir úrgang.    Viðauki II. a. – Skilgreining á aðferðarþrepum fyrir reiknimiðaðar aðferðir tengdum eftirlitsskyldum aðilum.  Viðauka IIa er bætt við en þar er að finna skilgreiningar fyrir reiknimiðaðar aðferðir sem tengjast eftirlitsskyldum aðilum.Í honum er m.a. að finna skilgreiningar á aðferðarþrepum fyrir magn afhents eldsneytis og aðferðarþrep fyrir reiknistuðla og umfangsstuðulinn (e. scope factor). Viðauki III – fjallar um vöktunaraðferðir fyrir flug (53. gr.).  Gerð er smávægileg breyting á töflu 1 þar sem losunarstuðullinn fyrir Jet kerosene er hækkaður úr 3,15 í 3,16.   Viðauki IV – fjallar um vöktunaraðferðir sem tengjast iðnaði (2. mgr. 20. gr.). Í viðauka IV, er 10. hluta viðaukans breytt, A. lið um umfang (e. scope) og B. lið um sérstakar reglur varðandi vöktun er skipt út. B. lið 11. hluta er einnig skipt út. Viðauki V – fjallar m.a. um ákveðin lágmarks aðferðarþrep fyrir reiknimiðaðar aðferðir og tengjast 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 75. gr. e. og fleira.  Töflu 1 er breytt,  meðal þeirra breytinga er að í 2. röð töflunnar er nú talað um „eldsneyti á föstu formi að úrgangi undanskildum“ og nýrri röð er bætt inn um úrgang.Nýrri töflu 2 er bætt við fyrir lágmarks aðferðarþrep sem skal nota fyrir reikni miðaða aðferð fyrir eftirlitsskylda aðila í flokki A.    Viðauki VI – fjallar um viðmiðunargildi fyrir reiknistuðla (e. reference values for calculation factors) Í viðauka VI er bætt við röð fyrir ólífrænan úrgang sveitarfélaga í töflu 1 í 1. hluta viðaukans. Viðauki IX - fjallar um lágmarksupplýsingar sem skal varðveita í samræmi við 1. mgr. 67. gr. MRR.   Viðauka  IX er skipt út, þar eru listuð upp gögn sem rekstraraðilar, flugrekendur og eftirlitsskyldir aðilar skulu varðveita (e. retain).    Viðauki X – lágmarksupplýsingar í árlegum skýrslum (3. mgr. 68. gr.). Ákveðnar breytingar eru gerðar á 1. og 2. hluta viðaukans en þeir fjalla annars vegar um þær lágmarksupplýsingar sem eiga að koma fram í árlegum losunarskýrslum rekstraraðila og hins vegar flugrekenda. Hluti 3 er fjarlægður. Í 4. hluta viðaukans koma fram lágmarksupplýsingar sem eiga að koma fram í árlegum losunarskýrslum eftirlitsskyldra aðila. Viðauki Xa – fjallar um skýrslur um eldsneytisbirgja og notkun eldsneytis í staðbundnum iðnaði, og þegar við á, hjá flugrekendum og skipafélögum.  Viðauka Xa. er bætt við reglugerðina. Samkvæmt honum skal rekstraraðili skila skýrslu þar sem fram koma ákveðnar upplýsingar um hvert keypt eldsneyti. Þær upplýsingar sem fram skulu koma í skýrslu eru listaðir í viðaukanum. Viðauki Xb – fjallar um skýrslur um eldsneyti sem er afhent af eftirlitsskyldum aðilum.  Eftirlitsskyldir aðilar skulu skila inn skýrslu með ákveðnum upplýsingum fyrir hvert keypt eldsneyti. Þær upplýsingar sem fram skulu koma í skýrslu eru listaðir í viðaukanum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gera þarf breytingar á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sbr. breytingar sem eru á döfinni til samræmis við ný lög nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimilir.

Setja þarf reglugerðarheimild í lög nr. 96/2023 hvað varðar skyldu eftirlitsskyldra aðila til vöktunar og skýrslugjafar vegna losunar koldíoxíðs eftir 2024. Einnig þarf að setja í lög ákvæði um viðurlög hvað varðar svik í ETS 2.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Með þeim breytingum sem að gerðar eru á reglugerð ESB 2018/2066, með reglugerð ESB 2023/2122 koma inn ný ákvæði sem taka til vöktunar og skýrslugjafar vegna losunar gróðurhúsalofttegunda.

Í þessu sambandi er aðildarríki eða lögbæru stjórnvaldi falin ýmis ný verkefni, sér í lagi í tengslum við ný ákvæði sem varða eftirlitsskylda aðila sem falla undir ETS2. Eðli máls samkvæmt mun þetta fela í sér aukin verkefni fyrir Umhverfisstofnun, sem lögbært stjórnvald.

Ný eða aukin verkefni fyrir íslenska stjórnsýslu eru eftirfarandi:

1. Aðildarríki skulu setja á fót kerfi gegn svikum, setja ákvæði um viðurlög og framfylgja þeim.

Ný eða aukin verkefni fyrir Umhverfisstofnun eru eftirfarandi:

Umhverfisstofnun mun hafa umsjón með öllum gagnaskilum í tengslum við vöktun og skýrslugjöf eftirlitsskyldra aðila og bætast þau við núverandi verkefni í tengslum við flugrekendur og rekstraraðila í staðbundinni starfsemi. Þau verkefni sem verða viðvarandi í tengslum við framangreint eru m.a.:

1. samþykkt vöktunaráætlana, verulegra breytinga á vöktunaráætlunum (einnig hvað varðar aðila með litla losun) og yfirferð skýrslna um úrbætur eftir því sem við á.
2. samþykkt skýrslna um úrbætur á vöktunaraðferðum eftirlitsskyldra aðila með reglulegu millibili, sbr. 75. gr. q.
3. yfirferð árlegra losunarskýrslna: Frá árinu 2026 skulu eftirlitsskyldir aðilar árlega skila losunarskýrslu til lögbærs stjórnvalds og á árinu 2025 skulu þessir aðilar skila inn til lögbærs stjórnvalds losunarskýrslu, fyrir 30. apríl, sem tekur til losunar á árinu 2024. Lögbæru stjórnvaldi bera að tryggja að þær upplýsingar sem gefnar eru í þeirri skýrslu séu í samræmi við ákvæði MMR.
4. áætlun losunar þar sem við á: Lögbæru stjórnvaldi ber að gera varfærnislegt mat á losun eftirlitsskyldra aðila, með hliðsjón af áhrifum á kostnað fyrir neytendur (e. cost pass-on for consumers) í ákveðnum tilvikum, t.d. ef losunarskýrslu er ekki skilað, hún uppfyllir ekki ákvæði MMR eða hefur ekki verið sannprófuð í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/2067.
5. Yfirferð vottunarskýrslu: Ef í vottunarskýrslu eru atriði sem að eru útistandandi eða þar er að finna tillögur að úrbótum skal eftirlitsskyldur aðili skila skýrslu til lögbærs stjórnvalds, til samþykkis, fyrir 31. júlí á því ári sem að vottunarskýrsla var gefin út af vottunaraðila. Í þeirri skýrslu skal koma fram hvenær og hvernig aðili hefur eða hyggst gera viðeigandi úrbætur sem bent er á í vottunarskýrslu.
6. Afgreiðsla umsókna um losunarleyfi: skv. 30. gr. b. í ETS-tilskipuninni skulu eftirlitsskyldir aðilar hafa gilt losunarleyfi frá og með 1. janúar 2025.
7. samþykki á tæknilegum ógerleika eða óhóflegum kostnaði þar sem við á: Í þó nokkrum tilvikum í nýjum VII. kafla a. eru sett fram ákvæði sem að varða undanþágur á grundvelli tæknilegs ómöguleika (75. gr. c.,75. h., 75. i., 75. j, 75. m., 75. gr. q.), í þessum tilvikum þarf eftirlitsskyldur aðili að sanna fyrir lögbæru stjórnvaldi að um tæknilegan ómöguleikar er að ræða, í einhverjum tilvikum þarf samþykki lögbærs stjórnvald, í öðrum þarf að sýna fram á tæknilegan ómöguleika „to the satisfaction of“ lögbæru stjórnvaldi og lögbært stjórnvald þarf að meta þennan tæknilega ómöguleika. Svipuð ákvæði eru í VII. kafla a. þegar kemur að óhóflegum kostnaði (75. gr. d., 75. gr. h., 74. gr. i, 75. gr. j. 75. gr. m., 75. gr. q. og lögbært stjórnvald hefur þar sama hlutverk.
8. Önnur ákvæði geta einnig falið í sér atriði sem að krefjast samþykkis lögbærs stjórnvalds, t.d. 75. gr. e., 75. gr. f., 75. gr. l., 75. gr. m., 75. gr. n., 75. gr. q.
9. önnur eftirfylgni með kröfum skv. reglugerðinni.
10. beiting þvingunarúrræða eða viðurlaga eftir því sem við á.
11. Í ákveðnum tilvikum getur lögbært stjórnvald farið fram á að notast sé við ákveðinn breytistuðul eininga (e. unit conversion factor). Áður en það er gert skal lögbært stjórnvald skila til framkvæmdastjórnarinnar, ESA í tilviki Íslands, samantekt á ákveðnum gögnum til samþykkis (75. gr. k.). Í þessu samhengi getur lögbært stjórnvald farið fram á ákveðin gögn frá eftirlitsskyldum aðila og skal á þriggja ára fresti endurskoða gildi sem notuð eru og tilkynna til framkvæmdastjórnarinnar – eða ESA – ef um miklar breytingar er að ræða.
12. Sem undanþága frá 75. gr. h. getur eftirlitsskyldur aðili ákvarðað magn afhents eldsneytis án þess að notast við aðferðarþrep. Í þessu sambandi skal lögbært stjórnvald skila skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar fyrir 30. júní 2026 hvað varðar beitingu þessa og óvissustig (e. level of uncertinty). Í tilfelli Íslands væri slík skýrsla send ESA.
13. Aðildarríki skulu greiða fyrir (e. facilitate) upplýsingaskiptum sem að auðvelda eftirlitsskyldum aðila að ákvarðar loka notkun (e. determine end use) á eldsneyti sem afhent er til notkunar. Í þessu samhengi getur aðildarríki farið fram á að rekstraraðili geri viðeigandi upplýsingar, í samræmi við X. viðauka. a., aðgengilegar eftirlitsskyldum aðila fyrir 31. mars á skýrslutímabilinu. Þetta er til að koma í veg fyrir tvítalningu og líklegt að verkefni þessu tengdu verði á hendi Umhverfisstofnunar

Auk framangreindra verkefna má nefna að tilkoma þessa nýja kerfis, ETS2, mun næstu mánuði fela í sér nauðsynlega vinnu starfsfólks við gerð kynningarefnis, ritun nýs efnis á heimasíðu, upplýsingagjöf, fundi og önnur samskipti við þá aðila sem falla undir ETS2.

Í ljósi þeirra verkefna sem hér eru upptalin og m.t.t. þess að gert er ráð fyrir að fjöldi þeirra eftirlitsskyldu aðila sem munu falla undir ETS2 hér á landi verði a.m.k. fimm, þá er ljóst að umfang verkefna stofnunarinnar mun aukast töluvert. Þó er ákveðin samlegð með þeim verkefnum sem nú þegar er sinnt hjá stofnuninni hvað varðar gagnaskil flugrekenda og rekstraraðila í staðbundinni starfsemi, m.a. hvað varðar tímafresti. Endurmeta þarf þau stöðugildi sem sinna verkefnum innan Umhverfisstofnunar tengdum viðskiptakerfinu m.t.t. Fit for 55 í heild sinni og er kostnaðarmat þetta því gert með fyrirvara um ítarlegra mat á síðari stigum.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Helstu áhrif eru:

Flugrekandi í farþegaflugi skuli koma á fót, skrá, innleiða og viðhalda skriflegu ferli við vöktun á öllu því magni flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir (e. eligible aviation fuel) sem notað er í flugi undir hljóðhraða (e. subsonic flights), og telja fram í skýrslu upplýsingar um magn þess flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir í formi sérstaks minnisblaðs í árlegri losunarskýrslu.

Þeir aðilar sem munu falla undir ETS2 þurfa að gera ráðstafanir í samræmi við þær breytingar sem gerðar eru á MRR. Í þessu felst m.a. að þeir aðilar þurfa að vakta losuna sína, sú vöktun skal hefjast frá 1. janúar 2024, þeir þurfa að skila inn vöktunaráætlunum og losunarskýrslum til lögbærs stjórnvalds og hafa losunarleyfi. Aðilar sem falla undir ETS2 þurfa að taka til ýmissa ráðstafana í þessu samband, t.d. að ákvarða flokkun eftirlitsskylds aðila og eldsneytisstrauma.

Í þeim breytingum sem gerðar eru á MRR með reglugerð þessari kemur einnig fram að aðildarríki skuli skila árlegum vottuðum losunarskýrslum fyrir hverja sorpbrennslustöð sveitarfélaga líkt og útlistað er í viðauka I í ETS-tilskipuninni, til framkvæmdastjórnarinnar fyrir 30. apríl á hverju ári, sbr. 4. mgr. 68. gr. MRR. Í tilfelli Íslands væri slíkri skýrslu skilað til ESA. Umhverfisstofnun hefur ekki upplýsingar um að hér á landi sé brennslustöð sem fellur undir viðauka I, en verði svo í framtíðinni eru slíkir rekstraraðilar skyldugir til að vakta losun og gefa um hana skýrslu. Í viðauka VI er bætt við röð fyrir úrgang sveitarfélaga. Þetta gæti kallað á að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar í stjórnsýslunni.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2122
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2122, 18.10.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D091727/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 13.6.2024, p. 85
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1444, 13.6.2024

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32018R2066 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2018/2066 of 19 December 2018 on the monitoring and reporting of greenhouse gas emissions pursuant to Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council and amending Commission Regulation (EU) No 601/2012 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32003L0087 based on Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council of 13 October 2003 establishing a scheme for greenhouse gas emission allowance trading and amending Council Directive 96/61/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi