Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á tilskipun (ESB) 2016/2284 um aðferðafræði skila á framreikningum á losun loftmengunarefna. - 32024L0299

Commission Delegated Directive (EU) 2024/299 of 27 October 2023 amending Directive (EU) 2016/2284 of the European Parliament and of the Council on the methodology for the reporting of projected emissions of certain atmospheric pollutants


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða breytingu á tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið, er varðar aðferðafræði skila á framreikningum á losun loftmengunarefna. Breytingin er til að gæta samræmis á aðferðafræði annars vegar milli skila á sögulegri losun loftmengunarefna og framreiknaðri losun loftmengunarefna og einnig til að gæta samræmis við uppfærðar kröfur í skilum á losun loftmengunarefna til LRTAP samningsins.

Nánari efnisumfjöllun

LagagrundvöllurTilskipun sú sem hér er til greiningar breytir tilskipun (ESB) 2016/2284 og er sett á grundvelli 7. mgr. 8. gr. hennar.InngangurÍ 2. mgr. 8. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2284 er ríkjum gert að undirbúa og uppfæra framreikninga á losun þeirra loftmengunarefna sem talin eru upp í töflu C í viðauka I við þá tilskipun.Í 5. mgr. 8. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2284 er ríkjum gert að undirbúa og uppfæra framreikninga á losun loftmengunarefna í samræmi við þau skilyrði sem koma fram í viðauka IV.Í 2. mgr. 10. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2284 kemur fram að ríki skulu skila framreikningum til framkvæmdastjórnarinnar og Umhverfisstofnunar Evrópu og að skilin skulu vera í samræmi við skil til skrifstofu samnings um loftmengun sem berst langar leiðir milli landa (Secretariat of the LRTAP Convention).Kröfurnar sem settar eru í skilum til skrifstofu LRTAP samningsins tóku breytingum í desember 2022 þar sem sett var fram sniðmát sem ríki skulu nota þegar framreikningum er skilað. Framreikningar byggja á flokkun losunar í geira/undirgeira skv. NFR (nomenclature for reporting) geiraflokkun LRTAP samningsins.Síðan kröfurnar tóku breytingum árið 2022 hefur flokkunarþrep (level of aggregation) skv. tilskipun (ESB) 2016/2284 ekki verið í samræmi við kröfurnar skv. LRTAP samningnum. Nýja sniðmátið gerir ráð fyrir meiri sundurliðun en áður og er nú í samræmi við þá sundurliðun sem gerð er krafa um í losunarbókhaldi loftmengunarefna.Til að gæta samræmis snýr þessi tilskipun að því að aðlaga kröfur um skil á framreiknaðri losun loftmengunarefna við skil á sögulegri losun loftmengunarefna.Greinar gerðarinnar1. gr. breytir viðaukum við tilskipun (ESB) 2016/2284 með eftirfarandi hætti:Sett er inn ný tafla C í viðauka I. Tafla C sýnir meðal annars kröfurnar sem gerðar eru til ríkja sem snúa að framreikningum á losun loftmengunarefna og vísað er í í 2. mgr. 8. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2284. Skv. tilskipun þeirri sem hér er til greiningar skulu framreikningar gerðir eftir NFR flokkun á uppsprettum (e. NFR source category) í stað samanlagðra NFR flokka (e. aggregated NFR).Gerðar eru breytingar á lið 2 í 2. hluta í viðauka IV, sem fjallar um að framreikningar skuli vera metnir og flokkaðir eftir viðeigandi uppsprettum. Skv. tilskipun þeirri sem hér er til greiningar skulu framreikningar metnir og flokkaðir eftir NFR flokkun á uppsprettum. Þar sem þetta er ekki mögulegt vegna skorts á gögnum skal gefa skýringu á því í skýrslu Íslands um losun loftmengunarefna (Informative Inventory Report).2., 3. og 4 gr. tilskipunar þessarar fjalla annars vegar um að ríki skulu fara í viðeigandi breytingar á lögum, reglugerðum og ákvæðum til að geta uppfyllt ákvæði tilskipunarinnar fyrir 31. desember 2024 og upplýsa framkvæmdastjórnina þar um, og hins vegar um gildistöku innan ESB, en hún tók gildi 20 dögum eftir birtingu sem var 17. janúar 2024. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni var innleidd með 4. gr. laga nr. 144/2013 um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið (einnig nefnd þaktilskipun) fellir úr gildi tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni. Tilskipun (ESB) 2016/2284 er í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum og hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn. Því er tilskipun 2001/81/EB enn í gildi hérlendis.
Til stendur að innleiða tilskipun (ESB) 2016/2284 hér á landi og innleiða þarf tilskipun þessa í sömu lög og hún verður innleidd í, þar sem hún snýr að breytingu á henni.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Losunarbókhald um losun loftmengunarefna er framkvæmt af Umhverfisstofnun. Nú þegar er haldið utan um framreikninga á losun loftmengunarefna í samræmi flokkun losunar í NFR geira/undirgeira. Sú samræming sem þessi framselda tilskipun felur í sér mun ekki hafa nein sérstök áhrif á störf losunarbókhalds Umhverfisstofnunar. Um er að ræða eðlilega samræmingu sem gott væri að innleiða samhliða innleiðingu á tilskipun (ESB) 2016/2284.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024L0299
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/299, 17.01.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2023)7156
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB