Breytingu á tilskipun 2010/75/ESB um losun í iðnaði og tilskipun 1999/31/EB um urðun - 32024L1785
Directive (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) and Council Directive 1999/31/EC on the landfill of waste
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með tilskipuninni eru gerðar breytingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB um losun frá iðnaði. Markmið tilskipunarinnar er að koma í veg fyrir eða draga úr losun út í andrúmsloft, vatn og jarðveg og að koma í veg fyrir myndun úrgangs í því skyni að vernda heilsu manna og umhverfið.
Nánari efnisumfjöllun
Settar eru fram tillögur til breytinga á eftirfarandi evrópugerðum: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB frá 24. nóvember 2010 um losun í iðnaði (samþættar mengunarvarnir og eftirlit með mengun) Tilskipun ráðsins 1999/31/EB frá 26. apríl 1999 um urðun úrgangs Nokkuð umfangsmiklar breytingar eru lagðar til á hinni fyrri og verða helstu breytingarnar raktar hér að neðan. Einungis einni greint er breytt í þeirri seinni. Titill Titli tilskipunarinnar er breytt úr því að heita „tilskipun um losun frá iðnaði“ í „tilskipun um losun frá iðnaði og búfénaði“. Starfsfólk Í 17. lið í formála segir að aðildarríkin eiga að tryggja að stjórnvöld sem bera ábyrgð á innleiðingu og framfylgd tilskipunarinnar eigi að hafa nægan fjölda af hæfu starfsfólki og nægileg fjárhagsleg og tæknilega úrræði til að gegna skilvirkum störfum sínum sem tengjast innleiðingu tilskipunarinnar. Markmið Markmiðsákvæði 1. gr. Tilskipunarinnar er breytt. Mælt er fyrir um markmið í 1. gr. laga nr. 7/1998 og reglugerðar nr. 550/2018 sem innleiðir 1. gr. tilskipunarinnar. Skilgreiningar 3. gr. Tilskipunarinnar er breytt. Nokkrum skilgreiningum er breytt og nokkrum bætt við. Í 3. gr. laga nr. 7/1998 og reglugerðar nr. 550/2018 eru ákvæði um skilgreiningar sem innleiða 3. gr. tilskipunarinnar. Skráningarskylda Mælt er fyrir um heimild fyrir aðildarríkin að gera atvinnurekstur háðan skráningu í stað starfsleyfi sem fellur undir kafla V og VIa tilskipunarinnar, þ.e. þauleldi og stöðvar og starfsemi sem nota lífræna leysa. LeyfisveitingarRafræn starfsleyfi Við 5. gr. tilskipunarinnar bætist 4. mgr. Í nýrri 4. mgr. er fjallað um birtingu veittra starfsleyfa en þau skulu gerð aðgengileg á netinu, ókeypis og án takmarkana. Einnig skal þeim fylgja úrdráttur en í málsgreininni er innihald hans nánar skilgreint. Samkvæmt 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 og 10. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 55/2018 skal útgefandi starfsleyfis hafa upplýsingar um leyfisveitingar á vefsvæði sínuVið 4. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar bætist við skylda á aðildarríkin að þróa kerfi fyrir rafræn starfsleyfi fyrir atvinnurekstur fyrir 31. desember 2035. Framkvæmdastjórnin á að skipuleggja samráðsfundi um rafræn starfsleyfi og búa til leiðbeiningar um bestu starfsvenjurnar.. Óhöpp og slys Við 1. mgr. 7. gr. var áður vísað til óhappa eða atvika sem hefðu áhrif á umhverfið, nú er einnig vísað til heilsu manna. Við bætist ný málsgrein er fjallar um áhrif óhappa á vatn. Einnig bætist við ný málsgrein þar sem fjallað er um skyldu aðildarríkja til þess að láta yfirvöld annarra aðildarríkja vita ef viðkomandi atvik hefur áhrif yfir landamæri og vinna með þeim að draga úr afleiðingum atviksins. Hér er gert ráð fyrir samstarfi stofnana yfir landamæri sem ekki er gert ráð fyrir í EES samningnum. 39. gr. laga nr. 7/1998 og 55. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 7. gr. tilskipunarinnar. Reglufylgni og stöðvun Við 1. mgr. 8. gr. bætist annar málsliður þar sem segir að aðildarríkin skuli grípataka upp til reglufylgniaðgerðareglufylgniúrræði (compliance assurance measures) til þess að stuðla að, hafa eftirlit með og sjá til þess að tilskipuninni sé framfylgt. framfylgja reglufylgni skv. tilskipuninni.
Við 2. ml. 23. mgr. bætist við sú skylda að stöðva starfsemi án tafar. (viðbót: án tafar). Einnig bætist við skylda til að upplýsa önnur aðildarríki, skuli brot á starfssleyfi leiða til hættu á skaða á heilsu manna eða umhverfis í því ríki. Hér er gert ráð fyrir samstarfi stofnana yfir landamæri sem ekki er gert ráð fyrir í EES- samningnum.
Við 8. gr. bætist ný mgr. þar sem fram kemur að haldi valdi brot, þar sem ekki er um að ræða bráðahættu, á starfsleyfi áfram að valda hættu á skaða á heilsu manna eða umhverfi og rekstraraðili hefur ekki gripið til nauðsynlegra aðgerða, sé lögbæru yfirvaldi heimilt að stöðva starfsemi ákveðinna starfsleyfishafa þar til reglufylgni er náð aftur. Önnur málsgrein bætist við er fjallar um þau tilvik ef brot hefur áhrif á vatn og viðbrögð lögbærra yfirvalda þar um. Samkvæmt 63. gr. laga nr. 7/1998 er Umhverfisstofnun eða heilbrigðisnefnd heimilt að stöðva starfsemi eða notkun þegar í stað í ákveðnum tilfellum. Einnig er heimilt að stöðva starfsemi eða takmarka hana til bráðabirgða sé um alvarlegt tilvik eða ítrekað brot að ræða eða ef aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests. Ekki er mælt fyrir um skyldu til að stöðva starfsemi. Orkunýtni Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. Geta aðildaríka sleppt því að setja ákvæði um orkunýtni í starfsleyfi fyrir starfsemi í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB varðandi brennslueiningar eða aðrar einingar sem losa/gefa frá sér koldíoxíð. Meginreglur um grundvallarskyldur rekstraraðila 1. mgr. 11. gr. bætast þrír stafliðir sem fjallar um grundvallarskyldur rekstraraðila er breytt. Fleiri skyldum er bætt við, í því felst að rekstraraðili rekstraraðili skalber að nýta orku, efnisauðlindirhráefni og vatn á skilvirkan hátt , tekur tillit til heildar umhverfisárangurs aðfangakeðjunnar og innleiðaað umhverfisstjórnunarkerfi. sem innleitt. … 38. gr. laga nr. 7/1998 og 54. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 11. gr. tilskipunarinnar. BAT-niðurstöður Ýmislegt bætist við 13. gr. er varðar hlutverk og skyldur Framkvæmdarstjórnarinnar. Þarfnast ekki sérstakrar innleiðingar en þó er fjallað nánar um hóp hagsmunaaðila sem Framkvæmdastjórnin setur saman er varðar BAT niðurstöður. Skyldan til að setja á fót slíkan hóp var þó áður í IED. Umsókn um starfsleyfi Gerð er minniháttar breytingar 12. gr. tilskipunarinnar sem fjallar um umsókn um leyfi með því að bæta við kröfum um innihald umsókna. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Starfsleyfisskilyrði Gerð er breyting á 14. gr. sem fjallar um hvað starfsleyfisskilyrði eigi að lágmarki fela í sér. -Í 1. mgr. er gerð krafa á að aðildarríki skuli tryggja að áður en starfsleyfi er veitt að hafa samráð við öll viðeigandi stjórnvöld sem hafa hlutverk hvað varðar reglufylgni við evrópskan umhverfisrétt.
- a-lið 1. mgr. er breytt svo vísað sé til E-PRTR (reglugerðar (EB) nr. 116/2006) hvað varðar viðmiðunarmörk fyrir losun mengandi efna. Samkvæmt núgildandi reglum skulu starfsleyfisleyfisskilyrði að lágmarki fela í sér ákvæði um viðmiðunarmörk fyrir losun mengandi efna sem tilgreind eru í II. viðauka tilskipunarinnar sem hefur verið innleiddur í II. viðauka reglugerðar nr. 550/2018. Sú breyting sem lögð er til er að viðmiðunarmörkin eiga að vera miðuð við mörkin í II. viðauka reglugerðar (EB) nr. 116/2006.
-Bætt er við aa-lið er bætt við, viðmiðunarmörk fyrir umhverfisárangur (e. environmental performance limit values) losun mengandi efna.
- Bætt er við ab-lið,- Lagt er til að bæta við ab-lið, viðeigandi kröfur sem tryggja mat á nauðsyn þess að koma í veg fyrir eða draga úr losun efna sem uppfylla skilyrði 57. gr. eða efna sem fjallað er um í XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH). -B-lið er breytt á þá leið að nú er einnig talað um að setja skuli kröfur varðandi verndun yfirborðsvatns og vatnasviðs fyrir vatnstöku til neyslu.. -Tveimur liðum er bætt við, bab og bbc hvað varða umhverfisstjórnunarkerfi og að fylgst skuli með notkun auðlinda svo sem orku, vatni og hráefnum.
-iii. Lið er bætt við d-lið þar sem mælt er fyrir að gera skuli kröfu í starfsleyfi til þess að lögbært yfirvald sé upplýst um hvernig rekstraraðila gangi að uppfylla umhverfismarkmið sem fjallað er um í nýrri 14. gr. a (sjá lið 11). - E-lið er breytt þar sem bætt er við yfirborði þannig að setja skuli kröfur í leyfi til að koma í veg fyrir mengun jarðvegs, yfirborðs og grunnvatns.
-H-lið er breytt og svo mælt sé fyrir um viðmiðunarmörk umhverfisárangurs (e. environmental performance limit values). 9. gr. laga nr. 7/1998 og 8. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 14. gr. tilskipunarinnar. Umhverfisstjórnunarkerfi Nýrri grein um umhverfisstjórnunarkerfi, 14. gr. a, er bætt við. Aðildarríki skulu ganga úr skugga um að rekstraraðilar er falla undir kaflann séu með umhverfisstjórnunarkerfi í starfsemi sinni. Í greininni er nánar farið yfir kröfur til slíkra kerfa. Aðildarríkin Rekstraraðilar skulu undirbúa og innleiða umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við viðeigandi BAT-niðurstöður fyrir 1. júlí 2027. Umhverfisstjórnunarkerfið á að vera endurskoðað reglulega a.m.k. fyrir 1. júlí 2027. Aðildarríkin Í greininni er nánar farið yfir kröfur til slíkra kerfa. eiga að tryggja að viðeigandi upplýsingar sem eru settar fram í umhverfisstjórnunarkerfi séu aðgengilegar almenningi á internetinu. Framkvæmdarstjórnin á að gefa út leiðbeiningar um birtingar upplýsinganna fyrir 31. desember 2025.
Bent er á að vísað er í gerð sem ekki hefur verið innleidd (Tilskipun 2012/27/EU). Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun. Ný grein í lög nr. 7/1998 og reglugerð nr. 550/2018. Viðmiðunarmörk Lagt er til að Í stað 15. gr. tilskipunarinnar kemur ný 15. gr. verði skipt út fyrir nýrri Í 1. mgr. hafa verið gerðar breytingar er breytt á þann hátt að þegar að viðmiðunarmörk eru ákvörðuð, vegna losunar í vatn, má taka tillit til fráveitukerfisins hreinsivirkis skólphreinsistöðvar utan stöðvarinnar að uppfylltum skilyrðumaf því gefnu að rekstraraðili uppfylli ákveðin skilyrði sem talin eru upp í stafliðum a til d. Leyfisveitandi skal setja viðauka við leyfið ef hann hefur beitt þeirri heimild ásamt niðurstöðu úr áhættumati sem er framkvæmt af rekstraraðila. Til að tryggja samræmda framkvæmd innan EES er lögð gerðtil breyting á tilskipuninni þannig að leyfisveitandi skuli setja ströngustu viðmiðunarmörk fyrir losun með því að beita BAT í atvinnurekstrinum. Losunarmörkin eiga að vera ákveðin á grundvelli mats frá rekstraraðila sem að metur hagkvæmni þess að ná ströngustu mörkunum í BAT. Mörkin eiga eftir atvikum að vera endurskoðuð árlega af lögbærum yfirvöldum.sem mælt er fyrir um í viðeigandi BAT niðurstöðum. Samkvæmt núgildandi reglum skal leyfisveitandi ákvarða viðmiðunarmörk fyrir losun sem tryggja, við venjuleg rekstrarskilyrði, að losun fari ekki yfir losunargildin sem tengjast bestu aðgengilegu tækni eins og mælt er fyrir um í BAT-niðurstöðum. Þá er gerð krafa að lögbært yfirvald skuli setja bindandi viðmið fyrir umhverfisárangur en hægt er að veita undanþágu frá slíkum mörkum að uppfylltum skilyrðum. Þá erKröfur varðandi lögð til viðbót er varðar undanþágur frá viðmiðunarmörkum er breytt en m.a. er skal leyfisveitandi endurmeta undanþáguna á fjögurra ára fresti eða við endurskoðun leyfisins, sbr. 21. gr. tilskipunarinnar. Framkvæmdastjórnin á að setja framkvæmdagerð til að tryggja samræmi við mat á undanþágum frá viðmiðunarmörkum.. 10. gr. laga nr. 7/1998 og 9. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 15. gr. tilskipunarinnar. Mat á reglufylgni Ný grein, 15. gr. a, bætist við. Greinin tekur til mats á reglufylgni við viðmiðunarmörk fyrir losun. Fjallað er um aðferðarfræði við mat á framangreindu og skal Framkvæmdastjórnin gefa út framkvæmdagerð um aðferðarfræði til að meta reglufylgni. Vöktun 2. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar er breytt þannig að reglubundið eftirlit skuli framkvæma a.m.k. fjórða hvert ár fyrir grunnvatn í stað fimmta og níunda hvert ár fyrir jarðveg í stað tíunda, nema slík vöktun byggist á kerfisbundnu mati á áhættu á mengun. Bætt er 3. mgr. við 16. gr. tilskipunarinnar þar sem gerð er krafa um að gæðaeftirlit rannsóknarstofa sem sinnir vöktun skuli byggt á CEN-staðli eða ef hann er ekki tækur, ISO staðli eða innlendum eða alþjóðlegum stöðlum sem tryggir gæði við afhending gagna. Lagt er til að bæta 4við 3. mgr. við 16. gr. tilskipunarinnar þar sem gerð er krafa á að aðildarríki skuli tryggja að rekstraraðili, sem hefur fengið undanþágu skv. 5. mgr. 15. gr. tilskipunarinnar tilskipunarinnar (9. gr. reglugerðar nr. 550/2018) og undanþágan mun hafa mælanleg áhrif á umhverfið, fylgist með styrk mengunarefna sem um ræði og sendi lögbæru yfirvaldi. . Í nýrri 3. mgr. segir að ef veitt hafi verið undanþága skv. 4. mgr. 15. gr. tilskipunarinnar (9. gr. reglugerðar nr. 550/2018) skuli aðildarríki tryggja að rekstraraðili fylgist með styrk mengunarefna sem um ræðir og sendi lögbæru yfirvaldi. 11. gr. laga nr. 7/1998 og 10. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 16. gr. tilskipunarinnar. Umhverfisgæðakröfur Lagt er til að skipta út 18. gr. tilskipunarinnar um umhverfisgæðakröfur er skipt út og gerð ítarlegri. Fjallað er um að útgefandi starfsleyfis megi setja strangari umhverfisgæðakröfur en skv. BAT. Nú bætist við að framangreint sé í þeim tilgangi að minnka framlag stöðvarinnar til mengunar á viðkomandi svæði. Einnig bætist við 2. mgr. sem fjallar um að þegar settar hafa verið strangari kröfur skv. 1. mgr. skuli aðildarríki tryggja að rekstraraðili fylgist með styrk mengunarefna sem um ræðir og sendi lögbæru yfirvaldi. 12. gr. laga nr. 7/1998 og 11. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 18. gr. tilskipunarinnar. Breytingar sem rekstraraðilar gera á stöðvum 1. mgr. 20. gr. er skipt út þar sem bætt er við skyldu á rekstraraðila að tilkynna um fyrirhugaða breytingu tímanlega og áður en farið er í breytingar. Þá skulu aðildarríki tryggja að lögbær yfirvöld bregðist tímanlega við upplýsingum frá rekstraraðila. Endurskoðun á starfsleyfisskilyrðum Gerðar eru minniháttar breytingar á a. lið 3. mgr. 21. gr. varðandi tilvísanir. c-lið 5. mgr. 21. gr er skipt út. Áður kom fram að starfsleyfisskilyrðin skal endurmeta og ef nauðsyn krefur uppfæra a.m.k. þegar það sé nauðsynlegt er að fara að nýjum eða endurskoðuðum umhverfisgæðakröfum í samræmi við 18. gr. tilskipunarinnar, nú er ekki einungis vísað í að kröfurnar þurfa að vera nýjar eða endurskoðaðar heldur er vísað í að uppfæra skuli starfsleyfi ef staða umhverfisins sem tekur við mengun krefjist endurskoðun leyfisins til þess að það verði í samræmi við áætlanir sem Evrópusambandið setur með löggjöf t.d. vatnaáætlun. Bætt er d-lið við 5. mgr. 21. gr. þar sem bætt er við skyldu á lögbær yfirvöld að uppfæra starfsleyfi ef rekstraraðili urðunarstaða skv. lið 5.4 í viðauka I biður um framlengingu á starfstíma stöðvarinnar. 15. gr. laga nr. 7/1998 og 14. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 21. gr. tilskipunarinnar. Aðgangur að upplýsingum og þátttaka almennings í ferlinu við leyfisveitingu Gerðar eru breytingar á 24. gr. tilskipunarinnar og ítarlegri kröfur gerðar til aðkomu almennings að upplýsingum og þátttöku í leyfisveitingarferlinu.Gerðar eru breytingar á 24. gr. tilskipunarinnar um aðgang að upplýsingum og þátttöku almennings í ferlinu við leyfisveitingu. Helstu breytingarnar felast í að tryggja skal að almenningur skuli geta tekið þátt í ferli lögbærs yfirvalds við það að ganga úr skugga um að leyfi uppfylli BAT niðurstöður (21(3)) og málsmeðferð þegar leyfi falla ekki undir neina af BAT niðurstöðum (21(4)). Þá skal gera almenningi aðgengilegar niðurstöður vöktunar skv. 3. mgr. 16. gr. (vöktun vegna undanþágu) og 18. gr. tilskipunarinnar (vöktun vegna strangari krafna). Þá verður gerð krafa um að hægt sé að nálgast samsett leyfi eftir því sem við á. Þá er ný viðbót um að tryggja skal að aðgangur almennings skuli vera ókeypis og án takmarkana. Lögbært yfirvald skal kerfisbundið gera framangreint aðgengilegt almenningi. 5. og 6. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 og 11. og 12. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018 fjalla um aðkomu almennings og innleiða 24. gr. tilskipunarinnar. Samkvæmt 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 og 10. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 55/2018 skal útgefandi starfsleyfis hafa upplýsingar um leyfisveitingar á vefsvæði sínu.
Aðgangur að réttarkerfinu Lagðar eru til breytingar á 25. gr. tilskipunarinnar að því leyti að tvær nýjar málsgreinar bætast við. Í þeirri fyrri segir að aðildarríki skuli ganga úr skugga um að kæruaðild takmarkist ekki við það að aðilar hafi verið aðilar máls við málsmeðferðina. Sú seinni útlistar að ferill við mat á viðkomandi ákvörðun skuli vera sanngjarnt, hóflegt hvað tíma varðar og ekki of dýrt. Skal kveðið á um fullnægjandi og árangursríkar úrbætur, þar með talið lögbannsúrræði eftir því sem við á. Framangreint er fjallað um í lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011.
Áhrif yfir landamæri 1. og 2. mgr. 26. gr. um áhrif yfir landamæri er skipt út. Skylda aðildarríkjanna er nánar útfærð og að viðkomandi aðildarríki sem hyggst veita leyfi skuli tryggja að athugasemdir berist frá ríki sem leyfisveiting getur haft áhrif á, áður en tekin er ákvörðun um útgáfu leyfis, nema að ekki berist athugasemdir innan gefins tíma. Í 2. mgr. kemur fram að aðildarríki skuli tryggja að í tilvikum sem 1. mgr. vísar í, að umsókn um leyfi sé gerð aðgengileg almenningi til athugasemda í því aðildarríki sem leyfisveiting getur haft áhrif á, í jafn langan tíma og hún hefur verið gerð almenningi aðgengileg í því ríki sem umsókn hefur verið lögð fram í. Hér er gert ráð fyrir samstarfi stofnana/ríkja yfir landamæri sem ekki er gert ráð fyrir í EES samningnum. 17. gr. laga nr. 7/1998 og 16. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiða 26. gr. tilskipunarinnar. Hvati til nýsköpunar (Nýsköpunarmiðstöð) Á eftir 26. gr. Bætist við nýtt kaflaheiti, kafla IIa, „Hvatning til nýsköpunar“ Í kaflanum eru fjórar nýjar greinar ásamt 27. gr. sem hefur verið breytt. Tilgangurinn er að greina upplýsingar um nýstárlega tækni og einkenna þróunarstöðu þeirra frá rannsóknum til notkunar. Miðstöðin mun leyfa BAT að þróast með framsýnni nálgun og hjálpa atvinnustarfsemi að finna lausnir til að afkolast (e. decarbonise) og draga úr mengun. 27. gr. um tækninýjungar er skipt út. Nú er einnig vísað til tilvísunarskjala um BAT (e. BAT reference documents eða BREF) og niðurstaðna nýsköpunarmiðstöðvar um iðnaðarumbreytingu og losun, sbr. 27. gr. a. Aðildarríki skulu nú stuðla að þróun og notkun tækninýjunga sem tilgreindar eru í framangreindu sem og í BAT niðurstöðum. Nýjar greinar 27a til 27ed bætast við tilskipunina. 27. gr. a fjallar um stofnun nýsköpunarmiðstöðvar fyrir iðnaðarumbreytingu og losun frá iðnaði. Framkvæmdastjórnin skal stofna og reka nýsköpunarmiðstöð fyrir iðnaðarumbreytingu og losun frá iðnaði (INCITE). Þátttakendur (taldir upp í stafliðum) í miðstöðinni skulu vera m.a. aðildarríki ESB og framkvæmdastjórnin. Taka þarf afstöðu í sameiginlegu EES-nefndinni hvernig aðkoma EES- EFTA ríkjanna og ESA skuli vera háttað. -27. gr. b fjallar um prófun á nýrri tækni en þar segir að lögbært yfirvald geti veitt tímabundna undanþágu frá skilyrðum 2. og 3. mgr. 15. gr. (viðmiðunarmörk losunar) og frá meginreglum a- og b- liða 11. gr. (meginreglur um skyldur rekstraraðila) til þess að rekstraraðili geti prófað nýja tækni, í hámark 24 mánuði. -27. gr. c fjallar um losunarmörk í tengslum við tækninýjungar. Lögbæru yfirvaldi skal vera heimilt að setja losunarmörk til þess að tryggja það að innan 6 ára frá birtingu BAT niðurstaðna skv. 5. mgr. 13. gr., í tengslum við aðalstarfsemi stöðvar, að losun skuli ekki, undir venjulegum kringumstæðum fara yfir þau mörk sem eru sett fyrir tækninýjugar skv. BAT niðurstöðum. Taka þarf afstöðu í sameiginlegu EES-nefndinni hvort birting í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB ætti að eiga við um EES EFTA ríkin. -27. gr. d fjallar um umbreytingu í átt að hreinum, hringrásar og loftslagshlutlausum iðnaði. Aðildarríkin skulu tryggja fyrir ákveðnar dagsetningar að rekstraraðilar fjalli um, í umhverfisstjórnunarkerfi sínu, hvernig þeir ætli sér að umbreyta hverri stöð á árunum 2030-2050 til þess að leggja sitt af mörkum hvað varðar hreinan, hringrásar og loftslagshlutlausan iðnað. Nota skal sniðmát skv. 4. mgr. greinarinnar, þ.e.a.s. Framkvæmdastjórnin skal gefa út framkvæmdagerð (implementing act) um framangreint. Taka þarf afstöðu í sameiginlegu EES-nefndinni til þeirra tímafresta sem birtast í greininni og hvort aðlögun þurfi fyrir EES EFTA ríkin hvað. -27. gr. e fjallar um sveigju í leyfisveitingum í þeim tilvikum þegar starfsleyfishafi ætlar sér að umbreyta starfseminni í átt að loftslagsvænni tækni. Slík umbreyting er nánar skilgreind í nýrri skilgreiningu sem er bætt við tilskipunina. Aðildarríki skulu upplýsa Framkvæmdastjórnina um slík tilvik. 18. gr. laga nr. 7/1998 og 17. gr. reglugerðar nr. 550/2018 fjalla um tækninýjunga en er ekki ítarleg. en með tillögunni er Llagt til að fella ákvæðið á brott og setja í staðinn kafla. Brennsluver Viðmiðunarmörk fyrir losun - Brennsluver 5. mgr. 30. gr. tilskipunarinnar er skipt út. Við bætist skylda aðildarríkjanna til að upplýsa Framkvæmdastjórnina um ástæður og skilyrði þess að undanþágur séu veittar v. viðmiðunarmarka skv. greininni. Við 6. mgr. 30. gr. Bætist skylda fyrir aðildarríkin til að upplýsa Framkvæmdastjórnina um undanþágur veittar og ástæður og skilyrði fyrir því að undanþága sé veitt. Greinin er innleidd í 21. gr. laga nr. 7/1998 og 20. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Brennsluver sem eru hluti af litlu einangruðu kerfi Nýrri grein er bætt við, 34 gr. a. Hún fjallar um brennsluver sem eru hluti af litlu einangruðu kerfi og mögulegar undanþágur þeim til handa varðandi viðmiðunarmörk fyrir losun fyrir ákveðin efni. Aðildarríki geta veitt slíkar undanþágur út 2029. Ný grein og er því ekki innleidd í íslenskan rétt. Sorpbrennslustöðvar og sorpsambrennslustöðvarBrennslustöðvar Lagt er til að öðrum málslið 1. mgr. 42. gr séer skipt út og skilyrði hans gerð t ítarlegrai. 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiðir 42. gr. tilskipunarinnar. Vöktun losunar frá sorpbrennslustöðvar og sorpsambrennslustöðum 1.mgr. 48. gr. tilskipunarinnar er skipt út og ítarlegri kröfur gerðar til vöktun losunar. 31. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiðir 48. gr. tilskipunarinnar. Starfsemi sem notast við lífræna leysa - Umtalsverð breyting á stöðvum í rekstri 2. mgr. 63. gr. tilskipunarinnar er skipt út og einfölduð. 30. gr. laga nr. 7/1998 og 45. gr. reglugerðar nr. 550/2018 innleiðir 48. gr. tilskipunarinnar. Stöðvar sem framleiða títandíoxíð - . Vöktun losunar 3. mgr. 70. gr. tilskipunarinnar er skipt út. Gæðastjórnunarkerfi rannsóknarstofna sem sjá um vöktun losunar skal einnig vera í samræmi við staðla sem upp eru taldir í ákvæðinu. 3. mgr. 70 gr. er innleidd í 51. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Sérstök ákvæði um þauleldi alifugla og svínagrísa, alifugla og nautgripa Lagt er til að bætaBætt er við nýjum kafla, „Kafli VIAa Sérstök ákvæði um þauleldi alifugla og grísasvína, alifugla og nautgripa“. Lagt er til að nýjum kafla verði bættBæta þyrfti nýjum kafla við lög nr. 7/1998, á milli V og VI kafla laganna og á milli VI og VII kafla í reglugerð nr. 550/2018. Með nýjum kafla og viðauka Ia er verið að lækka mörkin fyrir þauleldi sem fellur undir viðauka I sem mun þýða að starfsemi sem er undir heilbrigðisnefndum mun færast yfir til Umhverfisstofnunar verði tilskipunin tekin upp í óbreyttri mynd. Greinum 70a til 70i. er bætt við í nýjan kafla VIAa. - 70. gr. a vísar í gildissvið kaflans en hann tekur til athafna skv. nýjum viðauka Ia. -70. gr. b. fjallar um samlegðarreglur stöðvanna, undir ákveðnum kringumstæðum skal líta á stöðvar sem eina hvað varðar stærð stöðva. Framkvæmdastjórnin skal birta leiðbeiningar þetta ákvæði fyrir 5. ágúst 2028. -70. gr. c fjallar um leyfi og skráningar. Aðildarríki skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að atvinnurekstur sem fellur undir gildissviðið sé með starfsleyfi eða skráningu. Ákvæðið fjallar m.a. um efni umsóknar eða skráningar og tilkynningu um breytingar . starfsleyfisskyldu aðila skv. viðauka Ia, málsmeðferð við veitingu leyfa, hvernig umsóknir skulu úr garði gerðar og breytingar á starfsemi. Þá skulu aðildarríki gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að atvinnurekstur sem fellur undir gildissviðið sé með starfsleyfi. -70. gr. d fjallar um skyldur rekstraraðila. 1. mgr. tekur til vöktunar losunar og umhverfisgæðakrafna. Einnig er fjallað um kröfur varðandi meðhöndlun húsdýraáburðar, aukaafurða dýra og annarra leifa sem verða til vegna starfseminnar. til dreifingu á mykju. -70. gr. e fjallar um vöktun og að aðildarríki skuli tryggja að hún fari fram í samræmi við 70. gr. i. og hvernig niðurstöður vöktunar skuli kynntar og aðgengilegt lögbæru yfirvaldi. -70. gr. f fjallar um þegar ekki er farið eftir reglum og skyldum. Aðildarríki skuli hafa eftirlit með því, með vettvangsferðum eða öðrum aðferðum til þess að ganga úr skugga að kröfum sé fylgt. Fylgi rekstraraðili ekki reglum skuli lögbært yfirvald tryggja að rekstraraðili grípi til aðgerða til þess að tryggja reglufylgni. Starfsemi skal stöðvuð þar til úr hefur verið bætt ef brot veldur umtalsveðri hnignun á lofti, vatni eða jarðvegi í kring, eða veldur hættu hvað varðar heilsu manna. -70. gr. g fjallar um aðgang almennings að upplýsingum og þátttöku. -70. gr. h fjallar um rétt til þess að kæra ákvarðanir, aðgerðir eða aðgerðarleysi. -70. gr. i. fjallar um starfsreglur sem Framkvæmdastjórnin skal setja fyrir starfsemi sem fjallað er um í viðauka Ia. Aðildarríkin skulu tryggja að öll starfsleyfi séu í samræmi við þessar reglur innan 42 mánaða eftir að starfsreglurnar taka gildi. Skyldur Framkvæmdastjórnarinnar (26-30)(41 – 47) Varðar skyldur Framkvæmdastjórnarinnar og þarfnast ekki sérstakrar innleiðingar. Viðurlög 79. gr. um viðurlög er skipt út og verði gerð töluvert ítarlegri. Sektir skuli reiknaðar út þannig að þær svipti þann brotlega fjárhagslegum ávinningi af viðkomandi broti. Einnig má notast við refsingar. Fram koma sjónarmið sem aðildarríki skulu taka mið af í tengslum við viðurlög. Mælt er fyrir um að sektir skuli vera í réttu hlutfalli við veltu lögaðila eða einstaklings sem brot framdi. Þær skuli reiknaðar út þannig að þær svipti þann brotlega fjárhagslegum ávinningi af viðkomandi broti. Upphæð sektanna skal hækka í takti við ítrekun brota. Ef hinn brotlegi er lögaðili skulu sektir vera a.m.k. 8% af ársveltu lögaðilans í viðkomandi aðildarríki. Fram koma sjónarmið sem aðildarríkin skulu taka mið af við upphæð sekta. 67. gr. laga nr. 7/1998 tekur mið af 79. gr. tilskipunarinnar. Ákvæði laganna skyldar Umhverfisstofnun ekki til þess að taka mið af hagnaði brots, heldur heimilar stofnuninni að ákveða hærri sektir, hafi aðili hagnast á broti. Gildandi lög taka ekki sérstaklega fram að hámarksfjárhæð sekta skuli vera 8% af ársveltu lögaðila heldur er mælt fyrir um hámarksfjárhæð sekta. Þá hefur reglugerð ekki verið sett líkt og heimild er fyrir í 2. mgr. 67. gr. laganna. Skaðabætur Nýrri grein, 79. gr. aa, er bætt við þar sem kveðið er á um að aðildarríki skuli tryggja að einstaklingar geti gert kröfu til og fengið bætur vegna brota á lögum aðildarríkis sem hafa verið sett skv. tilskipuninni sem leitt hafa til tjóns á heilsu manna, frá viðkomandi lögaðila eða einstaklingi. , og þar sem við á, lögbæru yfirvaldi sem ábyrgð ber á broti. Aðildarríki skulu tryggja að samtök sem hafa það að markmiði að vernda heilsu manna eða umhverfið geti sótt slíkar bætur fyrir einstaklinga og að bætur geti ekki verið sóttar tvisvar. Aðildarríki skulu tryggja að reglur varðandi framangreint séu svo úr garði gerðar og beitt þannig að ekki sé óhóflega erfitt að sækja bætur. Í ákvæðinu er einnig talað umSéu fyrir hendi sönnunargögn og gera má ráð fyrir orsakatengslum milli brots og tjóns á grundvelli þeirra, skulu aðildarríki tryggja að ábyrgð sé á aðila sem ábyrgð ber á brotinu að sýna fram á að brotið hafi ekki valdið tjóninu. fyrningarfrest. Fyrningarfrestur skal ekki vera lengri en 5 ár til þess að koma með kröfu. Viðaukar Gerðar eru breytingar á viðauka I sem víkka gildissvið tilskipunarinnar. Þá er þauleldi fært úr viðauka I yfir í nýjan viðauka Ia. Í viðauka Ia eru gerðar breytingar sem felst í því að miða við búfjáreiningu (e. livestock units, LSU) en í núgildandi reglum er miðað við stæði eða pláss (e. places). Þá munu grísir falla undir tilskipunina sem er breyting. Viðauki I laga nr. 7/1998 og reglugerðar nr. 550/2018 innleiðir viðauka I tilskipunarinnar. Viðauka II (skrá yfir mengandi efni) er skipt út og nýjum viðauka er bætt við. Í viðaukanum birtast meginreglur sem beitt skal þegar veitt er undanþága skv. 4. mgr. 15. gr. Þá eru gerðar minniháttar breytingar á III-VI viðauka. Viðauki II reglugerðar nr. 550/2018 innleiðir viðauka II-VI tilskipunarinnar. Tilskipun ráðsins 1999/31/EB frá 26. apríl 1999 um urðun úrgangs Breytingin sem lögð er til á tilskipuninni er að 2. mgr. 1. gr. hennar sé felld niður. Í 2. mgr. er tekið fram að ef urðunarstaðir sem IED tekur til uppfylli tæknilegar kröfur sem settar eru fram í tilskipun um urðun úrgangs, þá skuli viðkomandi urðunarstaður teljast uppfylla kröfur sem settar eru fram í IED tilskipuninni. Ekki er að finna sambærilegt ákvæði í reglugerð um urðun úrgangs.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir Breyta 1. gr., markmið (1. gr. tilskipunarinnar) Breyta 3. gr., skilgreiningum hefur verið breytt og nokkrar nýjar skilgreiningar (3. gr. tilskipunarinnar) Breyta 5. mgr. 7. gr. (5. gr. tilskipunarinnar) Breyta 39. gr., heilsa manna. (7. gr. tilskipunarinnar) Breyta 63. gr., stöðvun starfsemi (8. gr. tilskipunarinnar) Fella á brott 2. mgr. 37. gr. (9. gr. tilskipunarinnar) Breyta 38. gr. og bæta við stafliðum. (11. gr. tilskipunarinnar) Breyta þarf 9. gr., starfsleyfisskilyrði (14. gr. tilskipunarinnar) Bæta við ákvæði um umhverfisstjórnunarkerfi Breyta 10. gr., viðmiðunarmörk fyrir losun (15. gr. tilskipunarinnar) Breyta 11. gr., vöktun (3. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar) Breyta 12. gr., umhverfisgæðakröfur (18. gr. tilskipunarinnar) Breyta 15. gr. (21. gr. tilskipunarinnar) Breyta 5. og 6. mgr. 7. gr., aðgangur almennings (24. gr. tilskipunarinnar) Breyta 17. gr., áhrif yfir landamæri (26. gr. tilskipunarinnar) Breyta 18. gr. og bæta við ákvæðum og kafla um hvatningu til nýsköpunar (IIa kafli tilskipunarinnar) Bæta við nýjum kafla, sérstök ákvæði um þauleldi grísa, alifugla og nautgripa (Kafli VI.a) Breyta 67. gr., viðurlög (79. gr. tilskipunarinnar) Bæta við ákvæði um skaðabætur (79. gr. a. tilskipunarinnar) Breyta viðauka I Bæta við viðauka Ia Breyta viðauka IV, þauleldi (kalfi VIa.) Reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit Breyta 1. gr., markmið (1. gr. tilskipunarinnar) Breyta 3. gr., skilgreiningum hefur verið breytt og nokkrar nýjar skilgreiningar, (3. gr. tilskipunarinnar) Breyta 10. mgr. 6. gr. (5. gr. tilskipunarinnar) Breyta 55. gr., heilsa manna (7. gr. tilskipunarinnar) Fella á brott 2. mgr. 53. gr. (9. gr. tilskipunarinnar) Breyta 54. gr. (11. gr. tilskipunarinnar) Breyta 8. gr., (14. gr. tilskipunarinnar) starfsleyfisskilyrði Bæta við ákvæði um umhverfisstjórnunarkerfi Breyta 9. gr., viðmiðunarmörk fyrir losun (15. gr. tilskipunarinnar) Bæta við ákvæði um mat á reglufylgni (15. gr. a. tilskipunarinnar) Breyta 10. gr., vöktun (3. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar) Breyta 11. gr., umhverfisgæðakröfur (18. gr. tilskipunarinnar) Breyta 14. gr. endurskoðun á starfsleyfisskilyrðum (21. gr. tilskipunarinnar) Breyta 11. og 12. mgr. 6. gr., aðgangur almennings (24. gr. tilskipunarinnar) Breyta 16. gr., áhrif yfir landamæri (26. gr. tilskipunarinnar) Breyta 17. gr. og bæta við ákvæðum og kafla um hvatningu til nýsköpunar (IIa kafli tilskipunarinnar) Breyta 25. gr., brennslustöðvar (42. gr. tilskipunarinnar) Breyta 31. gr. (48. gr. tilskipunarinnar) Breyta 45. gr. reglugerðar nr. 550/2018 (48. gr. tilskipunarinnar) Breyta 51. gr. reglugerðar nr. 550/2018 (3. mgr. 70 gr. tilskipunarinnar) Bæta við nýjum kafla, sérstök ákvæði um þauleldi grísa, alifugla og nautgripa (Kafli VI.a) Breyta viðauka I Bæta við viðauka Ia Breyta viðauka II Breyta viðauka IV, V og VI Breyta viðauka X, þauleldi (kalfi VIa.) Lög nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 25. gr. tilskipunarinnar gæti kallað á breytingu á lögunum, t.a.m. 5. gr. 70. gr. h tilskipunarinnar gæti kallað á breytingu á lögunum Reglugerð nr. 804/1999 um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri Gæti þurft að breyta reglugerðinni. Reglugerð nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Gæti þurft að breyta reglugerðinni. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Aukinn kostnaður fyrir ríkið vegna leiðbeininga s.s. vegna leiðbeininga vegna nýrrar 27. gr. d. Aukinn kostnaður vegna vinnu starfsmanna út af innleiðingu á IVa kafla og Ia viðauka vegna þess að mörkin fyrir þauleldi eru lækkuð sem þýðir að starfsemi mun flytjast frá heilbrigðisnefnd til Umhverfisstofnunar sé tilskipunin tekin upp í óbreyttri mynd. Þá þarf að greina hvaða starfsemi mun færast og endurskoða þau starfsleyfi. Jafnframt gæti þurft að endurskoða starfsleyfi vegna samlægðarreglunar. Mikil vinna þarf að leggja í breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir sem verður samt líklega æskilegt að taka með heildarendurskoðun á lögunum ásamt breytingu á öðrum lögum. Þá mun þurfa að breyta reglugerðum þá sérstaklega reglugerð nr. 550/2018. Þá þarf að gera ráð fyrir kostnaði við kynningu á breyttu regluverki. Breytingin leiðir að öllum líkindum til meira samráðs með ESB og funda í Brussel sem mun hafa aukin kostnað í för með sér fyrir ríkið. Endurskoða þarf nokkur starfsleyfi s.s. fyrir þauleldisbú á Íslandi sem myndi vera á kostnað rekstraraðila og hluta til á kostnað ríkisins. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024L1785 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1785, 15.7.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2022) 156 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2025) 986 52025PC0986 |
Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
Breytt af (Modified by)
| 72024L1785LTU_202600590 | measure national implementing implements | ||
| 72024L1785GRC_202601025 | measure national implementing implements | ||
| COM(2025) 986 52025PC0986 |
proposes to amend | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
Breytir (Modifies)
| COM(2022) 156 52022PC0156 |
adopts | Directive (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) and Council Directive 1999/31/EC on the landfill of waste | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32010L0075 | amends | Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) (Recast) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 31999L0031 | amends | Council Directive 1999/31/EC of 26 April 1999 on the landfill of waste | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E192 | based on |