Tillagan er um tilskipun sem að breytir nokkrum lykilgerðum á sviði umhverfisréttar ESB - COM(2025) 986
Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillagan er um tilskipun sem að breytir nokkrum lykilgerðum á sviði umhverfisréttar ESB, þ.e. tilskipun um úrgang (2008/98/EB), tilskipun um losun frá iðnaði (2010/75/ESB), tilskipun (ESB) 2015/2193 um meðalstór brennslutæki og tilskipun (ESB) 2024/1785. Meginmarkmið tillögunnar er að einfalda reglur og draga úr stjórnsýslubyrði, jafnframt því að tryggja áfram hátt verndarstig umhverfis og heilsu manna.
Nánari efnisumfjöllun
COM(2025) 986 er tillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að tilskipun sem felur í sér breytingar á nokkrum grundvallargerðum á sviði umhverfisréttar ESB, þar á meðal tilskipun 2008/98/EB, tilskipun 2010/75/ESB, tilskipun (ESB) 2015/2193 og tilskipun (ESB) 2024/1785. Tillagan byggir á 192. gr. TFEU og er liður í viðleitni framkvæmdastjórnarinnar til að bæta skilvirkni reglusetningar, draga úr stjórnsýslubyrði og efla samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar, án þess að draga úr umhverfisvernd.Með tillögunni er stefnt af einföldun regluverks. Með tillögunni er gildandi regluverk, sem hefur þótt óþarflega flókið og íþyngjandi, einfaldað. Þannig er slakað á skýrslugjöf og ítarlegum kröfum sem oft hefur verið íþyngjandi fyrir rekstraraðila og opinbera aðila. Meginmarkmið tillögunnar er að tryggja að umhverfislöggjöf sé jafnt árangursrík en jafnframt framkvæmanleg.Á sviði úrgangsmála bregst tillagan við áhyggjum hagaðila af virkni gildandi skýrslugjafarkerfa, einkum SCIP-gagnagrunnsins sem komið var á fót á grundvelli efnaeftirlitsregluverks ESB. Hafa hagaðilar dregið í efa hagnýtt gildi hans og bent á flókið eðli gagnanna og takmarkaðan ávinning fyrir rekstraraðila og neytendur. Þá eru skýrslugjafarskyldur taldar að nokkru leyti tvíverknaðarlegar við kröfur samkvæmt REACH-reglugerðinni og þannig leiða til óhóflegs stjórnsýslukostnaðar án samsvarandi umhverfislegs ávinnings. Tillagan miðar því að því að einfalda skýrslugjöf, meðal annars með samræmingu á tíðni skýrslugjafar þvert á viðeigandi löggjöf, í þeim tilgangi að auka samræmi og koma í veg fyrir röskun á innri markaðinum.Að því er varðar losun frá iðnaði byggir tillagan á nýlegum breytingum á tilskipun 2010/75/ESB, sem hafa víkkað gildissvið hennar til að ná til fjölbreyttari starfsemi, svo sem stórfelldrar rafhlöðuframleiðslu og námuvinnslu. Innan þessa ramma er rekstraraðilum gert skylt að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi (EMS) fyrir starfsemi sem fellur undir tilskipunina. Tillagan felur í sér ýmsar markvissar breytingar á þessum kröfum, þar á meðal að heimila að eitt EMS nái til fleiri starfseininga undir stjórn sama rekstraraðila eða fyrirtækis, fella niður kröfur um ítarlegar efnaskrár og áhættumat, auk þess að afnema skyldu til ytri úttektar. Þá er einnig felld niður skylda til að þróa umbreytingaráætlanir innan EMS og frestur til innleiðingar uppfærðra krafna framlengdur frá 2027 til 2030. Markmið þessara breytinga er að draga úr kostnaði við reglufylgni og minnka flækjustig, án þess að raska kjarnahlutverki EMS sem verkfæris til stjórnar á umhverfisárangri.Tillagan tekur jafnframt tiltekin ákvæði tilskipunar (ESB) 2024/1785 til skoðunar, en hún hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn en er talin hafa í för með sér verulega stjórnsýslulega virkni, þar á meðal endurskoðun starfsleyfa iðnaðar frá og með júlí 2026. Um er að ræða nýjar kröfur um mat á hættulegum efnum, aukna tíðni vöktunar á jarðvegi og grunnvatni og strangari gæðakröfur til rannsóknarstofa. Með fyrirliggjandi tillögu er leitast við að draga úr þeirri stjórnsýslubyrði sem af þessu leiðir með einföldun skyldna og skýrari aðlögunarákvæðum.Í víðara samhengi endurspeglar tillagan þörf fyrir samræmda nálgun á vettvangi Evrópusambandsins á sviðum á borð við úrgangsstjórnun og losun frá iðnaði. Úrgangur fer oft yfir landamæri ríkja og kallar því á samræmdar reglur til að tryggja jafna meðferð milli aðildarríkja. Á sama hátt er nauðsynlegt að hafa sameiginlegan ramma um losun frá iðnaði til að koma í veg fyrir að mengun færist á milli umhverfismiðla eða milli ríkja og til að tryggja jafnræði rekstraraðila á innri markaðinum. Breytingarnar sem lagðar eru til í COM(2025) 986 miða því að því að bæta samræmi, skilvirkni og meðalhóf gildandi löggjafar án þess að grafa undan markmiðum hennar um vernd umhverfisins.Í heild sinni má líta á tillöguna sem tæknilega og stjórnsýslulega endurskoðun á umhverfisrétti ESB, sem hefur það að markmiði að draga úr óþarfa íþyngjandi kröfum, auka skýrleika og auðvelda skilvirka framkvæmd löggjafarinnar í aðildarríkjum. Meginþættir tilskipunarGrein 1 – breytingar á tilskipun 2008/98/EBÍ 8. gr. tilskipunar 2008/98/EB er kveðið á um ábyrgð framleiðenda. Í grein 1 (1) þessarar tilskipunar er kveðið á um upplýsingakerfi um vörur gerðar fyrst aðgengilegar af þeim framleiðendum sem að eiga undir ábyrgð framleiðenda. Í upplýsingakerfinu skal koma fram hvernig úrgang sem fellur til við framleiðslu er safnað og urðað. Framleiðendum ber að gera skýrslu að hámarki einu sinni hverja 12 mánuði.Í grein 1(2) er fjallað um minnkun hættulegra efna í efnum og vörum sem að eiga undir grein 9.(a) 1. mgr. er breytt sem hér segir:Liður (i) er felldur brott og í hans stað kemur nýr liður, þar sem tilvísun til 33. tölul. 3. gr. og 1. mgr. 33. gr. reglugerðar (EB) nr. 1907/2006 er felld brott, og þar með er jafnframt afnumin skylda til að veita upplýsingar, sbr. nánar b-lið hér að neðan.(b) Nýr liður (i) er settur inn með tilvísun til 33. tölul. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 1907/2006. Í meginatriðum felur reglan í sér að birgjum ber að afhenda upplýsingar samkvæmt REACH-reglugerðinni. Skyldan gildir frá 5. janúar 2021 og þar til þessi breyting tekur gildi.(c) 2. mgr. er breytt þannig að Efnastofnun Evrópu er falið að halda utan um þau gögn sem berast samkvæmt framangreindu.(d) 7. mgr. er breytt með staðfestingu á því að framkvæmdastjórnin setji, með framkvæmdargerð, sameiginlega aðferðafræði til skýrslugjafar um endurnýtingu vara. 1. gr. (3) – 6. mgr. 37. gr. er breytt þannig að framkvæmdastjórnin skal fara yfir þær upplýsingar sem gerðar eru aðgengilegar samkvæmt greininni í því skyni að fylgjast með framkvæmd tilskipunarinnar. 2. gr. – breytingar á tilskipun 2010/75/ESB2. gr. (1) – 14a. gr.14a. gr. er felld brott og í hennar stað kemur ný grein.(1) Áður var kveðið á um að umhverfisstjórnunarkerfi (EMS) skyldi vera fyrir hverja starfsstöð, en samkvæmt breytingunni getur eitt EMS nú náð til fleiri starfsstöðva undir stjórn sama rekstraraðila eða fyrirtækis.(2) Liðir a–d haldast að mestu óbreyttir, en að því er varðar d-lið er ekki lengur gerð krafa um að skrá hættuleg efni eða meta möguleika á að skipta þeim út. Liður (f), sem fjallaði um umbreytingaráætlanir, er felldur brott.Í heild felur breytingin í sér verulega einföldun á efni EMS.(3) 3. mgr. er að mestu óbreytt.(4) Ákvæðið er að mestu óbreytt, en framkvæmdargerð framkvæmdastjórnarinnar um hvaða upplýsingar skuli birta, með fresti til 31. desember 2025, er felld brott.(5) Rekstraraðila ber að útbúa og innleiða EMS eigi síðar en 1. júlí 2030, að undanskildum þeim starfsstöðvum sem falla undir 82. gr. Eldri frestur, 1. júlí 2027, er felldur brott. Skylda til ytri úttektar á þriggja ára fresti, og fyrsta úttekt fyrir árið 2027, er jafnframt felld brott. Frestur er þannig framlengdur og skylda til reglubundinna úttekta afnumin. 27. gr.27(d) er felld brott. 27(e)(1): Orðin „set out in the relevant transformation plan covering the installation“ eru felld brott. Með því er heimilt að veita framlengingu án þess að fyrir liggi formleg umbreytingaráætlun (e. transformation plan); áhersla er lögð á hvort raunveruleg djúpstæð iðnaðarumbreyting eigi sér stað. 27(e)(2): Sama tilvísun til umbreytingaráætlunar (e. transformation plan) er felld brott. Með því er heimilt að veita undanþágu án slíkrar áætlunar, að því tilskildu að ný starfsemi komi í staðinn innan 8 ára. Formleg umbreytingaráætlun (e. transformation plan) er því ekki lengur lögbundið skilyrði. 76. gr.76. gr. (2): Heimild til setningar framseldra gerða náði áður til 27(d), 48(5) og 74. gr., en nær nú einungis til 48(5) og 74. gr., þar sem 27(d) er felld brott. 76. gr. (3): Sama breyting á við um afturköllun heimildar. 76. gr. (6): Sama breyting á við um gildistöku framseldra gerða. 82. gr. – nýjar 10.–16. mgr.(10) Gildir um starfsemi samkvæmt I. viðauka. Nýjar kröfur samkvæmt 14. og 15. gr. skulu taka gildi innan 4 ára frá birtingu nýrra BAT-niðurstaðna (eftir 1. júlí 2026). Nýjar starfseiningar skulu hins vegar uppfylla kröfurnar strax við birtingu BAT.(11) Gildir um starfandi starfseiningar (fyrir ágúst 2024) með starfsleyfi fyrir 1. júlí 2026. Nýjar kröfur taka gildi við útgáfu eða endurskoðun leyfis eða innan 4 ára frá nýjum BAT-niðurstöðum.(12) Gildir um nýja geira (t.d. textíl). Þeir skulu uppfylla flestar nýjar kröfur innan 4 ára frá júlí 2026, að undanskilinni grein 14 (1), seinni málsgrein, lið (aa), (bb), og (h), grein 15 (4) og (6).(13) Gildir um aðra nýja geira. Þeir skulu uppfylla kröfur innan 4 ára frá BAT eða eigi síðar en 1. september 2034. Nýjar starfseiningar skulu uppfylla kröfur strax.(14) Gildir um búfjárrækt. Frestir ráðast af stærð starfsemi.(15) Varðar gildandi undanþágur samkvæmt 15. gr. Þær halda gildi sínu þar til þær eru endurmetnar innan 4 ára frá 1. júlí 2026 eða við endurskoðun leyfis.(16) Varðar undanþágur vegna nýrrar tækni. Þær halda gildi sínu til loka gildistíma, en að honum loknum skal annað hvort stöðva starfsemi eða uppfylla BAT-kröfur. 3. gr.Viðaukum II og III við tilskipun (ESB) 2015/2193 er breytt í samræmi við viðauka II við þessa tilskipun. 4. gr.gr. tilskipunar (ESB) 2024/1785 er felld brott. 5. gr. – innleiðingAðildarríki skulu innleiða tilskipunina innan 24 mánaða frá gildistöku hennar. Vísa skal til tilskipunarinnar við setningu viðeigandi laga og reglna. 6. gr. – gildistaka 7. gr. – viðtakendur
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Á ekki við |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 986 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
Leggur til breytingar á (Proposes to amend)
| 32024L1785 | Directive (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) and Council Directive 1999/31/EC on the landfill of waste | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32015L2193 | Directive (EU) 2015/2193 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2015 on the limitation of emissions of certain pollutants into the air from medium combustion plants | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010L0075 | Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) (Recast) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32008L0098 | Directive 2008/98/EC of the European Parliament and of the Council of 19 November 2008 on waste and repealing certain Directives | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytt af (Modified by)
| COM(2025) 985 52025PC0985 |
work related to work | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2007/2/EC as regards simplification of certain requirements for the establishment of the Infrastructure for Spatial Information in the Union | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 984 52025PC0984 |
work related to work | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... on speeding-up environmental assessments | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 983 52025PC0983 |
work related to work | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of authorised representatives for extended producer responsibility for waste, waste electrical and electronical equipment and single use plastic waste | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 982 52025PC0982 |
work related to work | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of an authorised representative for extended producer responsibility for batteries and waste batteries and packaging and packaging waste | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 981 52025PC0981 |
work related to work | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
Breytir (Modifies)
| 32024L1785 | proposes to amend | Directive (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) and Council Directive 1999/31/EC on the landfill of waste | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32015L2193 | proposes to amend | Directive (EU) 2015/2193 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2015 on the limitation of emissions of certain pollutants into the air from medium combustion plants | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010L0075 | proposes to amend | Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 on industrial emissions (integrated pollution prevention and control) (Recast) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32008L0098 | proposes to amend | Directive 2008/98/EC of the European Parliament and of the Council of 19 November 2008 on waste and repealing certain Directives | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E192 | based on |
