52025PC0982 – Reglugerð COM(2025) 982 um afnám kröfu um fulltrúa framleiðanda rafhlaðna og umbúða - COM(2025) 982

Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of an authorised representative for extended producer responsibility for batteries and waste batteries and packaging and packaging waste


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðar eru breytingar á tveimur reglugerðum sem ekki hafa verið teknar upp í EES-samninginn. Breytingarnar snúa að því að afnema fresta gildistöku ákvæða um skipun fulltrúa sem fara með ábyrgð framleiðenda rafhlaðna og umbúða sem staðsettir eru í öðru aðildarríki.

Nánari efnisumfjöllun

Í Samkeppnisvísi Evrópusambandsins (e. Competitiveness Compass for the EU) eru lögð drög að því markmiði að draga úr stjórnsýslukostnaði fyrirtækja um 25-35%. Svipuð sjónarmið koma fram í skýrslu Mario Draghi um framtíð samkeppnishæfni Evrópu. Tillagan er hluti af bandormi (e. omnibus) sem miðar að þessu markmiði.Framleiðandi sem setur ákveðnar vörur á markað ber ábyrgð á vörunni út líftíma hennar, svokallaða framlengda framleiðendaábyrgð. Framleiðandi sem setur vöru á markaði í öðru ríki en því sem hann er í, þarf að skipa fulltrúa sinn í viðkomandi ríki og er það hlutverk fulltrúans að fara með framlengda framleiðendaábyrgð fyrir hönd framleiðandans. Í reynd hefur þótt of flókin tilhögun að skipa þurfi fulltrúa framleiðanda í hverju ríki sem vara hans er markaðssett í. Markmið reglugerðarinnar er að gera það valkvætt fyrir framleiðendur rafhlaðna og umbúða á EES-svæðinu hvort þeir skipi fulltrúa sinn í öðrum EES-ríkjum eða ekki. Óljóst er hvaða skyldur munu gilda fyrir framleiðendur utan EES-svæðisins.Reglugerðin er þrjár greinar. Fyrsta grein afnemur skyldu framleiðenda rafhlaðna til að skipa fulltrúa sinn í þeim ríkjum sem þeir markaðssetja vörur sínar. Önnur grein gerir skipun fulltrúa framleiðenda umbúða valkvæði. Í þriðju grein er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar.Grein 1Greinin frestar gildistöku greinar 56(3) í reglugerð (ESB) 2023/1542 til 1. janúar 2035, þar sem kveðið er á um skyldu framleiðenda rafhlaðna til að skipa fulltrúa sinn í þeim aðildarríkjum sem þeir markaðssetja vörur sínar. Fjallað er um skyldur framleiðenda í þriðju ríkjum til að tryggja rekjanleika og eftirfylgni við kvaðir framlengdrar framleiðendaábyrgðar eftir öðrum leiðum.Grein 2Greinin frestar gildistöku greinar 45(3) í reglugerð (ESB) 2025/40 til 1. janúar 2035, þar sem kveðið er á um skyldu framleiðenda umbúða til að skipa fulltrúa sinn í þeim aðildarríkjum sem þeir markaðssetja vörur sínar. Aðildarríkjum er heimilt að kveða á um skipun fulltrúa framleiðenda sem hafa aðsetur í þriðju ríkjum eða gera þeim að tryggja rekjanleika og eftirfylgni við kvaðir framlengdrar framleiðendaábyrgðar eftir öðrum leiðum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, 8. mgr. 37.gr.h
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Reglugerðin felur ekki í sér aukinn kostnað hins opinbera.
Reglugerðin felur í sér rekstrarsparnað fyrir framleiðendur umbúða og rafhlaðna sem markaðssetja vörur sínar í fleiri en einu ríki.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ákvæði reglugerðarinnar eru ekki nógu skýr til að hægt sé að innleiða hana.
Engir sérhagsmunir Íslands í húfi.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2025) 982
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu

Leggur til breytingar á (Proposes to amend)

32025R0040 Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 on packaging and packaging waste, amending Regulation (EU) 2019/1020 and Directive (EU) 2019/904, and repealing Directive 94/62/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32023R1542 Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 981
52025PC0981
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 980
52025DC0980
work related to work

Breytir (Modifies)

COM(2025) 986
52025PC0986
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 985
52025PC0985
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2007/2/EC as regards simplification of certain requirements for the establishment of the Infrastructure for Spatial Information in the Union Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 984
52025PC0984
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... on speeding-up environmental assessments Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 983
52025PC0983
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of authorised representatives for extended producer responsibility for waste, waste electrical and electronical equipment and single use plastic waste Tillaga sem gæti verið EES-tæk
32025R0040 proposes to amend Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 on packaging and packaging waste, amending Regulation (EU) 2019/1020 and Directive (EU) 2019/904, and repealing Directive 94/62/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum