Ný umbúðareglugerð ESB - 32025R0040

Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 on packaging and packaging waste, amending Regulation (EU) 2019/1020 and Directive (EU) 2019/904, and repealing Directive 94/62/EC


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gera á allar umbúðir á Evrópumarkaði endurvinnanlegar árið 2030, auka á hlutfall endurunnins plasts í umbúðum á öruggan hátt og minnka á notkun nýrra hráefna í umbúðir með það að markmiði að ná kolefnishlutleysi árið 2050. Meðal nýjunga í reglugerðinni er bann við notkun ákveðinna einnota plastvara, til dæmis í umbúðir utan um grænmeti og ávexti. Bannað verður að setja á markað visst meðlæti, sósur og sykur í einstaklingsumbúðum á hótelum, krám og veitingahúsum. Lágmarka á magn og rúmmál umbúða og koma í veg fyrir óþarfar umbúðir. Sett eru markmið fyrir árið 2030 og 2040 um hlutfall endurunnins efnis í umbúðum og markmið um endurnotkun fjölnota drykkjarvöruumbúða. Lögð er kvöð á seljendur sótts matar að neytendur geti komið með eigin ílát. Sett eru markmið um endurnotkun drykkjarvöruumbúða. Einnig eru lögð takmörk á innihald PFAS-efna í umbúðum, en slík efni eru ein gerð eilífðarefna.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin inniheldur fjölmargar heimildir til framkvæmdastjórnarinnar til að útfæra ákvæði reglugerðarinnar nánar, herða skilyrði eða kveða að öðru leyti á um hvernig framkvæma skuli ákvæði reglugerðarinnar í gegnum framkvæmdaákvarðanir eða með öðrum tólum. Ekki er tilgreint sérstaklega í þessari greiningu hvaða heimildir eru til staðar til að útvíkka eða þrengja ákvæði reglugerðarinnar þar sem slíkar heimildir er víða að finna. Það þýðir sömuleiðis að nákvæm útfærsla á mörgum atriðum reglugerðarinnar liggur ekki fyrir að svo stöddu.Kafli I inniheldur greinar 1-4. Hann inniheldur staðlaða umfjöllun um gildissvið, markmið, skilgreiningar og önnur atriði. Nokkrar nýjar skilgreiningar er að finna í reglugerðinni eða breyttar skilgreiningar frá því sem áður var.Kafli II inniheldur skilyrði sem gerð eru til umbúða vegna sjálfbærnisjónarmiða. Í kaflanum eru greinar 5-10.Grein 5 fjallar um efnainnihald umbúða.Grein 6 er viðamikil og fjallar um visthönnun umbúða. Meðal efnisatriða eru að skylda sé að umbúðir séu auðveldlega endurvinnanlegar, umbúðum sé skipt í gæðaflokka og framlengd framleiðendaábyrgð skuli taka mið af gæðaflokkunum.Grein 7 kveður á um lágmarkshlutfall endurunnins plasts í plastumbúðum árið 2030 og 2040. Ákvæðið nær þó ekki til ýmissa gerða umbúða, til dæmis niðurbrjótanlegra umbúða, flutningsumbúða, umbúða um hættuleg efni og sumra viðkvæmra snertiumbúða.Greinar 8 og 9 fjalla um jarðgeranlegar umbúðir.  Kveðið er á um að sumar umbúðir skuli vera jarðgeranlegar, til dæmis kaffipúðar, tepokar, límmiðar á ávexti og grænmeti og örþunnir plastpokar. Grein 10 fjallar á tæknilegan hátt um lágmörkun umbúða og grein 11 fjallar um endurnotanlegar umbúðir, praktísk atriði við notkun og endurnotkun þeirra, hönnun og fjölda umferða (e. rotations).Kafli III snýr að merkingum og upplýsingargjöf. Í greinum 12 og 13 er kveðið á um samræmdar flokkunarmerkingar sem verða eins milli úrgangsíláta og umbúða. Fjölnota umbúðir munu þurfa að innihalda uppýsingar um endurnotkunarkerfi, til dæmis hvar er hægt að skila þeim inn og fá nýjar umbúðir. Grein 14 fjallar um grænar fullyrðingar.Kafli IV inniheldur ýmis almenn ákvæði. Greinar 15 og 16 fjallar um skyldur framleiðenda, þar á meðal upplýsingaskyldu og skyldur varðandi gæði umbúða, grein 17 fjallar um skyldur fulltrúa framleiðenda, grein 18 fjallar um skyldur innflytjenda, grein 19 fjallar um skyldur drefingaraðila, greinar 20-23 fjalla um aðrar skyldur, meðal annars til upplýsingargjafar.Kafli V áréttar skyldu til að lágmarka umbúðir. Þetta er meðal annars gert með mælanlegum hætti. Í grein 24 kemur fram að tómarúm í umbúðum megi að hámarki vera 50%.Grein 25 kveður á um takmarkanir á notkun ýmissa einnota plastumbúðagerða frá 1. janúar 2030. Helstu umbúðagerðir sem ekki má setja á markað verða plastfilma sem notuð er til að binda saman smærri einingar sem seljast saman, einnota plastumbúðir utan um ýmsa ávexti og grænmeti, einnota plastáhöld fyrir mat og drykk í gisti- og veitingageiranum til notkunar á staðnum, til dæmis bakkar, diskar, glös, pokar og box, einnota plastumbúðir í gisti- og veitingageiranum utan um einstaklingsskammta af sykri, sultu, kaffirjóma, krydd, sósubréf og svipaðar vörur sem ekki eru ætlaðar til brotttöku (take-away), einstaklingsvörur í gistigeiranum sem ekki er ætlast til að gestir deili með öðrum gestum, til dæmis einstaklingssjampóflöskur og sápur. Einnig verður bannað að setja á markað örþunna (very lightweight) burðarpoka úr plasti, nema þegar þeirra er þörf af sóttvarnaástæðum eða þegar þeir eru ætlaðir sem söluumbúðir.Greinar 26 og 27 fjalla um endurnotkunarkerfi umbúða. Grein 28 fjallar um umbúðalausar vörur og kröfur sem gera má varðandi slíka sölu. Verslanir sem eru með meira en 400 m2 sölusvæði ættu að reyna að tileinka umbúðalausum vörum 10% af sölusvæðinu.Grein 29 inniheldur endurnotkunarmarkmið. Fyrir flutningsumbúðir verður markmiðið almennt 40% árið 2030 og 70% árið 2040. Ýmsir rekstraraðilar skuli tryggja að 10% af þeirra umbúðum séu endurnotanlegar, þar á meðal kemur fram í grein 29(6) að verslanir sem selja áfenga- og óáfenga drykki skuli ná 10% endurnotkunarmarkmiði fyrir seldar drykkjarvöruumbúðir árið 2030 og 40% árið 2040. Söluaðilar vara í endurnotanlegum drykkjarvöruumbúðum skulu taka ókeypis við umbúðunum aftur að notkun lokinni. Stjórnvöld hafa þröngar heimildir til að undanskilja rekstraraðila frá ákvæðum greinarinnar, ýmist tímabundið eða til lengri tíma, þó ekki nema til 5 ára í senn. Grein 30 og 31 fjallar um hvernig reikna skuli endurnotkunarhlutföll og skila gögnum til hins opinbera.Greinar 32 og 33 kveða á um að aðilar í veitingageiranum skuli bjóða viðskiptavinum að koma með endurnotanleg ílát og hvernig staðið skuli að slíku.Kafli VI fjallar um burðarpoka úr plasti.Kafli VII kveður á um gæði, staðla og fylgiskjöl með umbúðum.Kafli VIII greinir frá hvernig meðhöndla eigi umbúaúrgang. Grein 40 kveður á um hvernig ábyrgð er úthlutað innan stjórnsýslunnar, grein 41 kveður á um gerð varúðarskýrslu (early warning report) til þeirra aðildarríkja sem ekki þykja líkleg að ná markmiðum reglugerðarinnar og grein 42 tilgreinir upplýsingar sem taka þarf inn í stefnur aðildarríkja um úrgangsforvarnir og úrgangsmeðhöndlun.Grein 43 leggur fram markmið um samdrátt í umbúðaúrgangi miðað við 2018, um 5% árið 2030, um 10% árið 2035 og um 15% árið 2040. Í greininni er nánar kveðið á um hvernig hægt sé að ná þessum markmiðum og hvernig reikna skuli árangurinn í áttina að þeim.Grein 44 kveður á um skyldu aðildarríkja til að koma á fót skrá yfir framleiðendur, framleiðendasamtök sem fara með framlengda framleiðendaábyrgð eða fulltrúa framleiðenda sem setja umbúðir á markað í fyrsta sinn. Þessi skrá er forsenda þess að hægt sé að hafa eftirlit með því að framleiðendur uppfylli sínar skyldur samkvæmt regluverkinu. Skráin þarf að geta talað við skrár annarra aðildarríkja. Almennt nær skráin aðeins yfir framleiðendur sem setja á markað 10 tonn af umbúðum á ári eða meira. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun setja nánari ákvæði um framleiðendaskrá fyrir 12. febrúar 2026. Grein 45 kveður á um að sá aðili sem setur fyrst umbúðir á markað í aðildarríki muni bera framlengda framleiðendaábyrgð á þeim umbúðum í viðkomandi aðildarríki. Fjallað er um praktísk atriði við innleiðingu framlengdrar framleiðendaábyrgðar í greininni, meðal annars um hvernig standa skuli að framlengdri framleiðendaábyrgð við netverslun. Grein 46 fjallar um samtök framleiðenda með framleiðendaábyrgð og grein 47 fjallar um viðurkenningu stjórnvalda á kerfum framlengdrar framleiðendaábyrgðar og á því hvernig framlengd framleiðendaábyrgð sé uppfyllt.Grein 48 kveður á um skyldu aðildarríkja til að tryggja að til staðar séu innviðir og kerfi til að undirbúa umbúðir fyrir endurnotkun og hágæðaendurvinna umbúðir (high-quality recycling). Ekki verður heimilt að brenna eða urða hágæðaendurvinnsluefni og koma þarf upp innviðum og/eða þekkingu til að tryggja bætta endurvinnslu.Greinar 49-52 kveða á um hvaða úrgangsstraumum þarf að safna sérstaklega, ýmist sem hefðbundnum úrgangi eða sem hluta af skilagjaldskerfi, og hvaða endurvinnslumarkmið gilda. Hvetja skuli til áfyllingarkerfa með fjölnota umbúðir. Þeir úrgangsstraumar sem taldir eru upp eru í takti við íslenskt regluverk en rýna þarf og uppfæra endurvinnslumarkmiðin. Einnig þarf að sjá til þess að kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar úthluti ákveðnu fé til úrgangsforvarna í samræmi við grein 51(3). Greinar 53 og 54 fjalla um hvernig skuli reikna út endurvinnsluhlutföll ýmist með- eða án endurnotkunartölfræði.Greinar 55-57 snúa að upplýsingagjöf framleiðenda og stjórnvalda. Kveðið er á um að aðildarríki haldi úti gagnagrunni með upplýsingum yfir umbúðir.Kafli IX fjallar um málsmeðferð m.a. þegar umbúðir eru ekki í samræmi við regluverkið. Í Grein 62 eru talin upp brot sem aðildarríkjum er gert skylt að bregðast við.Kafli X inniheldur aðeins eina grein sem fjallar um skyldu aðildarríkja til að huga að umbúðum við opinber innkaup. Ákvæði kaflans snúa að því að búa til markaðseftirspurn eftir umhverfislega sjálfbærum umbúðum. Greinin inniheldur dæmi um hvernig beita má opinberum innkaupum en áskilur framkvæmdastjórninni rétt til að útfæra innihald greinarinnar nánar.Kafli XI fjallar um gerðir sem Framkvæmdastjórninni er heimilt að setja.Kafli XII inniheldur breytingar á reglugerð (EU) 2019/1020 og tilskipun (EU) 2019/904.Kafli XIII inniheldur eftirfylgni með reglugerðinni. Grein 68 fjallar um viðurlög  vegna  brota á reglugerðinni. Grein 69 fjallar um innra mat Evrópusambandsins á gagnsemi og áhrifum reglugerðarinnar.Greinar 70 og 71 fjalla um hvenær reglugerðin öðlast gildi.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög um úrvinnslugjald
Lög um meðhöndlun úrgangs
Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir?
Kafli XII inniheldur breytingar á reglugerð (EU) 2019/1020 og tilskipun (EU) 2019/904. Þarf að skoða hvort það þurfi að breyta einhverju í íslensku regluverki vegna þeirra.
Ný reglugerð um umbúðir og umbúðaúrgang
Skoða þarf hvort það þurfi að breyta lögum um opinber innkaup.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Samtök verslunar og þjónustu, Endurvinnslan hf., Úrvinnslusjóður, Sölufélag garðyrkjumanna, Bændasamtökin (Matvælastofnun).
Niðurstöður samráðs Ekki bárust svör frá Matvælastofnun vegna reglugerðarinnar.
Úrvinnslusjóður benti á að miklu máli skipti að velja rétta ábyrgðaraðila fyrir þau stjórnsýsluverkefni sem felast í reglugerðinni. Sum atriði reglugerðarinnar falli illa að íslensku stjórnsýslu- og tollaumhverfi og sjóðurinn hafi áhuga á að taka þátt í samtalinu um útfærslu ábyrgðaskiptingar. Sérstaklega þyrfti að tilgreina skýrt við innleiðinguna hvaða aðili beri ábyrgð á hvaða þáttum regluverksins því ekki sé alltaf augljóst hvort framleiðendur umbúða, framleiðendur vöru eða innflytjendur umbúða eigi að bera ábyrgð á einhverjum þáttum. Sjóðurinn vakti sérstaklega athygli á því að breyta þurfi lögum vegna innleiðingar á grein 44, a.m.k. ef ætlunin er að sjóðurinn haldi utan um skráningarkerfið, en jafnvel þurfi samt sem áður að breyta lögum vegna þessa. Vanda þurfi til verka við innleiðingu á skráningarkerfinu sem kveðið er á um í grein 44. Sjóðurinn hafi til dæmis ekki upplýsingar um núverandi skjólstæðinga sína og sömuleiðis er skráningarkerfið nauðsynlegt til að geta framkvæmt þrepaskipta álagningu sem kveðið er á um í regluverkinu. Sjóðurinn benti einnig á að huga þurfi að því hvort, og þá með hvaða hætti örþunnir niðurbrjótanlegir burðarpokar falli inn í úrvinnslusjóðskerfið. Það er sömuleiðis mat sjóðsins að verkfæri skorti til að ná árangri með úrgangsforvörnum og nýta megi innleiðingu reglugerðarinnar til að bæta úr því. Sjóðurinn hefur áhuga á að taka þátt í samtalinu um hvernig verkaskipting og ábyrgðarskipting verður þegar reglugerðin verður innleidd í íslenskan rétt.
Töluvert var rætt um ákvæði greinar 29(6) í samráðsferlinu, meðal annars höfðu Samtök verslunar og -þjónustu, Ölgerðin og Endurvinnslan hf. eitthvað um málið að segja. Fundað var með SVÞ sem hafði tekið saman athugasemdir hagaðila og ábendingar bárust frá Endurvinnslunni hf. í gegnum tölvupóst. Báðir aðilar töldu að ekki væri fýsilegt að ráðast í uppbyggingu kerfis fyrir endurnotanlegar drykkjarvöruumbúðir. Ísland sé eina ríki Evrópu sem ekki býr við áfyllingakerfi fyrir drykkjarvöruumbúðir. Athugasemdir hagaðila eru nánar raktar í kaflanum um mat á áhrifum og sérhagsmunum Íslands.
Varðandi greinar 9, 10 og 25 töldu fulltrúar Samtaka verslunar og -þjónustu ekki að ákvæði um umbúðalaust grænmeti og ávexti hefði veruleg áhrif á verslanir. Sölufélag garðyrkjumanna taldi hins vegar mikilvægt að hægt sé að upprunamerkja alla vöru með rekjanleikanúmerum, þar með talið salat og kryddjurtir. Félagið finni þó fyrir kröfunni um minni umbúðir frá neytendum og kaupmönnum. Félagið lýsti einnig yfir áhyggjum af geymsluþoli og verjanleika vöru sem ekki er í umbúðum, og tilgreindi sérstaklega að áfram þyrfti að pakka kartöflum.

Viðbót frá UOS, send með tölvupósti 3.7.2025:
Athugasemdir frá Bændasamtökunum, SFG og SAFL frá fundi þann 29.05.2025 um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang:

- Ákvæði reglugerðarinnar koma sér illa fyrir íslenskan landbúnað. Markaðssetning íslenskrar garðyrkju fer að miklu leyti fram í gegnum notkun umbúða. Þörfin til aðgreiningar á markaði sé til staðar þar sem íslensk framleiðsla geri út á gæði afurðarinnar (t.d. minna vatnsinnihald og minni notkun varnarefna) frekar en framleiðslumagn.
- Stuðla þarf að fræðslu til neytenda varðandi eiginleika umbúðalausra vara. Neytendur líti almennt á plastumbúðir sem gæðamerki og sömuleiðis nota neytendur umbúðirnar til þess að auka geymsluþol vörunnar. Kenna þarf fólki að viðhalda líftíma vöru án plastumbúða.
- Ekki er ljóst hvernig markaðssetningu verði háttað fyrst aðgreining með notkun einnota plastumbúða verður ekki í boði. Fundarmenn sakna þess að fá frekari upplýsingar um þetta atriði.
- Hagsmunagæslu skortir fyrir íslenskan landbúnað fyrst ekki hafi verið gerðar athugasemdir við ákvæði reglugerðarinnar á fyrri stigum.
- Reglugerðin er líkleg til þess að breyta dýnamík í virðiskeðjunni þannig að vald yfir markaðssetningu flyst frá framleiðendum til smásölunnar. Erfiðara verði fyrir framleiðendur að vekja athygli á sérkennum sinnar vöru og markaðssetningaraðferðir verði í auknum mæli háðar söluaðilanum um framkvæmd.
- Viðkvæmar vörur eins og blómkál og spergilkál þurfi umbúðir. Á fyrri stigum hafi kartöflur verið sérstaklega nefndar en ljóst er að mun fleiri vöruflokkar muni þurfa umbúðir til að viðhalda gæðum vörunnar umfram þá sem hafa verið taldir upp sérstaklega.
- Rætt var um umbúðir utan um blóm. Pottar utan um umbúðir sem ekki eru ætlaðir til áframhaldandi notkunar eftir sölu teljast til umbúða, til dæmis þunnir plastpottar sem fylgja kryddjurtum og páskaliljum. Ákvæðin sem snúa að umbúðir utan um grænmeti og ávexti ná aðeins til óunninna matvæla, ekki til skrautjurta eða afskorinna blóma.
- Nú þegar sé pottur brotinn varðandi eftirlit með skráningu á upprunalandi vöru. Ekki sé brugðist við ábendingum um ranga skráningu upprunalands með nógu góðum hætti eins og staðan er núna. Reglugerðin eykur þörf á góðu og skilvirku eftirliti með réttri skráningu upprunalands.

Viðbót frá UOS vegna fundar með Bændasamtökunum þann 12. ágúst 2025:
Bændasamtökin óskuðu eftir fundi með Umhverfis- og orkustofnun til að greina frá sjónarmiðum er varða reglugerðina. Samtökin ítrekuðu þá afstöðu sína að umbúðir væru mikilvæg leið fyrir bændur til að markaðssetja sínar vörur. Samtökin bentu einnig á að tryggja þurfi aðgreiningu íslenskra vara frá öðrum vörum í verslunum og að tryggja þurfi að verslanir séu í stakk búnar til að takast á við það verkefni að vörur blandist ekki saman. Einnig veltu samtökin upp spurningum um hvort reglugerðin standist neytendalög og lög um markaðssetningu en þeirri spurningu var ekki svarað.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður fellur á stjórnsýsluna en það fer eftir útfærslu á grein 40(2) á hverjum hann lendir. Einnig fylgir kostnaður því að útbúa og halda utan um samevrópska skrá yfir framleiðendur. Aukinn kostnaður fylgir einnig eftirliti með því hvernig framleiðendur uppfylla ákvæði reglugerðarinnar sem kveðið er á um í grein 44. Einnig fylgir kostnaður því að útbúa og haldi við gagnagrunni um umbúðir sem kveðið er á um í grein 57, hvort sem hann lendir á einkaaðila eða hinum opinbera, en til eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í slíku eins og fyrirtækið GS1.
Mögulega fylgir því kostnaður að bæta tollakerfi til að halda utan um þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að safna vegna innflutnings á umbúðum og vörum í umbúðum, ef sú leið verður farin að fela tollinum það verkefni. Ef ekki verður notast við tollakerfið til þess þarf að byggja upp nýja innviði til að halda utan um þessar upplýsingar með tilheyrandi kostnaði.
Langstærsti hluti kostnaðar fellur innan kerfis framlengdrar framleiðendaábyrgðar. Samfélagslegur ávinningur er mikill í peningum talið.
Sundurliðun á kostnaði/ávinningi á hvern íbúa EES-svæðisins árið 2030 og er hún unnin upp úr nefndaráliti sem gert var á gerðinni á tillögustigi. Sundurliðunin miðast við ávinning af 19% samdrætti í umbúðaúrgangi miðað við grunnsviðsmynd:
Sparnaður samfélagsins við meðhöndlun úrgangs: 1356 ISK/íbúa
Sparnaður fyrirtækja vegna minni efniskostnaðar: 3294 ISK/íbúa
Sparnaður samfélagsins vegna hreinni úrgangsstrauma: 39 ISK/íbúa
Sparnaður samfélagsins vegna færri umbúða: 13580 ISK/íbúa
Sparnaður samfélagsins vegna minni losunar gróðurhúsalofttegunda: 2105 ISK/íbúa
Sparnaður samfélagsins vegna minni fjármálalegs kostnaðar: 14174 ISK/íbúa
Einskiptiskostnaður fyrirtækja vegna innleiðingar: 9 ISK/íbúa
Árlegur kostnaður fyrirtækja vegna stjórnsýslu: 373 ISK/íbúa
Árlegur kostnaður fyrirtækja vegna ákvæða um endurnotkun: 1186 ISK/íbúa
Árlegur kostnaður fyrirtækja vegna skilagjaldskerfis á drykkjarvöruumbúðir (nú þegar til staðar á Íslandi): 155 ISK/íbúa
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ísland, ásamt hinum Norðurlöndunum, hefur sérstakra hagsmuna að gæta þegar kemur að vali á samræmdum flokkunarmerkingum sem fjallað er um í 12. grein. Líklegt þykir að merkingar EU Picto verði fyrir valinu, þó með einhverjum breytingum. Það eru sömu merkingar og notaðar eru á Íslandi og slíkt kæmi sér vel fyrir Ísland.
Endurnotkunarmarkmið fyrir flutningsumbúðir samkvæmt 29. grein gætu að einhverju leyti ráðist af því hvernig pallettur og fiskiker verði endurnotuð. Þrátt fyrir að þessar umbúðir séu endurnotaðar í miklum mæli eru enn stórtækar hindranir í endurnotkun þeirra vegna hindrana í matvælaregluverki. Tryggja þarf að innleiðingin á regluverkinu sé gerð með þeim hætti að markmið reglugerðarinnar og túlkun á matvælaregluverki fari saman.
Í grein 48 er kveðið á um að alla jafna sé ekki heimilt að brenna umbúðaúrgang úr hágæðaendurvinnsluefni. Aðildarríki þurfi því að koma sér upp hentugum innviðum. Á Íslandi eru ekki til staðar innviðir til að framfylgja þessari grein og því þarf sérstaklega að huga að við útflutning á úrgangi eða úrvinnslu hans hérlendis.
Fjallað er um áfyllingarkerfi fyrir drykkjarvöruumbúðir í grein 29(6) þar sem söluaðilar eiga að sjá til þess að 10% af þeim drykkjarvörum sem þeir selja séu í endurnotanlegum umbúðum árið 2030 og 40% árið 2040. Þessi ákvæði hafa vakið töluverða athygli hagaðila enda hafa þau veruleg áhrif á Íslandi því Ísland er ekki með áfyllingarkerfi fyrir drykkjarvöruumbúðir, ekki sé til staðar áfyllingarmenning og engar þvottastöðvar fyrir flöskur eru starfandi. Því þyrfti að byggja upp innviði kerfisins frá grunni. Á sama tíma hefur Ísland náð endurvinnslumarkmiðum sínum fyrir einnota drykkjarvöruumbúðir og norsk skýrsla bendir til þess að núverandi kerfi sé betur til þess fallið að ná markmiðum reglugerðarinnar á Norðurlöndunum en það kerfi sem lagt er til í reglugerðinni. Ísland er einnig í þeirri sérstöku stöðu að hér er stór hluti drykkjarvörumarkaðarins í áldósum en ekki í plastflöskum eða gleri sem eru þau ílát sem henta betur til áfyllingar. Einnig tíðkast ekki að selja vatn í flöskum á Íslandi en það er víða selt í endurnotanlegum vatnsbrúsum eða stórum flöskum. Smæð markaðarins veldur því einnig að erfitt getur verið að markaðssetja drykki í endurnotanlegum flöskum á Íslandi og mögulega þyrfti að koma upp birgðum af flöskum vegna árstíðabundinna sveiflna í sölu á drykkjarvörum. Nánar verður fjallað um þær skyldur sem fylgja þessu ákvæði með birtingu sérstakra leiðbeininga þess efnis sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun birta fyrir þann 12. febrúar 2027. Íslandi er heimilt að veita undanþágu frá ákvæðum um endurnotkun drykkjarvöruumbúða til eyja þar sem búa færri en 2000 íbúar (allar eyjar nema Vestmannaeyjar) og til sveitarfélaga sem eru með færri en 54 íbúa/km2 (flest sveitarfélög nema þau þéttbýlustu). Flækjustig við slíka undanþágu er meðal annars að verslanakeðjur starfa á bæði þéttbýlum og strjálbýlum svæðum og gætu því annað hvort þurft að hafa mismunandi vöruúrval milli sveitarfélaga eða þær myndu selja vörur í endurnotanlegum umbúðum utan þess svæðis sem skyldan eða söfnunarkerfi ná almennt til. Söluaðili sem selur drykkjarvörur í endurnotanlegum drykkjarumbúðum ber ábyrgð á því að taka við umbúðunum að notkun lokinni. Skylda til að selja 10% af drykkjarvörum í endurnotanlegum drykkjarvöruumbúðum gidir þó ekki um verslanir sem eru 100m2 eða minna, sem hafa færra en 10 starfsfólk og velta minna en 2 milljónum EUR á ári eða sem setja minna en 1000 kg af umbúðum á markað á ári. Í reglugerðinni er sömuleiðis heimild fyrir aðildarríki til að gefa rekstararaðilum undanþágu frá þessu ákvæði að því gefnu að endurvinnslumarkmiðum sé náð og gott betur, að úrgangsforvarnamarkmiðum sé náð og til staðar sé stefna meðal rekstraraðila um úrgangsforvarna- og endurvinnslu sem á að ná þeim markmiðum sem lögð eru fram í grein 43 og 52. Stofnunin getur að svo stöddu ekki lagt mat á hvort líklegt sé að þessi undanþáguákvæði geti verið uppfyllt.
Í 9. og 25. grein reglugerðarinnar er kveðið á um að grænmeti og ávextir skuli ekki vera í umbúðum þegar söluskammtur er undir 1,5 kg. Þó geta aðildarríki heimilað notkun á umbúðum fyrir grænmeti og ávexti ef hægt er að sýna fram á að þær séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir mengun, vöruskaða eða til að koma í veg fyrir að varan þorni upp. Framkvæmdastjórnin mun gefa út lista yfir umbúðir sem verða óheimilar fyrir grænmeti og ávexti í samræmi við viðauka V, til dæmis net, plastbox/-dollur, pokar og körfur. Gera má ráð fyrir því að laufgrænmeti, kryddjurtir, ber og aðrar viðkvæmar vörur verði áfram í umbúðum. Ávextir og grænmeti með hýði eða börk verði almennt ekki seld í umbúðum, til dæmis sítrusávextir, bananar, melónur, epli, rófur, kartöflur, laukur o.s.frv. Ekki kemur fram hvort ávextir eins og tómatar og ferskjur megi vera í umbúðum, megi að einhverju leyti seljast í umbúðum eða hvort það megi ekki selja þessar vörur í umbúðum. Ákvæði greinanna geta haft nokkur áhrif á markaðssetningu íslensks grænmetis og lífræns grænmetis og ávaxta þar sem þessar vörur eru gjarnan seldar í umbúðum til að greina þær frá öðrum svipuðum vörum á markaði. Sömuleiðis þarf innviði í verslunum til að geta selt grænmeti og ávexti umbúðalaust án þess að hætta verði á að vörurnar skemmist í hillum, til dæmis með því að fjölga kælum, hafa lokaða kæla, koma upp rakabúnaði í grænmetiskælum eða með öðrum leiðum.
Koma þarf á fót skrá yfir framleiðendur umbúða í samræmi við 44. grein reglugerðarinnar. Ísland býr ekki yfir neinni slíkri skrá og því þarf að vinna hana frá grunni. Framkvæmdastjórnin mun setja innleiðingargerð um þessa skrá fyrir þann 12. febrúar 2026.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Matvælastofnun, Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0040
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/40, 22.1.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 677
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB