Undanþága fyrir brettafilmu og ólar frá endurnotkunarkröfu sem gerð er í reglugerð (ESB) 2025/40 - 32026D0429

Commission Delegated Decision (EU) 2026/429 of 25 February 2026 on supplementing Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council by exempting certain economic operators that use pallet wrappings and straps from the 100 % reuse requirements of these packaging formats


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Ákvörðun
Nánari tegund gerðar Framseld ákvörðun
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins leggur kvöð á rekstraraðila að sjá til þess að endurnotkunarhlutfall fyrir flutningsumbúðir sem notaðar eru við flutning vöru innan fyrirtækjasamstæðu og/eða innan aðildarríkis sé 100%. Ákvörðunin undanskilur brettafilmu og ólar sem eru notaðar á vörubretti frá þessu 100% markmiði og í stað mun hið almenna 40% endurnotkunarmarkmið gilda fyrir þessar umbúðagerðir. 

Nánari efnisumfjöllun

Í 29. grein reglugerðar (ESB) 2025/40 (umbúðareglugerðin) er kveðið á um að 40% flutningsumbúða skuli alla jafna vera endurnotanlegar árið 2030 og 70% árið 2040. Jafnframt er kveðið á um 100% endurnotkunarmarkmið fyrir flutningsumbúðir fyrir umbúðir sem notaðar eru við flutninga innan sömu fyrirtækjasamstæðu og/eða innan eins aðildarríkis. Þessi markmið ná ekki yfir flutning hættulegra efna, stórra tækja eða sérhannaðra vara, ýmsar snertiumbúðir né pappakassa. Fjölnota brettafilmur sem nota má til að umvefja vörustæður á brettum eða búa um þær að öðru leyti fyrir flutning eru til á markaði. Einskiptiskostnaður fellur á rekstraraðila við kaup á slíkum filmum og í sumum tilvikum þarf að endurhanna pökkunarlínur til að nota megi fjölnota filmur í stað einnota plastfilma. Vegna þessa kostnaðar og hættu á rofi á virðiskeðjum, er það mat Evrópusambandsins að sem stendur gegni það ekki meðalhófi að leggja kvöð á rekstraraðila að nota einungis fjölnota filmur. Ákvörðunin inniheldur tvær greinar: 1. grein kveður á um að brettafilma og ólar sem notuð eru til að verja vörur á vörubrettum og gera þær stöðugri við flutning eru undanskilin frá markmiði um 100 endurnotkun flutningsumbúða. 2. grein kveður á um gildistöku ákvörðinarinnar. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Allur kostnaður fellur til innan kerfis framlengdrar framleiðendaábyrgðar.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Gerðin sparar íslenskum rekstraraðilum fé til skemmri tíma en ekki til langs tíma. Gerðin eykur notkun flutningsumbúða úr einnota plasti í stað fjölnota umbúða. Engir sérhagsmunir Íslands í húfi.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026D0429
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/429, 6.5.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)0511
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32025R0040 based on, completes Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum