Reglugerð um rafhlöður og rafgeyma - 32023R1542

Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í reglugerðinni eru settar samræmdar reglur um sjálfbærni, frammistöðu, öryggi, söfnun, endurvinnslu og endingu á rafhlöðum og rafgeymum sem og upplýsingar um rafhlöður og rafgeyma.

Samræma á regluverkið með því að skipta út tilskipun 2006/66/EB með reglugerð sem tekst á við allan líftíma rafhlaðna og rafgeyma sem sett eru á markað í ESB.

Jafnframt breytir reglugerðum tveimur gerðum. Annars vegar reglugerð EU 2019/1020 Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðseftirlit með vörum sem breytir ákvörðun 2004/42/EB og reglugerðum (ESB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011. Reglugerðin hefur ekki verið innleidd. Hins vegar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB frá 19. nóvember 2008 um úrgang og um niðurfellingu tiltekinna tilskipana.

Nánari efnisumfjöllun

Í reglugerðinni eru settar samræmdar reglur um sjálfbærni, frammistöðu, öryggi, söfnun, endurvinnslu og endingu á rafhlöðum og rafgeymum sem og upplýsingar um rafhlöður og rafgeyma.
Samræma á regluverkið með því að skipta út tilskipun 2006/66/EB með reglugerð sem tekst á við allan líftíma rafhlaðna og rafgeyma sem sett eru á markað í ESB. Tilskipun 2006/66/EB er felld niður frá 18. ágúst 2025 en þó eru ákveðin ákvæði í henni sem halda gildi sínu lengur.
Jafnframt breytir reglugerðum tveimur gerðum.
Annars vegar reglugerð 2019/1020 Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðseftirlit með vörum sem breytir ákvörðun 2004/42/EB og reglugerðum (ESB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011. Reglugerðin hefur ekki verið innleidd en samkvæmt henni skulu viðeigandi stjórnvöld gera ákveðnar prófanir og hafa eftirlit með vörum. Í breytingunum sem gerðar hafa verið felst að þær vörur sem reglugerð (ESB) 2023/1542 tekur til skulu sæta því eftirliti sem reglugerð (ESB) 2019/1020 mælir fyrir um til þess að tryggja að rafhlöður séu einungis settar á markað ef þær séu ekki hættulegar heilsu eða öryggi manna, eigum eða umhverfinu. Verði reglugerð 2019/1020 innleidd er lagt til að tekið verði mið af þessari breytingu.

Hins vegar eru gerðar breytingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB frá 19. nóvember 2008 um úrgang og um niðurfellingu tiltekinna tilskipana. Tilskipunin er eins konar rammatilskipun á sviði úrgangs og hefur verið innleidd í ýmis lög og reglugerðir í íslenskum rétti, þar má helst nefna lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og reglugerð um meðhöndlun úrgangs nr. 802/2023. Tilskipunin mælir fyrir um framlengda framleiðendaábyrgð og kveður á um lágmarkskröfur til slíkra kerfa. Í reglugerð (ESB) 2023/1542 er framlengdri framleiðendaábyrgð komið á fyrir rafhlöður. Breytingin á rammatilskipuninni felst í því að í 7. mgr. 8. gr. a er nú kveðið á um fyrir hvaða tímamörk aðildarríki skulu hafa komið á kerfi framlendgrar framleiðendaábyrgðar fyrir rafhlöður skv. reglugerð (ESB) 2023/1542.
Umfangsmestu breytingarnar sem felast í reglugerðinni eru þær að reglugerð nr. tilskipun 2006/66/EB hefur verið felld niður og nýtt regluverk sett í staðinn. Tilskipun 2006/66/EB var helst innleidd í lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerð nr. 1020/2011 um rafhlöður og rafgeyma. Reglugerðin á að taka til alls lífsferils allra rafhlaðna sem settar eru á markað í ESB. Settar eru víðtækar heimildir fyrir framkvæmdastjórnina til þess að setja framseldar gerðir og framkvæmdagerðir.
Ýmis nýmæli eru að finna í reglugerðinni sem og breytingar á núgildandi kröfum. Í 2. kafla eru gerðar takmarkanir á magni ákveðinna efna í rafhlöðum, fyrir ákveðnar gerðir rafhlaðna þurfa upplýsingar um kolefnisfótspor að fylgja með, lágmarkskröfur eru gerðar til hlutfalls endurunninna málma og endingartíma rafhlaðnanna ásamt kröfum um hönnun á tækjum þannig að notendur eða sjálfstæðir rekstraraðilar geti fjarlægt rafhlöður/rafgeyma úr tækjum. Öryggiskröfur er einnig að finna um ákveðnar tegundir rafhlaðna.
Í þriðja kafla eru kröfur til merkinga og upplýsinga varðandi helstu einkenni, hleðslugetu, hættuleg efni, tunnumerki og QR kóða. Fjórði og fimmti kafli eru um mat á samræmi (conformity assessment procedures) við kröfur sem settar eru fram í köflum 2 og 3, þá aðila sem meta hvort framangreindar kröfur séu uppfylltar og eftirlit aðildarríkja með þeim aðilum.
Sjötti og sjöundi kafli fjallar um ýmsar skyldur rekstraraðila.
Í áttunda kafla er fjallað um úrgangsstjórnun rafhlaðna og rafgeyma. Settar eru kröfur um skráningarkerfi, framlengda framleiðendaábyrgð, söfnun, meðhöndlun og endurvinnslu, þ.m.t skilvirkni endurvinnslu, skyldur hvað varðar söfnunarhlutfall, flutning úrgangsrafhlaðna á milli landa, endurnýtingu rafgeyma, upplýsingagjöf til notenda og dreifenda (m.a. um að kaupendum sé gerð grein fyrir kostnaði sem fellur undir framlengda framleiðendaábyrgð), skýrslugjöf til yfirvalda o.fl.
Í kafla 9 er fjallað um rafrænan rafhlöðupassa, þ.e.a.s. ákveðnar upplýsingar skulu fylgja hverri iðnaðar- og rafbílarafhlöðu. Í kafla 10 er fjallað um markaðseftirlit og eftirlit með rafhlöðum og rafgeymum sem koma inn á markaði sambandsins, aðkomu Framkvæmdastjórnarinnar í ákveðnum tilvikum.
Í 11. kafla er fjallað um vistvæn opinber innkaup, málsmeðferð við breytingu á takmörkunum á hættulegum efnum og viðurkenningu framkvæmdastjórnarinnar vegna áreiðanleikakanakerfa í aðfangakeðjunni.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagt er til að gerðin verði innleidd með sérstakri reglugerð og brottfellingu á reglugerð nr. 1020/2011 um rafhlöður og rafgeyma. (sett með stoð í lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni.)

Jafnframt er þörf á að IV. kafla laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs verði breytt.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Endurvinnslufyrirtæki, Samtök Atvinnulífsins, Bílgreinasambandið eru mögulegir hagsmunaaðilar., Úrvinnslusjóður
Niðurstöður samráðs Samráð við Úrvinnslusjóð

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Auknar skyldur verða settar á framleiðendur og innflytjendur rafhlaða og rafgeyma sem eftirlitsaðilar skulu fylgja eftir að séu uppfylltar.
Á þessu stigi liggur ekki fyrir hver endanlega útfærsla verður á kröfum reglugerðarinnar, en leiða má líkum að um einhvern kostnaðarauka verði að ræða fyrir eftirlitsstofnanir.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Mannvirkjastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1542
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 191, 28.7.2023, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2020) 798
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB