ESB 2025/1561 - Frestun á innleiðingu áreiðanleikareglna um þýðingarmikil hráefni í rafhlöðum og rafgeymum. - 32025R1561
Regulation (EU) 2025/1561 of the European Parliament and of the Council of 18 July 2025 amending Regulation (EU) 2023/1542 as regards obligations of economic operators concerning battery due diligence policies
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Setja átti reglur árið 2025 um áreiðanleika hráefna sem finnast í rafhlöðum og rafgeymum, einkum hvað varðar uppruna þýðingarmikilla hráefna. Með reglugerðinni er setningu og gildistöku reglnanna frestað til 2026 og 2027.
Nánari efnisumfjöllun
Í VII. kafla reglugerðar ESB 2023/1542 um rafhlöður og rafgeyma er fjallað um hvernig rekstraraðilar eigi að gera grein fyrir áreiðanleika (e. due diligence) hvað varðar uppruna þýðingarmikilla hráefna sem koma gjarnan frá stríðshrjáðum svæðum og finnast í rafhlöðum og rafgeymum. Þetta eru einkum kóbolt, grafít, liþíum og nikkel.Til stóð að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins myndi setja reglur um áreiðanleika þessara efna og að þær tækju gildi árið 2025. Með reglugerðinni er setningu reglnanna frestað til 26. júlí 2026 og gildistöku þeirra frestað til 18. ágúst 2027.Reglurnar eiga að gilda fyrir fyrirtæki sem eru með árlega veltu yfir 40.000.000 EUR.Ástæðan fyrir því að setningu og innleiðingu reglnanna er frestað eru helst tvær: (1) því aðildarríki hafi ekki enn skipað stjórnvöld með málaflokknum og (2) til að gefa rekstraraðilum rýmri tíma til að greina sínar aðfangakeðjur og sneiða hjá þýðingarmiklum hráefnum af óáreiðanlegum eða vafasömum uppruna. Slíkt hafi reynst erfitt, til dæmis vegna tíðra átaka og pólitísks óstöðugleika.Reglugerðin setur enga fresti fyrir stjórnvöld eða fyrirtæki um að vinna að innleiðingu hennar né gerir hún kröfur um skýrslugjöf frá fyrirtækjum heldur er um einfalda og skilyrðislausa breytingu á tímafresti að ræða.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun |
| Niðurstöður samráðs |
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun taldi að löggjöfin varðaði ekki mál á forræði stofnunarinnar og stofnunin byggi ekki yfir vitneskju um möguleg áhrif breytinganna á Íslandi. Í samráðsgátt Evrópusambandsins bárust 41 umsögn um drög að reglugerðinni, flestar þeirra frá fyrirtækjum (21) og samtökum þeirra (11) en einnig umsagnir frá einstaklingum (6), frjálsum félagasamtökum (2) og yfirvöldum (1). Fyrirtæki og samtök þeirra lýstu nánast einróma yfir ánægju með drögin. Þau drógu þó fram að samræmi ætti áreiðanleikaskýrslur reglugerðarinnar við annað sjálfbærniregluverk, t.d. CSRD og CSDDD, og bentu einnig á óskýrleika í því hvernig meta eigi árlega veltu fyrirtækja, til dæmis hvort aðeins ætti að telja til rafhlöðu- og rafgeymatengda starfsemi eða alla starfsemi. Þau bentu einnig á að kröfurnar (sem verið er að fresta) gætu orðið til þess að minnka samkeppnishæfni Evrópu og því sé réttast að fresta þeim. Nokkur samtök lögðu til að setja sveigjanlegri tímafresti sem breytast eftir því hvenær leiðbeiningar frá Evrópusambandinu eru gefnar út og/eða hvenær stjórnvöld eru skipuð yfir málaflokknum. Gagnrýni kom fram á hvernig rafhlöðu- og rafgeymaframleiðendur gætu haft áhrif á nikkeliðnaðinn þar sem hann er að miklu leyti háður stálframleiðslu og lítill hluti af tekjum nikkelframleiðenda kemur frá rafhlöðu- og rafgeymageiranum. Fleiri atriði voru nefnd sem eru ekki rakin hér. Umsagnir einstaklinga voru misjafnar og frjáls félagasamtök lýstu yfir vonbrigðum. Sumar umsagnirnar voru nokkuð hlutlausar en aðrar á þann veg að siðferðisbrestur hefði orðið og að reglugerðin væri illa til þess fallin að bæta ástandið í virðiskeðjum þýðingarmikilla hráefna. Einstaklingar eru sammála um tilefni reglugerðarinnar þar sem leiðbeiningar frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eru ekki tilbúnar en þeim fannst mörgum að hún væri skref í ranga átt og verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig illa. Nokkrar umsagnir bentu á að reglugerðin rýrir umhverfisorðspor og trúverðugleika Evrópu í sjálfbærnimálum. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Enginn kostnaður. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Lítil sem engin áhrif á Ísland. Ísland hefur enga sérhagsmuni. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R1561 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1561, 30.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 258 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32023R1542 | amends | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
