32024R1781

Regulation (EU) 2024/1781 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2024 establishing a framework for the setting of ecodesign requirements for sustainable products, amending Directive (EU) 2020/1828 and Regulation (EU) 2023/1542 and repealing Directive 2009/125/EC


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2024/1781 Evrópuþingsins og ráðsins frá 13. júní 2024 sem markar ramma til að setja kröfur um visthönnun fyrir sjálfbærar vörur, breytir tilskipun (ESB) 2020/1828 og reglugerð (ESB) 2023/1542 og fellir úr gildi tilskipun 2009/125/EB. Þessi reglugerð markar ramma um kröfur um visthönnun sem vörur þurfa að uppfylla til að heimilt sé að setja þær á markað eða taka í notkun. Markmiðið með reglugerðinni er að bæta umhverfislega sjálfbærni vara til að gera sjálfbærar vörur að viðmiðum og draga úr heildar kolefnisfótspori og umhverfisfótspori yfir lífsferil þeirra og til að tryggja frjálst flæði sjálfbærra vara innan innri markaðarins. Þessi reglugerð kemur einnig á stafrænu vegabréfi, með henni er gert ráð fyrir setningu krafna um lögboðin græn opinber innkaup og skapar jafnframt ramma til að koma í veg fyrir að óseldar neytendavörur séu eyðilagðar.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin gildir um allar vörur sem eru settar á markað eða eru teknar í notkun, þar með talið íhluti og millistigsvörur. Hún tekur þó ekki til matvæla eins og skilgreind eru í 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 178/2002, fóðurs eins og skilgreint er í 4. mgr. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 178/2002, lyfja eins og skilgreind eru í 2. mgr. 1. gr. tilskipunar 2001/83/EB, dýralyfja eins og skilgreind eru í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) 2016/6, lifandi plantna, dýra og örvera, vara úr manneskjum, afurðum plantna og dýra sem tengjast framtíðarfjölgun þeirra beint, ökutækja sem vísað er til í 1. mgr. 2. gr. reglugerðar (ESB) nr. 167/2013 og í 1. mgr. 2. gr. reglugerðar (ESB) 2018/858, að því er varðar þá vöruþætti sem kröfur eru gerðar  um samkvæmt sértækum löggjafargerðum Sambandsins sem gilda um þessi ökutæki. Reglugerð þessi byggir á gildandi tilskipun um visthönnun sem hefur með góðum árangri knúið áfram orkunýtni vara í ESB í tæpa tvo áratugi. Með nýju reglugerðinni víkkar gildissvið núverandi löggjafar sem hingað til hefur verið takmarkað við orkutengdar vörur. Þetta mun gera það mögulegt að setja fram frammistöðu- og upplýsingakröfur smám saman fyrir vörur sem settar eru á markað í Evrópu. Til að tryggja fyrirsjáanleika og gagnsæi um hvaða vörur munu falla undir gerðina og hvenær, mun framkvæmdastjórn ESB samþykkja og uppfæra reglulega lista yfir vörur sem auðkenndar verða á grundvelli ítarlegrar greiningar og viðmiðana sem tengjast einkum loftslags-, umhverfis- og orkunýtnimarkmiðum ESB. Tilteknar vörur sem hafa mikil umhverfisáhrif verða settar í forgang. Þar má telja textíl (sérstaklega fatnað og skófatnað), járn og stál, ál, dekk, málningu, smurolíu og efni, svo og orkutengdar vörur, tölvur, skjái, farsíma og önnur raftæki. Nýja reglugerðin á þannig að ná til nánast allra vöruflokka. Nýju kröfurnar um visthönnun ganga lengra en fyrri kröfur um orkunýtni og miða að því að efla hringráshagkerfið og taka þannig m.a. til:endingar vara, áreiðanleika, endurnýtanleika, uppfærslugetu þeirra og viðgerðarhæfni,möguleika á viðhaldi og endurbótum,tilvist skaðlegra efna,orkunotkun og orkunýtni,vatnsnotkun og vatnsnýtni,auðlindanotkun og auðlindanýtni,endurunnins efnis,möguleika á endurframleiðslu og endurvinnanleika,möguleika á endurheimt efna,umhverfisáhrif þar á meðal kolefnis- og umhverfisspors,vænta úrgangsmyndun,vöruupplýsinga, einkum „stafrænna vöruvegabréfa“.  Vistvænar hönnunarkröfur skulu tryggja að vörur verði ekki úreltar of snemma vegna hönnunar framleiðenda eða annara þátta eins og óaðgengilegra varahluta eða hugbúnaðarvandamála. Einnig skal Framkvæmdastjórnin ákvarða hvaða efni í vörum geta flækt eða haft neikvæð áhrif á endurvinnsluferli og sett viðeigandi kröfur til að draga úr slíkum áhrifum.Í nýju reglugerðinni eru jafnframt ákvæði um gagnsæi, ráðstafanir til að binda enda á sóun og eyðingu á óseldum vörum. Framkvæmdastjórnin fær heimild til að setja, þegar nauðsyn krefur, skilyrði fyrir eyðingu óseldra vara. Þá eru ráðstafanir á sviði þvingunarúrræða og netsölu skilgreindar og skýrðar. Kveðið er á um bann við eyðingu á óseldum textílvörum og skóm, með undanþágum fyrir lítil fyrirtæki og aðlögunartíma fyrir meðalstór fyrirtæki. Með tímanum gætu aðrar greinar fallið undir slíkt bann. Til að koma í veg fyrir sóun þurfa stór fyrirtæki auk þess að tilkynna árlega hve mikið af óseldum vörum er hent og af hverju.Frekari upplýsingar fyrir neytendur um sjálfbærni eiginleika vara verða gerðar aðgengilegar, m.a. í gegnum „stafræn vöruvegabréf“. Vöruvegabréfin verða með upplýsingum um sjálfbærni vöru hverju sinni sem mun hjálpa neytendum og fyrirtækjum að taka upplýstar ákvarðanir þegar þau velja vörur og stjórnvöldum að framfylgja lagalegum kröfum og sinna eftirliti. Viðbótarupplýsingar um vöru gætu einnig verið veittar með sérstökum merkimiða á svipaðan hátt og gert er með hinum almennt viðurkennda orkumerkimiða ESB sem nú er til staðar fyrir margar orkutengdar vörur.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög nr. 42/2009
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1781
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1781, 28.6.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 142
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 504
52025PC0504
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) No 765/2008, (EU) 2016/424, (EU) 2016/425, (EU) 2016/426, (EU) 2023/1230, (EU) 2023/1542 and (EU) 2024/1781 as regards digitalisation and common specifications Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 504
52025PC0504
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) No 765/2008, (EU) 2016/424, (EU) 2016/425, (EU) 2016/426, (EU) 2023/1230, (EU) 2023/1542 and (EU) 2024/1781 as regards digitalisation and common specifications Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 848
52025DC0848
work related to work
32026R0002 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2026/2 of 9 February 2026 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2024/1781 of the European Parliament and of the Council as regards the details and format for the disclosure of information on discarded unsold consumer products Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32024D2779 based on Commission Decision (EU) 2024/2779 of 24 October 2024 setting up the group of experts on ecodesign for sustainable products and energy labelling (the Ecodesign Forum) Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2022) 142
52022PC0142
adopts Regulation (EU) 2024/1781 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2024 establishing a framework for the setting of ecodesign requirements for sustainable products, amending Directive (EU) 2020/1828 and Regulation (EU) 2023/1542 and repealing Directive 2009/125/EC Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32023R1542 amends Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32020L1828 amends Directive (EU) 2020/1828 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2020 on representative actions for the protection of the collective interests of consumers and repealing Directive 2009/22/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32012L0027 implicitly repeals Directive 2012/27/EU of the European Parliament and of the Council of 25 October 2012 on energy efficiency, amending Directives 2009/125/EC and 2010/30/EU and repealing Directives 2004/8/EC and 2006/32/EC Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32009L0125 repeals Directive 2009/125/EC of the European Parliament and of the Council of 21 October 2009 establishing a framework for the setting of ecodesign requirements for energy-related products Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex