32026R0296

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/296 of 9 February 2026 supplementing Regulation (EU) 2024/1781 of the European Parliament and of the Council by setting out derogations from the prohibition of destruction of unsold consumer products


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar bætir við reglugerð (ESB) 2024/1781 um visthönnunarkröfur fyrir sjálfbærar vörur (ESPR) með því að mæla fyrir um undanþágur frá banni við eyðingu óseldra neytendavara. Reglugerðin tekur til þeirra vöruflokka sem tilgreindir eru í VII. viðauka við ESPR, einkum textíl- og leðurfatnaðar, fatahluta og skófatnaðar. Reglugerðin er sett á grundvelli heimildar í 25. gr. (5) ESPR og markmið hennar er að tryggja hlutfallslega beitingu bannsins: að eyðing sé áfram síðasta úrræði, en þó heimil þegar hún er réttlætanleg og nauðsynleg.

Nánari efnisumfjöllun

Í reglugerðinni eru skilgreind þau tilvik þar sem rekstraraðilum er heimilt að eyða óseldum vörum þrátt fyrir bannið, enda geti þeir lagt fram viðeigandi gögn því til staðfestingar. Undanþágurnar taka meðal annars til hættulegra vara, vara sem eru ekki í samræmi við lög, vara sem brjóta gegn hugverkaréttindum, vara sem ekki er tæknilega mögulegt eða hagkvæmt að gera við eða endurnýta, vara sem eru ónothæfar vegna galla eða skemmda, og vara sem ekki hefur tekist að ráðstafa til gjafar eða endurnotkunar.Jafnframt er mælt fyrir um hvaða skjöl og upplýsingar rekstraraðilar skulu varðveita til að unnt sé að sannreyna að skilyrði undanþágu hafi verið uppfyllt, hversu lengi skuli varðveita þau, og að veita skuli úrgangsmeðferðaraðilum upplýsingar um hvaða undanþága á við þegar viðkomandi vörum er skilað til meðferðar.Reglugerðin er sett á grundvelli 25. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1781 og er ætlað að tryggja að bann við eyðingu óseldra vara verði beitt með samræmdum og meðalhófskenndum hætti innan EES, án þess að skapa óþarfa íþyngjandi framkvæmd, en jafnframt þannig að komið sé í veg fyrir misnotkun undanþága.Gildistaka / gildistökudagur:Reglugerðin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda frá 19. júlí 2026.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0296
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/296, 22.4.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)0659
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32024R1781 based on, completes Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun