Tillaga Evrópuþingsins- og ráðsins að reglugerð um að flýta umhverfismati COM/2025/984. - COM(2025) 984

Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... on speeding-up environmental assessments


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða tillögu að reglugerð um að hraða umhverfismatsferlum án þess að draga úr kröfum um umhverfisvernd. Markmiðið er að stytta tíma, samræma ferla og draga úr tvíverknaði innan kerfisins. Tillagan byggir á gildandi umhverfisregluverki og setur fram sameiginlegan málsmeðferðarramma fyrir umhverfismat. Tillagan er sett fram til að hraða skipulags- og leyfisveitingaferlum án þess að draga úr kröfum sem þegar hafa verið settar. Samkvæmt tillögunni er lögð áhersla á stafræna stjórnsýslu í kringum umhverfismat og leyfisveitingar verði samþætt og að framkvæmdaraðili hafi einn tengilið við stjórnsýsluna í gegnum allt ferlið. Samkvæmt 4. gr. tillögunnar yrðu settar kröfur um samræmda og sameiginlega málsmeðferð sem uppfylli kröfur allra tiltekinna tilskipana. Samkvæmt 7. gr. eru lögð til þrengri tímamörk við bæði tiltekna áfanga umhverfismats sem og við leyfisveitingaferli þar sem markmiðið er að ferlið verði skýrara og taki skemmri tíma. Þá er lagt til að ákveðin verkefni fái hraðari meðferð en önnur í gegnum umhverfismatsferli, s.s. framkvæmdir sem varða endurnýjanlega orku, orkuver o.fl.  Lagt er til að komi breytinga eða stækkana á framkvæmd skulu þær aðeins háðar umhverfismati ef um er að ræða stórframkvæmdir sem fela í sér svipaða eða meiri áhættu en framkvæmdin hafði í upphafi, gr. 5(1). Auk þess er vísað til viðauka um ákveðnar tegundir framkvæmda sem skuli fá flýtimeðferð í gegnum umhverfismatsferli.  Samkvæmt 6(1) yrði aðildarríkjum gefin heimild til þess að ákveða að máli skuli ljúka á stjórnsýslustigi áður en unnt er að reka það fyrir dómstólum.  

Nánari efnisumfjöllun

Tillagan á við um skjótari meðferð við ákvörðun um matsskyldu og umhverfismatsferlið í heild. Hún kveður m.a. á um flýtimeðferð ákveðinna framkvæmda og skemmri tímafresti. Hér eru athugasemdir stofnunarinnar settar fram.  Á Íslandi tengjast ferlar umhverfismats og leyfisveitinga á ákveðinn hátt á milli tveggja stofnana, Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) og Umhverfis- og orkustofnun (UOS).  Ákveðnar framkvæmdir eru matsskyldar samkvæmt lögum, en um aðrar eru teknar ákvarðanir um hjá HMS. Framkvæmdaraðili leggur þá fram matsáætlun til HMS sem fer yfir hana og samþykkir til kynningar þegar áætlun er fullnægjandi. Umsagna er leitað um matsáætlun, m.a. frá UOS, áður en álit um matsáætlunina er lagt fram. Í kjölfarið vinnur framkvæmdaraðili umhverfismatsskýrslu og leggur hana fram ásamt því að óska eftir leyfi fyrir framkvæmdinni hjá UOS. HMS gefur í kjölfarið út álit sitt á umhverfismatsskýrslunni. Í framhaldinu vinnur UOS að leyfisveitingu og tekur afstöðu til álits HMS. Eftir atvikum lýkur ferlinu hjá UOS með kynningu á tillögu að leyfi og síðan útgáfu leyfis. Stofnanirnar tvær koma því báðar að ferli umhverfismats á sinn hátt.  Tilgangur þess að vinna og leggja fram skýrslu um mat á umhverfisáhrifum er sá að framkvæmdaraðili fái útgefið leyfi til tiltekinna framkvæmda. Efni tillögunnar hefur þannig áhrif á leyfisveitingaferli UOS í heild, enda þótt ekki sé fjallað um leyfisveitingar í tillögunni. UOS telur að nauðsynlegt sé að huga að þessum hluta ferlisins til þess að tryggja skýrleika á öllum stigum, enda sé það framkvæmdaraðila í hag. UOS telur nauðsynlegt að fara í nákvæma rýni á öllum þeim lögum og reglugerðum sem varða bæði umhverfismat og leyfisveitingar, áður en tillaga sem þessi næði fram að ganga. Hvað varðar málsmeðferðartíma er það sama að segja. UOS telur það af hinu góða að hæfilegir tímafrestir séu settir á hverju stigi málsins. Hins vegar er nauðsynlegt að hafa allar hliðar ferlisins í huga, bæði frá sjónarhóli framkvæmdaraðila og stjórnvaldsins. Yrði tillagan samþykkt gæti áhrifin orðið þau að mismunandi málsmeðferðarfrestir myndu skapast milli stofnana, eða að ákveðin skilyrði hjá UOS samræmdust ekki við ný ákvæði um umhverfismat.  UOS telur að yrðu sett ákvæði um forgangsmál í gegnum umhverfismat, gr. 7(1)(d) hefði það bein áhrif á leyfisveitingaferli. Það hefði áhrif á vinnuálag og þjónustu UOS gagnvart bæði forgangsaðilum sem og öðrum þeim umsækjendum með mál sem ekki falla í forgangsflokk. Tekið er undir athugasemdir HMS að þessu leyti.  Í tillögunni er lagt til að komi til breytinga eða stækkana á framkvæmd skuli þær aðeins háðar umhverfismati ef um er að ræða stórframkvæmdir sem feli í sér svipaða eða meiri áhættu en framkvæmdin hafði í upphafi, gr. 5(1). Yrði þetta samþykkt yrði leyfisveitingaferli í kjölfarið óskýrt. Ávallt er leitast eftir því að hafa málsmeðferð leyfisveitinga skýra og málsmeðferðartímann eins skamman og unnt er. Það er til stöðugrar skoðunar að finna leiðir til að einfalda og samræma feril matsskylduákvörðunar, umhverfismats og leyfisveitinga og á hvaða stöðum í ferlinu það væri hægt, enda gagnast skýrir verkferlar og samskipti öllum sem að málunum koma. UOS telur engu að síður að hafa verði í huga að setning ákvæða um skemmri tímafresti og ákveðins verklags leiðir ekki endilega til skjótari málsmeðferðartíma eða einföldunar málsmeðferðar að lokum. Þá er einnig tekið undir athugasemd HMS um gr. 7(1)(d), um að það að málsmeðferðarfrestur sé styttur og að lokað sé á gagnaöflun snemma í ferlinu leiðir ekki sjálfkrafa til meiri gæða á málsmeðferðinni. Hvað varðar það sérstaklega að lokað sé á gagnaöflun snemma í ferlinu gæti komið niður á gæðum umhverfismats, sem myndi koma niður á gæðum vinnu við leyfisveitingu framkvæmdar. UOS sem leyfisveitandi þyrfti mögulega að afla frekari gagna sem hefðu þá ekki verið metin sérstaklega af HMS sem hluti af áliti um umhverfismat.  UOS bendir á að það getur ekki verið almenningi, framkvæmdaraðila né stjórnvöldum í hag að gagnaöflun, tímalínur og frestir yrðu óljósir eftir breytingar sökum þess að bæði ferli hafi ekki verið rýnd samhliða. UOS telur að breytingar á lögum, reglugerðum og leyfisveitingaferli í heild yrðu nauðsynlegar ef tillagan nær fram að ganga, t.d. á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, lögum um stjórn vatnamála nr. 36/2011 og reglugerðum settum samkvæmt þeim.  UOS telur að breytingar á leyfisveitingaferli í kjölfar samþykktar tillögunnar yrðu gerðar á grundvelli umhverfismatsferlis eingöngu, en ekki sérstakri rýni á sjálfu leyfisveitingaferlinu, sem stofnunin telur ekki æskilegt.  Ekki eru settar fram athugasemdir við einstaka greinar tillögunnar á þessu stigi. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta UOS telur að breytingar á lögum, reglugerðum og leyfisveitingaferli í heild yrðu nauðsynlegar ef tillagan nær fram að ganga, a.m.k. á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, lögum um stjórn vatnamála nr. 36/2011 og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2025) 984
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 983
52025PC0983
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of authorised representatives for extended producer responsibility for waste, waste electrical and electronical equipment and single use plastic waste Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 982
52025PC0982
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of an authorised representative for extended producer responsibility for batteries and waste batteries and packaging and packaging waste Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 981
52025PC0981
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 980
52025DC0980
work related to work

Breytir (Modifies)

COM(2025) 986
52025PC0986
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 985
52025PC0985
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2007/2/EC as regards simplification of certain requirements for the establishment of the Infrastructure for Spatial Information in the Union Tillaga sem gæti verið EES-tæk
12016E192 based on