32024R0573

Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 on fluorinated greenhouse gases, amending Directive (EU) 2019/1937 and repealing Regulation (EU) No 517/2014


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem kemur í stað eldri reglugerðar (ESB) nr. 517/2014 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir. Þessi gerð gengur umtalsvert lengra í að takmarka markaðssetningu og notkun efnanna sem um ræðir en eldri gerðin - meðal annars ná nú ýmis ákvæði til stærri hóps af efnum og jafnframt eru gerðar auknar kröfur um þjálfun starfsfólks sem vinnur með flúoraðar gróðurhúsalofttegundir og staðgönguefni þeirra.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin fellir úr gildi og kemur í stað reglugerðar (ESB) nr. 517/2014 sem innleidd er hér á landi með reglugerð nr. 1066/2019. Allnokkrar aðlaganir voru gerðar við innleiðingu reglugerðar (ESB) nr. 517/2014, einkum sem snúa að takmörkun leyfilegs magns af vetnisflúorkolefnum á markaði. Öll ákvæði sem varða sameiginlegt evrópskt kvótakerfi vegna þessara takmarkana voru undanskilin við innleiðingu gerðarinnar og þess í stað sett á fót séríslenskt kvótakerfi, á grundvelli Kigalibreytingarinnar við Montréalbókunina, með úthlutunarkerfi sem byggði á því reiknimódeli sem sett var fram í ESB-gerðinni fyrir samevrópska kerfið. Í ljósi þess að um er að ræða reglugerð sem kemur í stað núverandi reglugerðar er í mörgum tilfellum þægilegast að skoða ákvæði hennar í ljósi þess hvaða breytingar verða frá því sem nú er. Þeirri aðferð er því beitt víða í umfjölluninni hér á eftir.I. kafli – Almenn ákvæði1. gr.a) liður er víkkaður og tekur nú einnig til endurvinnslu og endurheimtar F-gasa, ásamt því að taka til þjálfunar og vottunar starfsmanna óháð því hvort unnið er með F-gös eða staðgönguefni sem eru ekki flúoruð.b) liður tilgreinir nú sérstaklega framleiðslu, innflutning, útflutning, setningu á markað, að bjóða fram á markaði og notkun F-gasa og vara og búnaðar sem innihalda F-gös eða virka fyrir tilstilli þeirra.Nýr liður, e), bætist við og tekur sérstaklega fram að reglur séu settar um skýrslugjöf.2. gr.Ný grein sem útlistar sérstaklega gildissvið gerðarinnar. Hún gildir um öll F-gös sem listuð eru í I., II. og III. viðauka hvort heldur sem þau eru ein eða í blöndu og vörur og búnað eða hluta þeirra sem innihalda F-gös eða virka ekki án þeirra.3. gr.Inniheldur skilgreiningar og ýmsum skilgreiningum er bætt við frá eldri gerð til að skýra frekar ákvæði gerðarinnar.II. kafli – Innilokun/afmörkun (e. containment)4. gr.Forvarnir gegn losun. Greinin gildir nú einnig um HFO-efni. Kröfur um að gera allt til að koma í veg fyrir losun sem ná einnig til framleiðenda, flutnings- og geymsluaðila. Krafa um vottorð ásamt tilteknum fylgigögnum varðandi HFC-23 sem hliðarafurð er nú komið inn í þessa grein, en gögnin skulu geymd í a.m.k. 5 ár.Ný krafa um að staðreynt sé að viðgerð hafi heppnast þegar kerfið hefur verið keyrt í sólarhring eftir viðgerð. Þar sem lekaprófunarkrafa gildir nú einnig um tiltekin færanleg kerfi (sjá 5. gr.) gildir krafan varðandi viðgerðir einnig um þau en heimilt er að staðreyna að viðgerð hafi heppnast í beinu framhaldi af viðgerðinni fyrir slíkan búnað.5. gr.Lekaprófanir. Ákvæðin varða nú einnig HFO-efni og færanleg kerfi (sbr. 5(3)). Í tilfelli HFO-efna eru mörk sett með vísan til magns þeirra í kílógrömmum (ekki t CO2-eq eins og fyrir t.a.m. HFC).Lekaleitaskyldan er víkkuð út til að ná til framleiðanda en ekki bara rekstraraðila.6. gr.Lekagreiningarkerfi. Virðast ekki vera efnislegar breytingar.7. gr.Skráahald. Við bætist krafa um að söluaðilar búnaðar skuli nú halda skrá yfir seldan búnað og þau vottuðu fyrirtæki sem muni sjá um uppsetningu búnaðarins. Skrárnar skal geyma í að minnsta kosti 5 ár.8. gr.Gildissvið ákvæðanna í þessari grein er víðara en í eldri reglugerð þar sem hún tekur nú til fleiri gerða af færanlegum búnaði en áður.Endurheimt og eyðing. Nú er komin inn krafa um að endurnota ekki endurheimta miðla nema að undangenginni endurvinnslu eða endurnýtingu. Athugið að vegna breytingar á skilgreiningu endurvinnslu er lágmarkskrafa um síun og þurrkun.Frá 1. janúar 2025 eiga eigendur bygginga og verktakar að tryggja að við endurbætur, endurnýjun og eyðingu sé komið í veg fyrir eftir því sem hægt er (e. avoided to the extent possible) losun F-gasa úr frauðeiningum (e. foam panels) með því að meðhöndla einingarnar þannig að tryggt sé að F-gösin séu endurheimt eða þeim eytt.Sama gildir um froður í samsettum einingum (e. laminated boards). Ef ekki reynist unnt að gera þetta þarf að skrá sönnunargögn fyrir því að það hafi ekki verið hægt og geyma þær skrár í a.m.k. 5 ár.Krafan um vottun vegna endurheimtar kælimiðla úr bílum nær nú einnig til HFO-efna.Þegar miðlunum er eytt skal notast við tækni sem viðurkennd er af Montréalbókuninni til slíkrar eyðingar.Aðildarríkin skulu stuðla að endurheimt, endurnýtingu, endurvinnslu og eyðingu F-gasa sem skráð eru í I. og II. viðauka.9. gr.Eigi síðar er 31. desember 2027 skulu aðildarríkin sjá til þess að skyldur til að fjármagna úrgangsmeðhöndlun raf- og rafeindabúnaðar sbr. 12. og 13. gr. tilskipunar 2012/19/ESB (WEEE) nái einnig til þess að fjármagna endurheimt og endurvinnslu, endurnýtingu eða eyðingu F-gasa í I. og II. viðauka úr raf- og rafeindabúnaði sem inniheldur þessi gös og hefur verið settur á markað frá 11. mars 2024.10. gr.Krafa um vottun nær nú einnig til búnaðar sem inniheldur HFO-efni eða aðra staðgöngumiðla efna sem hingað til hefur verið krafist vottunar fyrir, þ.m.t. náttúrulega kælimiðla s.s. ammóníak, koldíoxíð og kolvetni.Við kröfur um innihald þjálfunar bætist fræðsla um örugga meðhöndlun búnaðar sem inniheldur eldfimar eða eitraðar lofttegundir, lofttegundir við háan þrýsting eða aðrar áhættur sem máli skipta. Einnig bætist við krafa um fræðslu varðandi orkunýtni búnaðar og hvernig megi auka hana við uppsetningu búnaðar, viðgerðir og þjónustu.Eigi síðar en 12. mars 2026 á framkvæmdstjórn ESB að setja nýjar reglugerðir um lágmarkskröfur hvað varðar þjálfun og vottun.Skírteini gefin út skv. eldri reglugerð halda gildi sínu en eigi síðar er 12. mars 2027 skulu aðildarríkin sjá til þess að vottaðir einstaklingar sitji endurmenntunarnámskeið eða ljúki matsferli eigi sjaldnar en á 7 ára fresti. Þeir sem hafa útgefin skírteini á forsendum reglugerðar (ESB) nr. 517/2014 skulu sitja slíkt endurmenntunarnámskeið eða ljúka slíku mati í fyrsta skipti eigi síðar en 12. mars 2029. Gildistími skírteina sem gefin eru út í dag á forsendum reglugerðar nr. 1066/2019 er fimm ár frá útgáfudegi. Skoða þarf hvort ekki væri eðlilegast að breyta ákvæðum um gildistíma hér á landi við innleiðingu þessarar reglugerðar þannig að gildistíminn verði 7 ár.Aðili (e. undertaking – sjá skilgreiningu 27) skal ekki fela verkefni, sem krefjast vottunar, öðrum aðila nema eftir að hafa gengið úr skugga um að viðkomandi aðili hafa tilskilda vottun.Aðildarríki sem eru svo fámenn að ekki er forsvaranlegt að setja upp kerfi vegna þjálfunar og vottunar mega þess í stað uppfylla kröfur reglugerðarinnar með viðurkenningu á þjálfunarskírteinum sem gefin eru út í öðrum aðildarríkjum. Ætli aðildarríki að nýta þetta ákvæði skal það tilkynna um það til framkvæmdastjórnarinnar sem svo tilkynnir það áfram til annarra aðildarríkja.III. kafli – takmarkanir og notkun11. gr.Takmarkanir varðandi setningu á markað og sölu. Setning vara og búnaðar á markað er bönnuð frá þeirri dagsetningu sem kemur fram fyrir viðkomandi búnað í IV. viðauka við reglugerðina (III. viðauki við eldri gerð). Þrátt fyrir þetta er heimilt að setja á markað nauðsynlega varahluti fyrir búnaðinn sem um ræðir að því gefnu að notkun þeirra leiði ekki til stækkunar kerfisins, aukins magns F-gasa í vörunni eða búnaðinum eða breytingu á því efni sem notað er með þeim hætti að notað sé efni með hærri hnatthlýnunarmátt en áður.Hafi búnaður verið settur ólöglega á markað er óheimilt að selja hann, bjóða hann fram eða gera aðgengilegan fyrir aðra á svæðinu og einnig óheimilt að flytja hann út. Endurútflutningur vara sem ekki hafa verið tollafgreiddar inn á innri markaðinn er þó heimill.Þegar ár er liðið frá þeirri dagsetningu sem bannið í IV. viðauka tók gildi fyrir tiltekna vöru/búnað skal aðeins vera heimilt að bjóða hana fram öðrum aðila að því gefnu að sönnunargögn liggi fyrir um að varan hafi verið löglega sett á markað.Undanþágur frá framagreindu eru mögulegar ef kröfur um visthönnun sbr. tilskipun 2009/125/EB eru uppfylltar.Til viðbótar við bann við markaðssetningu eru sett sérstök ákvæði sem banna innflutning, afhendingu og notkun einnota íláta fyrir F-gös. Sérstaklega er útlistað að kútar sem hægt væri að fylla á að nýju en sem settir eru á markað án kvaðar um að þeim sé skilað inn til enduráfyllingar teljist líka einnota ílát.Aðilar sem setja á markað enduráfyllanlega kúta fyrir F-gös skulu framvísa samræmisyfirlýsingu sem staðfestir að bindandi ákvæði séu fyrir hendi um endurskil kútanna til áfyllingar þar sem einkum kemur fram hvaða aðilar komi að máli og hvaða skyldur þeim ber að uppfylla og ráðstafanir sem lúta að skipulagningu. Slíkar yfirlýsingar skulu vera geymdar í a.m.k. 5 ár.Aðeins aðilum sem hafa viðeigandi vottun skal vera heimilt að kaupa F-gösin sem talin eru upp í I. viðauka og I. hluta II. viðauka til að framkvæma vinnu þar sem vottunar er krafist. Óvottaðir aðilar mega flytja gösin á milli staða.Búnað sem ekki er loftþéttur má aðeins selja endanotanda að því gefnu að lögð séu fram gögn því til sönnunar að uppsetning búnaðarins verði í höndum þar til bærs aðila með viðeigandi vottun.Ýmis ný bönn bætast við IV. viðauka.12. gr.Merkingar og upplýsingar á vörum og búnaði. Allar þessar kröfur gilda nú einnig um HFO-efni. Við eldri kröfur bætist einnig að lyfjapúst skulu nú einnig merkt ef þau innihalda F-gös.Einnig bætist við nýtt ákvæði varðandi það að tiltekinn búnaður skuli merktur með þeirri tilgreiningu að hann skuli aðeins notaður þar sem þess er krafist vegna öryggisstaðla eða í tilgreindum læknisfræðilegum tilgangi.Æskilegt væri að þessar merkingar væru leyfðar á ensku hér á landi.13. gr.Takmarkanir á notkun.  Frá 1. janúar 2025 gildir hið svokallaða áfyllingarbann óháð stærð kerfisins. Eftir sem áður eru undanþágur fyrir búnað sem kælir niður fyrir – 50 °C og, til 2030, ef notuð eru endurnýtt, eða endurunnin gös.Nýtt ákvæði setur áfyllingarbann frá 1. janúar 2026 fyrir varmadælur og loftræsibúnað. Undanþága fyrir notkun á endurnýttum og endurunnum efnum gildir til 1. janúar 2032 fyrir þennan búnað.Nýtt ákvæði bannar notkun F-gasa í I. viðauka með hnatthlýnunarmátt sem nemur 750 eða meira til viðhalds og viðgerða á staðbundnum kælikerfum frá 1. janúar 2032. Undanþága án tímamarka er veitt ef notuð eru endurnýtt eða endurunnin efni.Frá 1. janúar 2035 er bannað að nota SF6 til viðhalds og viðgerða á rofbúnaði nema það sé endurunnið eða endurnýtt.Frá 1. janúar 2026 er notkun desflúran til svæfinga bönnuð nema í tilfellum þar sem ekki er hægt að notast við neitt annað efni af læknisfræðilegum ástæðum. Við notkun efnisins skal téð læknisfræðileg ástæða skráð og látin í té eftirlitsyfirvöldum ef óskað er eftir því.Nýjar kröfur eru settar fram varðandi rofbúnað sem gera kröfu um að nota aðrar lausnir en F-gös nema ekkert annað sé í boði.IV. kafli – framleiðsla og leyfilegt magn vetnisflúorkolefna á markaði.14. gr. til 21. gr. varða ákvæði sem ekki voru innleidd með eldri gerð og stýrt er hér á landi gegnum ákvæði sem byggjast á aðild Íslands að Montréalbókuninni og einkum Kigalibreytingunni á henni. Ákvæðin snúa að heimildum til að setja vetnisflúorkolefni á markað o.fl.V. kafli - viðskipti22. gr.Ný grein um inn- og útflutning. Innflutningur og útflutningur vara og búnaðar sem inniheldur F-gös skal nú aðeins heimill gegn framvísun formlegra pappíra þess efnis til tollyfirvalda.Útflutningur tiltekins búnaðar sem vísað er til í IV. viðauka verður bannaður frá 12. mars 2025.23. gr.Eftirlit með verslun. Í þessari nýju grein eru settar fram kröfur um eftirlit með verslun með vörur og búnað sem inniheldur F-gös. Ýmislegt sem hér er útlistað varðar tengingar við kvótakerfi Evrópusambandsins svo og samræmt kerfi vegna tollafgreiðslu inn í sambandið. Þessi ákvæði eiga því ekki við hér á landi.24. gr.Leiðir til að vakta ólöglega verslun. Ný grein sem varðar einkum rétt framkvæmdastjórnarinnar til að setja framkvæmdarreglugerðir varðandi eftirlit með ólöglegri verslun og aðferðir sem beita skuli við slíkt eftirlit. Liðir a og b í 1. mgr. vísa í greinar 23. og 22. sem eru taldar ekki EES-tækar.25. gr.Ný grein um viðskipti við ríki sem ekki eru aðilar að bókuninni. Bannað er frá 1. janúar 2028 að flytja inn og út HFC efni eða búnað, sem inniheldur slík efni eða virkar einungis vegna tilstilli þeirra, frá og til landa sem ekki eru aðilar að Montréalbókuninni. Styðst við tollalöggjöf ESB sem ekki var metin EES-tæk.VI. Kafli - skýrslugjöf og söfnun á gögnum um losun26. gr.Skýrslugjöf. Greinin snýr væntanlega að öflun upplýsinga fyrir sameiginlega skýrslugjöf ESB-ríkjanna á forsendum Montréalbókunarinnar. Þar sem Ísland er ekki aðili að kvótakerfi ESB og skilar landsbundnum skýrslum til bókunarinnar varðar efni greinarinnar ekki Ísland.27. gr.Söfnun á gögnum um losun. Krafa um að hvert aðildarríki setji sér upp skýrslugjafarkerfi fyrir viðkomandi geira með það markmið að safna gagna um losun. Kanna þarf hvort hérlend losunargögn taki með nægjanlegum hætti til F-gasa.VII. Kafli – eftirlit28. gr.Samstarf og deiling á upplýsingum. Ný grein sem fjallar um samvinnu og deilingu upplýsinga milli stjórnvalda í aðildarríkjunum, framkvæmdastjórnar ESB og, ef á þarf að halda, stjórnvöldum þriðju ríkja. Í greininni eru vísanir í regluverk sem ekki er hluti af EES-samningnum, F-gasagátt ESB, aðrar greinar reglugerðarinnar sem ekki metast sem EES-tækar, áhættumatskerfi tollayfirvalda sem Ísland hefur að líkindum ekki aðild að.29. gr.Skylda til að framkvæma eftirlit. Ný grein sem fjallar um að aðildarríki skulu framkvæma eftirlit til að athuga hvort fyrirtæki fari eftir ákvæðum þessarar reglugerðar. Slík eftirlit skulu vera byggð á áhættumati og fyrri reynslu. Ítarleg umfjöllun um hvernig eftirliti skuli háttað.30. gr.Tilkynning um brot og vernd þeirra sem tilkynna slík brot. Greinin vísar í sérstaka tilskipun ESB 2019/1937 um uppljóstrara og að ákvæði hennar skuli notast við tilkynningar á brotum á ákvæðum þessarar reglugerðar. Tilskipunin er í skoðun hjá EFTA skriftstofunni hvort hún sé EES-tæk.VIII. Kafli - viðurlög, Samráðsvettvangur, nefndarmeðferð og beiting framsals31. gr.Viðurlög. Var í fyrri reglugerð 25. gr. og er nú útlistað mun ítarlegar til hvaða aðgerða aðildarríki skuli taka þegar upp koma brot frá ákvæðum reglugerðarinnar ásamt því hvernig eigi að meta viðeigandi aðgerðir.5. mgr. Fjallar um viðurlög m.t.t. til kvótakerfis og F-gasa vefgáttar ESB sem á ekki við um Ísland.32. gr.Greinin fjallar um heimildir COM til að setja framseldar gerðir. Tilteknar heimildir sem settar eru fram í greininni eiga við um ákvæði sem ekki eru metin EES-tæk en væntanlega hægt að tækla það við greiningu á hverri framseldri gerð í kjölfar innleiðingar á móðurgerðinni.33. gr.Mælir fyrir um að stofnaður skuli samráðsvettvangur til að veita ráðleggingar og sérfræðiþekkingu þegar kemur að innleiðingu ákvæða gerðarinnar. Sérstaklega er tilgreint að Lyfjastofnun Evrópu skuli höfð með í ráðum þegar við á.34. gr.Nefndarmeðferð. Engin breyting frá fyrri reglugerð, var áður 24. gr. Ákvæðið vísar til reglugerðar ESB nr. 182/2011 sem ekki er tekin upp í EES-samninginn.IX. kafli – Umbreytingaráðstafanir og lokaákvæði35. gr.Endurskoðun. Ákvæði sem felur framkvæmdastjórninni tiltekin verkefni, þ.á.m. setningu framseldra reglugerða og samantekt gagnaog birtingu skýrsla um áhrif reglugerðarinnar. Fyrir sum þessara verkefna eru settir sérstakir tímafrestir..36. gr.Breyting á tilskipun (ESB) 2019/1937. Tilskipunin er ekki hluti af EES-samningnum.37. gr.Niðurfelling og umbreytingaráðstafanir. Niðurfelling eldri reglugerðar (ESB) nr. 517/2104 um F-gös en jafnframt framlenging á 3 ákvæðum til að viðhalda samfellu.38. gr.Gildistaka og hvenær reglugerðin kemur til framkvæmda. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Efnalög nr. 61/2013.

Lagaheimild fyrir flestum ákvæðum gerðarinnar sem metin eru sem EES-tæk er að finna í efnalögum nr. 61/2013. Það er þó ljóst að lagaheimildir skortir fyrir tilteknum ákvæðum varðandi kröfu um þjálfun starfsfólks - núverandi heimild nær aðeins til að setja kröfur um þjálfun og vottun varðandi notkun flúoraðra gróðurhúsalofttegunda en ákvæði þessarar gerðar taka einnig til vottunar vegna notkunar staðgönguefna. Að sama skapi kann að reynast nauðsynlegt að útvíkka heimildir til stjórnvaldssekta í sömu lögum.

Það er því ljóst að gera þarf breytingar á efnalögum nr. 61/2013 áður en hægt er að innleiða gerðina í íslenskan rétt.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Iðan fræðslusetur ehf, Tækniskóliinn, Kælitæknifélag Íslands, Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði
Niðurstöður samráðs Samráði er ekki lokið

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R0573
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/573, 20.02.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 150
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 501
52025PC0501
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2016/1036, (EU) 2016/1037, (EU) 2017/1129, (EU) 2023/1542 and (EU) 2024/573 as regards the extension of certain mitigating measures available for small and medium sized enterprises to small mid-cap enterprises and further simplification measures Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 501
52025PC0501
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2016/1036, (EU) 2016/1037, (EU) 2017/1129, (EU) 2023/1542 and (EU) 2024/573 as regards the extension of certain mitigating measures available for small and medium sized enterprises to small mid-cap enterprises and further simplification measures Tillaga sem gæti verið EES-tæk
32026R0286 based on, derogates Commission Implementing Regulation (EU) 2026/286 of 10 February 2026 authorising an exemption pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, with regard to the use of fluorinated greenhouse gases in certain chillers used for semiconductor manufacturing Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32025R2155 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2155 of 23 October 2025 establishing, pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, the detailed arrangements relating to the declaration of conformity and the verification by the independent auditor and repealing Commission Implementing Regulation (EU) 2016/879 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32025R1907 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1907 of 19 September 2025 establishing, pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, the format for notification of the training and certification programmes of the Member States and repealing Commission Implementing Regulation (EU) 2015/2065 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32025R1893 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1893 of 17 September 2025 establishing, pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, minimum requirements for training attestations of natural persons and the conditions for the mutual recognition of such training attestations as regards certain mobile equipment containing fluorinated greenhouse gases or their alternatives and repealing Commission Regulation (EC) No 307/2008 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2022) 150
52022PC0150
adopts Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 on fluorinated greenhouse gases, amending Directive (EU) 2019/1937 and repealing Regulation (EU) No 517/2014 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32019L1937 amends Directive (EU) 2019/1937 of the European Parliament and of the Council of 23 October 2019 on the protection of persons who report breaches of Union law Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32014R0517 repeals Regulation (EU) No 517/2014 of the European Parliament and of the Council of 16 April 2014 on fluorinated greenhouse gases and repealing Regulation (EC) No 842/2006 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E192 based on

Samantekt EUR-Lex