32026R1975

Commission Implementing Regulation (EU) 2026/1975 of 8 September 2026 authorising an exemption pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, with regards to the use of fluorinated greenhouse gases in certain equipment used for drying compressed air


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er veitt tímabundin undanþága frá banni reglugerðar (ESB) 2024/573 við markaðssetningu tiltekins kæli- og loftræstibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt (GWP) 150 eða hærri. Undanþágan tekur til tiltekins búnaðar sem notaður er til þurrkunar þrýstilofts (CARD-búnaðar), að uppfylltum skilyrðum um merkingar. Undanþágan gildir frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030. 

Nánari efnisumfjöllun

Í b-lið 7. liðar í IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 er lagt bann við markaðssetningu kyrrstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt (GWP) upp á 150 eða meira, og hefur kæligetu allt að 12 kW, frá og með 1. janúar 2027, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Frá sama degi er, samkvæmt b- og d-liðum 8. liðar í IV. viðauka við reglugerðina, bannað að setja á markað sjálfstæðan loftræstibúnað með tilgreindri afkastagetu samkvæmt þeim liðum, sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með GWP 150 eða hærra, eða þar sem virkni byggist á slíkum lofttegundum, nema þess sé krafist til að uppfylla öryggiskröfur á notkunarstað. Í samræmi við 5. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 lagði þýska lögbæra yfirvaldið fram beiðni til framkvæmdastjórnarinnar um leyfi fyrir undanþágu sem heimilar markaðssetningu á tilteknum búnað sem notaður er til þurrkunar þrýstilofts (Compressed Air Refrigerated Dryers - CARD-búnað). Framkvæmdastjórnin taldi að skilyrði 5. mgr. 11. gr. væru uppfyllt og heimilar því undanþágu frá framangreindum bönnum fyrir CARD-búnað með kæligetu allt að og með 12 kW og sjálfstæðan loftræstibúnað með afkastagetu allt að og með 50 kW, að því tilskildu að búnaðurinn sé merktur í samræmi við 2. mgr. 12. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573. Reglugerðin var samþykkt 8. september 2026. Hún kemur til framkvæmda 1. janúar 2027 og gildir til 31. desember 2030. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð (ESB) 2024/573 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki verið innleidd hér á landi. Þessi reglugerð leyfir undanþágur frá ákvæðum í reglugerð (ESB) 2024/573 og því ekki hægt að innleiða hér á landi fyrr en grunnreglugerðin hefur verið innleidd.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1975
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1975, 9.9.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32024R0573 based on, derogates Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum