32024R1061

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/1061 of 10 April 2024 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council as regards the secure exchange of data of the certificate of conformity in electronic format and read-only access to the certificate of conformity, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2021/133


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1061 frá 10. apríl 2024 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 að því er varðar örugg skipti á gögnum samræmisvottorðsins á rafrænu formi og lesaðgang að samræmisvottorðinu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/133
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 013/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að setja fram frekari skilyrði um upplýsingaskipti sem kveðið er á um í reglugerð 2021/133. Kveðið er nánar á um þær kröfur sem gerðar eru til rafræna búnaðarins og kerfanna sem EUCARIS hýsir, en um þau fara upplýsingar um ökutæki á milli framleiðenda og yfirvalda hvers lands. Auk þess er kveðið á um á hvaða formi má senda upplýsingar úr samræmisvottorðum. Ekki kostnaður hér á landi vegna þessarar tilteknu gerðar. Eingöngu óbein áhrif.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Í reglugerð (ESB) 2021/133 er kveðið á um hvernig rafræn samræmisvottorð eiga að vera gerð, þar með talið skilyrði um á hvaða formi upplýsingar sem þar koma fram eiga að vera. Auk þess er kveðið á um að EUCARIS-kerfið skuli vera það kerfi sem nota á til skipta á upplýsingum um það sem fram kemur í vottorðunum.Efnisútdráttur: Með þeirri gerð sem hér er til umræðu eru sett fram frekari skilyrði um upplýsingaskiptin. Kveðið er nánar á um þær kröfur sem gerðar eru til rafræna búnaðarins og kerfanna sem EUCARIS hýsir, en um þau fara upplýsingar um ökutæki á milli framleiðenda og yfirvalda hver lands, e. national access points.Gert er ráð fyrir að hvert ökutæki verði auðkennt með einkvæðum einkennistáknum ”vehicle- specific unique identifier” í því skyni að einfalda aðgang að upplýsingunum um ökutækið á rafrænu formi.Jafnframt er gert ráð fyrir að viðurkenningarstjórnvöld, skráningarstjórnvöld og markaðseftirlitsstjórnvöld hafi aðgang að upplýsingunum í gegnum EUCARIS-kerfið. Þau þurfa því að útfæra tengingar sínar og kerfi í þeim tilgangi.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Í áhrifamati sem SGS vann á gerð (ESB) 2021/133 kom fram að innleiðing þeirrar gerðar kallaði á að SGS tengdist EUCARIS-kerfinu svo önnur ríki gætu flett upp íslenskum upplýsingum. Í dag hefur Samgöngustofa les-aðgang að EUCARIS-kerfinu. Önnur ríki á EES-svæðinu geta hins vegar ekki flett upp í ökutækjaskrá Samgöngustofu.Til þess að mögulegt sé að Samgöngustofa tengist EUCARIS-kerfinu þarf að skila upplýsingum á fyrir fram ákveðnu skráarsniði, eða XML sniði.Þá kom fram í því áhrifamati að umtalsverð hugbúnaðarvinna hjá Samgöngustofu yrði nauðsynleg vegna tengingar við EUCARIS. Fram kom að verkefnið gæti tekið allt að 2-3 mánuði í vinnu og að heildarkostnaður gæti legið á bilinu 10.000.000 kr.-15.000.000 kr.Sú gerð sem hér er til umfjöllunar hefur ekki í för með sér frekari kostnað en þann sem að framan greinir. Einkum er verið að útfæra EUCARIS-kerfið auk þess sem settar eru kröfur á framleiðendur ökutækja.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaðurSkörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur bifreiða.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1061
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1061, 11.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D093608/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 26
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/735, 8.5.2025

Breytir (Modifies)

32021R0133 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2021/133 of 4 February 2021 implementing Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council as regards the basic format, structure and the means of exchange of the data of the certificate of conformity in electronic format Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R0858 based on Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on the approval and market surveillance of motor vehicles and their trailers, and of systems, components and separate technical units intended for such vehicles, amending Regulations (EC) No 715/2007 and (EC) No 595/2009 and repealing Directive 2007/46/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi