Útdráttur
Markmiðið er að tryggja að í gildi séu reglur um viðhald og öryggiseftirlit ómannaðra loftfara. Megináherslan er á að tryggja að kerfunum sé haldið í öruggu rekstrarástandi. Settar eru fram tæknikröfur og stjórnsýslureglur í reglugerðinni til að tryggja lofthæfi ómannaðra loftfara. Í henni eru einnig tilgreindar kröfur um vottorð fyrir lofthæfi þessara kerfa. Kröfur eru gerðar til stöðugs eftirlits og viðhalds loftfaranna til þess að tryggja að þau uppfylli staðla um lofthæfi. Þetta felur í sér skipulagt viðhald sem og óskipulagt. Þeir sem taka þátt í viðhaldi ómannaðra loftfara verða að uppfylla ákveðna staðla og fá vottun frá hæfum stjórnvöldum. Starfsfólk sem framkvæmir viðhaldsverkefni verður einnig að vera vottað og uppfylla ákveðin hæfisskilyrði. Útlistuð er ábyrgð rekstraraðila á að viðhalda rekstraröryggi. Reglugerðin inniheldur ákvæði um flugundirbúningsáætlanir, viðhaldsskoðanir og meðhöndlun bilana eða skemmda. Kostnaður innan reglubundinnar starfsemi. Áhrif eðlileg.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið: Markmiðið með gerðinni er að tryggja að í gildi séu skýrar og ítarlegar reglur um viðhald og öryggiseftirlit ómannaðra loftfara (UAS) innan Evrópusambandsins. Megináherslan er á að tryggja að kerfunum sé haldið í öruggu rekstrarástandi, uppfylli viðeigandi öryggiskröfur og stuðla að hámarksöryggi í rekstri þeirra.Aðdragandi: Áframhaldandi þróun og notkun á ómönnuðum loftförum kallaði á ítarlegri og sérhæfðari reglur til að tryggja öryggi í rekstri þeirra. Reglugerðin er viðbót við fyrri reglugerðir um flugöryggi. Markmiðið er að mæta sérstökum þörfum og áskorunum sem fylgja þessari tegund loftfara. Þessi nýja reglugerð var mótuð í ljósi reynslu sem myndast hefur sem og þróunar sem orðið hefur og er í samræmi við alþjóðlegar öryggiskröfur Tryggja á samræmi og samkeppnishæfni á alþjóðlegum vettvangi.Efnisútdráttur: Með gerðinni eru settar fram tæknikröfur og stjórnsýslureglur til að tryggja lofthæfi ómannaðra loftfara. Í henni eru einnig tilgreindar kröfur um vottorð fyrir lofthæfi þessara kerfa.Kröfur eru gerðar til stöðugs eftirlits og viðhalds loftfaranna til þess að tryggja að þau uppfylli staðla um lofthæfi. Þetta felur í sér skipulagt viðhald sem og óskipulagt.Þeir sem taka þátt í viðhaldi ómannaðra loftfara verða að uppfylla ákveðna staðla og fá vottun frá hæfum stjórnvöldum. Starfsfólk sem framkvæmir viðhaldsverkefni verður einnig að vera vottað og uppfylla ákveðin hæfisskilyrði.Útlistuð er ábyrgð rekstraraðila á að viðhalda rekstraröryggi. Reglugerðin inniheldur ákvæði um flugundirbúningsáætlanir, viðhaldsskoðanir og meðhöndlun bilana eða skemmda.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 72. gr., 83. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og ALMENNINGS, ef einhver er: Kostnaður Samgöngustofu (SGS) liggur í þjálfun starfsfólks, útfærslu verklagsreglna, hönnun eyðublaða, þ.e. umsóknareyðublaða, gátlista, skírteina o.s.frv. og breytingu á hugbúnaði fyrir útgáfu skírteina. Erfitt er að meta kostnaðinn eins og er en hann liggur að mestu í vinnuframlagi. Búast má við að þjálfun eftirlitsmanna þurfi að fara fram erlendis.Kostnaður atvinnulífs liggur aðeins hjá þeim sem hafa hug á að reka UAS loftför og þurfa þess vegna að sækja um leyfi og vottun (heimild) til SGS fyrir CAO-leyfi fyrir UAS.Um er að ræða ný leyfi sem og óvíst hvort einhver fyrirtæki hér á landi muni sækja um leyfi til þess að veita þessa þjónustu, ekki er gerð krafa um að viðhaldsfyrirtæki sinni þessuSkörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Rekstaraðilar UAS loftfara og mögulega viðhaldsfyrirtæki sem koma til með að sækja um leyfi.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, hönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei