Reglugerð um flutning úrgangs - 32024R1157

Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 on shipments of waste, amending Regulations (EU) No 1257/2013 and (EU) 2020/1056 and repealing Regulation (EC) No 1013/2006


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin er uppfærsla á fyrri reglugerð nr. 1013/2006 um flutning úrgangs á milli landa.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið reglugerðarinnar um flutning úrgangs á milli landa er að auðvelda flutning á efni sem nota á í endurnotkun eða til endurvinnslu innan Evrópusambandsins, að ríki Evrópu flytji ekki úrgangsáskoranir sínar til þriðju ríkja og að úrgangur sé ekki fluttur án leyfis. Þótt regluverkið hafi almennt reynst vel til að ná markmiðum sínum hafa nokkrir ágallar verið á því hingað til sem lagfærðir eru í þessari reglugerð. Reglugerðin er sett sem viðbót við rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgangsmál (e. waste framework directive).Reglugerðin innleiðir sömuleiðis nýlegar viðbætur við Basel-samninginn og nýlega ákvörðun OECD um flutning hættulegs úrgangs.Efnislega byggir reglugerðin að nánast öllu leyti á eldri reglugerð nr. 1013/2006. Breytingar felast meðal annars í skilgreiningu á ólöglegum flutningum úrgangs, þar sem minniháttar mistök við skjalagerð munu ekki sjálfkrafa leiða til þess að verkferill um ólöglegan flutning verði virkjaður. Sömuleiðis er breyting á leyfisveitingu fyrir flutningi úr sér genginna skipa þannig að skýrt sé að þau falli undir ákvæði reglugerðarinnar.Að meginreglu eiga ríki ekki að flytja út úrgang til förgunar í öðru ríki nema við ákveðni skilyrði sem fjallað er um í grein 11.Sérstök umfjöllun er um inn- og útflutning á úrgangi til- og frá þriðju ríkjum. Kveðið er á um skilyrði sem uppfylla þarf við slíkan flutning.Hingað til hafa refsiákvæði fyrir ólöglegan flutning úrgangs verið margvísleg innan Evrópu. Samkvæmt reglugerðinni eiga aðildarríki nú að sjá til þess að viðurlög vegna ólöglegs flutnings úrgangs taki mið af ákveðnum sjónarmiðum og að hann sé ekki tvírefsiverður (ne bis in idem).Reglugerðinni er ætlað að stuðla að bættri auðlindanýtingu, lágmarka áhrif neyslu, auðvelda umskipti yfir í hringrásarhagkerfi og stuðla að því að kolefnishlutleysi náist árið 2050. Með því að halda auðlindum lengur inni í hagkerfi Evrópusambandsins má stuðla að sjálfbærni og gera Evrópusambandið í auknum mæli sjálfu sér nægt um mikilvæg hráefni.Helstu snertifletir reglugerðarinnar við annað regluverk ESB felast í tengslum við rammatilskipun ESB um úrgang (waste framework directive) og tengdar tilskipanir um ákveðna úrgangsstrauma (ökutæki, rafhlöður og rafgeyma, pakkningar, raf- og rafeindatæki o.fl.). Einnig er nokkur skörun við tilskipun um umhverfisglæpi (Environmental Crime Directive).Reglugerðin spilar hlutverk í ýmsum stefnumálum ESB, t.d. Græna sáttmálanum (European Green Deal), Iðnaðaráætlun (Industrial Strategy) og aðgerðaáæltun um þýðingarmikil hráefni (Critical Raw Materials Action Plan). Reglugerðin er einnig innleiðing Sambandsins á Basel-samningnum en gengur í ýmsum atriðum lengra en samningurinn kveður á um.Ex-post greining á eldri reglugerðinni nr. 1013/2006 sýnir að hún hefur stuðlað að öruggari flutningum úrgangs bæði fyrir heilsu fólks og umhverfis. Hins vegar hefur verið breytileiki í innleiðingu hennar sem hefur valdið hindrunum í flæði endurvinnsluefnis þar sem það er nauðsynlegt til að styðja innleiðingu hringrásarhagkerfisins, einkum því regluverkið tefur flutning úrgangs. Ekki hafa verið nægjanlega skýrar kröfur til staðar varðandi hvernig meðhöndla þurfi úrgang í viðtökulandi og hefur þetta valdið umhverfisvandamálum. Sömuleiðis valda ólöglegir flutningar úrgangs hættu fyrir umhverfi, heilsu manna og fleiri vandamálum.Í hagaðilasamráði kom fram að fyrirtæki styðja nútímavæðinguna sem reglugerðin felur í sér og stöðlun vinnubragða en félagasamtök gagnrýndu að ekki væri nægilega hugað að nálægðarreglunni, þ.e. að helst eigi að meðhöndla úrgang sem næst upprunanum. Hagaðilar voru almennt sammála um að taka þyrfti á útflutningi úrgangs til þriðju ríkja þar sem tvísýnt væri um úrvinnslu hans en ágreiningur kom fram um hvernig leysi ætti málið. Einnig var nokkur ágreiningur um það hvort innviðir ESB væru í stakk búnir til að taka við öllum úrgangi sambandsins. Hagaðilar voru sammála um að styrkja þyrfti ákvæði um ólöglegan flutning úrgangs.Búist er við umtalsverðum jákvæðum umhverfisáhrifum af reglugerðinni vegna aukinnar endurvinnslu við skilyrði þar sem gæðakröfur eru háar, aukins framboðs endurvinnsluefnis og endurunnins efnis.Með því að gera leyfisveitingar fyrir flutning úrgangs stafrænar lækkar kostnaður, afgreiðslutími styttist, auðveldara er að samræma leyfisveitingar og eftirlit auk þess sem mun betri yfirsýn gefst yfir virk leyfi sem leiðir af sér aukna skilvirkni við eftirlit með ólöglegum flutningi úrgangs.Í reglugerðinni felst samræming á þáttum sem nú eru að miklu leyti matskenndir eða breytilegir milli aðildarríkja. Meðal þessara atriða eru útreikningur á bankaábyrgðum vegna flutnings úrgangs, mengunarviðmið hættulega og hættulítils úrgangs, munur á vörum og úrgangi, mat á því hvort þriðju ríki séu í stakk búin að taka við úrgangi og umbótavinna.Reglugerðin skiptist í 8 hluta (e. titles).Hluti I fjallar um gildissvið reglugerðarinnar og skilgreiningar.Hluti II er langur og fjallar um stjórnsýslu og flest praktísk atriði sem tengjast flutningi úrgangs milli landa.Hluti III fjallar um skyldu aðildarríkja til að tryggja rétta innleiðingu reglugerðarinnar.Hluti IV fjallar um útflutning úrgangs til þriðju ríkja.Hluti V fjallar um innflutning úrgangs frá þriðju ríkjum.Hluti VI fjallar um umflutning (e. transit) úrgangs í gegnum ríki ESB.Hluti VII skýrir frá eftirfylgni, eftirliti og þvingunarúrræðum í regluverkinu.Hluti VIII kveður á um skýrslugjöf, endurskoðun og gildistöku reglugerðarinnar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei
Sent til Alþingis
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa
Ath að í reglugerð (EC) 1069/2009 (innleidd með reglugerð nr. 674/2017) er nú þegar kveðið á flutning aukaaufurða dýra sem orðin eru að úrgangi. Þessar reglugerðir þurfa að tala saman.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Útflytjendur úrgangs. Úrvinnslusjóður., Tollurinn

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður og ábati eru birtur fyrir Ísland út frá tölum sem reiknaðar voru fyrir allt Evrópusambandið. Tölurnar eru því ekki nákvæmar en þeim er ætlað að gefa hugmynd um kostnað og ábata, sem þó er líklega vanmetinn vegna legu landsins miðað við önnur ríki Evrópu.
Stjórnvöld munu þurfa að leggja út kostnað vegna innleiðingar reglugerðarinnar en töluverðir fjármunir sparast bæði til skamms- og langs tíma í stjórnsýslu og meðal úrgangsþjónustuaðila. Almenningur verður fyrir takmörkuðum, en þó jákvæðum, fjárhagslegum áhrifum.
Stjórnvöld
Sparnaður, ótilgreindur vegna minni umsýslukostnaðar.
Sparnaður, ótilgreindur vegna minni urðunar og aukinnar endurnýtingar.
Kostnaður, ótilgreindur vegna innleiðingar samevrópsks rafræns tilkynningarkerfis en sá kostnaður verður um 50.000 EUR lægri en sambærileg kerfi vegna þess að kerfið er samevrópskt.
Úrgangsþjónustuaðilar
Sparnaður verði vegna aukinnar skilvirkni. Kostnaður við hvert leyfi verði aðeins um tveir þriðju af því sem nú er við hvert leyfi til útflutnings.
Sparnaður 1.350 EUR á ári vegna aukinna tekna og lægri útgjalda.
Sparnaður 380 EUR á ári vegna minni umsýslukostnaðar.
Sparnaður 130 EUR á ári vegna færri tafa.

Almenningur
Sparnaður 34.715.000-89.660.000 ISK á ári vegna skilvirkni og minni losunar gróðurhúsalofttegunda.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ísland hefur ekki rafrænt kerfi sem heldur utan um tilkynningar fyrir flutning úrgangs. Sérstakur ábati er fyrir Ísland að hafa aðgang að slíku kerfi.
Ísland flytur stóran hluta síns úrgangs til Evrópu. Eitt af markmiðum reglugerðarinnar eru að ekki þurfi að flytja út úrgang til förgunar. Ísland er ekki með innviði til að meðhöndla allan þann úrgang sem þarf að farga og treystir því að einhverju leyti á önnur ríki. Ólíklegt er að gerð verði krafa á Ísland að búa yfir innviðum til að meðhöndla allan sinn úrgang en samt sem áður geta komið upp áskoranir þarna, m.a. ef förgun úrgangs frá Íslandi samræmist ekki úrgangsstefnu móttökuríkisins eða hann fær ekki forgang við meðhöndlun.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1157
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1157, 30.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 709
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

32025R1290 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1290 of 2 July 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council as regards the requirements necessary for the interoperability between the central system for the electronic submission and exchange of information and documents related to shipments of waste and other systems or software, as well as other technical and organisational requirements necessary for the practical implementation of such electronic submission and exchange of information and documents Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32024R3230 amends, based on Commission Delegated Regulation (EU) 2024/3230 of 18 October 2024 amending Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council as regards changes on shipments of electrical and electronic waste agreed under the Basel Convention Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32024R2571 based on, completes Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2571 of 19 July 2024 supplementing Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council by establishing the information to be provided in the certificate confirming the completion of a subsequent interim or non-interim recovery operation or a subsequent interim or non-interim disposal operation Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2021) 709
52021PC0709
adopts Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 on shipments of waste, amending Regulations (EU) No 1257/2013 and (EU) 2020/1056 and repealing Regulation (EC) No 1013/2006 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32022R0520 implicitly repeals Commission Regulation (EU) 2022/520 of 31 March 2022 amending Regulation (EC) No 1418/2007 concerning the export for recovery of certain waste listed in Annex III or IIIA to Regulation (EC) No 1013/2006 of the European Parliament and of the Council to certain countries to which the OECD Decision on the control of transboundary movements of wastes does not apply Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32021R1840 implicitly repeals Commission Regulation (EU) 2021/1840 of 20 October 2021 amending Regulation (EC) No 1418/2007 concerning the export for recovery of certain waste listed in Annex III or IIIA to Regulation (EC) No 1013/2006 of the European Parliament and of the Council to certain countries to which the OECD Decision on the control of transboundary movements of wastes does not apply Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R2174 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2020/2174 of 19 October 2020 amending Annexes IC, III, IIIA, IV, V, VII and VIII to Regulation (EC) No 1013/2006 of the European Parliament and of the Council on shipments of waste Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R1056 amends Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 on electronic freight transport information Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Samantekt EUR-Lex

Flokkun (Classifications)