Reglugerð um rafrænar upplýsingar um vöruflutninga (eFTI) - 32020R1056

Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 on electronic freight transport information


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.01 Flutningar á landi

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin leggur skyldur á eftirlitstofnanir um að taka á móti rafrænum upplýsingum frá flutningsaðilum um vöruflutninga innan EES-svæðisins. Ef reglur kveða á um að eftirlitstofnanir þurfi að fullgilda/staðfesta ákveðnar upplýsingar, t.d. með að stimpla eða útbúa vottorð, þá þarf tiltekin stofnun að veita slíka fullgildingu rafrænt. Flutningsaðilar hafa val á milli þess að skila inn upplýsingum rafrænt eða á pappírsformi. Aðilar sem velja að skila inn rafrænt, þurfa að uppfylla ákveðnar formkröfur og öll gangvinnsla þarf að fara fram hjá viðurkenndum eFTI vettvangi (e. eFTI platform), og ef við á, af viðurkenndri eFTI-þjónustu (e. eFTI service).

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð um rafrænar upplýsingar um vöruflutninga (eFTI)Vöruflutningum og flutningum á úrgangi fylgir mikið magn af upplýsingum á pappírsformi sem þarf svo að fara á milli fyrirtækja og senda til lögbærra eftirlitstofnanna (e. competent authorities). Notkun pappírs felur í sér verulega stjórnsýslubyrði og kostnað fyrir flutningsaðila og aðrar tengdar atvinnugreinar og neikvæð áhrif á umhverfið. Markmið reglugerðar um rafrænar upplýsingar um vöruflutninga (eFTI) er að hvetja flutningsaðila til að skila inn nauðsynlegum gögnum rafrænt. Með þessu er hægt að draga úr umsýslukostnaði, auka skilvirkni og sjálfbærni flutninga og bæta aðfarargetu eftirlitsstofnana. Reglugerðin leggur skyldur á eftirlitstofnanir um að taka á móti rafrænum upplýsingum frá flutningsaðilum um vöruflutninga innan EES-svæðisins. Ef reglur kveða á um að eftirlitstofnanir þurfi að fullgilda/staðfesta ákveðnar upplýsingar, t.d. með að stimpla eða útbúa vottorð,  þá þarf tiltekin stofnun að veita slíka fullgildingu/vottun rafrænt (5. gr.). Ítarlegt yfirlit um hvaða upplýsingar falla undir gildissvið reglugerðarinnar (sbr. 1. mgr. 2. gr.) mun birtast í framseldum gerðum framkvæmdastjórnarinnar fyrir 21. febrúar 2023. Flutningsaðilar hafa val á milli þess að skila inn upplýsingum rafrænt eða á pappírsformi. Aðilar sem velja að skila inn rafrænt, þurfa að uppfylla ákveðnar formkröfur og öll gangvinnsla þarf að fara fram hjá viðurkenndum eFTI vettvangi (e. eFTI platform), og ef við á, af viðurkenndri eFTI-þjónustu (e. eFTI service) (4. gr.). Reglugerðin setur reglur sem gilda um eFTI vettvanga og eFTI þjónustur (9.-10. gr.), sem notuð eru til að miðla upplýsingum á milli flutningsaðila og eftirlitsstofnana. Ítarlegri reglur um málsmeðferð, tæknilegar froskriftir, um aðgang eftirlitsstofnanna að eFTI vettvöngum, verklagsreglur um vinnslu upplýsinga og samskipti milli eftirlitsstofnanna og flutningsaðila, verða  birtar í framkvæmda gerðum fyrir 21. febrúar 2023 (8. gr.). Framkvæmdastjórnin mun einnig birtar framkvæmda gerðir sem útlista frekar kröfur sem eFTI vettvangar og eFTI þjónustur verða að uppfylla, fyrir 21. ágúst 2023.Til að tryggja að eFTI vettvangar og eFTI þjónustur uppfylli þær kröfur sem að reglugerðin setur, skal setja upp samræmismatsstofu (e. conformity assessment body) og vottunarkerfi í samræmi við reglugerð (EB) nr. 765/2008 (11. gr.). Framkvæmdastjórnin hefur umboð til að samþykkja framseldar gerðir um vottun eFTI vettvanga og vottun eFTI þjónustuaðila og um notkun vottunarmerkisins (þ.m.t. reglur um endurnýjun, stöðvun og afturköllun vottunar)(12.-13. gr.).Skilgreiningar:eFTI vettvangur (e. eFTI platform) er lausn sem byggir á upplýsingatækni (t.d. stýrikerfi, rekstrarumhverfi eða gagnagrunni) sem ætlað er að nota til vinnslu eFTI.eFTI þjónusta (e. eFTI service) er þjónusta sem samanstendur af eFTI vinnslu með eFTI vettvangi (einum sér eða með öðrum upplýsingatæknilausnum).

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1056
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 249, 31.7.2020, p. 33
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2018) 279
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2023) 702
52023PC0702
Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council amending Council Directive 92/106/EEC as regards a support framework for intermodal transport of goods and Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and the Council as regards calculation of external costs savings and generation of aggregated data No timeline
COM(2023) 445
52023PC0445
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Council Directive 96/53/EC laying down for certain road vehicles circulating within the Community the maximum authorised dimensions in national and international traffic and the maximum authorised weights in international traffic Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2021) 709
52021PC0709
Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 on shipments of waste, amending Regulations (EU) No 1257/2013 and (EU) 2020/1056 and repealing Regulation (EC) No 1013/2006 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 032
52025DC0032
based on
COM(2023) 702
52023PC0702
proposes to amend Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council amending Council Directive 92/106/EEC as regards a support framework for intermodal transport of goods and Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and the Council as regards calculation of external costs savings and generation of aggregated data No timeline
COM(2023) 445
52023PC0445
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Council Directive 96/53/EC laying down for certain road vehicles circulating within the Community the maximum authorised dimensions in national and international traffic and the maximum authorised weights in international traffic Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2021) 709
52021PC0709
proposes to amend Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 on shipments of waste, amending Regulations (EU) No 1257/2013 and (EU) 2020/1056 and repealing Regulation (EC) No 1013/2006 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32025R2243 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2243 of 6 November 2025 laying down detailed specifications regarding the functional requirements for eFTI platforms in accordance with Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and of the Council Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2018) 279
52018PC0279
adopts Regulation (EU) 2020/1056 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 on electronic freight transport information Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
12016E100 based on

Samantekt EUR-Lex