Reglugerð um gagnaskil umhverfisupplýsinga frá starfsstöðvum í iðnaði og stofnun gagnagáttar um losun í iðnaði. - 32024R1244

Regulation (EU) 2024/1244 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 on reporting of environmental data from industrial installations, establishing an Industrial Emissions Portal and repealing Regulation (EC) No 166/2006


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ný reglugerð (Industrial Emissions Portal Regulation (IEPR)) sem hefur að geyma reglur um söfnun og skil á gögnum sem innihalda umhverfisupplýsingar starfsstöðva í iðnaði og setur á stofn gagnagátt, sem er nýr rafrænn gagnagrunnur sem veitir almenningi aðgang að þessum gögnum. Þessi gagnagrunnur mun koma í staðinn fyrir Evrópuskrá yfir losun og flutning mengnarefna (e. E-PRTR) en ólíkt E-PRTR mun gagnagáttin einnig taka mið af þeim skilyrðum um gagnaskil sem finna má í annarri umhverfislöggjöf, ásamt því að innihalda viðbótarupplýsingar.
Markmiðið með reglugerðinni er að auðvelda aðgengi almennings að umhverfisupplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku í umhverfismálum og getu til að bæta mat áhrifa löggjafar um losun iðnaðar á umhverfið.
Með gildistöku reglugerðarinnar, verða reglur (EB) 166/2006 sem innleiddi E-PRTR, felld niður.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt Með þessari reglugerð um gagnaskil umhverfisupplýsinga frá starfsstöðvum í iðnaði og stofnun gagnagáttar um losun í iðnaði (e. Industrial Emissions Portal, hér eftir er vísað til reglugerðarinnar sem „reglugerðin“ og gagnagáttarinnar sem „gagnagáttin“), er bókun Efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu um skrár um losun og flutning mengunarefna (e. UNECE Protocol on Pollutant Release and Transfer Registers, hér eftir bókunin) innleidd í löggjöf ESB. Reglugerðin hefur að geyma reglur um söfnun og skil á gögnum sem innihalda umhverfisupplýsingar starfsstöðva í iðnaði og setur á stofn gagnagátt, sem er nýr rafrænn gagnagrunnur sem veitir almenningi aðgang að þessum gögnum, sbr. 1. gr. Gagnagrunnurinn mun koma í staðinn fyrir Evrópuskrá yfir losun og flutning mengunarefna (e. European Pollutant Release and Transfer Register, E-PRTR), en ólíkt E-PRTR mun gagnagáttin einnig taka mið af þeim skilyrðum um gagnaskil sem finna má í annarri umhverfislöggjöf, ásamt því að innihalda viðbótarupplýsingar.Markmiðið með reglugerðinni er að auðvelda aðgengi almennings að umhverfisupplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku í umhverfismálum og getu til að bæta mat áhrifa löggjafar um losun iðnaðar á umhverfið.Með gildistöku reglugerðarinnar, verður reglugerð (EB) 166/2006 sem innleiddi E-PRTR felld niður. Gildissvið StarfsstöðvarÞær starfsstöðvar sem falla undir reglugerðina eru staðbundnar starfsstöðvar sem stunda eina eða fleiri af þeirri starfsemi sem tilgreind er í viðauka I við reglugerðina, og einnig aðra beintengda starfsemi sem hefur tæknilega tengingu við þá starfsemi starfsstöðvarinnar sem fer fram á staðnum og getur haft áhrif á losun og mengun efna, sbr. 1. tölul. 2. gr.Gögn í gagnagáttinniGáttin skal innihalda eftirfarandi gögn, sbr. a til f lið 1. mgr. 4. gr. (nánar er fjallað um gögnin í 6. gr. reglugerðarinnar):a)      um losun mengandi efna;b)     um flutning á úrgangi utan starfsstöðvar og mengunarefni í úrgangsvatni (e. waste water);c)      um rekstur sem fellur undir Tilskipun 2010/75/EU (IED)d)     um notkun vatnsauðlinda, orku og hráefna;e)      um upplýsingar sem skipta máli fyrir heildarsamhengi gagnanna (e. contextual information);f)        um losun mengunarefna frá dreifðum uppsprettum.Þá skal gagnagáttin tengjast, sbr. 2. mgr. 4. gr.:a)      landskrám um losun og flutning mengunar (e. national pollutant release and transfer registers) sem aðildarríkin hafa komið á fót í samræmi við bókunina;b)     öðrum opinberum skrám, gagnagrunnum eða vefsíðum sem eru til staðar hjá aðildarríkjunum eða hjá ESB og veita aðgang að gögnum sem löggjöf ESB um loftslagsbreytingar, loft, vatn, landvernd, og um meðhöndlun úrgangs krefst. Hönnun og uppbygging gáttarinnarGagnagáttin mun innihalda upplýsingar á bæði samsettu (e. aggregated) og ósamsettu (e. non-aggregated) formi og á því að innihalda upplýsingar um starfsstöðina sjálfa (þ.á m. um móður­félagið ef það á við og landfræðilega staðsetningu þess), um starfsemina, upplýsingar um mengunarefni, úrgang og auðlindanotkun og um dreifðar uppsprettur efna, sbr. a til j liður 1. mgr. 5. gr.Gagnagáttin er hönnuð með það í huga að auðvelda almenningi aðgengi að þessum gögnum og tryggja aðgengi þeirra áfram. Hönnunin tekur einnig mið af mögulegri stækkun gagnagáttarinnar og mun gagnagáttin geyma gögnin í a.m.k. 10 ár, sbr. 2. mgr. 5. gr. Gagnaskil rekstaraðila og aðildaríkjannaGagnaskil rekstaraðila til lögbærra yfirvaldaÍ 6. gr. reglugerðarinnar er gerð grein fyrir þeim gögnum sem rekstaraðilum, sem falla undir viðauka I við reglugerðina, ber árlega að tilkynna til lögbærra yfirvalda, sbr. 1. mgr. 6. gr.Á meðal þessara gagna, sem upptalin eru í a til g-lið 1. mgr. 6. gr., eru gögn sem innihalda upplýsingar um losun mengunarefna (sem talin eru upp í viðauka II) út í umhverfið, flutning á úrgangi og úrgangsvatni utan starfsstöðvar, notkun auðlinda (t.d. vatns og hráefna), upplýsingar sem skipta máli fyrir heildarsamhengi gagnanna (t.d. árlegt framleiðslumagn, fjölda starfsmanna og upplýsingar um slys sem hafa leitt til losunar efna) og hvort að starfsstöðin fellur undir aðra tengda ESB löggjöf, svo sem tilskipun 2010/75/ESB um losun í iðnaði.Þegar losun skv. a lið 1. mgr. 6. gr. eða flutningur mengunarefna frá starfsstöð skv. c lið 1. mgr. 6 gr. fer ekki yfir viðmið sem tilgreind eru í viðauka II, eða þegar flutningur úrgangs frá starfstöð fer ekki yfir viðmið skv. b lið 1. mgr. (2000 tonn á ári), þá skal rekstraraðili taka fram við gagnaskilin að losun eða flutningur frá starfstöð séu undir viðmiðunarmörkum.Þá fjallar reglugerðin m.a. um það hvernig gögnunum á að safna, en rekstaraðilar eiga fyrst og fremst að mæla. Ef það á ekki við, má reikna losunina, en ef það er ekki gerlegt, mega rekstraraðilar meta losunina, sbr. 3. mgr. 6. gr. Reglugerðin fjallar einnig um hvernig rekstaraðilar eiga að tilgreina, við gagnaskilin, hvaða aðferðir voru notaðar við söfnun gagnanna, sbr. 4. mgr. 6. gr., hversu oft gögnunum á að safna af rekstraraðila, sbr. 7. mgr. 6. gr., geymslutíma þeirra (5 ár), sbr. 8. mgr. 6. gr. og rétt aðildarríkjanna til að leggja tölulegt mat á losun mengunarefna (sem eru talin upp í viðauka II) þeirra rekstaraðila sem skortir nauðsynleg úrræði til þess að gera það sjálfir, en þetta nær til ræktunar alifugla, svína og nautgripa (starfsemi undir lið tvö í viðauka I) og fyrir fiskeldi (starfsemi undir lið 7 í viðauka I), sbr. 9. mgr. 6. gr.Aðildarríkin skulu setja rekstraraðila frest til að veita lögbærum yfirvöldum gögnin, sbr. 10. mgr. 6. gr. Aðgengi og þátttaka almennings Framkvæmdastjórnin skal tryggja að gögnin í gagnagáttinni séu opinberlega aðgengileg og án endurgjalds innan mánaðar frá gagnaskilum aðildarríkjanna skv. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. 1. mgr. 10. gr. Ef ekki er unnt að tryggja slíkt aðgengi á internetinu skal framkvæmdastjórnin tryggja rafrænan aðgang á opinberum stöðum, sbr. 2. mgr. 10. gr.Framangreint verður þó að taka mið af þeim takmörkunum sem Evrópuréttur kveður á um, t.a.m. verndun viðskiptaleyndarmála rekstraraðila og aðrar trúnaðarupplýsingar, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.Almenningur skal hafa tækifæri, snemma í ferlinu, til að taka þátt í frekari þróun gagnagáttarinnar, sbr. 1. mgr. 12. gr. Þátttakan getur falið í sér að leggja fram athugasemdir, upplýsingar, greiningar og skoðanir innan sanngjarns frests, sbr. 2. mgr. 12. gr. Þá skal framkvæmdastjórnin taka tilhlýðilegt tillit til slíkrar þátttöku og veita almenningi upplýsingar um niðurstöður hennar, 3. mgr. 12. gr.Aðildarríkin og framkvæmdastjórnin skulu einnig stuðla að því að efla vitund almennings um gagnagáttina, sbr. 14. gr. Leiðbeiningar til að styðja við framkvæmd reglugerðarinnarFramkvæmdastjórnin skal, með aðstoð frá Umhverfisstofnun Evrópu, þróa og reglulega uppfæra leiðbeiningar til að styðja við framkvæmd reglugerðarinnar. Leiðbeiningarnar skulu m.a. fjalla um ferlið við gagnaskilin og gæðatryggingu og gæðamat á gögnunum, sbr. a til h-liður 13. gr.  Breytingar á viðauka I og IIFramkvæmdastjórnin hefur heimild til að samþykkja framseldar gerðir til að breyta viðauka I og II við reglugerðina. Hvað varðar breytingar á viðauka I, þá er henni heimilt að bæta við nýrri iðnaðar- eða landbúnaðarstarfsemi sem hefur skaðleg áhrif á, eða getur haft áhrif á, umhverfið eða heilsu manna vegna verulegrar losunar mengandi efna eða auðlindanotkunar, sbr. a-liður 2. mgr. 15. gr. Einnig gæti þurft að bæta við mengandi efnum, eða breyta viðmiðunargildum, vegna breytinga á bókuninni, sbr. b-liður 2. mgr. 15. gr.Á sama hátt er ákvæði um að uppfæra viðauka II með því að bæta við mengunarefnum sem falla undir sérstakt eftirlit samkvæmt efna-, vatns- og loftgæðalöggjöf ESB og vegna hugsanlegrar hættu sem af þeim stafar fyrir umhverfið eða heilsu manna. Einnig er heimild til að bæta við mengandi efnum til að aðlaga reglugerðina að breytingum sem gerðar eru á bókuninni. Jafnframt heimilar þetta ákvæði setningu viðmiða sem tryggja að minnsta kosti 90% föngun hvers mengunarefnis frá starfsemi sem tilgreind er í viðauka I, sbr. a til d-liður 2. mgr. 15. gr. Viðurlög og ráðstafanir til að tryggja reglufylgniAðildarríkin skulu ákvarða reglur um viðurlög fyrir brotum á innlendum ráðstöfunum sem samþykktar eru skv. þessari reglugerð og grípa til allra ráðstafana til að tryggja að þær séu innleiddar. Aðildarríkin skulu tilkynna framkvæmdastjórninni um þessar reglur og ráðstafanir og tilkynna um allar síðari breytingar sem hafa áhrif á þær, sbr. 1. mgr. 18. gr.Viðurlögin skulu vera sektir sem skulu reiknaðar út á þann hátt að tryggt sé að þær svipti þann sem ber ábyrgð á brotinu efnahagslegum ávinningi af því broti. Við ítrekuð brot skal hækka sektarstigið smám saman, sbr. 18. gr.Greinin tilgreinir einnig þær viðmiðanir sem aðildarríkin eiga að hafa í huga þegar þau setja viðurlög við brotum á ákvæðum reglugerðarinnar, eins og eðli, alvarleika og umfang brotsins, sbr. a til c-liður 3. mgr. 18. gr. og skorar á aðildarríkin að samþykkja eftirlitsráðstafanir til að koma í veg fyrir og uppgötva brot, sbr. 4. mgr. 18. gr. GildistakaReglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2028, sbr. 20. gr.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf nýja reglugerð og breyta 34. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Stofnunin bendir á að útbúin hafa verið drög að reglugerð um umhverfisupplýsingar sem var auglýst í samráðsgátt, Mál nr. S-126/2024.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Gera þarf kostnaðarmat.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1244
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1244, 2.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 157
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 981
52025PC0981
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

XC(2025) 6534
52025XC06534
based on
COM(2025) 981
52025PC0981
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytir (Modifies)

COM(2022) 157
52022PC0157
adopts Regulation (EU) 2024/1244 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 on reporting of environmental data from industrial installations, establishing an Industrial Emissions Portal and repealing Regulation (EC) No 166/2006 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32019R1243 implicitly repeals
32019R1010 implicitly repeals Regulation (EU) 2019/1010 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the alignment of reporting obligations in the field of legislation related to the environment, and amending Regulations (EC) No 166/2006 and (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council, Directives 2002/49/EC, 2004/35/EC, 2007/2/EC, 2009/147/EC and 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 338/97 and (EC) No 2173/2005, and Council Directive 86/278/EEC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009R0596 implicitly repeals
32006R0166 repeals Regulation (EC) No 166/2006 of the European Parliament and of the Council of 18 January 2006 concerning the establishment of a European Pollutant Release and Transfer Register and amending Council Directives 91/689/EEC and 96/61/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex