32019R1010
Regulation (EU) 2019/1010 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the alignment of reporting obligations in the field of legislation related to the environment, and amending Regulations (EC) No 166/2006 and (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council, Directives 2002/49/EC, 2004/35/EC, 2007/2/EC, 2009/147/EC and 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 338/97 and (EC) No 2173/2005, and Council Directive 86/278/EEC
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1010 frá 5. júní 2019 um samræmingu á kvöðum um skýrslugjöf á sviði löggjafar í tengslum við umhverfið og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 og (ESB) nr. 995/2010, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, 2004/35/EB, 2007/2/EB, 2009/147/EB og 2010/63/ESB, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 338/97 og (EB) nr. 2173/2005 og tilskipun ráðsins 86/278/EBE
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 300/2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með gerðinni er verið að breyta ýmsum evrópugerðum hvað varðar skýrslugjöf aðildarríkja til ESB varðandi umhverfisrétt
Nánari efnisumfjöllun
Með gerðinni er verið að breyta ýmsum evrópugerðum hvað varðar skýrslugjöf aðildarríkja til ESB varðandi umhverfisrétt.Þær gerðir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn sem um ræðir eru:Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 frá 18. janúar 2006 um að koma á fót Evrópuskrá yfir losun og flutning mengunarefna og um breytingu á tilskipunum ráðsins 91/689/EBE og 96/61/EBReglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október 2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markaðTilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB frá 25. júní 2002 um mat og stjórn á hávaða í umhverfinuTilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/35/EB frá 21. apríl 2004 um umhverfisábyrgð í tengslum við varnir gegn umhverfistjóni og úrbætur vegna þessTilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyniTilskipun ráðsins 86/278/EEC frá 12. júní 1986 um verndun umhverfisins, einkum jarðvegs, þegar seyra frá skólphreinsistöðvum er notuð í landbúnað.Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/2/EB frá 14. mars 2007 um að koma á grunngerð fyrir landupplýsingar í Evrópubandalaginu (INSPIRE)Einnig er verið að breyta eftirfarandi gerðum sem ekki hafa verið teknar upp í EES-samninginn:Council Regulation (EC) No 338/97 of 9 December 1996 on the protection of species of wild fauna and flora by regulating trade thereinCouncil Regulation (EC) No 2173/2005 of 20 December 2005 on the establishment of a FLEGT licensing scheme for imports of timber into the European CommunityDirective 2009/147/EC on the conservation of wild birdsBreytingin á framangreindum gerðum er ætluð til þess að bregðast við þörfinni á frekari upplýsingum frá aðildarríkjunum um framkvæmd og fylgni við umhverfislöggjöf ESB. Breytingin er gerð með hliðsjón af skýrslu Framkvæmdarstjórnar ESB frá 9. júní 2017 um aðgerðir til þess að einfalda upplýsingagjöf á sviði umhverfismála sem og skýrslu sem henni fylgdi er varðaði athugun á stöðu á upplýsingagjöf og eftirliti hvað varðar Umhverfisstefnu ESB frá 9. júní 2017. Vísað er í þessar skýrslur sem „Athugun á stöðu upplýsingagjafar“.Með reglugerðinni er stefnt er að því að nútímavæða upplýsingastjórnun og tryggja samkvæmni löggjafarinnar sem gerðin nær til með því að einfalda upplýsingagjöf til þess að draga úr byrði á stjórnsýslunni, bæta við þær upplýsingar sem fyrir liggja til þess að liðka fyrir um því mati sem síðar mun fara fram. Stefnt er að því að auka gagnsæi til hagsbóta fyrir almenning.Eftirfarandi greining miðast við þá forsendu að heppilegt sé að mælt sé fyrir um upplýsingagjöf íslenskra stjórnvalda skv. gerðum sem teknar hafa verið upp í EES samninginn, í íslenskri löggjöf. Framangreint er til þess fallið að auka skilvirkni og auðvelda stofnunum og þeim sem taka saman upplýsingarnar að uppfylla skyldur sínar. 1. gr.Breytingar á Tilskipun ráðsins 86/278/EEC frá 12. júní 1986 um verndun umhverfisins, einkum jarðvegs, þegar seyra frá skólphreinsistöðvum er notuð í landbúnað. Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð nr. 799/1999 um meðhöndlun seyru.Tveimur nýjum skilgreiningum hefur verið bætt við 2. gr. tilskipunarinnar, annars vegar Vefþjónustur fyrir landupplýsingar (e. spatial data services) og Landupplýsingagagnasett (e. spatial data set)10. gr. hefur verið skipt út. Við hefur verið bætt nýjum e) lið við 1. mgr. en skv. honum eiga aðildarríkin að geta kallað eftir viðbótarupplýsingum sem tengjast innleiðingu á tilskipuninni í samræmi við 17. gr. Birta skal gögnin sem um ræðir í 1. mgr. í vefþjónustu fyrir landsupplýsingar, innan átta mánaða frá lok hvers almanaksárs. Framangreint skal gert skv. ákvörðun Framkvæmdastjórnarinnar 94/741/EC. Einnig skulu aðildarríkin skila gögnunum til Framkvæmdastjórnarinnar á rafrænan máta. Upplýsingum um meðhöndlun á seyru og niðurstöður sýnatöku skal skilað til lögbærs yfirvalds.17. gr. hefur verið skipt út. Nú kemur fram að Framkvæmdastjórnin skuli gefa út framkvæmdagerðir um sniðmát fyrir skýrsluskil aðildarríkjanna skv. 10. gr. Framkvæmdastjórnin skal birta gögnin frá aðildarríkjunum. Hingað til hefur Umhverfisstofnun ekki tekið saman eða skilað inn gögnum um magn og meðhöndlun á seyru. Ástæðan er að ákvæðum um hreinsun á skólpi hefur ekki verið nægjanlega vel fylgt eftir á landsvísu svo söfnun á seyru er afar lítil. Helsta breytingin er að í stað gagnaskila á 3 ára fresti skal skila gögnum á hverju ári. Umhverfisstofnun þarf að aðlaga núverandi gagnagrunn að upplýsingaskilum fyrir seyru og samræma gagnaskil frá heilbrigðisnefndum um allt land. Heilbrigðisnefndirnar bera ábyrð á að taka saman gögn frá sínu eftirlitssvæði. Mögulega þarf ákvæði í ákvörðun sameignlegu EES nefndarinnar sem heimilar gagnaskil EFTA ríkjanna í sameiginlega gagnagátt ESB.Lagt er til að ákvæði um upplýsingaskil verði innleidd með í reglugerð nr. 799/1999 um meðhöndlun seyru. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins.2. gr.Breytingar á Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB frá 25. júní 2002 um mat og stjórn á hávaða í umhverfinu. Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005.Nýrri skilgreiningu hefur verið bætt við reglugerðina: gagnagrunnur (e. data respository) en þar er átt við gagnagrunn á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu er geyma skal upplýsingar um hávaða frá aðildarríkjunum.5. mgr. 8. gr.: Fresti á endurskoðun sem á að fara fram á aðgerðaráætlunum skv. 1. mgr. greinarinnar sem átti að fara fram árið 2023 hefur verið breytt og frestað fram til í síðasta lagi 18. júlí 2024.Um endurskoðun aðgerðaráætlana er fjallað um í 3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 1000/2005. Þar kemur fram að meta skuli á a.m.k. 5 ára fresti hvort aðgerðaráætlanir skuli endurskoðaðar og oftar ef nauðsyn ber til, t.d. þegar umfangsmiklar framkvæmdir á svæðinu geta haft áhrif á hljóðstig. Breytingin felst í því að endurskoðun sem átti að ljúka 2023 hefur verið frestað. Ekki er mælt fyrir um framangreindan frest í reglugerðinni.1. mgr. 9. gr.: Ákvæðið fjallar um aðgang almennings að upplýsingum um hávaðakortlagningu. Ákvæðinu hefur verið breytt á þá leið að nú er vísað til tveggja tilskipana, a) 2003/4/EC um almennan aðgang að upplýsingum um umhverfismál og b) tilskipun 2007/2/EC um að koma á grunngerð fyrir landupplýsingar í Evrópubandalaginu (INSPIRE). Áður var vísað til tilskipunar 90/313/EEC sem tekin var upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi. Um aðgang almennings að framangreindum upplýsingum er fjallað um í 10. gr. reglugerðar nr. 1000/2005.2. mgr. 10. gr.: Aðildarríki skulu senda hávaðakortlagningu og útdrátt úr aðgerðaráætlunum innan 6 mánaða frá þeim dagsetningum sem fjallað er um í 7. og 8. gr. reglugerðarinnar. Við ákvæðið hefur nú verið bætt þeirri skyldu aðildarríkja að skila upplýsingunum í gagnagrunn sem framkvæmdastjórnin skal koma á laggirnar með framkvæmdagerðum sem sett skal skv. málsmeðferð sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 13. gr. Þegar aðildarríki vilja uppfæra upplýsingar (hávaðakortlagning og aðgerðaráætlanir) skulu þau lýsa því í hverju uppfærslan felst, munurinn á eldri gögnum og þeim uppfærðu og ástæðu þess að uppfæra eigi gögnin. Ekki er mælt fyrir um framangreind skil í reglugerð 1000/2005. Gerðin sem mælt er fyrir um í ákvæðinu er í vinnslu.Viðauki VI, málsliður 3: Viðaukinn listar upp þær upplýsingar sem sendast skulu til Framkvæmdastjórnarinnar. Áður kom fram í 3. málslið að Framkvæmdastjórnin gæti útbúið viðmið til þess að leiðbeina um skýrsluskil. Málsliðnum hefur verið breytt á þann hátt að nú segir að Framkvæmdastjórnin, með hjálp Umhverfisstofnunar Evrópu, skuli með framkvæmdarreglugerðum, útbúa gagnagrunn sem aðildarríkjum ber að nota til þess að deila hávaðakortlagningu sem og úrdrætti úr aðgerðaráætlun eins og nú er fjallað um í 2. mgr. 10. gr.Lagt er til að um skilin verði fjallað í reglugerðinni og henni verði breytt á þann hátt að Umhverfisstofnun skuli skila gögnum skv. 5. mgr. 7. gr. (hávaðakort) og 6. mgr. 8. gr. (aðgerðaráætlanir). Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins. 3. gr.Breytingar á Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/35/EB frá 21. apríl 2004 um umhverfisábyrgð í tengslum við varnir gegn umhverfistjóni og úrbætur vegna þess. Tilskipunin hefur verið innleidd með með lögum nr. 55/2012 um umhverfisábyrgð.2. mgr. 14. gr. hefur verið felld á brott. Í greininni kom fram að Framkvæmdastjórnin skyldi, fyrir 30. apríl 2010, gefa út skýrslu um árangur tilskipunarinnar.Framangreint var ekki sérstaklega innleitt í lög nr. 55/2012 og þarf því ekki breytinga við.18. gr. tilskipunarinnar hefur verið skipt út. Í 18. gr. var áður fjallað um skyldu aðildarríkja til þess að gefa Framkvæmdastjórninni skýrslu um fengna reynslu af beitingu tilskipunarinnar fyrir 30. apríl 2013. Framkvæmdastjórnin skyldi á grundvelli þeirra leggja skýrslu fyrir Evrópuþingið og ráðið fyrir 30. apríl 2014. Nú kemur fram að Framkvæmdastjórnin skuli safna saman upplýsingum frá aðildarríkjum skv. tilskipun 2003/4/EC um almennan aðgang að upplýsingum um umhverfismál. Upplýsingarnar skulu vera í samræmi við viðauka VI sem er líka breytt með reglugerðinni. Framkvæmdastjórnin skal safna upplýsingunum saman fyrir 30. apríl 2022, eftir það á fimm ára fresti. Á grundvelli upplýsinganna skal Framkvæmdastjórnin gera skýrslu um tilskipunina og búa til leiðbeiningar um hugtakið umhverfistjón í skilningi tilskipunarinnar.Viðauki VI: Viðaukanum hefur verið skipt út. Viðaukinn hefur verið styttur og einfaldaður. Áður var ítarlegra fjallað um þær upplýsingar sem aðildarríkjum er annars vegar skylt og hins vegar heimilt að skila með skýrslum skv. 18. gr. tilskipunarinnar. Nú eru einungis 2 stafliðir í 1. mgr. um þær upplýsingar sem skulu koma fram í framangreindum skýrslum. Í 2. mgr. viðaukans kemur fram að aðildarríki skuli einnig bæta við upplýsingum um reynslu sem þau hafa öðlast í tengslum við beitingu tilskipunarinnar. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins. 4. gr.Breyting á Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/2/EB frá 14. mars 2007 um að koma á grunngerð fyrir landupplýsingar í Evrópubandalaginu (INSPIRE). Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð nr. 414/2014 um stafrænar landupplýsingar. Landmælingar íslands fara með framkvæmd reglugerðarinnar. 1. ml. 2. mgr. 21. gr tilskipunarinnar hefur verið breytt. Í 1. ml. var áður tekið fram að aðildarríkin skyldu senda Framkvæmdastjórninni, fyrir 15. maí 2010, skýrslu varðandi atriði er upp eru talin í stafliðum a) til e) í 2. mgr. Nú kemur fram að aðildarríkin skuli uppfæra (ef nauðsynlegt er) og birta skýrslu um þau atriði er birtast í stafliðum a) til e) í 2. mgr. Skýrslur skuli gerðar opinberar af Framkvæmdastjórninni í samráði við Umhverfisstofnun Evrópu.3. mgr. 21. gr. tilskipunarinnar hefur verið felld á brott.23. gr. hefur verið skipt út. Áður kom fram að fyrir 15. maí 2014 og á sex ára fresti eftir það, skuli Framkvæmdastjórnin kynna fyrir Evrópuráðinu og þinginu, skýrslu um framkvæmd tilskipunarinnar sem byggist á skýrslum frá aðildarríkjum. Nú kemur fram að Umhverfisstofnun Evrópu skuli uppfæra og birta árlega yfirlit yfir upplýsingar sem borist hafa frá aðildarríkjum í samræmi við 21. gr. Í ákvæðinu er einnig fjallað um skyldu Framkvæmdastjórnarinnar til þess að meta framkvæmd og árangur af tilskipuninni og birta matið opinberlega. Þetta skal fara fram fyrir 1. janúar 2022 og á fimm ára fresti eftir það. Fram kemur á hverju matið skuli byggt. Lagt er til að 4. gr. verði innleidd með tilvísun, í reglugerð nr. 414/2014 um stafrænar landsupplýsingar. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins. 5. gr.Breyting á Tilskipun 2009/147/EC um verndun villtra fugla. Tilskipunin hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. 6. gr.Breyting á Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Matvælastofnun fer með framkvæmd reglugerðarinnar.2. og 3. mgr. 43. gr. hefur verið skipt út. Fyrri málsliður 2. mgr. er efnislega sá sami en þar er mælt fyrir um að aðildarríkin geti krafist þess að í samantekt um tilraun (sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 460/2017) komi fram hvort það verkefni sem um ræðir skuli undirgangast mat á árangri, og fyrir hvaða tímasetningu slíkt skuli fara fram. Síðari málsliður 2. mgr. var áður sá að aðildarríkin skyldu, ef slíkt mat færi fram, tryggja að samantektin yrði uppfærð með niðurstöðum matsins. Þeim málslið hefur verið skipt út og felst breytingin í því að framangreint eigi að tryggja innan sex mánaða eftir að niðurstöður matsins liggja fyrir. Í 3. mgr. 43. gr. kom áður fram að aðildarríkin eigi að birta samantekt um tilraun af leyfðum verkefnum og hvers kyns uppfærslur á þeim. 3. mgr. hefur verið breytt á þann hátt að framangreint hafi átt við þar til 31. desember 2020. Frá 1. janúar 2021 skuli aðildarríkin senda samantekt um tilraunir til Framkvæmdastjórnarinnar á rafrænan hátt, hið síðasta innan 6 mánaða frá því að leyfi var veitt sem og hvers kyns uppfærslur á því. Lagt er til að framangreindri skyldu verði bætt við 7. gr. reglugerðar nr. 460/2017.Við 43. gr. hefur verið bætt við málsgrein (4. mgr.) þar sem fram kemur að Framkvæmdastjórnin skuli, með framkvæmdarreglugerð, útbúa sniðmát fyrir þær upplýsingar sem talað er um í greininni. Framkvæmdastjórnin skuli viðahlda úti gagnagrunni um samtektir um tilraunir og uppfærslur á þeim.54. gr. hefur verið breytt. Titli greinarinnar, 1., 2. og 4. mgr. hefur verið skipt út. Breyting á greininni felst ekki í því hvaða upplýsingum skal skilað heldur hvenær þeim skal skilað og hvernig. Aðildarríkin skuli skila upplýsingum skv. 1. mgr. (um framkvæmd tilskipunarinnar) og 2. mgr. (um notkun dýra í tilraunum) á rafrænu formi á þann hátt sem Framkvæmdastjórnin ákveður sbr. 4. mgr. Framkvæmdastjórnin skal svo birta upplýsingarnar og uppfæra reglulega. Í breyttri 4. mgr. kemur fram að Framkvæmdastjórnin skuli setja framkvæmdareglugerð um form upplýsinga sem aðildarríkin skuli standa skil á skv. 54. gr. Lagt er til að skyldu til að standa skil á framangreindum upplýsingum verði bætt við reglugerð nr. 460/2017.57. gr. hefur verið felld niður. Í greininni var fjallað um skýrslugjöf Framkvæmdastjórnarinnar. Sú grein var ekki innleidd í reglugerð 460/2017 og þarf því ekki breytinga við. 7. gr.Breyting á Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 frá 18. janúar 2006 um að koma á fót Evrópuskrá yfir losun og flutning mengunarefna og um breytingu á tilskipunum ráðsins 91/689/EBE og 96/61/EB. Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð 990/2008 um útstreymisbókhald.2. undirmálsgrein 1. mgr. 5. gr. hefur verið skipt út. Breytingin felst í því að nú er vísað í að rekstraraðilar skv. viðauka 1 skulu nú skila upplýsingum á því sniðmáti sem fjallað er um í 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar í stað 3. viðauka (felldur á brott). Nú er tekið fram að upplýsingunum skuli skilað á rafrænu formi.2. og 3. mgr. 7. gr. hefur verið skipt út. Í 2. mgr. er nú ekki lengur vísað í að aðildarríki skuli skila upplýsingum skv. 1. og 2. mgr. 5. gr. skuli fara fram skv. sniðmáti 3. viðauka, heldur er vísað í að Framkvæmdastjórnin skuli setja framkvæmdareglugerð um sniðmát og dagsetningar skila. Skil skulu fara fyrr fram en áður, 11 mánuðum eftir lok almanaksárs í stað 18 eins og áður var. Í 3. mgr. hefur fyrirkomulagi varðandi skil Framkvæmdastjórnarinnar í evrópska PRTR gagnagrunninn verið breytt.11. gr. hefur verið skipt út. Greinin fjallar um trúnaðarupplýsingar aðildarríkja og hefur orðalagi greinarinnar verið breytt til þess að auka gagnsæi aðildarríkjanna hvað varðar skýrslugjöf til Framkvæmdastjórnarinnar.16., 17. gr. og 3. viðauki hafa verið felld á brott. 16. gr. fjallaði um viðbótarupplýsingar sem aðildarríkin eiga að leggja fram. 17. gr fjallaði um athugun af hálfu framkvæmdastjórnarinnar. 3. viðauki var sniðmát til notkunar við skýrslugjöf aðildarríkjanna til Framkvæmdastjórnarinnar.Lagt er til að sú breyting sem felst í 7. gr. reglugerðar (ESB) 2019/1010 verði innleidd í reglugerð nr. 990/2008 um útstreymisbókhald með tilvísun. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins. 8. gr.Breyting á Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október 2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað. Tilskipunin hefur verið innleidd með reglugerð nr. 823/2016 um timbur og timburvöru. Mannvirkjastofnun fer með framkvæmd reglugerðarinnar.Titill, 1., 2. og 3. mgr. 20. gr. um skýrslugjöf hefur verið skipt út. Tímasetning skila aðildarríkjanna á skýrslu um framkvæmd reglugerðarinnar hefur verið breytt og skal nú skila skýrslu fyrir tvö ár í einu til Framkvæmdastjórnarinnar sem og gera skýrslur opinberar almenningi. Framkvæmdastjórnin skal setja framkvæmdareglugerð um útfærslu á sniðmáti og málsmeðferð fyrir aðildarríkin hvað framangreind skil varðar. Einnig hefur fyrirkomulagi hlutverks Framkvæmdastjórnarinnar á vettvangi ESB verið breytt hvað reglugerðina varðar.Lagt er til að sú breyting sem felst í 8. gr. reglugerðar (ESB) 2019/1010 verði innleidd í reglugerð nr. 823/2016 um timbur og timburvöru með tilvísun. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins. 9. gr.Breyting á Council Regulation (EC) No 2173/2005 of 20 December 2005 on the establishment of a FLEGT licensing scheme for imports of timber into the European Community. Tilskipunin hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. 10. gr.Breyting á Council Regulation (EC) No 338/97 of 9 December 1996 on the protection of species of wild fauna and flora by regulating trade therein. Tilskipunin hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. Þær íslensku reglugerðir og lög sem innleitt hafa þær gerðir sem breytt var með reglugerð 2019/1010, innihalda ekki ákvæði um skýrsluskil íslenskra stjórnvalda sem finna má í gerðunum. Lagt er til að slíkum ákvæðum verði bætt við íslensku reglugerðirnar um ræðir, bæði þar sem um er að ræða reglugerð ESB, sem taka skal beint upp í landsrétt, og að sú tilhögun er til þess fallin að auka skilvirkni og auðvelda stofnunum og þeim sem taka saman upplýsingarnar að uppfylla skyldur sínar. Taka þarf til skoðunar hvort í ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar skuli fjalla um gagnaskil EFTA ríkjanna í sameiginlega gagnagátt ESB. Taka þarf afstöðu til þess hvernig fyrirkomulag skila skuli vera m.t.t. tveggja stoða kerfis EES samningsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Reglugerð nr. 799/1999 um meðhöndlun seyru (lagastoð: lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og slög nr. 32/1986 um varnir gegn mengun sjávar) Reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 (lagastoð: lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir) Reglugerð nr. 414/2014 um stafrænar landupplýsingar (lagastoð: lög nr. 44/2011 um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar) Reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni (lagastoð: lög nr. 55/2013 um velferð dýra) Reglugerð 990/2008 um útstreymisbókhald (lagastoð: lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir) Reglugerð nr. 823/2016 um timbur og timburvöru (lagastoð: lög um timbur og timburvöru, nr. 95/2016) |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Landmælingar Íslands, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32019R1010 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 170, 25.6.2019, p. 115 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2018) 381 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 81 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/565, 24.4.2025 |
Breytt af (Modified by)
| SEC(2022) 196 52022SC0196 |
based on | ||
| SEC(2022) 195 52022SC0195 |
based on | ||
| 32024R1244 | implicitly repeals | Regulation (EU) 2024/1244 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 on reporting of environmental data from industrial installations, establishing an Industrial Emissions Portal and repealing Regulation (EC) No 166/2006 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32023R1115 | implicitly repeals | Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation and repealing Regulation (EU) No 995/2010 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytir (Modifies)
| COM(2018) 381 52018PC0381 |
adopts | Regulation (EU) 2019/1010 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the alignment of reporting obligations in the field of legislation related to the environment, and amending Regulations (EC) No 166/2006 and (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council, Directives 2002/49/EC, 2004/35/EC, 2007/2/EC, 2009/147/EC and 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 338/97 and (EC) No 2173/2005, and Council Directive 86/278/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010R0995 | amends | Regulation (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council of 20 October 2010 laying down the obligations of operators who place timber and timber products on the market | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010L0063 | amends, does deletion of, does insertion of, does replacement of | Directive 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council of 22 September 2010 on the protection of animals used for scientific purposes | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009L0147 | amends, does insertion of, does replacement of | ||
| 32007L0002 | amends, does deletion of, does replacement of | Directive 2007/2/EC of the European Parliament and of the Council of 14 March 2007 establishing an Infrastructure for Spatial Information in the European Community (INSPIRE) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
