32023R1115

Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation and repealing Regulation (EU) No 995/2010


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2023/1115 um að bjóða fram á markaði Sambandsins og flytja út frá Sambandinu tilteknar hrávörur og vörur sem tengjast eyðingu og hnignun skóga (EUDR) miðar að því að draga úr framlagi Evrópusambandsins til skógareyðingar og hnignunar skóga á heimsvísu. EUDR tekur til tiltekinna vara sem innihalda, hafa verið fóðraðar með eða hafa verið framleiddar úr nautgripum, kakói, kaffi, olíupálma, gúmmíi, soja eða timbri. Meginskilyrði markaðssetningar eru að vörurnar séu skógareyðingarlausar (e. deforestation-free), hafi verið framleiddar í samræmi við lög framleiðslulands og að áreiðanleikakönnun hafi farið fram í samræmi við ákvæði EUDR. EUDR leysir af hólmi reglugerð (ESB) nr. 995/2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað og felur í sér víðtækari skyldur fyrir rekstraraðila og kaupmanna, auk aukinna krafna um rekjanleika, upplýsingaskil og opinbert eftirlit.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið EUDR er að draga úr framlagi Evrópusambandsins til eyðingar og hnignunar skóga á heimsvísu og stuðla þannig að minni losun gróðurhúsalofttegunda og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Reglugerðin leysir af hólmi reglugerð (ESB) nr. 995/2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað og hefur víðtækara gildissvið en sú reglugerð. Hún tekur til nautgripa, kakós, kaffis, olíupálma, gúmmís, soja og timburs, auk tiltekinna vara sem innihalda, hafa verið fóðraðar með eða hafa verið framleiddar úr þessum hrávörum. EUDR setur þrjú meginskilyrði fyrir markaðssetningu og útflutningi viðkomandi vara. Í fyrsta lagi skal varan vera skógareyðingarlaus (e. deforestation-free).  Í öðru lagi skal varan hafa verið framleidd með lögmætum hætti í samræmi við lög framleiðslulands. Í þriðja lagi skal yfirlýsing um áreiðanleikakönnun (e. due diligence statement) liggja fyrir vegna vörunnar. Reglugerðin gerir greinarmun á hlutverkum rekstraraðila (e. operator) og kaupmanna (e. trader). Rekstraraðili er einstaklingur eða lögaðili sem fyrst setur viðkomandi vöru á innri markað Evrópu.  Kaupmaður er hins vegar einstaklingur eða lögaðili í aðfangakeðjunni, annar en rekstraraðili, sem býður vöruna fram á markaðnum í tengslum við viðskiptastarfsemi. Áður en vara er sett á markað ber rekstraraðilum og stærri kaupmönnum (e. non-SME traders) að framkvæma ítarlega áreiðanleikakönnun og skila yfirlýsingu um hana í upplýsingakerfi framkvæmdastjórnar ESB. Áreiðanleikakönnunin felur meðal annars í sér umfangsmikla upplýsingaöflun um framleiðsluferil vörunnar, áhættumat og viðeigandi ráðstafanir til að draga úr áhættu. Með því að skila yfirlýsingunni tekur viðkomandi aðili ábyrgð á því að varan uppfylli skilyrði reglugerðarinnar.  Með reglugerðinni er komið á þriggja þrepa kerfi þar sem framleiðslulönd eða landssvæði eru flokkuð eftir áhættu á að þar séu framleiddar hrávörur sem uppfylla ekki skilyrði reglugerðarinnar. Framkvæmdastjórn ESB annast flokkunina á grundvelli hlutlægs og gagnsæs mats, nýjustu vísindagagna og alþjóðlega viðurkenndra heimilda. Við matið er meðal annars litið til skógareyðingar og hnignunar skóga, stækkunar landbúnaðarsvæða, framleiðsluhorfa, loftslagsskuldbindinga, annarra samninga og löggjafar viðkomandi lands. Flokkunin hefur áhrif á kröfur um umfang áreiðanleikakönnunar og eftirlits.  Ríkjum ber að tilnefna eitt eða fleiri lögbær yfirvöld til að annast framkvæmd reglugerðarinnar. Yfirvöldin skulu setja sér árlega eftirlitsáætlun og tryggja tiltekið lágmarksumfang eftirlits með rekstraraðilum og kaupmönnum. Þau skulu hafa vald til að framkvæma ítarlegar úttektir á rekstraraðilum og kaupmönnum. Reglugerðin leggur jafnframt ríka áherslu á samstarf og upplýsingamiðlun milli aðildarríkja og lögbærra yfirvalda þeirra.  Reglugerðin kveður einnig á um aukið samstarf milli lögbærra yfirvalda og tollyfirvalda við eftirlit á ytri landamærum. Þannig geta tollyfirvöld til dæmis stöðvað afgreiðslu vöru í frjálst flæði á meðan lögbært yfirvald metur efnislega hvort skilyrði reglugerðarinnar séu uppfyllt. Reglugerðin veitir almenningi og hagsmunaaðilum jafnframt kost á að koma rökstuddum ábendingum um möguleg brot gegn ákvæðum hennar á framfæri við lögbær yfirvöld. Samkvæmt reglugerðinni skulu aðildarríki setja reglur um viðurlög við brotum gegn ákvæðum hennar og gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að þeim sé beitt. Viðurlögin skulu meðal annars fela í sér sektir, upptöku viðkomandi vara og tekna af viðskiptum með þær og tímabundna útilokun frá opinberum innkaupum og aðgangi að opinberri fjármögnun. Fjárhæð sekta skal taka mið af umhverfisspjöllum og verðmæti viðkomandi vara. Þegar lögaðili á í hlut skal hámarksfjárhæð sekta nema að lágmarki 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Atvinnuvegaráðuneyti, Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Matvælastofnun, Ríkisskattstjóri, Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1115
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 150, 9.6.2023, p. 206
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 706
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 652
52025PC0652
Regulation (EU) 2025/2650 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2025 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards certain obligations of operators and traders Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
COM(2024) 452
52024PC0452
Regulation (EU) 2024/3234 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards provisions relating to the date of application Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytt af (Modified by)

XC(2025) 4524
52025XC04524
based on
COM(2025) 652
52025PC0652
proposes to amend Regulation (EU) 2025/2650 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2025 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards certain obligations of operators and traders Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
IP(2025) 149
52025IP0149
based on
XC(2024) 6789
52024XC06789
based on
COM(2024) 452
52024PC0452
proposes to amend Regulation (EU) 2024/3234 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards provisions relating to the date of application Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2021) 706
52021PC0706
adopts Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation and repealing Regulation (EU) No 995/2010 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32019R1010 implicitly repeals Regulation (EU) 2019/1010 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the alignment of reporting obligations in the field of legislation related to the environment, and amending Regulations (EC) No 166/2006 and (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council, Directives 2002/49/EC, 2004/35/EC, 2007/2/EC, 2009/147/EC and 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council, Council Regulations (EC) No 338/97 and (EC) No 2173/2005, and Council Directive 86/278/EEC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32010R0995 repeals Regulation (EU) No 995/2010 of the European Parliament and of the Council of 20 October 2010 laying down the obligations of operators who place timber and timber products on the market Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E192 based on

Samantekt EUR-Lex