MRR breytingargerð (m.a. non-CO2 effects, útreikningur umhverfisvæns eldsneytis, CCS, CCU og nýir málmar). - 32024R2493

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/2493 of 23 September 2024 amending Implementing Regulation (EU) 2018/2066 as regards updating the monitoring and reporting of greenhouse gas emissions pursuant to Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2493 frá 23. september 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 að því er varðar uppfærslu á vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 183/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér breytingar á reglugerð (ESB) 2018/2066 (MRR) sem lítur að vöktun og skýrslugjöf í ETS-kerfinu hvað varðar iðnað, flug og nýtt ETS-kerfi fyrir losun frá byggingum, vegasamgöngum og öðrum geirum (ETS2-kerfið). Helstu breytingar snúa að eftirfarandi:
• Öðrum áhrifum frá flugstarfsemi en frá koldíoxíð (non-CO2 effects).
• Útreikning losunar vegna umhverfisvæns eldsneytis.
• Geymslu koldíoxíðs (CCS).
• Gróðurhúsalofttegundum sem eru varanlega bundnar með efnatengjum í vöru og losna ekki út í andrúmsloftið við venjulega notkun (CCU).
• Nýjum málmum.

Nánari efnisumfjöllun

Þær breytingar sem gerðin felur í sér eru flestar nátengdar og eðlilegt framhald breytinga sem hafa nú þegar verið gerðar á tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipunin). Hér að neðan er gerð grein fyrir helstu atriðum: Non-CO2 effects:Um er að ræða breytingar sem leiða af skyldu flugrekenda til að vakta og gefa yfirvöldum skýrslu um non-CO2 effects. Með þeirri breytingu sem hér um ræðir er skyldan á flugrekendur þ.a.l. útfærð frekar. Þannig kveður gerðin t.d. á um skyldu flugrekenda til að vakta non-CO2 effects skv. áætlun um vöktun sem uppfyllir nánar tilgreind skilyrði og hefur jafnframt hlotið samþykki viðeigandi yfirvalds. Einnig er fjallað um hvernig flugrekendur skuli haga útreikningi á losun non-CO2 effects og hvers konar kerfi sé heimilt að styðjast við þegar kemur að vöktuninni. Um skýrslugjöfina er svo fjallað sérstaklega og m.a. kveðið sérstaklega á um að skýrslu um non-CO2 effects skuli skilað sem fylgiskjali með skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda. Þá er vert að nefna að til viðbótar við framangreint lúta breytingarnar einnig að smærri þáttum sem hafa áhrif á færri flugrekendur, s.s. hvernig haga skuli skýrslugjöf þegar skortur er á upplýsingum og undantekningum sem ná til smærri flugrekenda. Í tengslum við vöktun og skýrslugjöf á non-CO2 effects í flugi bætast svo tveir nýjir viðaukar við MRR, þ.e. viðauki IIIa og IIIb.Útreikningur losunar vegna umhverfisvæns eldsneyti:Með umræddum breytingum á MRR koma inn kröfur er varða vöktun og skýrslugjöf vegna notkunar á endurnýjanlegu eldsneyti af ólífrænum uppruna (RFNBO), endurunnu kolefniseldsneyti (RCF), tilbúnu lágkolefnaeldsneyti (SLCF), sjálfbæru flugvélaeldsneyti (SAF) og öðru flugvélaeldsneyti sem er ekki úr jarðefnaeldsneyti. Markmiðið er því að bæta gæði upplýsinga í tengslum við eldsneyti með losunarstuðulinn núll og tryggja að kröfur til þess séu uppfylltar, s.s. með framvísun gagna um eiginleika eldsneytisins. Nokkuð ítarlega er fjallað um vöktun og skýrslugjöf vegna notkunar á því eldsneyti sem að framan greinir og í því sambandi t.a.m. fjallað um aðferð við útreikning eldsneytisins, vottun og hvernig komið skuli í veg fyrir tvítalningu. Einnig má nefna að með breytingunni getur notkun á umhverfisvænu eldsneyti haft áhrif á hvort eftirlitsskyldur aðili í ETS2-kerfinu teljist vera smálosandi. CCS:Breytingin sem hér um ræður felur einnig í sér að skerpt er á ýmsum atriðum sem lúta að niðurdælingu koldíoxíðs, s.s. til hvaða árs losun skal talin til o.s.frv. Einnig má nefna að með breytingunni er leitast við að skýra betur að vöktun skv. MRR á við um alla niðurdælingu koldíoxíðs, þ.e. einnig vegna starfsemi sem telst ekki til ETS-kerfisins.Þá skal tekið fram að gerðin felur í sér að bætt er við öðrum flutningsleiðum en pípum þegar er um að ræða CCS flutning. CCU: Með gerðinni koma inn ákvæði í MRR varðandi vöktun og skýrslugjöf vegna CCU. Fyrir breytinguna var engum slíkum atriðum fyrir að fara. Nýir málmar:Við breytinguna er gildissvið MRR útvíkkað og nær það nú einnig til framleiðslu súráls, sem og alls járns.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin felur í sér atriði tengd vöktun og skýrslugjöf vegna losunar í ETS2-kerfinu sem er ekki enn innleitt í íslenskan rétt. Ekki er því til staðar reglugerðarheimild fyrir innleiðingu þessara atriða o.þ.a.l. nauðsynlegt að gera breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir nr. 96/2023, hvað það varðar.

Þá er í 2. málsl. 4. mgr. 11. gr. ETS-laganna eingöngu kveðið á um að ráðherra sé heimilt að setja reglugerð um útreikning losunar vegna RFNBO og RCF. Hvergi í lögunum er hins vegar fjallað um útreikning á öðru umhverfisvænu eldsneyti sem notað er í iðnaði eða í ETS2-kerfinu og því ekki til staðar heimild til innleiðingar á því sem snýr að SLCF. Gera þarf breytingar á lögunum með hliðsjón af þessu atriði.

Að öðru leyti er mögulegt að innleiða gerðina með breytingu á reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, eða með nýrri reglugerð um sama efni sem er ætlað að taka við af henni. Slík reglugerð myndi hafa stoð í 4. mgr. 11. gr. ETS laganna og er eðlilegt að við innleiðinguna sé notast við tilvísunaraðferð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Flugrekendur., Rekstraraðilar í staðbundinni starfsemi., Eftirlitsskyldir aðilar í ETS2-kerfinu
Niðurstöður samráðs Á ekki við.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Nýjar reglur fela ávallt í sér fleiri þætti fyrir Umhverfis- og orkustofnun til að leiðbeina um, hafa eftirlit með o.s.frv.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Gerðin hefur fyrst og fremst áhrif á hvernig flugrekendur, rekstraraðilar og eftirlitsskyldir aðilar haga skýrslugjöf sinni. Þá hefur hún t.d. áhrif á aðila sem fara yfir skýrslur, s.s. vottunaraðila og Umhverfis- og orkustofnun.
Þótt breytingarnar feli í sér að vakta þurfi fleiri þætti en áður verður ekki séð að heilt yfir sé um íþyngjandi áhrif að ræða.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R2493
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2493, 27.9.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 69, 6.11.2025, p. 46
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2117, 6.11.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1

Breytir (Modifies)

32018R2066 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi