Útdráttur
Markmiðið er að til verði sérstakt kerfi til að meta og staðfesta stöðugleika nothæfis byggingarvöru m.t.t. mikilvægra eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum. Þannig á að tryggja samræmt mat á byggingarvörum frá umhverfislegum sjónarhóli. Áhrif eðlileg og jákvæð. Kostnaður óverulegur fyrir hið opinbera.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að til verði sérstakt kerfi til að meta og staðfesta stöðugleika nothæfis byggingarvöru m.t.t. mikilvægra eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum með samræmdum hætti. Þannig á að tryggja samræmt mat á byggingarvörum frá umhverfislegum sjónarhóli.Efnisútdráttur: Við framleiðslu og markaðssetningu byggingavara er gerð krafa um að mat og staðfesting á nothæfi slíkra vara og stöðugleika nothæfis m.t.t. mikilvægra eiginleika vörunnar fari fram í samræmi við ákveðin ferli. Með öðrum orðum beinist matið og staðfestingin að því hvort varan búi yfir þeim eiginleikum sem nauðsynlegir eru miðað við áformuð not og hvort stöðugleiki nothæfisins sé þá tryggður í framleiðslunni. Sem dæmi má nefna að mat og staðfesting á nothæfi glugga beinist m.a. að því hvort hann uppfylli kröfu um slagregnsþéttleika. Kerfin sem fara þarf eftir við matið eru kölluð Assessment and Verification of Constancy of Performance, eða (AVCP-kerfi). Í sumum tilfellum sjá framleiðendur sjálfir um vissa þætti í ferlinu en í öðrum þarf að fá utanaðkomandi eftirlitsaðila til að votta að varan standist kröfur. Þeir sem hafa heimild til að votta slíkt eru nefndir yfirlýstir aðilar.Það sem hér um ræðir er nýtt kerfi sem markar ramma um mat og staðfestingu á nothæfi og stöðugleika nothæfis m.t.t. mikilvægra eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum. Þegar búið er að gera ráð fyrir slíkum eiginleikum í vörustöðlum og gera kröfur til byggingarvara á grundvelli þeirra, er með hinu nýja kerfi hægt að meta og staðfesta nothæfi byggingarvara með samræmdum hætti m.t.t. krafna er lúta að þessum eiginleikum. Með því móti er samkeppni síðan betur borgið en ella væri.Í greinargerð með reglugerðinni er fjallað um hvernig mat á mikilvægum eiginleikum m.t.t. sjálfbærni hefur verið gert hingað til og þeirri þörf sem er á að skilgreina sérstakt kerfi (AVCP-kerfi) vegna umhverfiseiginleika vöru. Framkvæmdastjórnin vísar í greinargerðinni til heimilda sinna skv. reglugerð (ESB) nr. 305/2011 til að setja á fót nýtt kerfi til staðfesta þessa eiginleika sem kallað verður AVCP kerfi 3+. Þar á framkvæmdastjórnin að skilgreina þær aðferðir sem þarf að beita við mat og staðfestingu á að nothæfi byggingarvara m.t.t. mikilvægra eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum þannig að það sé gert með stöðugum og samræmdum hætti. Í nýju kerfi er tilgreint hvaða skyldur hvíla á framleiðendum byggingarvara í þessu sambandi og hverju svonefndir tilkynntir aðilar þurfi að sinna.Í greinargerðinni er m.a. bent á Græna samninginn, e. Green Deal, og aðgerðaáætlun um hringrásarhagkerfi. Bent er á mikilvægi þess að lög og reglur um byggingarvörur styðji við betri orku- og auðlindanýtingu. Af hálfu framkvæmdastjórnarinnar er bent á að bæði Evrópuþingið og -ráðið hafi kallað eftir aðgerðum til að styðja hringrásarhagkerfi byggingarvara. Niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar er að þörf sé á að setja á fót nýtt AVCP-kerfi til að meta mikilvæga eiginleika byggingarvara út frá þeim áhrifum sem þær hafa á umhverfið. Slíkt kerfi bæti samræmda nálgun ríkja á innri markaðnum og stuðli að bættri samkeppnishæfni evrópska byggingargeirans í heild.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Líkt og fram kemur í greinargerðinni með reglugerðinni sem hér er til skoðunar er ætluninn með henni að stuðla að því að nothæfi byggingarvara séu metið með samræmdum hætti m.t.t. mikilvægra eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum. Slíkt kerfi stuðlar að ábyrgara mati og jafnari samkeppni ef gerð er krafa um að byggingarvara hafi slíka eiginleika. Slíkir eiginleikar verða þá hluti af þeim atriðum sem samkeppni er um.Enn sem komið er eru ekki gerðar kröfur í löggjöf sem Ísland hefur tekið upp í EES-samninginn um að byggingarvörur verði að uppfylla nothæfi m.t.t. eiginleika sem snerta sjálfbærni í umhverfismálum. Með reglugerðinni sem hér er til skoðunar, ásamt viðaukum hennar, er í raun „aðeins“ verið að setja á fót kerfi svo hægt sé að meta umrædda eiginleika með samræmdum hætti.Að teknu tilliti til framangreinds er ekki talið tilefni til að breyta reglum hérlendis umfram það sem verður vegna sjálfrar innleiðingar gerðarinnar.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lög um byggingarvörur nr. 114/2014, sbr. 2. mgr. 28. gr. og h-liður 60. gr. reglugerðar ESB nr. 305/2011.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Hér á landi er lítil framleiðsla á byggingavörum og því takmörkuð áhrif af reglugerðinni hér á landi. Kostnaður hins opinbera óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: EkkiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei