32024R3084

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/3084 of 4 December 2024 on the functioning of the information system pursuant to Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3084 setur reglur um starfsemi upplýsingakerfisins sem komið var á fót á grundvelli reglugerðar (ESB) 2023/1115 (EUDR). Reglugerðin mælir meðal annars fyrir um notkun kerfisins við skil og meðferð yfirlýsinga um áreiðanleikakönnun, sjálfvirkt áhættumat, aðgangsheimildir notenda og yfirvalda og gagnaskipti milli lögbærra yfirvalda og tollyfirvalda. 

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3084 setur nánari reglur um starfsemi upplýsingakerfisins sem komið var á fót á grundvelli EUDR. Meginmarkmið EUDR er að draga úr framlagi Evrópusambandsins til eyðingar og hnignunar skóga á heimsvísu. Upplýsingakerfinu er ætlað að styðja við framkvæmd og eftirlit samkvæmt EUDR með því að halda utan um upplýsingar um þær vörur sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Kerfið er sjálfstæð eining innan TRACES-vettvangsins og framkvæmdastjórn ESB annast þróun þess, rekstur og viðhald. Í reglugerðinni eru afmörkuð hlutverk og ábyrgð rekstraraðila, kaupmanna, viðurkenndra fulltrúa þeirra, lögbærra yfirvalda, tollyfirvalda og framkvæmdastjórnarinnar við notkun kerfisins. Samkvæmt EUDR skulu rekstraraðilar og stærri kaupmenn framkvæma áreiðanleikakönnun áður en þeir setja viðkomandi vörur á markað og skila yfirlýsingu um könnunina. Upplýsingakerfið er vettvangur fyrir skil og meðferð þessara yfirlýsinga og gerir notendum kleift að halda utan um þær. Kerfið úthlutar hverri yfirlýsingu tilvísunarnúmeri og staðfestingarnúmeri. Notendum er jafnframt heimilt, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að breyta yfirlýsingum eða afturkalla þær innan tilskilins frests. Upplýsingakerfið styður lögbær yfirvöld við áhættumiðað eftirlit samkvæmt EUDR. Allar innsendar yfirlýsingar sæta sjálfvirkri rafrænni greiningu á áhættu og er hverri þeirra úthlutað áhættustöðu. Lögbær yfirvöld geta síðan endurskoðað einstakar yfirlýsingar og úthlutað þeim nýrri áhættustöðu. Kerfið gerir þeim einnig kleift að beina eftirliti að þeim aðilum og vörum þar sem talin er mest hætta á að kröfur EUDR séu ekki uppfylltar. Í tilteknum tilvikum geta yfirvöld frestað því að tilvísunarnúmer verði gert aðgengilegt eða hafnað yfirlýsingu til að koma í veg fyrir að vara sem uppfyllir ekki kröfur EUDR verði sett á markað. Kerfið veitir lögbærum yfirvöldum, tollyfirvöldum og framkvæmdastjórninni jafnframt aðgang að þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmdar og eftirlits samkvæmt EUDR og auðveldar upplýsingaskipti þeirra á milli. Reglugerðin mælir einnig fyrir um aðgangsheimildir, vinnslu og varðveislu persónuupplýsinga og öryggi og trúnað þeirra upplýsinga sem skráðar eru í kerfið.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R3084
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3084, 6.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R1115 based on Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation and repealing Regulation (EU) No 995/2010 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum